Þjóðviljinn - 03.09.1988, Side 17
ERLENDAR FRÉTTIR
Svæöisstjórn um málefni fatlaðra á Vestfjörðum
auglýsir eftir þroskaþjálfum við þjónustumiðstöð-
ina Bræðratungu ísafirði frá hausti eða eftir nán-
arasamkomulagi. Aðstoð við útvegun húsnæðis.
Nánari upplýsingar gefa forstöðumaður Bræðra-
tungu, Erna Guðmundsdóttir í síma 94-3290 og
framkvæmdastjóri Svæðisstjórnar í síma 94-
3224. Umsóknir óskast sendar til sömu aðila.
SVÆÐISSTJÓRN MÁLEFNA FATLAÐRA
VESTFJÖRÐUM
Þroskaþjálfar
Tyrkland
Barcaní flýr Irak
Eru írakar að fremja þjóðarmorð í norðri?
Tyrkneskir ráðamenn hafa
samþykkt að veita Masoud
Barzani, leiðtoga Kúrda í Irak,
hæli í landinu. Þetta var haft eftir
manni sem er handgenginn Túrg-
út Ozal, forsætisráðherra.
Skæruliðar Barzanís eiga nú
undir högg að sækja í stríðinu við
stjórnvöld í Bagdað og hafa
kúrdskir flóttamenn haldið tug-
þúsundum saman yfir til Tyrk-
lands. í gær sögðu íranskir ráða-
menn að þeir væru reiðubúnir að
létta undir með Tyrkjum og veita
hluta flóttamannanna hæli hjá
sér.
„Mir-Hossein Mousavi, for-
sætisráðherra írans, fullvissaði
mig um að allir kúrdskir flótta-
menn í Tyrklandi sem óskuðu
eftir því að fá að fara til frans
væru hjartanlega velkomnir,"
sagði Nuzhet Kandemir, emb-
ættismaður í utanríkisráðuneyt-
inu í Ankara. Hann hefur ferðast
ótt og títt á milli Tyrklands, íraks
og írans vagna þessa máls í um-
boði Ozals.
Ofannefndur félagi Ozals hafði
eftir forsætisráðherranum að
Barzaní hefði sjálfur ritað tyrkn-
eska sendiherranum í Teheran
bréf og beiðst hælis í Tyrklandi.
Kúrdaleiðtoginn fengi að dvelja
um skeið í Tyrklandi svo fremi
hann gerði ráðstafanir til þess að
komast til þriðja lands.
Að minnsta kosti 60.000 íraskir
Kúrdar hafa haldið yfir landa-
mærin til Tyrklands uppá síðkast-
ið. Þar af eru um þúsund skæru-
liðar úr Lýðræðisflokki Kúrda,
hreyfingu Barzanís.
Nú þegar hlé hefur orðið á bar-
dögum Iraka og írana hyggst
Saddam Hussein láta kné fylgja
kviði í norðri og brjóta upp-
reisnarhreyfingu Kúrda á bak aft-
ur í eitt skipti fyrir öll. Það er
kunnara en frá þurfi að segja að
íraksher hefur ítrekað beitt efna-
vopnum gegn Kúrdum.
Þegar Kandemir var í Bagdað
talaði hann máli Kúrda og reyndi
að leiða valdsherrunum fyrir
sjónir að þjóðarmorð á þeim yrði
mikill álitshnekkir fyrir íraka og
myndi leiða til einangrunar
þeirra á alþjóðavettvangi.
Hann virðist hafa talað fyrir
daufum eyrum því kúrdskir
flóttamenn sem nýkomnir eru
yfir til Tyrklands segja ljótar
sögur af efnavopnaárásum íraska
stjórnarhersins. Málsvari Lýð-
ræðisflokks Kúrda staðhæfði í
gær að hermenn Saddams Huss-
eins hefðu framið fjöldamorð á
Dahuk svæðinu þann 28. fyrra
mánaðar. Hefðu þeir myrt 1.300
manns, þar á meðal fjölda
kvenna og barna. Reuter/-ks.
Masoud Barzaní.
Slysfarir í agúrkutíð
ísraelskir karlmenn í hœttu
R
euter kallinn, sem bregður
stundum á leik þrátt fyrir
virðulegan aldur, sendi penna-
vinum sínum nýlega cftirfarandi
sögu: Konugarmur einn í Israel
varð svo áköf í bardaga sínum við
kakkalakka, sem gerði sig
heimakominn í setustofunni, að
hún lét sér ekki nægja að troða á
honum, dansa stríðsdans á hon-
um og kasta honum í salernis-
skálina, heldur hellti á hann úr
heilli dollu af skordýraeitri, þegar
kakkalakkinn sýndi einhvern bil-
bug í að hypja sig ad patres.
Skömmu síðar kom eiginmaður
konunnar þreyttur heim úr vinn-
unni og fékk sér smók til að hressa
sálina, en þegar hann kastaði síð-
an stubbnum í salernið í granda-
leysi, gaus þar upp eldstólpi mik-
ill og óvæntur, sem sveið illyrmis-
lega lostaliðinn. Kallað var á
sjúkrabíl í ofboði, en þegar eigin-
maðurinn var loks kominn á
sjúkrabörurnar, varð konunni
það á að segja sjúkraliðunum alla
sólarsöguna, og setti þá að þeim
þvílíkan hlátur að þeir misstu
börurnar niður stiga. I fallinu
rifbeins- og mjaðmarbrotnaði
eiginmaðurinn.
