Þjóðviljinn - 15.06.1989, Qupperneq 7

Þjóðviljinn - 15.06.1989, Qupperneq 7
HÚSMÆÐI * * : Húsbréfin fylgja markaðsvöxtum hverju sinni og þau verða með ábyrð Byggingarsjóðs ríkisins. Byggingarsjóður ríkisins og Seðl- abankinn munu verða virkir aðil- ar á húsbréfamarkaðinum þ.e. vera alltaf með kaup- og sölutil- boð á húsbréfum. Aðrar við- skiptastofnanir geta líka annast viðskipti með húsbréfin. Miðað við markaðsvexti í dag, sem eru í kringum 7-8% þá er ljóst að vex- tir húsbréfanna eru mun hærri en á lánum frá Húsnæðisstofnun ríkisins. Par kemur hinn hluti kerfisins inn í, svokallað Vcixta- bótakerfi þar sem ríkið mun niðurgreiða vexti í gegnum skatt- akerfið til þeirra sem eru undir ákveðnum tekju- og eignamörk- um. Vaxtabætumar em reiknað- ar þannig út að frá þeim vaxtagj- öldum sem fólk greiðir árlega er dregin fjárhæð sem nemur 5% af heimilistekjum og 3% af hverjum 100 þúsund krónum sem eignar- skattstofn fer umfram 1700 þús- und krónur hjá einstaklingi og 3400 þúsund krónur hjá hjónum. Með þessu móti er ætlunin að niðurgreiða vexti hjá þeim hluta fólks sem telst þurfa á því að halda en leggja niður núverandi kerfi sem veitir öllum aðgang að j niðurgreiddum lánum ríkisins. I Hvernig munu viðskipti með j húsbréfin ganga fyrir sig? Eftir að kaupandi hefur fundið íbúð sem hann vill festa kaup á og | seljandinn hefur failist á að taka við húsbréfum sem greiðslu snýr kaupandi sér til aðila sem annast húsbréfaskiptin. Það getur verið Húsnæðisstofnun ríkisins, bank- ar eða einhver önnur lánastofn- un. Þessir aðilar meta síðan um- sókn kaupanda þ.e. leggja mat á það hversu mikils virði eignin er og hver greiðslugeta kaupanda er. Síðan er veitt leyfi til útgáfu húsbréfa fyrir allt að 65% af matsverðinu. Raunverulegt kaupverð íbúðarinnar getur eftir atvikum verið hærra eða lægra en þetta matsverð. Ferli þetta þarf ekki að taka meira en tvær vikur en í núverandi kerfi er meðalbið- tími eftir láni 34 mánuðir. Yngvi öm Kristinsson: Skömmtunarkerfin hafa yfirleitt ekki reynst vel. Mynd: Jim Smart. Eftir að seljandi íbúðar hefur fengið húsbréfin í hendur getur hann notað þau til kaupa á öðru húsnæði, selt þau á húsbréfa- markaðnum eða átt þau áfram og jafnframt tekið þá áhættu sem felst í því að eiga verðbréf sem fylgja markaðsverði hvers tíma. Mun núverandi lánakerfi verða lagt niður um leið og húsbréfin verða sett á markað? Nei, um einhvem tíma munu bæði kerfin verða í gangi. Þeir sem eiga inni umsókn um lán hjá Húsnæðisstofnun geta valið um hvort þeir bíða áfram í biðröð eða notfæra sér húsbréfakerfið. Ráð- stafanir sem gerðar verða munu þó draga úr ráðstöfunarfé Hús- næðisstofnunar. Kaupskylda líf- eyrissjóðanna verður lækkuð úr 55% í 45% en það svigrúm sem myndast hjá lífeyrissjóðunum er ætlast til að þeir noti til að kaupa á húsbréfum. Það eru uppi raddir sem efast um að kerfið muni ganga snurðu- laust upp og benda m.a. á hœtt- una á því að húsbréfin muni streyma á markað og hríðfalla í verði. Hver er þín skoðun á þvi? Ég óttast ekki verðfall á hús- bréfunum. Ég hef miklu meiri áhyggjur af því að erfiðlega gangi að koma þeim í umferð og að á meðan lánakerfið er enn í gangi getur svo farið að seljendur vilji ^ frekar selja þeim sem hafa reiðufé í höndum frá Húsnæðis- ' stofnun heldur en taka við hús- bréfunum. En þegar til lengri tíma er litið þá held ég að hús- bréfakerfið sé bæði skynsamlegra og betra fyrirkomulag fyrir alla aðila. Það losar verulega um þá miðstýringu sem nú ríkir í hús- næðismálum, færir lánastarfsem- ina út í markaðinn sjálfan og vax- taniðurgreiðslur munu í auknum mæli renna til þeirra sem þurfa á því að halda. iþ VALHÚSGÖGN Armúla 8, sími 82275. Á Undsbanki ísiands Ég er baukastjóri og spara með þér. Baukurinn er nokkurs konar bankahólf sem þú opnarmeð baukakortinu þínu þegar það er fullt. Síðan ættirðu að fara í Landsbankann og leggja peningana inn á Kjörbók og þá færðu afhenta fallega möppu utan um Kjörbókina og baukakortið þitt. Ef þú sparar líður ekki á löngu áður en þú getur eignast eitthvað skemmtilegt. Landsbankinn borgar þér vexti en það eru peningar sem þú færð fyrir að geyma peningana þína í bankanum. Sparaðu með mér, ég kosta aðeins 270 krónur. L Landsbanki íslands Banki allra landsmanna ÉG HEITITRAUSTI BAUKASTJÓRI \

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.