Þjóðviljinn - 05.11.1988, Qupperneq 10
|l| PAGVIST BARIVA
Fóstrur, þroskaþjálfar,
áhugasamt starfsfólk!
Dagyist barna, Reykjavík, óskar eftir starfs-
fólki í gefandi störf á góðum vinnustöðum.
Til greina koma hlutastörf bæði fyrir og eftir há-
degi. Upplýsingarveitaforstöðumenneftirtalinna
dagvistarheimila og skrifstofa Dagvistar barna,
sími 27277.
VESTURBÆR
Drafnarborg v/Drafnarstíg s. 23727
Tjarnarborg Tjarnargötu 33 s. 15798
AUSTURBÆR
Múlaborg sérdeild v/Ármúla s. 685154
Sunnuborg Sólheimum 19 s. 36385
ÁRBÆR
Árborg Hlaðbæ 19 s. 84150
j|j PAGVIST BABIMA____________
Forstöðumaður
Staða forstöðumanns á skóladagheimilinu Völv-
ukoti er laus til umsóknar. Fóstrumenntun áskilin.
Upplýsingar gefur framkvæmdastjóri Dagvistar
barna í síma 27277.
Reykjavíkurhöfn
Frá Reykjavíkurhöfn
Þeir sem telja sig eiga nætur eða annað í
geymslu á lóðinni Hólmaslóð 10 í Örfirisey skulu
fjariægja eigur sínar fyrir 1. desember n.k. Eftir
þann tíma verða þær fjarlægðar á kostnað
eigenda.
Reykjavík 4. nóvember 1988
Hafnarstjórinn í Reykjavík
Lausar stöður
við Fangelsismála-
stofnun ríkisins
Eftirfarandi stöður eru lausar til umsóknar við
Fangelsismálastofnun ríkisins frá og með 1. jan-
úar nk.: Staða lögfræðings, félagsráðgjafa og
skrifstofumanns.
Umsóknir sendist til dóms- og kirkjumálaráðu-
neytinu fyrir 18. nóvember nk.
Dóms- og kirkjumálaráðuneytið,
3. nóvember 1988
REYKJMJIKURBORG
Stödwi
Seljahlíð
Hjallaseli 55
Sjúkraþjálfari óskast í hlutastarf frá 1. janúar
1989. Einnig gefst kostur á að vinna sjálfstætt
hluta úr degi.
milli
ýsingar gefur forstöðumaður í síma 73633
kl. 10.00-12.00 alla virka daga.
LESENDABRÉF
Athugasemd
fra raðheira
„Því miður neyðist ég til að
gera alvarlega athugasemd og
mótmæla fremur ósmekklegri
umfjöllun um einn af starfsmönn-
um samgönguráðuneytisins í ein-
um dálka Nýs Helgarblaðs Þjóð-
viljans sl. föstudag.
Þar er ranglega gefið í skyn að
Ragnhildur Hjaltadóttir, lög-
fræðingur, hafi farið sérstaklega
með söluna á Ferðaskrifstofu
ríkisins f. h. samgönguráðuneyt-
isins sl. sumar. Mér þykir óþarft
og óviðeigandi að draga ættar-
tengsl hennar inn í málið. Hið
rétta er að málið var fyrst og
fremst í höndum Hreins Lofts-
sonar, aðstoðarmanns f.v. ráð-
herra.
Óþarft ætti að vera, en skal
gert samt, að taka fram að skrif
blaðsins um sölu Ferðaskrifstofu
ríkisins að öðru leyti eru mér
óviðkomandi. Ég hef ekki látið
annað eftir mér hafa um það mál,
hvorki við Þjóðviljann né aðra
fjölmiðla, en að málið sé til at-
hugunar og það stendur.
Steingrímur J'. Sigfússon
Hneyksli
var orð sem Össur Sparphéðins-
son, fyrrv. ritstjóri Þjoðviljans
notaði gjarnan, þegar hann skrif-
aði um (mis)gjörðir pólitískra
andstæðinga sinna.
- Hneyksli! hrópaði ég, þegar
ég sá leiðara þessa sama blaðs á
miðvikudaginn sl.
Saklaus dóttir mín, níu ára,
spurði hissa:
- Mamma, af hverju ertu
svona reið?
- Lestu sjálf, ansaði ég og rétti
henni blaðið. - Svona skrifar eng-
inn ábyrgur blaðamaður um
þjóðhöfðingja sinn, allra síst um
Íýðræðislega kosinn forseta!
Hérmeð ætla ég alls ekki að
halda því fram, að þjóðhöfðingi
sé yfir alla gagnrýni hafinn, en
hér á Norðurlöndum hefur ein-
faldlega myndast sú hefð, að
þjóðhöfðingi er ekki opinberlega
gagnrýndur, nema einhverjar
mjög þungar sakir liggi að baki.
En hverjar voru sakir frú Vig-
dísar, sem ritstjóra Þjóðviljans
(Merði Árnasyni) fundust svo
þungar, að hann skrifar leiðarann
„Vigdís á villigötum“?
Jú, það voru þær, að forseta
lýðveldisins langaði til að fræðast
nánar um stefnumál þau, sem ný-
skipaður utanríkisráðherra ætl-
aði að leggja áherslu á!
Þetta höfðu svo sumir hverjir
(stjórnmálamenn og blaðamenn)
notað sem sönnun fyrir því, að
forsetinn væri fylgjandi því að
bandaríska herliðið yrði áfram á
landinu.
Það er hægt að snúa út úr öllum
málum og mistúlka þau, en ég er
þeirrar skoðunar, að sanngjarn
blaðamaður hefði í þessu tilfelli
ráðist á menn, sem (vís'mandi?)
mistúlkuðu nærveru forsetans á
Varðbergsfundi - en látið forset-
ann í friði.
