Þjóðviljinn - 15.06.1989, Blaðsíða 8

Þjóðviljinn - 15.06.1989, Blaðsíða 8
HÚSNÆÐI Steinhlaðnir torfbæir og reisuleg timburhús Á rölti um Þingholtið er hægt að sjáflestar gerðir afhúsum sem byggð voru í Reykjavík fram eftir öldinni Þingholtið ereinn elsti hluti borgarinnar og þar er hægt að sjá sýnishorn afflestum þeim hugmyndum sem uppi voru um húsagerð frá því að íslendingar hættu að byggja sér torfbæi fram á miðja þessa öld. A röltium Þingholtin benti Guðjón Friðriksson sagnfræðingurá nokkurdæmi um þróun húsagerðarí bænum. Meðfylgjandi myndir tala sínu máli., ■ nart3^ta Leitið til okkar: SMITH&NORLAND NÓATÚNI 4 • SÍMI 28300 Eftir aö Alþingishúsið var reist var farið að byggja íbúðarhús úr hoggnu gijóti. Húsin voru með sama sniði og torfbæirnir gömlu og grjótið var fengið úr næsta ná- grenni. Þetta hús heitir Norður- berg og stendur á horninu á Ing- ólfsstræti og Spítalastíg. Húsið var byggt um 1880-1890 og er eitt af stærri íbúðarhúsum sem byggt var með þessum hætti. Stórt og reisulegt timburhús sem tilheyrirsíðustu kynslóð timburhúsa I bænum. Þetta hús er byggt rétt eftir aldamótin af Sighvati Bjarnasyni bankastjóra. Fyrirmyndin er sótt til Noregs en á rætur að rekja til svissneskrar húsagerðar en ber þó ýmis nýklassísk einkenni t.d. í umgerð glugganna. Á fjórða áratugnum var öllum gömlum gildum kastað fyrir róða og hagkvæmni og nytjagildi sett á oddinn. Beinar línur, hom- gluggar og flöt þök eru einkenn- andi fyrir hús þessa tíma. Þetta hús er byggt af Helga Helgasyni á ofanverðri 19. öld. Húsið ber merki nýklassískrar stefnu sem ríkjandi var hérá árunum 1880-1900 og eru lág þök og eftirlíking af súlum meðfram gluggunum m.a. einkenniþess stíls. MyndirJim Smart. 8 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN JÚNl 1989

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.