Eitthvað kom þessi saga
vönum blaðamanni, sem hefur
fylgst vel með dramatískum
heimsviðburðum árum saman,
kunnuglega fyrir sjónir. Eftir
stutta leit í atriðisorðaskrám í
minnisstöðvum heilans rifjaðist
það upp fyrir honum að slíkar
sögur hafa reyndar verið árviss
atburður um nokkurt skeið, hafa
þær jafnan gerst í ísrael og komið
í kunningjabréfum Reuters um
þetta leyti sumars, sem sé mitt í
agúrkutíðinni.
Fyrir tveimur eða þremur
árum var sagan t.d. eitthvað á
þessa leið: í sumarhitunum gerð-
ist það einu sinni sem oftar í Tel
Aviv að vaskur stíflaðist. Heimil-
isfaðirinn brást þá við skjótt,
kvaddi til pípulagningamann til
að gera við vaskinn, en þurfti síð-
an sjálfur að bregða sér frá. Pípu-
lagningamaðurinn sem var harla
léttklæddur og einungis í víðum
stuttbuxum að neðan gerði sér
lítið fyrir og skreið undir vaskinn.
í því bili bar að húsmóðurina á
heimilinu, en þar sem hún vissi
ekki hvað gerst hafði hélt hún að
það væri hennar eigin ektamaki
sem lá þarna hálfur undir va-
skinum. Við þessa sjón komst
hún í skap til að spauga og greip
snögglega í þann líkamshluta
mannsins sem henni fannst að
kæmi sér sérstaklega mikið við.
Pípulagningamaðurinn sem var
með allan hugann við stífluna og
átti sér einskis ills von braust um
á hæl og hnakka og varð það til
þess að vaskurinn losnaði við
fjörbrotin, datt ofan á manninn
og rifbeinsbraut hann. Sögulokin
voru svo eins og í fyrri sögunni:
kallað var á sjúkraliða, og þegar
konan játaði fyrir þeim málsatvik
misstu þeir sjúkrabörurnar,
þannig að pípulagningamaðurinn
mjaðmarbrotnaði ofan á allt ann-
að.
Fleiri sögur af þessu tagi hafa
borist, allar upprunnar á sama
heimshorni, og hafa þær reyndar
haft nokkur áhrif. í nokkuð sak-
lausri mynd virðist ein þeirra
meira að segja hafa slæðst inn í
íslenska kvikmyndagerð. En
hvaða lærdóm má svo af öllu
þessu draga? Kannske þann að
margt sé sér til gamans gert í ag-
úrkutíðinni, en þrátt fyrir allt sitt
hugmyndaflug komist blaða-
menn ekki mjög langt frá agúrk-
unni sjálfri og grípi til hennar
þegar annað bregst. Eða þá
þann, að þegar líður á sumar sé
ísraelskum karlmönnum hollast
að gæta leyndarlimsins vel.
reuter/-e.m.j.
ip Daggæsla
*' á einkaheimilum
Dagvist barna í Reykjavík tilkynnir að leyfisveit-
ingar fyrir daggæslu á einkaheimilum standa nú
yfir fram til 1. október 1988.
Vakin er athygli á því, að sérstaklega skortir dag-
mæður í eldri hverfi borgarinnar.
Umsóknareyðublöð liggja frammi á skrifstofu
Dagvistar barna, Hafnarhúsinu v/Tryggvagötu.
Nánari upplýsingar gefa umsjónarfóstrur í síma
27277.
Félagsmálastofnun
Reykjavíkurborgar
Utideild
Við í Útideild erum að leita að félagsráðgjöfum
eða fólki með sambærilega menntun til að starfa
með okkur.
Markmiðið með starfinu er fyrst og fremst að
hjálpa unglingum til að koma í veg fyrir að þeir
lendi í erfiðleikum og aðstoða þá ef slíkt kemur
fyrir. Lögð er rík áhersla á fyrirbyggjandi starf,
frumgreiningu vandamála, stuðning við einstak-
linga og hópstarf.
Ef þú hefur áhuga á spennandi og skemmtilegu
starfi með fámennum og nánum samstarfshóp,
þar sem fagmenntun þín nýtist vel, leggðu inn
umsókn til okkar. Vinnutíminn er sveigjanlegur.
Nánari upplýsingar getur þú fengið í síma 621611
og 622760 á skrifstofutíma.
Umsóknum ber að skila til starfsmannahalds
Reykjavíkurborgar, Pósthússtræti 9, 5. hæð, á
sérstökum eyðublöðum sem þar fást.
REYKJKMIKURBORG
^Lauidn. Stötuvi
Heilsuverndarstöð
Reykjavíkur
Óskar eftir að ráða:
Sjúkraliða: á næturvaktir í heimahjúkrun. 60%
starf.
Hjúkrunarfræðing: með Ijósmóðurmenntun við
mæðradeild, til að annast foreldrafræðslu. 50%
starf.
Skólahjúkrunarfræðinga: m.a. í Fellaskóla,
100% starf, og Öskjuhlíðarskóla, 50% starf.
Upplýsingar gefur hjúkrunarforstóri í síma 22400.
Umsóknum skal skilatil skrifstofu Heilsuverndar-
stöðvar Reykjavíkur, á eyðublöðum sem þar fást,
fyrir kl. 16.00 mánudaginn 12. september 1988.
Laugardagur 3. september 1988 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 17