Þjóðviljinn - 22.10.1988, Síða 2
FRÉTTIR
Ögmundur Jónasson, nýkjörinn formaður BSRB:
Aukin valddreifing og virkni
Hornsteinar í starfi BSRB í framtíðinni
að sem ég vil leggja áherslu á
er að BSRB eru samtök sem
margoft hafa sýnt að þau eru
sterk og öflug og það er mér mjög
í huga, þegar ég tek hér við for-
mennsku á hversu traustum
grunni er byggt. Þannig að það er
fyrst og fremst spurningin um að
halda því góða verki áfram. Hins
vegar verða ákveðnar áherslu-
breytingar og ég hef margoft lýst
því yfir að ég tel mestu máli skipta
að fylgja eftir hugmyndum um
valddreiflngu, sem ég tel í takt við
vilja okkar félagsmanna og verði
til að styrkja okkar samtök og
baráttu, sagði Ögmundur Jónas-
son í samtali við Þjóðviljann, rétt
eftir að hann hafði verið kjörinn
nýr formaður BSRB í gær.
Þú telur sem sagt að of mikillar
miðstýringar hafi gætt innan
BSRB?
„Það sjónarmið varð uppi,
eftir miklar umræður undanfarin
ár að færa samningsréttinn til ein-
stakra félaga, þannig að þessi
þróun hefur verið að eiga sér
stað. Hins vegar kemur það fram
á þessu þingi að menn vilja eftir
sem áður, að heildarsamtökin
verði sterk og að stofnanir sam-
takanna verði jafn vel efldar. Þá
er einkum átt við hvers kyns upp-
lýsingaöflun og miðlun. Þegar
minni félög þurfa að standa í sín-
um samningamálum sjálf, segir
það sig sjálft að það er þeim
styrkur að geta sótt hvers kyns
þjónustu til heildarsamtakanna.
Hins vegar hvað varðar að virkja
einstaka félaga BSRB að þá held
ég að við eigum mikið verk að
vinna og það tel ég mjög mikil-
vægt.
Mér hefur fundist halla á þau
sjónarmið í þjóðfélagsumræð-
unni sem við viljum halda fram
og ég held að hluti vandans sé að
samtök launamanna hafi verið of
miðstýrð og hafi átt sér of fáa tals-
menn. Það er engin ein leið til
lausnar þessum vanda, en ég tel
að það þurfi að styðja við bakið á
einstökum félögum til að virkja
einstaklingana til starfa. Þetta
kallar á nokkurs konar hugar-
farsbreytingu, kannski hefur ver-
ið gert of mikið að bíða eftir nið-
urstöðum einhverra ráðstefna
eða að formaðurinn tjái sig
o.s.frv. Einstaklingar sem mynda
sér sjálfstæðar skoðanir á málun-
um og halda þeim fram, geta orð-
ið málstaðnum til framdráttar, en
sá málstaður snýst m.a. um aukið
atvinnulýðræði, bætt lífskjör og
launajöfnuð.
Nú hefur atvinnuveitandi stórs
hluta félaga í BSRB - ríkið, beitt
sér fyrir afnámi grundvallarrétt-
inda, svo sem samningsréttar.
Hvernig hyggst þú bregðast við
þvf?
„Eg hef sagt að menn megi
ekki búast við einhverjum heljar-
stökkum, þó ný forysta hafi tekið
hér við. Hér á þinginu hafa verið
mótaðar mjög eindregnar kröfur
um að samningsrétturinn verði
færður félögunum aftur. Því
öflugri sem okkar samtök eru,
því minni líkur eru fyrir þvf að
þau verði beitt misrétti af þessu
tagi og ég lít á það sem mitt starf
að styrkja þessi samtök.“
En eru hér að eiga sér stað á-
kveðin kynslóðaskipti í BSRB,
eru kannski þeir sem lenntu í
minnihluta í verkfallsátökunum
1984 að mynda nýjan meirihluta?
„Ég lít á mig sem samtakanna
allra og þó menn hafi á stundum
skipst í fylkingar þá vona ég og
trúi því að um nýja forystu sam-
takanna myndist samstaða. For-
sendur þess er að áfram verði
byggt á því trausti sem einkennt
hefur starf samtakanna, að menn
virði andstæð sjónarmið, komi
fram af heiðarleika og hrein-
skiptni. Þá þurfum við ekki að
hafa áhyggjur af framhaldinu,"
sagði Ögmundur Jónasson, for-
maður BSRB. phh
2 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 22. október 1988
Guðrún Árnadóttir
Vafasamt ég verði áfram
Stuðningur Kristjáns bjarnargreiði. Ögmundur mjög hœfur
Eg átti nú alls ekki von á því að
vinna, en ég átti kannski ekki
von á að það yrði svona mikill
munur,“ sagði Guðrún Ágústs-
dóttir þegar Þjóðviljinn spurði
hana hvort niðurstöður kosning-
anna hefðu komið henni á ávart.
„Mér flnnst það ákveðin vísbend-
ing að bæði ég og Örlygur, sem
höfum starfað lengi fyrir ÉSRB
skuli hafa lent í minnihluta. Það
er greinilega ekki æskilegt að hafa
starfað svona lengi fyrir samtök-
in.“
Þú túlkar niðurstöðuna þá
þannig að félagar hafi talið þörf á
að fá nýtt fólk inn?
„Það er greinilega það sem er
átt við.“
En í framhaldi af þessu, munt
þú halda áfram störfum sem
framkvæmdastjóri BSRB?
