Þjóðviljinn - 27.10.1989, Qupperneq 11
• •
tt\ A i^r b T i1 i i >
- - - " »>«» #* S ■.---_glfelgggg* - -:■ '"'' -■■-^ ■■ • x -■'■■■■_■■. , t'N-- y- - - -..sw.• -■?>"- --_■■---x ----- - \ -■- - ■->■ - htmrn M - <£<<+<-. -., -,... 'Sn- JMhMJHL ™ i
y Dounreay
Islendingar ítreka mótmæli
Jón Sigurðsson kallaði sendiherra Breta inn á teppið og ítrekaði mótmœli íslendinga vegna endurvinnslustöðvar
á kjarnaúrgangi í Dounreay. Forsætisráðherra berfram harðorð mótmœli við Margaret Thatcher
Steingrímur Hcrmannsson for-
sætisráðherra fór fram á það
við bresku stjórnina í gær að hún
endurskoðaði ákvörðun sína um
að reisa endurvinnslustöð fyrir ,
kjarnorkuúrgang í Dounrey á
Skotlandi.
sagöi við Þjóðviljann í gær að
hann myndi taka þetta mál upp á
fundi ríkisstjórnarinnar í dag og
benda á möguleika sem eru á
næstu grösum til þess að mót-
mæla þessu á alþjóðavettvangi,
t.d. á fundi alþjóða siglingamál-
astofnunarinnar í London á næst-
unni og á fundi Norðurlandaráðs.
„Það sýnir furðulega ósvífni að
daufheyrast algjörlega við þeim
mótmælum sem ríkisstjórn Bret-
lands hefur borist, líka vegna á-
lyktana og samþykkta til að
mynda á grundvelli Parísarsamn-
ingsins. Þetta er stórkostlega al-
varlegt, einkum fyrir þjóðir hér
við norðanvert Atlantshaf sem
nýta fiskistofnana og auðlindir
hafsins,“ sagði Steingrímur J.
-Sáf
Jón Sigurðsson sem gegnir
starfi utanríkisráðherra í fjarveru
Jóns Baldvins Hannibalssonar
kallaði sendiherra Bretlands á
sinn fund í gær til þess að ítreka
mótmæli íslendinga við endur-
vinnslustöðinni.
„Ég lýsti yfir áhyggjum íslend-
inga vegna þessara frétta, að
bresk yfirvöld hefðu ákveðið að
heimila byggingu endurvinnslu-
stöðvar í Dounreay í Skotlandi og
ég vísaði til okkar fyrri mótmæla,
en Alþingi íslendinga samþykkti
ályktun 8. febrúar 1988 þar sem
þeirri skoðun var lýst að ákvörð-
un um byggingu slíkrar stöðvar
gengi þvert á umhverfisverndar-
stefnu. Þessum mótmælum var
komið á framfæri við breska
utanríkisráðuneytið í maí 1988.
Þar var m.a. bent á það að hættan
væri ekki bara fólgin í stöðinni
sjálfri heldur einnig í flutningum
á virkum kjarnorkuúrgangi til
stöðvarinnar og að fiskimiðum
gæti stafað hætta af stöðinni.
Ég benti að sjálfsögðu á það að
þessi ákvörðun gengi þvert á þá
umhverfisverndarstefnu sem
breska ríkisstjórnin hefði lýst á
alþjóðavettvangi að undanförnu,
ekki síst forsætisráðherra bresku
ríkisstjórnarinnar, en hún hefur
flutt margar ræður að undan-
förnu um nauðsyn alþjóðasam-
starfs á vettvangi umhverfis-
mála.“
Það var á miðvikudag að Skot-
landsmálaráðherra bresku ríkis-'
stjórnarinnar heimilaði að endur-
vinnslustöðin yrði reist, en öll
Norðurlöndin hafa mótmælt
þessum áformum auk þess sem
ýmsir alþjóðasáttmálar einsog
Parísar sáttmálinn um mengun í
hafi, sem Bretar hafa skrifað
undir, banna þessa endurvinnslu-
stöð.
Siglingamálastofnun er yfir
öllum mengunarvörnum í hafinu
umhverfis Islands og hún heyrir
undir Steingrím J. Sigfússon sam-
gönguráðherra. Steingrímur
Gamalt timburhús á horni Bergstaðastrætis og Hallveigarstígs í Reykjavík var brotið niður í vikunni. Verið
er að reisa mikið bilageymsluhús á lóðinni, og kom Ijósmyndari blaðsins að húsinu þar sem grafa var að
brjóta húsið niður. Bílageymsluhúsið mun rísa á lóðinni milli Skólavörðustígs og Hallveigarstígs fyrir neðan
Bergstaðastrætið. Ljósm. Kristinn.
Kirkjuþing
Berið ei krossa
Mú kann að fara svo að prestar
verði sú ein þjóðfélagsstétt
sem ekki fá að bera krossa utan á
sér opinberlega.
í ályktun sem samþykkt var á
þinginu stendur orðrétt:,, nokkrir
prestar bera kross utan yfir hem-
pu (skrúða). Handbókarnefnd
sýnist réttara að biskupar einir
beri kross utan yfir hempu
(skrúða)“. Og þá vaknar spurning-
in: hvað hefði Kirkjuþing gert á
hippatímabilinu? Og hvers eiga
prestar að gjalda? Reyndar álykt-
aði handbókarnefnd um fleira.
