Þjóðviljinn - 17.11.1988, Qupperneq 11
Nýjar bækur — Nýjar bækur — Nýjar bækur —
Skuggsjá gefur út
átta bœkur
Sveinn frá
Elivogum
Bókaútgáfan Skuggsjá, Hafn-
arfirði, sendir frá sér átta bækur
fyrir þessi jól.
Andstæður
nefnist bók, sem hefur að
geyma safn ljóða og vísna Sveins
frá Elivogum (1889-1945). í bók-
inni eru ljóð og vísur, sem birtust
í bókunum Andstæður og Nýjar
andstæður, sem komu út árin
1933 og 1935, og eru nú löngu
ófáanlegar. Einnig birtast hér
ljóð og vísur, sem Sveinn skildi
eftir sig í handriti. Sonur Sveins,
Auðunn Bragi, sá um útgáfuna.
Þórður kakali
nefnist bók, sem Ásgeir Jak-
obsson hefur ritað og segir eins
og nafnið bendir til frá Þórði kak-
ala Sighvatssyni, einum mesta
foringja Sturlunga á þeirri öld.
Saga Þórðar er rakin eftir þeim
sögubrotum, sem til eru af hon-
um í Sturlungusafninu, í Þórðar
sögu, í íslendinga sögu, í Arons
sögu Hjörleifssonar og Þorgils
sögu skarða og einnig í Hákonar
sögu. Gísli Sigurðsson mynd-
skreytti bókina.
Víkingslækjar-
ætt
fjórða bindi ættfræðirits Péturs
Zophoníassonar, kemur nú út og
í þessu bindi eru i-, k- og 1-liðir
ættarinnar, niðjar Ólafs og Giz-
urar Bjarnasona og Kristínar
Bjarnadóttur. f næsta bindi þessa
ættfræðirits kemur síðan h-liður
ættarinnar, niðjar Stefáns
Bjarnasonar. Allsherjarnafna-
skrá bíður síðan lokabindis útgáf-
unnar.
Fimm þýddar
skáldsögur
Auk ofangreindra bóka gefur
Skuggsjá einnig út nú fimm þýdd-
ar skáldsögur, þrjár í flokknum
Rauðu ástarsögurnar, það eru
bækur eftir Erik Nerlöe, Else-
Marie Nohr og Sigge Stark í þýð-
ingu Skúla Jenssonar og Sverris
Haraldssonar, og einnig koma
nýjar bækur eftir Barböru Cart-
land í þýðingu Sigurðar Steins-
sonar og Theresu Charles í þýð-
ingu Andrésar Kristjánssonar.
Ármann Kr. Einarsson
Barnabók:
Gullskipið fundið
Komin er út hjá Vöku-
Helgafelli barna- og unglinga-
bókin GULLSKIPIÐ FUNDIÐ
eftir Ármann Kr. Einarsson.
Þessi bók er sú sjöunda í bóka-
flokkinum Ævintýraheimur Ár-
manns og er sjálfstætt framhald
af bókinni Leitin að gullskipinu,
sem kom út fyrir síðustu jól.
Þessar bækur eru byggðar á
heimildum um strand hollenska
kaupfarsins Het Wapen van Am-
sterdam árið 1667.
í þessari bók segir frá strákun-
um Óla og Magga þegar þeir
halda öðru sinni út á sandinn í leit
að gullskipinu og finna þeir bæði
skipið og gullið, en óvænt atvik
leiða til ýmiss konar ævintýra og
spennandi viðburða.
Gullskipið fundið kom fyrst út
fyrir tuttugu árum.
DORIS
Sagnasafn
Guðbergs
Bókaútgáfan FORLAGIÐ
hefur sent frá sér nýtt sagnasafn
eftir Guðberg Bergsson sem
nefnist Maðurinn er myndavél.
