Þjóðviljinn - 28.12.1988, Side 11

Þjóðviljinn - 28.12.1988, Side 11
Enska knattspyrnan Úrslit 1. deild Aston Villa - QPR.........2-1 Charlton - Arsenal........2-3 Derby - Liverpool.........0-1 Everton - Middlesboro......2—1 Manch. Utd - Nottm. For...2-0 Norwich - West Ham........2-1 Sheff. Wed. - Newcastle...1-2 Southampton - Coventry....2-2 Tottenham - Luton.........0-0 Wimbledon - Millwall......í-o 2. deild Brighton - Cr.Palace......3-1 Chelsea - Ipswich.........3-0 Hull - Bradford...........i-i Leeds - Blackburn..........2-0 Leicester - Bournemouth....0-1 Oldham - WBA...............1-3 Shrewsbury - Birmingham....0-0 Stoke - Manch. City........3-1 Sunderland - Barnsley......1-0 Swindon - Plymouth.........l-o Walsall - Oxford...........1-5 Watford - Portsmouth.......1-0 3. deild Brentford - Blackpool......l-o Bristol Rovers - Wolves....0-0 Bury - Bristol City.........2-1 Cardiff - Swansea...........2-2 Chester - Wigan.............l-o Chesterfield - Huddersfield.1-1 Gillingham - Fulham.........0-1 Mansfield - Port Vale......0-1 Notts County - Sheff. Utd...1-4 Preston - Bolton...........3-1 Reading - Aldershot........3-1 Southend - Northampton......2-1 4. deild Bumley - Wrexham...........1-3 Cambridge - Doncaster......0-0 Carlisle - Rochdale........1-0 Colchester - Peterborough..1-2 Darlington - Halifax.......0-2 Exeter - Hereford..........3-1 Leyton Orient - Tranmere...2-0 Lincoln - Grimsby..........2-2 Rotherham - Crewe..........1-2 Scarborough - York.........0-0 Scunthorpe - Hartlepool....l-l Torquay - Stockport........2-1 Staðan 1. deild: Norwich . 18 18 6 2 28-19 36 Arsenal .17 10 4 3 37-20 34 Liverpool 18 7 7 4 22-13 28 Millwall .17 7 6 4 28-21 27 Everton ,17 7 6 4 22-16 27 5 21-17 27 Coventry ,18 7 6 Derby .17 7 5 5 20-13 26 Southamton ,18 6 8 4 31-27 26 Manch.Utd.. .18 5 9 4 22-16 24 A.Villa .18 5 8 5 28-27 23 Tottenham... .18 5 7 6 28-28 22 Nottm.For... .18 4 10 4 20-23 22 Sheff.Wed .17 5 6 6 15-18 21 Middlesboro. 18 6 3 9 23-31 21 Q.P.R .18 5 5 8 18-18 20 Luton 18 4 8 6 17-18 20 Wimbledon.. .17 5 4 8 17-26 19 Newcastle.... .18 4 S 9 16-32 17 Charlton .18 3 7 8 19-31 16 WestHam... .18 3 4 11 15-33 13 5 !. deild: Chelsea .22 11 7 4 43-23 40 W.B.A .22 11 7 4 38-20 40 Blackbum... .22 12 3 7 36-28 39 Watford .22 11 5 6 34-22 38 Man.City .22 10 7 5 31-22 37 Portsmouth..22 9 8 5 34-25 35 Boumem .22 10 4 8 26-24 34 Bamsley .22 9 6 7 29-27 33 Sunderland. .22 7 10 5 30-26 31 Stoke .22 8 7 7 25-33 31 Leeds .22 7 9 6 26-22 30 Swindon .21 7 9 5 29-28 30 Ipswich .22 9 3 10 29-29 30 Cr.Palace .21 7 8 6 30-28 29 Plymouth.... .22 8 5 9 30-34 29 Leicester .22 7 8 7 26-31 29 Oxford .22 7 6 9 36-33 27 Bradford .22 5 10 7 23-28 25 Hull .22 6 7 9 26-34 25 Oldham .22 5 8 9 34-37 23 Shrewsbury. 22 4 10 8 18-28 22 Brighton .22 6 3 13 28-39 21 Birmingham 22 3 6 13 16-42 15 Walsall .22 2 8 12 19-33 14 ÍÞRÓTTIR Enska knattspyrnan Sviptingar á toppnum Rush skoraði í Liverpool sigri. Arsenal skaust á toppinn í einn dag. Guðni lék heilan leik með Tottenham Guðni Bergsson er greinilega kominn til að vera í enska boltan- um, en hann lék sinn fyrsta leik í 1. deildinni á annan dag jóla. Luton Town sótti þá Tottenham heim á White Hart Lane og lauk leiknum með markalausu jafn- tefli. Guðni lék í stöðu hægri bak- varðar og komst hann ágætlega frá leiknum. Tottenham, sem siglir nú lygnan sjó um miðja deild eftir erfiða byrjun, átti góða möguleika á að vinna leikinn og misnotaði Terry Fenwick t.a.m. vítaspyrnu. Annars breyttist staða efstu liða nokkuð mikið að þessu sinni, enda eru mörg liðanna í hnapp á eftir Norwich og Arsenal. Hið síðarnefnda náði loks toppsætinu með sigri sínum á Charlton, 2-3, en þá átti Norwich eftir að leika við botnliðið West Ham. Brian Marwood og Paul Merson komu Arsenal í 0-2 og bætti Marwood því þriðja við eftir að Steve Mackenzie hafði skorað fyrir heimaliðið. Hann minnkaði síð- an muninn á ný, 2-3, þegar fá- einar mínútur voru til leiksloka en ekki tókst liðinu að jafna. í gærkvöld léku síðan Norwich og West Ham og sigraði Norwich með tveimur mörkum gegn einu. Norwich heldur því tveggja stiga forskoti sínu en West Ham stefnir hraðbyri f aðra deild. Ian Rush tryggði Liverpool langþráðan sigur