Þjóðviljinn - 05.11.1988, Side 3
FRÉTTIR
Víkurskip
Finnbogi keypti skipin
Bauð 64 miljónir í Hvalvíkina og Eldvíkina. Finnbogi Kjeld: Líf
fyrirtœkisins hangir á að samningar náist við erlenda kaupendur.
Hjá borgarfógeta var í gaer
haldið uppboð að kröfu
Landsbanka ísiands og
Tryggingastofnunar, fyrir hönd
Lífeyrissjóðs sjómanna, á
tveimur skipum skipafélagsins
Víkur hf., Eldvíkinni og Hvalvík-
inni. Finnbogi Kjeld, stjórnarfor-
maður og aðaleigandi Víkur-
skipa, átti persónulega hæstu til-
boð í skipin en þau voru slegin
honum á 32 miljónir hvort. Var
honum gert að hafa greitt
kaupverð skipanna eigi síðar en á
hádegi föstudaginn 18. nóvem-
ber, að öðrum kosti yrði næst-
hæsta tilboði tekið. Það var
Landsbanki Islands sem átti
næsthæsta tilboð. Hyggst Finn-
bogi reyna að ná samningum við
erlent kaupleigufyrirtæki um sölu
á skipunum. Verði af því munu
þau sigla undir erlendum fána,
með erlenda áhöfn um borð.
Finnbogi Kjeld sagði að upp-
boðinu loknu að með uppboðinu
hefði unnist tími til að reyna frek-
ar að ná samningum við þá er-
lendu kaupleigu, sem hefði
áhuga á að kaupa skipin. Hann
vildi ekki gefa upp hvaða erlenda
fyrirtæki væri hér um að ræða, en
sagði líf Víkur hf. hanga á því að
þessir samningar næðust. Um
kaupverð skipanna sagði Finn-
bogi að þau hefðu verið slegin á
verði sem væri mjög nálægt
markaðsverði þeirra. Verðið
hefði reyndar verið heldur í
hærra lagi á Eldvíkinni, en í lægri
kantinum hvað Hvalvíkina varð-
aði. Spurningunni um það hvers
vegna hann hefði ekki mætt á
Utvarp
Nærist ekki
á loftinu
Soffía Sigurðardóttir:
Útlitið slœmt efekkert
verður að gert.
Hugmyndir uppi .
um að stytta
útsendingartímann.
Hluthafafundur á
sunnudaginn
Það er Ijóst að grípa verður til
einhverra aðgerða til að rétta við
rekstur stöðvarinnar. Það kostar
peninga að reka svona útvarps-
stöð, hún lifir ekki á loftinu, sagði
Soffía Sigurðardóttir, fram-
kvæmdastjóri útvarpstöðvarinn-
ar Rótar. Á sunnudaginn verður
haldinn hluthafafundur þar sem
búast má við að frekar dökk
mynd verði dregin upp af rekstri
útvarpstöðvarinnar.
Soffía sagði að það væri ekkert
launungarmál að félagið væri
skuldugt og illa hefði gengið að
afla tekna. Hún sagðist búast við
að stjórnin myndi gera að tillögu
sinni á hluthafafundinum að dag-
skráin yrði stytt og gripið til að-
þaldsaðgerða. í dag starfa þrír
fastráðnir starfsmenn við stöð-
ina. - Það þýðir ekkert að vera
reyna að reka þessa stöð með
hangandi hendi. Þeir sem vilja
veg stöðvarinnar sem mestan, og
þeir eru fjölmargir, verða að
horfast í augu við það að þetta er
brautryðjendastarf og það kostar
vinnu og aftur vinnu að halda
þessu úti svo vel sé, sagði Soffía,
og benti á að sér fyndist undarlegt
hvað verkalýðshreyfingin hefði
sýnt útvarpsstöðinni lítinn áhuga.
-sg
uppboðið sem stjórnarformaður
Víkurskipa, heldur sem einstak-
lingur, svaraði Finnbogi á þá lund
að ljóst væri að það væri verið „að
flagga skipunum út“, því rek-
strarkostnaður undir íslenskum
fána væri alltof mikill. Þetta þýðir
m.ö.o. að einstaklingurinn Finn-
bogi Kjeld kaupir Eldvíkina og
Hvalvíkina til að selja úr landi og
er þar með búinn að koma skip-
unum undan Skipafélaginu Vík-
um hf. Hann er því óbundinn af
öllum hugsanlegum skuldbind-
ingum þess félags, þegar kemur
að því að ráðstafa skipunum, að
því gefnu auðvitað að honum tak-
ist að greiða kaupverð skipanna á
tilsettum tíma.
