Þjóðviljinn - 05.11.1988, Page 16
—SPURNINGIN-
Hefurðu trú á að fjárlaga-
frumvarp ríkisstjórnarinnar
gangi upp og skili tekjuaf-
gangi á næsta ári?
Sverrir Kristjánsson
verkstjóri:
Já ég vona það. Ég hef trú á nýja
fjármálaráðherranum og tillögum
hans í þessum efnum. Sem opin-
ber starfsmaöur hræöist ég ekki
nýjar skattaálögur því viö höfum
ekki það há laun að hægt sé að
skattleggja okkur að ráði.
ngvar Kristinsson
bæjarverkstjóri:
Já ég hef trú á frumvarpinu og að
það gangi upp, takist að skera á
eyðsluna í þjóðfélaginu. Varð-
andi nýja skatta eiga þeir að
lenda á öllum en vonandi ekki á
þeim efnaminni.
Guðrún Ebba Ólafsdóttir
kennari:
Jú við verðum að hafa það. Ég er
ekki fylgjandi nýjum sköttum í
sjálfu sér en veit að þeir eru
nauðsynlegir nú en ég vil líka fá
hærra kaup en ég fæ í dag.
Asta Halldórsdóttir
húsmóöir:
Mér líst nú hálf illa á þetta allt
saman. Með jafn litlar tekjur og
ég hef kvíði ég framhaldinu í vet-
ur og hef ekki mikið svigrúm tíl að
mæta nýjum skattaálögum.
Indíana Gunnarsdóttir
skrifstofustúlka:
Mér líst illa á fjárlagafrumvarpið
og það sem sagt hefur verið um
nýja skatta. Tekjuafgangurinn er
draumur sem ég hef litla trú á að
gangi upp.
þJÓÐVIUINN
SIMI 681333
Á KVÖLDIN
ÁLAUGARDÖGUM
681663
Merkisafmæli
Hátíöahöld í skugga
niðurskurðar
Ós, einaforeldrarekna barnaheimilið íbænum, fimmtán ára. Alltá
huldu umframtíð þess vegna nýtilkomins niðurskurðar
borgaryfirvalda á rekstrarstyrknum
Barnaheimilið Ós er 15 ára á
þessu hausti og héldu börnin,
starfsfólkið og þeir foreldrar sem
því gátu komið við upp á afmælið
í gær á Bergþórugötunni þar sem
heimilið er nú til húsa. Reyndar í
eina bárujárnshúsinu sem eftir
stendur við þessa götu og borg-
arstjórinn hefur ort um lipran
dægurlagatexta.
Osarar efndu til blaðamanna-
fundar í gær í tilefni dagsins. Par
kom fram að núverandi sama-
staður, Bergþórugata 20, er
þriðja heimili starfseminnar, en
þar hefur Ós verið til húsa í tvö ár
eða svo. Foreldrar fengu húsið til
afnota hjá borgaryfirvöldum,
leigulaust til fimm ára, gegn því
að það yrði gert upp. Húsið var í
afar bágbornu ásigkomulagi þeg-
ar Ósarar fengu það í hendur, en
síðan hafa foreldrarnir lagt á sig
mikla vinnu og kostnað til að
standa við sinn hluta þessa
samkomulags, segir í afmælis-
fréttatilkynningu. Og mátti
hverjum aðvífandi fréttasnáp á
stjáki innan um uppábúin afmæl-
isbörnin ljóst vera að grettistök-
um hefur verið lyft í þessu húsi
þegar viðhaldsvinna er annars
vegar.
Lengst af var Ós þó á Berg-
staðastrætinu eða hátt í áratug,
1977 til 1986, en starfsemin hófst í
húsi einu við Dugguvoginn. Pað
hús hét Ós, og hefur nafnið fylgt
barnaheimilinu æ síðan.
f fréttatilkynningu Ósara kem-
ur fram að um það bil 150 börn
hafa átt sitt annað heimili á Ósi
gegnum tíðina, og að Ijóst sé að
heimilið hafi verið snar þáttur í
lífi allnokkurs fjölda Reykvík-
inga, sé tekið tillit til foreldra-
skarans frá upphafi, sem og
starfsfólks.
Ós er foreldrarekið barna-
heimili, en í því felst að foreldrar
sem eiga börn á Ósi hverju sinni
annast reksturinn. Segja Ósarar
að þetta sé eina færa leiðin fyrir
foreldra sem vilji tryggja börnum
sínum dagheimilisvist, þar sem
öll áhersla sé á það lögð á dag-
heimilum borgarinnar að bæta úr
hinni brýnu þörf s.k. forgangs-
hópa, einkum einstæðra mæðra,
og því eigi „venjulegir" foreldrar
tæpast innangengt með börn sín á
þessi heimili.
Á blaðamannafundinum kom
fram að Ósurum hefur með ráð-
deild og sparnaði tekist að láta
mánaðargjald það sem greitt er
með hverju barni fylgja dag-
mömmuprísum á hverjum tíma,
Uppábúin afmælisbörn á Ósi: heimilið er orðið fimmtán ára. Mynd: Jim
Smart.
Bjartur og Hringur smakka á sortunum. Mynd: Jim Smart.
svona nokkurn veginn. Pá kom
fram í þessu sambandi að árlegur
rekstrarstyrkur borgaryfirvalda
hefur átt sinn stóra þátt í því að
þetta mætti takast.
„En nú eru blikur á lofti,“ sam-
kvæmt niðurlagi fréttatilkynning-
ar Ósara: „Borgarstjórn hefur
nýlega samþykkt að draga veru-
lega úr rekstrarstyrk til dagheim-
ila, og verður Ós með sínar
heilsdagsvistanir mjög fyrir barð-
inu á þessari nýju skipan mála. Ef
ekkert verður að gert er rekstrin-
um stefnt í bráðan voða. þar sem
mánaðargjaldið myndi hækka
upp úr öllu valdi.
Ekki er enn séð fyrir endann á
þessum þrengingum, en við
eigum nú í viðræðum við borgar-
yfirvöld um framhaldið, og dett-
ur ekki í hug að trúa því að
óreyndu að á þessum tímamótum
í sögu heimilisins verði því gert
ókleift að starfa."
Og á þessari bjartsýnu nótu
setjum við punkt, og óskum Ós-
urum á öllum aldri til hamingju
með afmælið.
/