Safnið hefur að geyma þrettán
smásögur - mannlífsmyndir sem
skáldið hefur safnað með tólum
sínum og tækjum, minnugur þess
sannleika sem hann leggur einum
af sögumönnum sínum í munn -
að minnið er næmara en nokkur
filma, því það er gætt tilfinningu.
í frétt frá FORLAGINU segir
m.a.: „Hér blandast myndir og
minningabrot bernskunnar sýn
skáldsins á íslenskan samtíma,
tíma tilfinningadoða og upp-
lausnar, þar sem sjálfsvirðingin
Swedenborg um
annan heim
Bókaútgáfan Öm og Örlygur
hefur gefið út bókina HIMINN
OG HEL - undur lífsins eftir
dauðann - eftir sænska vísind-
afrömuðinn, rithöfundinn og sjá-
andann Emanuel Swedenborg.
Þýðingu annast Sveinn Ólafsson,
en hann hefur um áratugaskeið
lagt stund á fræði Swedenborgs,
þýtt sum þeirra og skrifað um
hann ritgerðir.
HIMINN OG HEL fjallar um
framlífið og byggist á upplifun
Swedenborgs í lífi annars heims
um langt árabil. Hann lýsir ná-
kvæmlega lífinu eftir dauðann.
Er sú lýsing talin ein hin yfirgrips-
mesta og nákvæmasta sem hefur
verið saman sett. Sýnt er hvernig
maðurinn gengur inn í líf annars
heims; hið andlega eðli umhverf-
isins; eðli hjúskapar og margt
margt fleira. í trúarskýringum
sínum leitast Swedenborg við að
gæða kristna kenningu endurnýj-
andi lífskrafti.
Skýringar Swedenborgs á
kenningum kristninnar hafa
höfðað til leitenda og áhuga-
manna um hefðbundin trúar-
brögð víðs vegar í heiminum, og
innsæi þeirra gripið þá sterkum
tökum.
Skáldsaga eftir
Doris Lessing
Bókaútgáfan FORLAGIÐ
hefur gefið út skáldsöguna Dag-
bók góðrar grannkonu eftir Doris
Lessing. Þuríður Baxter þýddi
söguna.
Sagan segir frá Jane Somers.
Hún er kona í ábrgðarstöðu og
hefur alla tíð hugsað fyrst og
fremst um starf sitt, útlit og
frama. Þegar hún horfir á eftir
eiginmanni sínum og móður í
gröfina, rennur smám saman upp
fyrir henni að samband hennar
við samferðamenn sína hefur ver-
ið reist á sandi.
Af tilviljun kynnist hún gamalli
konu, Maudie, sem komin er um
nírætt. Smám saman þróast sam-
band þeirra á þá lund að Jane
axlar ábyrgð á gömlu konunni og
dregur um leið lærdóm af lífi
hennar. Maudie sýnir henni ver-
öld sem Jane hefur aldrei kynnst,
óvæga baráttu ungrar stúlku um
aldamótin fyrir tilveru sinni -
baráttu sem ekki er lokið, því að
á gamals aldri berst hún jafn von-
lausri baráttu fyrir verðugu lífi.
Dagbók góðrar grannkonu er
304 bls. Bókin er prentuð í Dan-
mörku. Ragnheiður Kristjáns-
dóttir hannaði kápu.
er létt fundin og lítils metin.
Sögur Guðbergs eru þörf áminn-
ing til þeirrar þjóðar sem leitar
langt yfir skammt og reynist ófær
um að koma auga á ævintýrið hið
næsta sér,“ segir að lokum í frétt
frá útgáfunni.
Maðurinn er myndavél er 133
bls. Prentsmiðjan Oddi hf. prent-
aði. Guðrún Ragnarsdóttir hann-
aði kápu.
Viötalsbók um
nauðganir
Bókaútgáfa Máls og menning-
ar hefur sent frá sér kilju sem
nefnist HREMMINGAR - viðtöl
um nauðgun, eftir Sigrúnu Júlíus-
dóttur, félagsráðgjafa. Þessari
bók er ætlað að verða tilefni um-
ræðu um meðferð nauðgunar-
mála hér á landi.