„Niðurstöður kosninganna
gefa manni vissa vísbendingu um
hug fólksins og ég tel það mjög
vafasamt að ég starfi áfram sem
framkvæmdastjóri BSRB.“
En nú hefur þú væntanlega
boðið þig framtil formanns vegna
áhuga á að starfa fyrir samtökin.
Mætti ekki halda að þú værir ein-
faldlega tapsár, ef þú hættir nú
störfum sem framkvæmdastjóri?
„Jú, það verður eflaust sagt.“
En hvernig lýst þér á nýja for-
manninn?
„Mjög vel, við unnum mikið
saman í verkfalli BSRB á sínum
tíma og okkur hefur alitaf komið
mæta vel saman. Það hefur ekk-
ert verið upp á okkar samstarf
verið að klaga og ég tel hann
mjög hæfan mann.“
Guðrún sagðist telja að það
hafi verið sér frekar til trafala að
hafa verið kona í þessum kosn-
ingum. Of mikil áhersla hefði
verið á það lögð, en hún hafi hins
vegar gengið til kosninga sem
einstaklingur. Hún sagði ekki
hafa verið neinn áherslumunur í
málflutningi hennar og Ögmund-
ar og aðspurð um hvort það gerði
þau ekki að upplögðum sam-
starfsaðilum fyrir BSRB, sagði
hún að því mætti alveg velta fyrir
sér.
En nú hafðir þú stuðning sitj-
andi formanns?
„Já, það varð mér líka til traf-
ala. Sennilega af því að mörgum
finnst að við höfum verið of lengi
og að það eigi að vera meira
gegnumstreymi af fólki. Auk
þess hefur fólk kannski ímyndað
sér að Kristján hafi ætlað að hafa
áhrif á stefnu mína sem for-
manns, ég tel það mjög líklegt.“
Þannig að þessi stuðningur
Kristjáns Thorlaciusar hafi kom-
ið út sem nokkurs konar bjarnar-
greiði?
„Já,“ svaraði Guðrún Árna-
dóttir.
phh
Örlygur Geirsson
Væntingar til fwmannsins
gær.
Nú studdir þú Guðrúnu Árna-
dóttur eindregið til formanns.
Eru úrslitin vonbrigði fyrir þig?
„Auðvitað eru það vonbrigði,
Guðrún hefur staðið sig mjög vel
og unnið mjög gott starf."
En tekur þú þetta sem einhvers
konar áfellisdóm, fyrir þig?
„Nei, alls ekki.“
Nú hefur Ögmundur lagt
áherslu á að miðstýring minnki
og aukið vald verði fært til félag-
anna. Ert þú sammála þessum
áherslum?
„Nei, það hefur engin miðstýr-
ing verið. Þvert á móti hefur sam-
starf verið mjög gott við félögin,
Eg samfagna Ögmundi og vænti
þess að hann reynist vel í
starfi, ég hlýt að hafa væntingar
um það eins og aðrir, sagði Ör-
Iygur Geirsson eftir að úrslit í
formannskjörinu lágu fyrir.
Sagði Örlygur að úrslitin kæmu
sér nokkuð á óvart, því menn
hefðu talað um að jafnræði væri
með frambjóðendunum í þessari
baráttu.
Nú hefur Ögmundur lagt
áherslu á að miðstýring verði
minnkuð og aukin völd færð út til
félaganna. Hvað flnnst þér um
þær áherslur?
„Ég sé ekki að hann hafi lagt
áherslu á það umfram aðra. Eg
held að það hafi komið fram hjá
öllum, að við þá breyttu stöðu að
félögin hafa nú sjálfstæðan samn-
ingsrétt, að þá leiðir það til þess
að þessi svokallaða miðstýring er
ekki lengur til staðar.“
En átt þú ekki von á að það
verði full samstaða um hinn nýja
formann?
„Að óreyndu þá trúi ég ekki
öðru.“
Nú kom upp mistalning við
fyrstu tilraun til kosningar. Átt
þú von á að þessi kosning verði
kærð?
„Nei, ég á ekki von á því,“
sagði Örlygur Geirsson.
phh
Kristján Thorlacius
Ekki sterkara fyrir BSRB
r
Eg óska nýja formanninum til
hamingju og vona að samtök-
in starfi, hér eftir sem hingað til,
til heilla fyrir opinbera starfs-
menn,“ sagði Kristján Thorlacius
eftir formannskosningarnar í
mikil áhersla verið lögð á fundi út
um allt land árlega og um mörg
stærri mál. Þannig að þetta eru
ekkert ný áhersluatriði."
En telur þú að samtökin BSRB
komi sterkari út eftir þetta for-
mannskjör?
„Ég væri hræsnari ef ég segði
það,“ sagði Kristján Thorlacius,
fráfarandi formaður BSRB.
Guðrún Árnadóttir smellir kossi á skeggjaðan vanga nýja formanns-
ins. Mynd: þóm
Hafnarfjörður
Hjón
messa
Á sunnudaginn mun séra Þórhildur
Ólafs, nývígður safnaðarprestur í
Hafnarfjarðarsókn, annast fyrstu
messugjörð sína í Hafnarfjarðar-
kirkju.
Hún mun þá prédika og þjóna fyrir
altari ásamt eiginmanni sínum og
sóknarpresti séra Gunnþóri Ingasyni.
Að messu lokinni býður safnaðar-
stjórn í kirkjukaffi í Álfafelli, íþrótta-
húsinu við Strandgötu.