Þjóðviljinn - 28.12.1988, Side 6
Fósturfjölskyldur
óskast
Óskum eftir aö komast í samband viö fjölskyldur
sem vilja taka aö sér börn í skamman tíma vegna
erfiðleika á heimilum. Viökomandi fjölskylda gæti
þurft að taka barn á heimili sitt meö stuttum fyrir-
vara. Laun samkomulag.
Einnig viljum við gjarnan komast í samband við
fjölskyldur sem óska eftir aö taka börn í fóstur til
langs tíma. Upplýsingar gefa félagsráðgjafar í
síma 45700 kl. 9 - 15 daglega.
Félagsmálastofnun Kópavogs
RER
rafmagnseftirl.it ríkisins
Rafvirkjar -
Rafverktakar
Próf í þeim áföngum, sem kenndir hafa veriö á
námskeiöum Rafiðnaðarskólans til löggildingar í
rafvirkjun, veröa haldin í Tækniskóla Islands og
Verkmenntaskólanum á Akureyri, fimmtudaginn
5. janúar 1989 kl. 13.00 - 14.30.
Þátttakendur leggi fram staðfest gögn um aö þeir
hafi lokið námskeiðunum, eöa sambærilegu
námi.
Rafmagnseftirlit ríkisins
Lausar stöður
heilsugæslulækna
Lausar eru til umsóknar eftirtaldar stöður heilsu-
gæslulækna.
1. Patreksfjörður H2, önnur læknisstaða frá 1.
júlí 1989.
2. Þingeyri H1, staða læknis frá 1. mars 1989.
3. Siglufjörður H2, önnur staða læknis frá 1. júlí
1989.
4. Akureyri H2, ein staða læknis frá 1. apríl 1989.
5. Þórshöfn H1, staða læknis frá 1. mars 1989.
Umsóknir ásamt ítarlegum upplýsingum um
læknismenntun og læknisstörf sendist ráðuneyt-
inu fyrir 1. febrúar 1989 á sérstökum eyðu-
blöðum, sem þar fást og hjá landlækni. í umsókn
skal koma fram hvenær umsækjandi getur hafið
störf. Æskilegt er að umsækjendur hafi sérfræði-
leyfi í heimilislækningum.
Upplýsingar um stöðuna veita ráðuneytið og
landlæknir.
Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið,
23. desember 1988.
Ingibjörg Vestmann
Hringbraut 24, Reykjavík
sem andaðist 22. desember síðastliðinn verður jarðsungin
frá Dómkirkjunni fimmtudaginn 29. desember kl. 13.30.
Þeim sem vildu minnast hennar er bent á Krabbameinsfé-
lagið
Stefán Bjarnason
Elsa Stefánsdóttir Birgir Sigurðsson
Anna St. Ágústsdóttir Kjartan Bjargmundsson
Einar Ingi Agústsson
Elías Halldór Ágústsson
Eva Ágústsdóttir
og barnabarnabörn
FRETTIR
Menningarsjóður útvarpsstöðva
Stöðvamar eiga ekki sjóðinn
Kvikmyndagerðarmenn skora á menntamálaráðherra að leggja ekki
niður Menningarsjóð útvarpsstöðva
Það er rétt að breyta rekstrar-
formi Menningarsjóðs útvarps-
stöðva, en fráleitt að leggja hann
niður, segja stjórnarmenn i' Fé-
lagi kvikmyndagerðarmanna í
opnu bréfí til menntamálaráð-
herra, og fullyrða að talsverður
hluti gagnrýni útvarpsmanna á
sjóðinn stafí af því að þeir líti á
hann sem sína eign, sem hafí alls
ekki verið hugmyndin í upphafí.
Bréf þeirra er svohljóðandi:
Hr. menntamálaráðherra
Svavar Gestsson,
Menntamálaráðuneytinu,
Hverfisgötu 4, 101 R.
Tilgangurinn með Menningar-
sjóði útvarpsstöðva var að hvetja
til framleiðslu menningarlegs
dagskrárefnis. Menn höfðu
áhyggjur af því að einkastöðvar
myndu útvarpa mest erlendu létt-
meti, nema þær fengju hvatningu
til að framleiða innlend verk.
Þess vegna var Menningarsjóður-
inn stofnaður um leið og útvarp
var gefíð frjálst.
Tekjur Menningarsjóðsins
voru sérstakt gjald á auglýsinga-
tekjur stöðvanna. Gjaldið var
ekki tekið af þeim auglýsinga-
tekjum sem stöðvarnar höfðu
fyrir.
Menningarsjóðurinn hefur út-
hlutað fé til flestra metnaðar-
fyllstu verka sem stöðvarnar hafa
framleitt eða sýnt undanfarið.
Eigendur einkastöðvanna og
fjármáiastjóri Ríkisútvarpsins
hafa gagnrýnt Menningarsjóð-
inn. Gagnrýnin byggist á því að
þeir vilja ekki utanaðkomandi af-
skipti af dagskrárgerð stöðvanna.
En sannleikurinn er sá, að
Mmenningarsjóðurinn hefur
hvatt þá til að auka og bæta inn-
lenda dagskrá. Menningarsjóðn-
um hefur verið lýst sem óþarfri
millifærslu, því stöðvarnar virð-
ast gera þá kröfu til sjóðsins, að
þær fái svipaða upphæð til baka
og þær greiða til hans. En til þess
að fá fé úr sjóðnum, hafa stöðv-
arnar orðið að leggja fram hug-
myndir að verðugum verkefnum.