í henni er sagt frá athugun á
reynslu tuttugu og fjögurra ís-
lenskra kvenna sem orðið hafa
fórnarlömb nauðgunar. Konurn-
ar segja frá sjálfum sér, árásinni
sem þær urðu fyrir og eftirköst-
unum. Jafnframt fjallar höfundur
um kæru, læknisskoðun og önnur
eftirmál. f lokin dregur Sigrún
saman niðurstöður sínar sem
byggðar eru á viðtölum við kon-
urnar, og ræðir leiðir til úrbóta.
Sigrún Júlíusdóttir hefur átt
sæti í nefnd á vegum dómsmála-
ráðuneytisins sem falið var að
„kanna hvernig háttað væri rann-
sókn og meðferð nauðgunarmála
og gera tillögur til úrbóta í þeim
efnum“. Það kom í hlut hennar
að vinna að athugun á reynslu og
viðhorfum kvennanna sjálfra, og
er bók hennar byggð á þeirri at-
hugun.
HREMMINGAR er 119 bls. að
stærð, í kiljubroti. Kristjana
Samper gerði myndir í bókina og
málverk á kápu.
Dagbók
góörar
grannkonu
Happdrætti
Þjóðviijans
Umboðsmenn:
Reykjavík og nágrenni:
Reykjavik: Afgreiðsla Þjóðviljans Síðumúla 6. Opið kl. 9-17 virka daga.
Opið 9-12 laugardaga. Skrifstofa Alþýöubandalagsins Hverfisgötu 105, 4. hæð.
Opið 9-17 virka daga.
Suðurland:
Vestmannaeyjar: Jóhanna Njálsdóttir, Hásteinsvegi 28, sími 98-11177.
Hveragerði: Ingibjörg Sigmundsdóttir, Heiðmörk 31, sími 98-34259.
Selfoss: Sigurður R. Sigurðsson, Lambhaga 19, simi 98-21714.
Þorlákshöfn: Elín Björg Jónsdóttir, Haukabergi 6, sími 98-33770.
Eyrarbakki: Jóhann Þórðarson, Sunnutúni, sími 98-31229.
Stokkseyri: Jóhann Þórðarson, Sunnutúni, sími 98-31229.
Laugarvatn: Torfi Rúnar Kristjánsson, sími 98-61153.
Hella: Guðrún Haraldsdóttir, Þrúðvangi 9, sími 98-75821.
Vík í Mýrdal: Vigfús Þ. Guðmundsson, Mánabraut 12, sími 98-71232.
Norðurland eystra:
Ólafsfjörður: Sæmundur Ólafsson, Vesturgötu 3, simi 96-62267.
Dalvík: Þóra Rósa Geirsdóttir, Hólavegi 3, sími 96-61411.
Akureyri: Haraldur Bogason, Norðurgötu 36, sími 96-24079.
Húsavík: Aðalsteinn Baldursson, Baughóli 31 b, sími 96-41937.
Raufarhöfn: Angantýr Einarsson, Aðalbraut 33, sími 96-51125.
Þórshöfn: Dagný Marinósdóttir, Sauðanesi, sími 96-81166.
Austurland:
Vopnafjörður: Aðalbjörn Björnsson, Lónabraut 41, sími 97-31108.
Egilsstaðir: Guðlaug Ólafsdóttir, Sólvöllum 10, sími 97-11488.
Seyðisfjörður: Óttarr Magni Jóhannsson, Langatanga 3, sími 97-21525.
Neskaupstaður: Kristinnlvarsson, Blómsturvöllum 47, sími 97-71468.
Eskifjörður: Hjalti Sigurðsson, Svínaskálahlið 19, sími 97-61367.
