Þjóðviljinn - 15.06.1989, Page 8
HÚSNÆÐI
Steinhlaðnir
torfbæir
og reisuleg
timburhús
Á rölti um Þingholtið er hægt að sjáflestar gerðir afhúsum
sem byggð voru í Reykjavík fram eftir öldinni
Þingholtið ereinn elsti
hluti borgarinnar og
þar er hægt að sjá
sýnishorn afflestum
þeim hugmyndum
sem uppi voru um
húsagerð frá því að
íslendingar hættu að
byggja sér torfbæi
fram á miðja þessa
öld. A röltium
Þingholtin benti
Guðjón Friðriksson
sagnfræðingurá
nokkurdæmi um
þróun húsagerðarí
bænum. Meðfylgjandi
myndir tala sínu máli.,
■ nart3^ta
Leitið til okkar:
SMITH&NORLAND
NÓATÚNI 4 • SÍMI 28300
Eftir aö Alþingishúsið var reist
var farið að byggja íbúðarhús úr
hoggnu gijóti. Húsin voru með
sama sniði og torfbæirnir gömlu
og grjótið var fengið úr næsta ná-
grenni. Þetta hús heitir Norður-
berg og stendur á horninu á Ing-
ólfsstræti og Spítalastíg. Húsið
var byggt um 1880-1890 og er
eitt af stærri íbúðarhúsum sem
byggt var með þessum hætti.
Stórt og reisulegt timburhús sem
tilheyrirsíðustu kynslóð
timburhúsa I bænum. Þetta hús
er byggt rétt eftir aldamótin af
Sighvati Bjarnasyni bankastjóra.
Fyrirmyndin er sótt til Noregs en
á rætur að rekja til svissneskrar
húsagerðar en ber þó ýmis
nýklassísk einkenni t.d. í umgerð
glugganna.
Á fjórða áratugnum var öllum
gömlum gildum kastað fyrir róða
og hagkvæmni og nytjagildi sett
á oddinn. Beinar línur, hom-
gluggar og flöt þök eru einkenn-
andi fyrir hús þessa tíma.
Þetta hús er byggt af Helga
Helgasyni á ofanverðri 19. öld.
Húsið ber merki nýklassískrar
stefnu sem ríkjandi var hérá
árunum 1880-1900 og eru lág
þök og eftirlíking af súlum
meðfram gluggunum m.a.
einkenniþess stíls.
MyndirJim Smart.
8 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN JÚNl 1989