þegar hann skoraði eina mark leiksins á Baseball Ground í Derby. Það hefur gengið illa bæði hjá Rush og Liveipool að undanfömu en með sigrinum skaust liðið í þriðja sætið. Nú velta menn því fyrir sér hvort þetta sé sá leikur sem komi liðinu á skrið til að verja meist- aratitilinn. Liverpool átti sigur- inn skilið en liðið sótti án afláts eins og svo oft áður í vetur. Upp- skeran varð þó aðeins eitt mark en liðinu gengur óvenju illa að skora um þessar mundir; 22 mörk í 18 leikjum er ekkert til að hrósa sér af á þeim bæ! Nágrannalið Lverpool, Evert- on, hefur heldur betur færst upp stigatöfluna að undanförnu en liðið hékk lengi vel fyrir neðan miðju. Eftir sigur á Middlesbor- ugh, 2-1, hefur Everton 27 stog í 4.-5. sæti deildarinnar. Sem fyrr var það Tony Cottee sem tryggði liðinu sigur en hann var sem kunnugt er keyptur til liðsins fyrir metfé í haust. Trevor Steven skoraði fyrsta mark leiksins en Dean Glover jafnaði áður en Cottee gerði úti um leikinn. Sigurður Jónsson stóð sig rpjög vel þegar lið hans, Sheffield We- dnesday, tapaði fyrir Newcastle á heimavelli sínum. Norðanmenn hafa heldur betur rifið sig upp úr botnsætinu eftir að skipt var um framkvæmdarstjóra en liðið er þó enn í fallbaráttu. Neil McDonald og Michael O’Neill skoruðu mörkin gegn Wednesday en Da- vid Hirst skoraði fyrir heima- menn. Wimbledon sættir sig ekki við fall frekar en Newcastle og gerði liðið sér lítið fyrir og sigraði Millwall sem hefur verið nánast ósigrandi í vetur. Eina mark leiksins gerði maður að nafni Carlton Fairweather og getur orðið erfitt fyrir nýliða Millwall að halda sér í toppbaráttunni í kjölfar ósigursins. Manchester United vann loks sigur eftir tíu leiki í röð án sigurs þegar Nottingham Forest beið Fótbolti-U18 Sigur gegn ímm íslenska landsliðið í knatt- spyrnu, skipað leikmönnum 18 ára og yngri, sigraði lið íra í sama aldursflokki í alþjóðlegu móti í ís- rael í gær. Leiknum lauk með eins marks sigri íslendinga, 2-1, og skoruðu Amar Guðlaugsson, ÍA, og Steinar Guðgeirsson, Fram, mörk íslands. Auk íslands og ír- lands leika Rúmenía, Portúgal, Liechtenstein og B-lið ísraels í sama riðli á mótinu. íþróttamaður ársins Kunngjört í dag Samtök íþróttafréttamanna út- nefna nú í hádeginu íþróttamann ársins 1988. Arnór Guðjohnsen er handhafi þessa titils en Ijóst þykir að valið stendur milli margra manna að þessu sinni. Valið fer nú fram með nýjum hætti. Hingað til hefur hver fjöl- miðill haft eitt atkvæði til valsins en nú hefur hver íþróttafrétta- maður sinn atkvæðisseðil til að ná fram réttlátari skiptingu milli fréttamanna sem um sportið fjalla. Heildarstigafjöldi mun því meira en tvöfaldast og gæti þessi breyting skipt sköpum nú, þegar árangur íslensks íþróttafólks þyk- ir jafnari en oftast áður. Guðni Bergsson byrjaöi vel feril sinn í ensku knattspymunni þótt liði hans, Tottenham Hotspur, tækist ekki að vinna Luton á White Heart Lane. Leiknum lyktaði 0-0. lægri hlut á Old Trafford. Ralph mörk United án þess á Forest Milne og Mark Hughes skoruðu næði að svara fyrir sig. RÍKISSKIP Umboðsmaður á Patreksfirði i Skipaútgerð ríkisins óskar að ráða umboðsmann á Pat- reksfirði frá og með 1. mars 1989. Viðkomandi þarf að hafa yfir að ráða vörugeymsluhúsnæði og tækjum til að afgreiða skipin. Umsóknarfrestur er til 20. janúar 1989. Allar nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu okkar Reykjavík í síma 91-28822. Skipaútgerð ríkisins ^ Laus staða Staða skattstjóra Austurlandsumdæmis er laus til umsóknar. Umsækjendur skulu hafa lokið prófi í lögfræði, hagfræði, viðskiptafræði eða hlotið löggildingu í endurskoðun. Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins. Umsóknir, ásamt upplýsingum um aldur, menntun og fyrri störf, sendist fjármálaráðuneyt- inu fyrir 29. desember 1988. Fjármálaráðuneytið, 21. nóvember 1988 Happdrætti Styrktarfélags vangefinna Vinningsnúmer Bifreið, Subaru station, nr. 74654. Bifreið, Honda Civic, nr. 30327. Bifreiðar að eigin vali á kr. 500.000 nr. 40057, 43738, 46092, 51305, 55036, 59123, 81633, 90877. Styrktarfélag vangefinna Miövikudagur 28. desember 1988 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 11

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.