Þjóðviljinn - 03.12.1988, Blaðsíða 1
Laugardagur 3. desember 261. tölublað 53. órgangur
Áfengiskaup handhafa forseta
Þorvaldur með
1300 flöskur
Forseti sameinaðs þings: Þorvaldur GarÖar hdl. meðl291 flösku ‘84, ‘85, ‘86 og ‘88.
Hœstaréttardómarar: ÞórVilhjálmsson: 834. Magnús Torfason: 390. LogiEinarsson:180.
Magnús Thoroddsen: 2160. Samtals4855flöskur. Stigs- en ekki eðlismunur ákaupum einstakra
aðila
Þorvaldur Garðar Kristjánsson
hdl. fyrrum forseti sameinaðs
þings keypti samtals 1291 flösku
af áfengi á fjórum árum, mest 444
flöskur árið 1986. Áður hafði
Þorvaldur Garðar talað um að
hann hefði keypt u.þ.b. 100 -200
flöskur á ári. Þorvaldur Garðar
neitaði að tjá sig um málið þegar
Þjóðviljinn ræddi við hann í gær.
Þetta kemur fram í samantekt
Ríkisendurskoðunar um áfeng-
iskaup handhafa forsetavalds síð-
ustu 6 ár, sem gerð var að beiðni
fjármálaráðherra. Ráðherra
segir rétt að opinbera þessar upp-
lýsingar eðli máisins vegna.
Forsetar Hæstaréttar frá árinu
1982 hafa verið þeir Logi Einars-
son, Þór Vilhjálmsson, Magnús
Torfason og nú síðast Magnús
Thoroddsen.
Logi keypti 180 flöskur árið
1982 og þar af 48 af sterku víni.
Þór Vilhjálmsson keypti öllu
meira eða 447 flöskur 1983 og 387
flöskur 1984, þar af 230 flöskur af
sterku áfengi hvort árið. Magnús
Torfason keypti 174 flöskur 1985
og þar af 92 af sterku og 216 flösk-
ur 1986, þar af 156 af sterku. Aðr-
ir handhafar forsetavalds á þessu
tímabili, Jón Helgason fyrrum
forseti Alþingis, Guðrún Helga-
dóttir núverandi forseti og for-
sætisráðherrarnir Steingrímur
Hermannsson og Þorsteinn Páls-
son keyptu ekki áfengi á þessum
kjörum.
Fjármálaráðherra hefur lýst
því yfir að heimild handhafa for-
setavalds til áfengiskaupa á
kostnaðarverði, eigi eingöngu
við þegar handhafarnir standa
sameiginlega fyrir boði eða mót-
töku, starfa síns vegna. Hér sé
ekki um einkamál eða risnu að
ræða. Ólafur Ragnar lýsti því yfir
í gær að hann ætlaði að þrengja
verulega reglur um þessi áfeng-
iskaup og afnéma þennan rétt til
handhafa forsetavalds.
Guðrún Helgadóttir forseti
Sameinaðs þings, tók í sama
streng í gær og sagði þessa heim-
ild til áfengiskaupa ekki til einka-
nota. Hún vissi aldrei til þess að
handahafar forseta hefðu þurft
að halda sameiginlega boð í nafni
forseta. Þegar Þorvaldur Garðar
Kristjánsson var spurður hvort
hann liti ekki þannig á málið að
um stigsmun en ekki eðlismun
væri að ræða hvað áfengiskaup
hans varðaði annars vegar og
kaup MagnúsarThoroddsen hins
vegar, sagðist Þorvaldur ekki
vilja tjá sig um það atriði frekar
en önnur.
Forseti íslands skrifaði í gær
undir beiðni dómsmálaráðherra
um lausn Magnúsar Thoroddsens
frá embætti hæstaréttardómara
um stundarsakir. Ráðherrann
hefur ákveðið að höfða mál á
hendur Magnúsi fyrir misnotkun
á aðstöðu varðandi áfengiskaup.
Hæstiréttur ákvað í gær að mál-
flutningur yrði endurtekinn í 7
málum sem Magnús sat í dóm-
sæti, en úrskurðar var að vænta í
öllum þessum málum í þessum
mánuði. Haraldur Henrýsson
hefur verið settur hæstaréttar-
dómari meðan beðið er dóms í
máli Magnúsar.
