Þjóðviljinn - 03.12.1988, Blaðsíða 13

Þjóðviljinn - 03.12.1988, Blaðsíða 13
ERLENDAR FRETTIR Pakistan 55 .sver og sárt við legg“ Benazír Bhutto tekur við stjórnartaumum ííslamabad Benazír Bhutto sór embættiseið sem forsætisráðherra Paki- stans í gær og hét við það tækifæri að græða hin fjölmörgu sár á þjóðarlíkamanum sem 11 ára herforingjagerræði færði henni í arf. Bhutto er 35 ára gömul og sem kunnugt er fyrsta konan scm hefst til æðstu valda í ríki mú- hameðstrúarmanna. Eiðinn sór hún forseta Iands- ins, Ghulam Ishaq Khan, í aug- sýn fjölda fyrirmanna úr her og pólitík auk erlendra gesta. At- höfnin þótti látlaus og virðuleg. „Þetta eru merk tímamót fyrir konur, stór stund fyrir æskulýð- inn en umfram allt eru þetta tíma- mót í sögu Pakistans," sagði for- sætisráðherrann við fréttamenn eftir svardagann. Skömmu síðar ávarpaði hún landsmenn um sjónvarp og hét því að tryggja prentfrelsi og mál- frelsi í hvívetna og sjálfstæði fjöl- miðla, stuðla að afnámi allra lögfestra ranginda í garð kvenna og lausn samviskufanga. Hún sat undir risastórri vegg- mynd af föður sínum heitnum og forvera í embætti. Kvaðst hún vera staðráðin í því að reisa „písl- arvottum lýðræðisins" minnis- merki og greiða öllum skaðabæt- ur sem ættu um sárt að binda eftir valdníðslu Zía ul-Haqs. „Við hyggjumst græða sár og vinna bug á hverskyns erfiðleikum af þolinmæði og umburðarlyndi gagnvart náunganum og hafa vin- áttu og bræðralag manna að leiðarljósi." Árla í gær varð Bhutto fyrir pólitískum skakkaföllum sem vörpuðu skugga á þennan merk- isdag í lífi hennar. Helsti fjándi hennar, Nawaz Sharif, náði yfir- ráðum á löggjafarsamkundu Punjabfylkis sem er stærst fjög- urra héraðsþinga í Pakistan. I Afganistan Sovétmenn ræða við skæmliða Fyrstu opinberu viðrœðurþeirra á millifrá stríðsbyrjun Tilkynnt hefur verið af hálfu sovéskra stjórnarvalda að Júlí Vorontsov, fyrsti aðstoðarutan- ríkisráðherra Sovétríkjanna og ambassador þeirra í Afganistan, muni í dag leggja af stað til Saudi- Arabíu til viðræðna við leiðtoga afganskra uppreisnarmanna, í von um að „finna lausn á vanda- málum Afganistans,“ eins og það er orðað. Þetta eru fyrstu milliliðalausu og opinberu viðræðurnar milli Sovétmanna og afganskra upp- reisnarmanna, frá því að stríðið hófst í Afganistan fyrir tíu árum. Fara þær fram í Taif, suðaustur af Mekku. Til viðræðna við Vor- ontsov kemur þangað þriggja manna sendinefnd frá bandalagi sjö afganskra uppreisnarsamtaka undir forustu Burhanuddins Ra- bani, formanns bandalagsins. Að sögn sovésks talsmanns er til við- ræðnanna stofnað með fullu sam- þykki afgönsku Kabúlstjórnar- innar, sem Sovétmenn styðja. Gulbuddin Hekmatjar, leiðtogi strangtrúarsamtakanna Hezb-i- Islami, segir þetta hinsvegar merkja að Sovétmenn hafi nú gefið Kabúlstjórnina upp á bát- inn og viðurkennt forustumenn uppreisnarmanna sem hina eigin- legu fulltrúa afgönsku þjóðarinn- ar. Hekmatjar kveður