Reyðarfjörður: Þorvaldur Jónsson, Hæðargarði 18, sími 97-41159.
Fáskrúðsfjörður: Anna Þóra Pétursdóttir, Hlíðargötu 37, sími 97-51283.
Stöðvarfjörður: Ingimar Jónsson, Túngötu 3, sími 97-58894.
Hornafjörður: Benedikt Þorsteinsson, Ránarslóð 6, sími 97-81243.
Norðurland vestra:
Hvammstangi: Flemming Jessen, Kirkjuvegi 8, sími 95-1368.
Skagaströnd: Edvald Hallgrímsson, Hólabraut 28, sími 95-4685.
Sauðárkrókur: Sigurður Karl Bjarnason, Víðigrund 4, simi 95-5989.
Siglufjörður: Hafþór Rósmundsson, Hliðarvegi 23, sími 96-71624.
Vesturland:
Akranes: Jóna K. Ólafsdóttir, Jörundarholti 170, sími 93-11894.
Borgarnes: Sigurður Guðbrandsson, Borgarbraut 43, sími 93-71122.
Stykkishólmur: Kristín Benediktsdóttir, Ásaklifi 10, sími 93-81327.
Grundarfjörður: Matthildur Guðmundsdóttir, Fagurhólstúni 10, simi 93-86715.
Ólafsvik: Margrét Jónasdóttir, Túnbrekku 13, sími 93-61197.
Hellissandur og Rif: Arnheiður Matthíasdóttir, Bárðarási 6, simi 93-66697.
Vestfirðir:
Bildudalur: Halldór Jónsson, Lönguhlíð 22, sími 94-2212.
Þingeyri: Davíð Kristjánsson, Aðalstræti 39, simi 94-8117.
Flateyri: Hafdís Sigurðardóttir, Þórustöðum, sími 94-7658.
Suðureyri: Þóra Þórðardóttir, Aðalgötu 51, sími 94-6167.
ísafjörður: Bryndís Friðgeirsdóttir, Aðalstræti 22a, sími 94-4186.
Bolungarvík: Kristinn Gunnarsson, Hjallastræti 24, simi 94-7437.
Dalvfk: Jón Ólafsson, Brunnagötu 7, sími 95-3173.
Reykjanes:
Garður: Kristjón Guðmannsson, Melbraut 12, sími 92-27008.
Keflavík: Jóhann Björnsson, Hringbraut 75, sími 92-1227F.
Njarðvík: Jóhann Björnsson, Hringbraut 75, sími 92-12275.
Hafnarfjörður: Hafsteinn Eggertsson, Norðurvangi 10, sími 651304.
Garðabær: Þórir Steingrímsson, Markarflöt 8, sími 44425.
Kópavogur: Sigurður Flosason, Kársnesbraut 54, sími 40163.
Seltjarnarnes: Sæunn Eiriksdóttir, Hofgörðum 7, simi 621859.
Mosfellsbær: Kristbjörn Árnason, Borgartanga 2, sími 666698.
Auglýsið í
Nýju Helgarblaði
Fjárhagsáætlun
Reykjavíkurborgar 1989
Nú stendur yfir gerö fjárhagsáætlunar Reykjavík-
urborgar fyrir áriö 1989. Athygli borgarbúa, svo
og hagsmunasamtaka (t.d. íbúasamtaka), er
vakin á að óskir, tillögur og ábendingar varðandi
gerð fjárhagsáætlunarinnar þurfa að hafa borist
borgarráði fyrir 13. desember n.k.
15. nóvember 1988
Borgarstjórinn í Reykjavík
Móðir okkar, tengdamóðir og amma
Jónína Salvör Helgadóttir
andaðist á öldrunar- og hjúkrunarheimilinu Skjóli 15. nóv-
ember.
Fyrir hönd systkina minna og annarra vandamanna
Ernst Fridolf Backman
Fimmudagur 17. nóvember 1988 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 11