Annars hefðu þessir peningar
farið í almennan rekstur hjá þess-
um stofnunum.
Þessi gagnrýni stafar aðallega
af því að stöðvarnar sjálfar hafa
of mikil afskipti af stefnu sjóðsins
og líta á hann sem sína eign.
Menningarsjóður útvarps-
stöðva getur, ef rétt er á málum
haldið, orðið öflugur farvegur við
hlið Kvikmyndasjóðs til gerðar
kvikmyndafyrirsjónvarp. Iraun-
inni mælir ekkert gegn samvinnu
þesara sjóða við fjármögnun ein-
stakra kvikmynda. Sjóðimir tveir
gætu sameinast í átaki til að
bjarga íslenskri tungu og menn-
ingu á tímum þegar heimurinn er
að verða einlitt alþjóðlegt menn-
ingarsvæði.
Kvikmyndagerðarmenn og
kvikmyndaframleiðendur áttu
hugmyndina að Menningar-
sjóðnum og hún hlaut strax
stuðning þingmanna úr öllum
flokkum á Alþingi.
Nú má ekki Iáta skammsýna
forráðamenn stöðvanna rýra
möguleika sjóðsins með einhvers
konar hrossakaupastefnu, þar
sem þeir eru að skipta sjóðnum á
milli sín eftir hlutfallsreglum.
Verðleikar verkefna eiga auðvit-
að að ráða styrkveitingum.
Þessvegna er augljóst, að
Menningarsjóðnum þarf að setja
óháða stjórn og gera honum
kleift að reka menningarlega
stefnu. Ef skortur er á hugmynd-
um hjá stöðvunum, er eðlilegt að
kvikmyndagerðarmönnum verði
leyft að sækja beint í sjóðinn, án
milligöngu stöðvanna.
Einnig væri rétt að finna Sin-
fóníuhljómsveitinni annan tekju-
stofn, til þess að Menningarsjóð-
urinn geti nýtt fé sitt betur. Enda
er óeðlilegt að hljómsveitin, þó
hún sé góðra gjalda verð, fái
reikninga sína greidda hjá Menn-
ingarsjóðnum áður en hann getur
byrjað að sinna aðalhlutverki
sínu. Þetta fyrirkomulag stuðlar
einnig að óréttlæti í viðskiptum
við hljómsveitina, þar sem Ríkis-
útvarpið hefur meiri rétt á af-
rakstri sveitarinnar en aðrir sem í
sjóðinn borga.
Stjórn FK lýsir fullum stuðn-
ingi við Menningarsjóðinn en
heitir á þig, menntamálaráð-
herra, að beita þér fyrir nauðsyn-
legum breytingum á rekstrar-
formi hans, svo hann geti sinnt
hlutverki sínu eins og best verður
á kotið.
Þorsteinn Jónsson, Þorgeir
Gunnarsson, Vilhjálmur Ragn-
arsson, Ari Kristinsson, Hjálm-
týr Heiðdal.
Afengisböl
Fríðindi verði afnumin
Landssamband gegn áfengisböl-
inu vill að ríkissjóður leggi
fram á næsta ári að minnsta kosti
100 miljónir til áfengisvarna og
bindindisfræðslu. Þá skorar 1$.
þing sambandsins á Alþingi að af-
nema öll fríðindi í sambandi við
áfengiskaup.
„18. þing Landssambandsins
gegn áfengisbölinu samþykkir að
beina því til stjórnvalda að láta
gera úttekt á þeim kostnaði sem
neysla áfengis veldur í þjóðfé-
laginu.
Fram komi:
1. Kostnaður ríkissjóðs.
2. Kostnaður sveitarfélaga.
3. Annar kostnaður.
18. þing Landssambandsins
gegn áfengisbölinu beinir þeim
eindregnu tilmælum til yfirvalda
að veita aðeins óáfenga drykki í
opinberum veislum.
18. þing Landssambandsins
gegn áfengisbölinu samþykkir að
beina því til stjórnvalda að áfengi
og tóbak verði tekið út úr vísitölu
framfærslukostnaðar. Með því
Hið íslenska Biblíufélag hefur
hafíð útgáfu á Biblíunni á hljóð-
böndum. Út eru komin þessi rit:
Lúkasarguðspjall lesið af dr.
theol Sigurbirni Einarssyni bisk-
upi. Erþaðá4snældumísnoturri
öskju. Postulasagan lesin af
Helgu Stephensen, leikkonu.
Postulasagan er einnig á 4 snæld-
um í sérstakri öskju.
Þá er mjög fljótlega væntanlegt
Markúsarguðspjall, sem lesið er
af Pétri Sigurgeirssyni, biskupi.
yrði unnt að beita virkari verð-
stýringu í þeim tilgangi að draga
úr tjóni af völdum neyslu þessara
efna.“
Það verður á 3 snældum í ser-
stakri öskju.
Tvö fyrstu ritin voru tekin upp í
Hljóðrita í Hafnarfirði af tækni-
mönnunum Baldri Má Arngríms-
syni og Gunnari Árnasyni.
En það þriðja var tekið upp í
hinu nýja hijóðveri Blindrafé-
lagsins og var Gísli Helgason
tæknimaður.
Öllum upptökunum stjórnaði
Guðrún Ásmundsdóttir leik-
kona.
Biblíufélagið
Biblían á hljóðböndum
6 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 28. desember 1988