Þjóðviljinn - 22.10.1988, Blaðsíða 10
ALÞÝÐUBANDALAGIÐ
Alþýðubandalagið í Keflavík og Njarðvík
Aðalfundur
Aðalfundur Alþýðubandalagsins í Keflavík og Njarðvík verður haldinn
laugardaginn 22. október kl. 15 í Iðnmeistarafélagshúsinu, Tjarnargötu 7.
Dagskrá: 1) Venjuleg aðalfundarstörf. 2) Önnur mál.
Félagar og stuðningsmenn eru hvattir til að mæta.
AB Ólafsvík
Aðalfundur
Aðalfundur Alþýðubandalagsfélagins í Ólafsvík verður haldinn sunnu-
daginn 23. okt. í Mettubúð og hefst kl. 14.00.
Dagskrá:
1) Venjuleg aðalfundarstörf.
2) Almennar umræður. r Stjórnin
AB Akranesi
Aðalfundur
Aðalfundur Alþýðubandalagsins á Akranesi verður haldinn laugar-
daginn 22. október kl. 14.00 í Rein.
Dagskrá:
1) Venjuleg aðalfundarstörf. e*iA,r.ir,
2) Önnur mál. StJórmn
Ritstjórn Birtis
Birtisnefnd heldur vinnufund n.k. laugardag í húsakynnum Þjóðviljans,
Síðumúla 6, kl. 13.
Hvalamálið
Starfshópur Alþýðubandalagsins um umhverfismál heldur opinn fund um
hvalamálið miðvikudaginn 26. október kl. 20:30 að Hverfisgötu 105, R. -
Starfshópur um umhverfismál.
Alþýðubandalagið Kjósarsýslu
Aðalfundur
Aðalfundur Alþýðubandalagsins í Kjósarsýslu verður haldinn þriðjudaginn
25. október nk. kl. 20.30 í félagsheimilinu Sellunni, að Urðarkoti 4,3ju hæð.
Dagskrá: 1) Venjuleg aðalfundarstörf. 2) Ólafur Ragnar Grímsson fjár-
málaráöherra ræðir um ríkisstjórnarþátttöku Alþýðubandalagsins.
Nýir félagar velkomnir. - Stjórnin.
AB Kópavogi
Spilakvöld ABK
Félagsvist mánudaginn 24. október kl. 20.30 í Þinghóli. Þetta er annað
spilakvöldið í vetur. Glæsileg heildarverðlaun. Allir velkomnir. - Stjórnin.
ABR
Spilakvöld ABR
Fyrsta spilakvöld vetrarins verður þriðjudaginn 25. október að Hverfisgötu
105. Byrjað að spila kl. 20.30. Allir velkomnir. Takið með ykkur gesti. -
Nefndin.
AB Norðuland eystra
Aðalfundur kjördæmaráðs
Aðalfundur kjördæmaráðs AB í Norðurlandi eystra, verður haldinn á Akur-
eyri í Lárusarhúsi, sunnudaginn 30. október kl. 10.00.
Dagskrá: 1) Venjuleg aðalfundarstörf. 2) Flokksstarf og fjármál. 3) Útgáfu-
mál. 4) Ný viðhorf í íslenskum stjórnmálum: Svavar Gestsson menntamála-
ráðherra. 5) Önnur mál.
Gestir fundarins: Svavar Gestsson menntamálaráðherra og Steingrímur J.
Sigfússon landbúnaðar- og samgönguráðherra.
Nánar auglýst síðar. - Stjórnin.
ÆSKULÝÐSFYLKINGIN
Æskulýðsfylkingin 50 ára
Hver man ekki eftir gömlu skálastemmningunni, Tjarnargöturómantíkinni,
Landnemanum, Heimsmótunum og öllu hinu? Nú er allavega tímabært að
rifja upp 50 ára sögu í góðum félagsskap.
Laugardaginn 5. nóvember nk. verður afmælið haldið hátíðlegt með borð-
haldi, upplestri, fjöldasöng og dansi að Hverfisgötu 105.
Borðhaldið hefst kl. 20.30. Húsið verður opnað kl. 19.30.
Taktu strax frá kvöldið. (Vinsamlega skráið ykkur sem fyrst v/matar í síma
17500). Afmælisnefndin.
FRÉTTIR
Sagnfræði
Síbería
Atvinnubótavinna á
kreppuárunum
Reykvískir verkamenn voru
fluttir austur í Flóa til að vinna
við að ræsa fram mýrar. Þetta var
liður í atvinnubótavinnu á vegum
ríkissjóðs sem komið var á um
miðjan fjórða áratuginn. Fljót-
lega fóru verkamennimir að kalla
mýrarflákana sunnan við Selfoss
Síberíu.
Jón Gunnar Grjetarsson hefur
skrifað ritgerð um þessa íslensku
Síberíu og gert þar grein fyrir
merkum þætti í íslenskri verka-
lýðssögu. Jón Gunnar hefur
skrifað ýmsar greinar um íslenska
verkalýðssögu og hefur unnið að
dagskrárgerð fyrir Ríkisútvarpið
frá 1986. Ritgerð hans heitir
„Síbería, atvinnubótavinna á
kreppuárunum" og hefur nú ver-
ið gefin út sem 24. hefti f ritröð
Sagnfræðistofnunar Háskóla ís-
lands.
Bókin skiptist í fjóra megin-
kafla: Kreppan, Vinnumarkað-
urinn, Flóinn og Síberíuvinnan.