Halldór Ásgrímsson, dóms-
málaráðherra sagði í samtali við
Þjóðviljann að það væri dómstól-
Ólafur Ragnar Grímsson formaður Alþýðubandalagsmanna afhendir Jici Pelikan stuðningsályktun Al-
þýðubandalagsmanna. Svavar Gestsson menntamálaráðherra fylgist með. (Mynd: Jim).
anna að skera úr um það hvort
það væri saknæmt fyrir handhafa
forsetavaldsins að hafa keypt
áfengi á þessum kjörum til einka-
nota, hvort sem um væri að ræða
1440 flöskur eða 444 flöskur.
Samkvæmt því er mál Magnúsar
Thoroddsen prófmál og undir
niðurstöðu þess máls komið
hvort flestir ef ekki allir forsetar
hæstaréttar og Þorvaldur Garðar
Kristjánsson fyrrum forseti sam-
einaðs þings verði dregnir fyrir
dórn. phh
Tékkóslóvakía
Stuðningurinn
mikiivægur
Ég er þakklátur, stuðningur
vinstrimanna á Vesturlöndum við
stjórnarandstöðuöfl í Tékkóslóv-
akíu er mjög mikilvægur, sagði
Jici Pelikan, fyrrverandi sjón-
varpsstjóri í Prag, þegar formað-
ur Alþýðubandlagsins afhenti
honum í gær nýsamþykkta álykt-
un flokksins um frið og afvopnun
í Evrópu.
í ályktuninni er sérstaklega
hvatt til þess að stórveldin dragi
herji sína burt frá Evrópu-
löndum, og sérstaklega mótmælt
alræðisstjórninni í Prag og sov-
éskum hersveitum í Tékkósló-
vakíu.
Pelikan hélt í gær óformlega
fundi með forystumönnum ís-
lenskra sósíalista og ýmsum vel-
unnurum þjóðanna handan
járntjalds.
Sjá síðu 5
Umhverfismál
Nýtt
landnám
Öllu máli skiptir að
sauðfjárbúskapur sé skipulagður
þannig að hann sé í samræmi við
gæði landsins. Það þarf samvinnu
en ekki stríð við bændur, segir
Jón Gunnar Ottósson líffræðing-
ur. Miðstjórn Alþýðubandalags-
ins gerði á dögunum ítarlega sam-
þykkt um nýtt landnám og endur-
heimt landsgæða.
Sjá síður 8-9
Eyðnivika
Auglýsing kostaði vinnuna
Þjónsnema varsagtaðfara heim eftirað mynd birtist af honum íauglýsingu frá
Samtökunum 78
Þegar hann mætti í vinnuna
kvöldið sem auglýsing frá Sam-
tökunum 78 birtist í dagblaði var
honum sagt að taka sér frí um
óákveðinn tíma. Þetta er reynsla
homma sem tók þátt í herferð
heilbrigðisyfirvalda gegn eyðni
sem lauk í vikunni.
Pilturinn er að læra að verða
þjónn og er á iðnnemasamingi og
því ekki hægt að segja honum
upp. Hins vegar var honum sagt
að ekki væri þörf fyrir hann áfram
á þessum vinnustað. í eyðni-
vikunni sem nú er nýlokið birtist
auglýsing undir nafni Samtak-
anna 78 sem eru samtök homma
og lesbía hér landi. í auglýsing-
unni er birt mynd af tveim ungum
mönnum og var texti hennar:
„Þeir óttast ekki alnæmi sem vita
hvað hugtakið hættulaust kynlíf
merkir - og lifa samkvæmt því“.
Þótt auglýsing þessi hafi verið frá
Samtökunum 78 var hún birt með
tilstyrk heilbrigðisyfirvalda.
Þjóðviljinn hafði samband við
Þorvald Kristinsson formann
samtakanna vegna þessa máls.
Hann sagði að málið væri á við-
kvæmu stig og vildi ekkert tjá sig
um það að svo stöddu.
-sg