það af og frá að uppreisnarmenn myndi samsteypustjórn með Kabúl- stjórninni, enda höfnuðu þeir í s.l. mánuði tilboði Najibullah, forseta þeirrar stjórnar, um samningaviðræður. Ljóst er að til viðræðnanna er stofnað með milligöngu saúdiar- abískra valdhafa, sem styðja af- ganska uppreisnarmenn dyggi- lega á vettvangi alþjóðastjórn- mála og með fjárframlögum. Samkvæmt samkomulagi gerðu milli Kabúlstjórnarinnar og Paki- stans í apríl s.l. á allur sovéskur her að vera farinn frá Afganistan í síðasta lagi í febr. n.k., en und- anfarið hafa Sovétmenn sakað Pakistan um brot á samningnum með beinum herstuðningi við uppreisnarmenn. Hafa Sovét- menn gefið í skyn, að þetta geti orðið til þess að þeir fresti brott- kvaðningu hersveita sinna. Reuter/-dþ. Angóla/S. -Afríka Snurða hljóp á þráðinn Malan og Botha komu til Brazzaville með nýjar kröfur Einsog kunnugt er úr fréttuin hafði samkomulag tekist með fulltrúum stjórna Angólu, Suður- Afríku, Kúbu, Bandaríkjanna þess efnis að erlendur hyrfi á brott úr fyrstnefnda ríkinu og Pretóríustjórnin virti fullveldi Namibíu. Allt var „klappað og klárt“ og komu fulltrúarnir til Brazzaville, höfuðborgar Kong- ós, í því skyni að undirrita skjal- festa útgáfu munnlegs samnings. En þá kom babb í bátinn. Skyndilega skutu þeir Pik Botha og Magnus Malan upp kollinum, utanríkis- og varnarmálaráðherr- ar hvítra Suður-Afríkumanna. Kváðust þeir vera komnir til við- ræðna um ný og „afar viðkvæm“ málsefni. Þar með er allt komið í óvissu að nýju. Oddviti Angólumanna, Antonio dos Santos Franca hers- höfðingi, segir þá tvímenninga krefjast traustra trygginga fyrir brottför kúbansks herliðs úr föðurlandi sínu og skýrslu um til- högun heimflutninganna. En það sé ekki þeirra mál, heimför Kú- bana verði skipulögð af þeim sjálfum í samræmi við samkomu- lag. Með efndum fylgist fulltrúar Sameinuðu þjóðanna og alþjóð- legar eftirlitssveitir. Reuter/-ks. Argentína Uppreisn í hemum Deildir nokkrar í argcntínska hernum gerðu í gærmorgun uppreisn og tóku á vald sitt stær- stu herbækistöð landsins, Campo de Mayo. Fyrir uppreisnar- mönnum er ofursti nokkur, Mo- hamcd Ali Seineldin að nafni, sem reiddist Jose Dente Caridi, yfir- hershöfðingja landhersins, vegna brostinnar vonar um hækkunar í tign. Seineldin þessi er sagður vin- Forystusveit Pakistanska alþýðuflokksins. í forgrunni situr nýskipaður forsætisráðherra, röggsamur leiðtogi og fríður sínum. Punjab býr rúmur helmingur landsmanna, 55 miljónir af 104. Fréttaskýrendur brugðu skjótt við og spáðu því að fyrstu valda- dagar forsætisráðherrans nýja myndu einkennast af togstreitu hans og Punjabþings. Reuter-ks. veittur undirofursta að nafni Aldo Rico, sem stóð fyrir tveimur uppþotum í hernum í apríl 1987 og í jan. 1988. Pau upp- þot stöfuðu af gremju herforingja út af því að vera sóttir til saka vegna hryðjuverka hersins á tíð hershöfðingj astj órnarinnar 1976- 83.. Yfirstjórn Argentínuhers