Stefán Pétursson, lögmaður
Landsbankans, sá um að gera til-
boð fyrir hönd bankans. Að upp-
boðinu loknu sagði Stefán við
blaðamann Þjóðviljans að enn
væri ekki séð fyrir endann á þessu
máli, því ekki væri ljóst hvort
hæstbjóðandi gæti staðið í skilum
með greiðslur á tilsettum tíma.
Aðspurður um hvort hann hefði
ekki haft heimild til að bjóða
hærri upphæð en 31 miljón í hvort
skip, sagði Stefán að bankinn
hefði farið eftir því mati sem gert
hefði verið á markaðsverði skip-
anna. Stefán sagði að Lands-
bankinn hefði vitað af tilraunum
Finnboga til að selja skipin er-
lendum kaupleigufyrirtækjum og
að bankinn hefði lagt áherslu á að
Finnboga tækist að selja skipin á
sem hagkvæmastan hátt. Hins
vegar hefði ekki verið látið reyna
á það á einn eða annan hátt af
Fyrsta, annað og þriðja. Jónas Gústafsson borgarfógeti slær Finn-
boga Kjeld skip Víkur hf. Mynd: Jim.
hálfu bankans að Finnbogi hygð-
ist láta skipin sigla undir er-
lendum fána. Sú spurning hefði
ekki komið til álita hjá bankan-
um.
Stefán vildi ekki upplýsa frek-
ar en Finnbogi, hverjar skuldir
Skipafélagsins Víka væru við
Landsbankann, en uppboðin
voru haldin til Iúkningar sjóveðs-
kröfum að upphæð 4,3 miljónir
fyrir Eldvíkina og 9,9 miljónir
fyrir Hvalvíkina.
phh
Fiskiþing
Einhugur um hvalveiðar
Traustsyfirlýsing samþykkt á stefnu og störfsjávarútvegsráðherra í
hvalveiðimálinu. Brýnasta hagsmunamál sjávarútvegsins að ná niður
verðbólgu. Sjálfstœðiþjóðarinnar í veði
Fiskiþingi lauk i gær en það
hófst sl. mánudag. Aðalmál
þingsins voru afkoma sjávarút-
vegsins og byggðamál sem hvortt-
veggja á nú undir högg að sækja
sökum tapreksturs á liðnum miss-
erum, bæði í fiskvinnslu og út-
gerð. Þá samþykkti þingið ein-
róma traustsyfirlýsingu á stefnu
og störf sjávarútvegsráðherra í
hvalveiðimáiinu.
í ályktun fjárhagsnefndar
Fiskiþings um afkomumál sjávar-
útvegsins, sem var einróma sam-
þykkt, segir ma. að fjárhagur
fjölmargra fyrirtækja í greininni
sé hruninn, allmörg gjaldþrot
hafi þegar orðið og fyrirtæki hafi
stöðvast og séu að stöðvast um
lengri eða skemmri tíma. í heild
sé fjárhagsstaða fiskvinnslunnar
verri nú en hún hefur verið síð-
ustu 20 ár. Verst sé staðan í fryst-
ingu og rækjuvinnslu. Þá sé út-
gerðin einnig rekin með tapi á
nýjan leik eftir tvö sæmileg ár.
Þingið telur einsýnt að ef fisk-
vinnslunni verði ekki sköpuð við-
unandi rekstrarskilyrði nú þegar,
sé stórfelld hætta á frekari byggð-
aröskun í sjávarplássum um land
allt.
Fiskiþing telur að brýnasta
hagsmunamál sjávarútvegsins og
þjóðfélagsins í heild sé að ná
verðbólgunni niður og að sjálf-
stæði þjóðarinnar sé jafnvel í
veði. Frumskilyrði til að ná því
marki telur Fiskiþing vera að
ríkisbúskapurinn sem og fyrir-
tæki séu rekin með hagnaði og
jafnvægi sé í viðskiptum við út-
lönd. Slegið verði á þenslu um
leið og hennar verði vart, ekki
verði tekin fleiri erlend lán og
grynnkað verði á erlendum
skuldum.