Leiðari blaðsins á miðvikudag-
inn er svo sannarlega hneyksli og
gróf móðgun gagnvart forseta, og
vænti ég þess, að ritstjóri Þjóð-
viljans biðji opinberlega afsök-
unar, ellegar segi upp.
Virðingarfyllst,
Marjetta ísberg,
áskrifandi Þjóðviljans,
Reykjavík
Aths.:
Téður ritstjóri hefur engan
veginn í hyggju að biðja nokkurn
afsökunar á nokkru, en frá hans
hendi er þessu máli hinsvegar
lokið.
- m
10 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN
ALÞÝÐUBANDALAGIÐ
Alþýðubandalagið Reykjanesi
Aðalfundur kjördæmaráðs
Aðalfundur kjördæmaráðs AB á Reykjanesi verður
haldinn 12. nóvember nk. í Félagsheimilinu Festi í
Grindavík og hefst kl. 10.00
Dagskrá:
1) Venjuleg aðalfundarstörf.
2) Skýrsla kosningastjórnar: Valþór Hlöðversson.
Matarhlé.
3) Ólafur Ragnar Grímsson form. AB og fjármáiaráð-
herra: Alþýðubandalagið í ríkisstjórn - verkefnin
framundan.
4) Almennar umræður.
Stjórnin
Ólafur Ragnar
AB Vestfjarða
Árshátíð
Alþýðubandalagsfélaganna á Vestfjörðum verður haldin að kvöldi laugar-
dagsins 12. nóvember í veitingahúsinu Skálavík.
Gestir: Svanfríður Jónasdóttir og Guðrún Ágústsdóttir.
Miðapantanir í síma 4017 á ísafirði, 7437 í Bolungarvík, 6215 á Suðureyri
og 7619 á Flateyri. Kjördæmisráð.
Bolungarvík
Aðalfundur
Alþýðubandalagsfélagsins í
Bolungarvík verður haldinn
laugardaginn 12. nóvember
kl. 16.00 I Félagsheimilinu.
Dagskrá: venjuleg aðalfund-
arstörf.
Gestir: Svanfríður Jónasdóttir
og Guðrún Ágústsdóttir.
Stjórnin.
Guðrún
Alþýðubandalagið Reykjavík
Spilakvöld ABR
Spilakvöld að Hverfisgötu 105, þriðjudagskvöldið 8. nóvember kl. 20.30.
Umsjón: Steinar og Dagný. Allir velkomnir.
Blönduós
Almennur fundur
Alþýðubandalagið boðar til al-
menns fundar á Blönduósi,
sunnudaginn 6. nóvember kl.
16.00 á hótelinu (Snorrabúð).
Frummælendur verða:
Steingrímur J. Sigfússon
landbúnaðar- og samgöngu-
ráðherra og Ragnar Arnalds
alþm.
Allir velkomnir.
Ragnar Steingrímur
Alþýðubandalagið í Kópavogi
Skrifstofan opin
Skrifstofa Alþýðubandalagsins í Kópavogi, í Þinghól Hamraborg 11,3. hæð
verður opin frá og með 31. október á mánudögum og fimmtudögum kl.
16-18 e.h.
Alþyðubandalagið í Kópavogi
Alþýðubandalagið Akranesi
Bæjarmálaráðsfundur
Fundur í bæjarmálaráði, mánudaginn 7. nóvember kl. 20.30 í Rein. Daq-
skrá: Bæjarmálin. Stjórnin
AB Kópavogi
Opið hús
á laugardaginn 5. nóvember kl. 10-12. Heimir Páls-
son hellir upp á könnuna með aðstoð fulltrúa úr
skipulagsnefnd.
Allir velkomnir til að taka þátt í umræðum.
Heimir
Steingrímur
Margrét
Jónas
Alþýðubandalagið Vestmannaeyjum
Aðalfundur og árshátíð
Aðalfundur Alþýðubandalagsins í Vestmannaeyjum verður haldinn laugar-
daginn 12. nóvember kl. 13.30 í Alþýðuhúsinu Vestmannaeyjum. Venjuleg
aðalfundarstörf. Gestir fundarins verða Margrét Frímannsdóttir alþingis-
maður og Steingrímur J. Sigfússon landbúnaðar- og samgöngumálaráð-
herra. Félagar hvattir til að mæta og nýir félagar eru velkomnir.
Um kvöldið verður árshátíð Alþýðubandalagsfélagsins í Alþýðuhúsinu.
Húsið opnað kl. 19.30. Skemmtunin hefst með borðhaldi kl. 20 og heldur
áfram með fjölbreyttum skemmtiatriðum fram eftir kvöldi. Gestir hátíðarinn-
ar verða Margrét Frímannsdóttir, Steingrímur J. Sigfússon og hinn þjóð-
kunni Jónas Arnason. Félagar fjölmennið og takið með ykkur gesti. Stjórn-
Opnir fundir á Austurlandi
Haldnir verða oþrlir fundir með Hjörleifi Guttormssyni alþingismanni.
Á Stöðvarfirði laugardagsmorgun 5/11 kl. 10 í barnaskólanum.
Á Fáskrúðsfirði láugardaginn 5/11 kl. 13.00 í Verkalýðshúsinu.
Á Reyðarfirði laugardaginn 5/11 kl. 16.00 í Verkalýðshúsinu.
Rædd verður staðan heimafyrir og í þjóðmálunum.
Allir velkomnir. Alþýðubandalagið
V.V.I.n.f