hef- ur sent hersveitir á vettvang til að bæla niður uppreisn Seineldins. Reuter/-dþ. ALÞYÐUBANDALAGIÐ Laugardagur 3. desember 1988 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 13 Menningarmálanefnd AB Munið fundinn þriðjudaginn 6. desember kl. 17.00. - Þórunn. AB Kópavogi Spilakvöld í Þinghóli Munið síðasta spilakvöldið í Þinghóli, Hamraborg 11, mánudaginn 5. des- ember kl. 20.30. Allir velkomnir. - Stjórnin AB Akureyri Bæjarmálaráðsfundur Fundur í Lárusarhúsi, mánudaginn 5. desember kl. 20.30. Fundarefni: Dagskrá bæjarstjórnarfundar 6. des. Önnur mál. - Stjórnin Alþýöubandalagid Vesturlandi Kjördæmisráð Ráðstefna með stjórnum félaganna verður haldin í Rein laugardaginn 3. desember n.k. kl. 14.00. Dagskrá: 1) Flokksstarfið í vetur. 2) Útgáfumál. Allir félagar velkomnir. Stjórnin Alþýöubandalagiö í Reykjavík Spilakvöld Þriðja og síðasta spilakvöldið í þriggja kvölda keppninni verður á þriðjudag- inn kemur, 6. desember, á Hverfisgötu 105 og hefst klukkan 20.30. Þrig- gjakvöldakeppninni haldiö áfram en einnig sjálfstæð keppni þetta eina kvöld. Allir velkomnir. - Stjórnin. Alþýðubandalagid í Kópavogi Morgunkaffi Laugardaginn 3. desember frá 10-12. Bæjarfulltrúarnir Heimir Pálsson og Valþór Hlöðversson hella uppá könnuna ásamt Snorra S. Konráðssyni fulltrúa í íþróttanefnd og Lovísu Hannesdóttur í stjórn sjúkrasamlagsins. Allir velkomnir. Stjórnin Alþýðubandalagið í Kópavogi Listakvöld Á laugardagskvöldið 3. desember verður haldiö listakvöld í Þinghól, Hamra- borg 11, Kópavogi. Kynnt verða verk eftir Eyvind P. Eiríksson, Guðmund Andra Thorsson og Herdísi Hallvarðsdóttur. Komið og kynnist nýjum bókum, tónlist og Ijóðum. Kaffi og léttar veitingar á boðstólum fram eftir kvöldi. Öllum heimill ókeypis aðgangur. Stjórnin ÆSKULYÐSFYLKINGIN Æskulýðsfylkingin Fulltrúaráðsfundur Fulltrúaráðsfundur verður hjá Æskulýðsfylkingunni 3. desember nk. kl. 14 að Hverfisgötu 105. Dagskrá: 1. Skýrsla stjórnar. 2. Starfsáætlun vetrarins. 3. Stjórnmálaviðhorfið. 4. Kosning í nefndir og í framkvæmdastjórn. 5. Önnur mál. Stjórnin. Æskulýðsfylkingin Vestnorræn sjávarútvegsráðstefna Æskulýðsfylkingin í samvinnu við sósíalísk æskulýössamtök í Noregi, Fær- eyjum og Grænlandi, gengst fyrir ráðstefnu um sjávarútvegsmál, laugardaginn 3. desember nk. Ráðstefnan verður haldin í Vitanum, Strandgötu 1, Hafnarfirði og hefst kl 14.00. Dagskrá: 1) Setning. 2) Þorketl Helgason prófessor fjallar um stöðu sjávarút- vegs á íslandi. 3) Kristinn H. Einarsson fjallar um sósíalíska stefnu í sjávarút- vegsmálum. 4) Gísli Pálsson mannfræðingur fjallar um samspil sjávarútvegs og menningar. 5) Gunnar Ágústsson deildarstjóri hjá Siglingamálastofnun fjallar um mengunarhættu á NV-Atlantshafi. 6) Almennar umræður. Allt áhugafólk um sjávarútvegsmál er hvatt til að mæta á ráðstefnuna. ÆFAB __________________________________

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.