Þá telur Fiskiþing að þeir
kjarasamningar sem gerðir verði
í framtíðinni verði alfarið á
ábyrgð þeirra sem þá gera og
miðist við greiðsluþol atvinnu-
veganna að teknu tiliiti til eðlilegs
hagnaðar, án þess að til verð-
hækkana komi. Forsenda þess er
að jafnvægi ríki á vinnumarkað-
inum. Tekjuafgangur fyrirtækja
verði notaður til að greiða niður
skuldir en ekki komi til nýrra
fjárfestinga nema brýna nauðsyn
beri til.
Fiskiþing leggur áherslu á að
fyrirsjáanleg fækkun fiskvinnslu-
stöðva valdi ekki röskun á
jafnvægi í byggð landsins og að
tryggt verði að sams konar fisk-
vinnslustöðvar rísi ekki á rústum
þeirra sem lagðar verði niður.
Þingið hvetur til fækkunar
fiskiskipa þannig að stærð flotans
verði í sem mestu samræmi við
veiðimöguleika og að ekki verði
hjá því komist að draga úr afla á
næsta ári. Rík áhersla er lögð á að
ákvörðun þar að lútandi verði
tekin hið fyrsta og byrðunum af
því verði dreift sem jafnast.
-grh
Utanríkisþjónustan
Albeittil Parisar?
Tilboð um sendiherrastöðu. Albert segir að ekkisé
unnt að kaupa Borgaraflokkinn
Meðan Jón Baldvin Hannibals-
son utanríkisráðherra var í
Bandaríkjunum fyrir skömmu,
bauð Jón Sigurðsson viðskipta-
ráðherra Albert Guðmundssyni
sendiherrastöðu i París. Svipað
tilboð segir Albert að sér hafi bor-
ist frá Steingrími Hermannssyni
meðan hann var utanríkisráð-
herra í ríkisstjórn Þorstcins Páls-
sonar.
Þetta kom fram í fréttatíma
Stöðvar 2 í gærkvöldi. Þar var
haft eftir Albert að Jón Baldvin
hefði ekki ítrekað þetta tilboð
eftir að hann kom heim. Þessi tíð-
indi vekja nokkra athygli í ljósi
þess að á næstu dögum er búist
við að lagðar verði fram
endurnýjaðar ákærur í Haf-
skipsmálinu. Ekki er vitað hverj-
ir verða nú ákærðir en í fyrri
ákærum í því máli, sem vísað var
frá vegna formgalla, var Albert í
hópi ákærðra sem fyrrverandi
formaður bankaráðs Útvegs-
bankans.
Eftir Albert var haft að Borg-
araflokkurinn væri ekki til sölu
með þessum hætti.
Laugardagur 5. nóvember 1988 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 3
Olís
Nýr formaður
Tryggvi E. Geirsson
löggiltur endurskoðandi
var kosinn stjórnarfor-
maður í gœr
Á stjórnarfundi Olís í gær, var
Tryggvi E. Geirsson kjörinn nýr
stjórnarformaður í stað Þórðar S.
Gunnarssonar. Óli Kr. Sigurðs-
son sagði í samtali við Þjóðvilj-
ann að nú væri sinni fjölmiðla-
þátttöku lokið í bili og vísaði
frekari fyrirspurnum á hinn nýja
stjórnarformann. Ekki náðist í
Tryggva í gær. Starfsmenn Olís
brugðu hins vegar undir sig betri
fætinum og skelltu upp balli í
Akoges-húsinu í gærkvöldi. phh
Ertu ibílahugleiðingum?
SAFIR
Ódýr, rúmgóðurfjölskyldubill
á góðu verði. Eins og aðrir
Lada bilar hefur Lada Safir
reynst afbragðsvel hér á
landi, enda kraftmikil! og
sterkur.
Velduþann kost,
sem kostar minna!
Bifreiðarog
fandbúnaðarvélar hf.
Ármúla 13,
Su&urtandsbraut 14.
Sími681200.
Ertu i bilahugleiðingum?
'
Ódýrast alvöru jeppinn 6
markaðinum og hefur 10ára
reynslu að baki, við þær
margbreytilegu aðstæður
sem íslensk náttúra og vega-
kerfibúayfir.
Veldu þann kost,
sem kostar minnal
Bifreíðar og
landbúnaðarvélar hf.
Ármúla 13,
Suðurlandabraut 14.
Sfml681200.