Hún er 108 blaðsíður. Um sölu á
bókinni sér Sögufélagið, Garða-
stræti 13 b, Reykjavík.
Lögfræðingur
Lögfræðingur óskast til
starfa hjá skattadeild
ríkisskattstjóra. í starfinu
felst vinna við úrlausn
ýmissa verkefna á vett-
vangi skattalagafram-
kvæmdar, meðal ann-
ars úrskurðir um skatta-
leg málefni, upplýsinga-
gjöf um lögfræðileg efni
varðandi skattarétt, svo
og afgreiðsla ýmissa er-
inda og umsagna.
Nánari upplýsingar um
starfið veitir Steinþór
Haraldsson yfirlögfræð-
ingur, í símí 623300.
Umsóknir er greini
aldur, menntun, fyrri
störf og annað er máli
kann að skipta sendist
skattadeild ríkisskatt-
stjóra, Skúlagötu 57,
Reykjavík, fyrir 7. nóv-
ember 1988.
RSK
RÍKISSKATTSTJÓRI
10 SlÐA - ÞJÓÐVILJINN
q| j Hundahald í Reykjavík -
skoðanakönnun
Dagana 24. - 30. október n.k. fer fram skoðanakönn-
un um hundahald í Reykjavík. Kjörstaður er í anddyri
Laugardalshallar og verður opinn mánudag 24. til
föstudags 28. kl. 16.00 til 19.00 og laugardag 29. og
sunnudag 30. frá kl. 14.00 til 20.00
Kjörskrá er sú sama og gilti við forsetakosningar 25.
júní s.l. Atkvæðisrétt hafa þeir, sem á kjörskránni eru
og eru orðnir 18 ára 30. október n.k.
Vakin er athygli á, að kjörskráin miðast við lögheimili
1. desember 1987.
Allar upplýsingar um kjörskrá gefur Manntalsskrif-
stofa Reykjavíkur, Skúlatúni 2, sími 18000.
Símar Manntalsskrifstofu og kjörstjórnar á kjörstað
eru 27880 og 27288.
Spurningin á kjörseðlinum er þessi:
Viljið þér leyfa hundahald í Reykjavík með þeim
skilyrðum, sem gilt hafa síðustu fjögur ár?
Helstu skilyrði eru eftirfarandi:
1. Leyfi til hundahalds er bundið við nafn og heimilis-
fang eiganda og er óheimilt að framselja það. Sé
um að ræða leyfi fyrir hund í sambýlishúsi þarf
skriflegt samþykki sameigenda.
2. Skylt er að ábyrgðartryggja hunda fyrir tjóni, sem
þeir kunna að valda.
3. Hundar eru færðir árlega til hreinsunar.
4. Hundurinn skal vera merktur, m.a. með heimilis-
fangi eiganda.
5. Bannað er að hleypa hundum inn á tiltekin svæði,
svo sem leikvelli, svo og í almenningsfarartæki,
samkomuhús og fleira. Sá sem leyfi hefur skal sjá
um að hundurinn valdi ekki óþægindum eða óþrifn-
aði.
6. Ef sá, sem leyfi hefur, brýtur gegn reglum um hund-
ahald getur borgarráð svipt hann leyfi.
7. Hunda, sem valda hættu, óleyfilega hunda eða
hunda sem ganga lausir utanhúss, skal taka úr
umferð og heimilt að lóga hættulegum hundum
þegar í stað.
Að öðru leyti er vísað til samþykktar um hundahald í
lögsagnarumdæmi Reykjavíkur nr. 385/1984, sem
liggur frammi á Borgarskrifstofum, Austurstræti 16,
hjá Heilbrigðiseftirliti, Drápuhlíð 14, og á kjörstað í
anddyri Laugardalshallar, meðan kosning stendur
yfir.
Kjörstjórn
Ráðstefna um meðferð
ávana- og fíkniefnaneyt-
enda
Haldin veröur ráöstefna um meðferðarúrræði
fyrir ávana- og fíkniefnaneytendur. Ráðstefnan
verður haldin miðvikudaginn 26. október
næstkomandi að Borgartúni 6,4. hæð og stendur
frá kl. 13- 17.
Dagskrá:
1. Erindi: Hver er núverandi þörf fyrir meðferðar-
úrræði fyrir ávana- og fíkniefnaneytendur?
Frummælendur: Einar Gylfi Jónsson forstöðu-
maður Unglingaheimilis ríkisins. Sigurlína Da-
víðsdóttir, formaður Krísuvíkursamtakanna.
2. Erindi: Ný viðhorf varðandi meðferðarúrræði
fyrir ávana- og fíkniefnaneytendur.
Frummælendur: Hrafn Pálsson deildarstjóri í
heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneyti. Þórar-
inn Tyrfingsson, formaður S.Á.Á.
3. Pallborðsumræður
Ráðstefnustjóri verður Ólafur Ólafsson land-
læknir.
Ráðstefnan er öllum opin. Þátttaka tilkynnist af-
greiðslu félagsmálaráðuneytisins í síma 91-
25000 fyrir kl. 17.00, þriðjudaginn 25. október
næstkomandi.
20. október 1988
Samstarfsnefnd ráðuneyta um ávana-
og fíkniefnamál
Fótaaðgerðastofa
Guðríður Jóelsdóttir, fótaaðgerðasérfræðingur,
hefur opnað fótaaðgerðastofu að Borgartúni 31,
2. hæð. Tímapantanir alla virka daga kl. 9.30-
10.30 í síma 623501.