Svarti liturinn á að verða litur
prestanna eða í besta falli grár á
meðan biskupar íklæðast purp-
urarauðu. Það er síðan spurning
sem beint er til kvenpresta „ hvort
þær óska þess að hannaður sé
búningur fyrir konur í prestastétt
er samsvaraði prestaskyrtu, eða
jafnvel sérstök gerð af hempum“.
Og nú er bara að hvetja konur til
að byrja að spá í vídd og sídd, t.d.
með möguleikann um stóraukna
kirkjusókn í huga.
fmg
Reykjavíkurborg
Hagsmunir einkaaðila ráða
Risahótel mun rísa ímiðri íbúðabyggð við Skúlagötu.
Guðrún Agn arsdóttir: íhaldið kemur aftan aðfólki með því að láta þá sem eiga peningana ráða.
Hildigunnur Haraldsdóttir: Ekki tekið mið afumsögn skipulagshöfundar
Skipulagið við Skúlagötu var
stórslys á sínum og tíma og
ekki brey tir þetta allt of stóra hót-
el því til batnaðar. Að mínu mati
er þetta enn eitt dæmið hvernig
komið er aftan að fólki. íhaldið
hefur enn einu sinni tekið
hagsmuni einkaaðila fram yfír
hagsmuni fólksins og látið stjórn-
ast af þeim scm eiga peningana,"
sagði Guðrún Ágústsdóttir borg-
arfulltrúi Alþýðubandalagsins
um fyrirhugaða byggingu Hótels
Eimskips við Skúlagötu.
Skipulagsnefnd hefur sam-
þykkt tillögu að byggingu hótels-
ins sem gengur í bergögg við
upphaflegt skipulag um byggingu
við Skúlagötu. Samþykkt var til-
laga arkitektanna Garðars Hall-
dórssonar og Ingimundar Sveins-
sonar sem gerir ráð fyrir tæplega
18 þúsund fermetra hóteli á
fimmtán hæðum með 219 tveggja
manna herbergjum auk ýmissa
þæginda sem prýða nútíma lúxus-
hótel. Andstæðingar byggingar-
innar benda ma. á að stærra hótel
auki líkur á að íbúar hverfisins
verði fyrir óþægindum, en í
skipulagi er Skúlagötuhverfið
fyrst og fremst hugsað sem rólegt
íbúðahverfi.
Tillagan var samþykkt í skipu-
lagsnefnd gegn atkvæði Hildi-
gunnar Haraldsdóttur. „Einsog
fram kemur í bókun minni fínnst
mér þetta allt of mikið frávik frá
deiliskipulagi og svo er þetta
gífurlega stórt og massamikið
hótel.
A hinn bóginn skal ég játa
að á vissum stöðum er útsýni úr
„Skuggahverfinu“ skárra vegna
þess að hótelið er lægra og mjórra
en blokkirnar í kring, en skipu-
lagið var líka meingallað frá upp-
hafi. Málsmeðferðin er umfram
allt mjög léleg vegna þess að ekki
var lögð fram umsögn höfundar
skipulagsins,“ sagði Hildigunn-
ur.
Ingimundur Sveinsson arkitekt
sem einnig á sæti í skipulagsnefnd
sagði möguleika á hóteli hafa ver-
ið teknir fram í skipulagi. „Þegar
lóðaeigandi, sem er Eimskip, vill
byggja hótel verður að gera það
þannig að það gangi upp sem
slíkt. Þá verður að gera nauðsyn-
legar breytingar á skipulagi og
munu þær verða gerðar eftir rétt-
um leiðum. En útsýni er betra frá
Lindargötunni heldur en ef
byggð yrði stór íbúðablokk,“
sagði Ingimundur.
-þóm
Föstudagur 27. október 1989 NÝTT HELGARBLAÐ — SÍÐA 11
Loðna
Árni af stað
í gærkvöldi
Rannsóknarskip Hafrannsókn-
ar Árni Friðriksson fór í gær-
kvöldi af stað á miðin milli ís-
lands og Grænlands til loðnu-
leitar og stofnmælinga. Sveinn
Sveinbjörnsson leiðangursstjóri
sagði við Þjóðviljann að sennilega
yrði haldið á svipaðar slóðir og
erlendu skipin fundu Ioðnu á um
daginn en síðan hefur lítið fund-
ist.
Nokkrir íslenskir loðnudallar
eru komnir á svæðið vestur af
Dorhnbanka. Bjarni Sæmunds-
son er í slipp viku fram í nóvem-
ber vegna smávægilegra bilana á
tanki. Þegar hann kemst á flot fer
hann einnig í loðnurannsóknir en
það fer eftir þróun mála og veiði
hvort Árni verður látinn í síldar-
rannsóknir eða hvort bæði skipin
halda áfram í loðnunni þar til hún
finnst , ef hún finnst fmg
Hvalfjörður
Göng kosta
3 miljarða
Nefndir á vegum sam-
gönguráðuneytis og
önnur á vegum Vega-
gerðarinnar kanna
möguleika á Hvalfjarð-
argöngum og hvernig
megi fjármagna þau
Aætlaður kostnaður vegna
gangna undir Hvalfjörð eða
steypts stokks á botni fjarðarins
er um þrír miljarðar króna á
verðlagi í dag. Þetta kemur fram í
fréttatilkynningu frá samgöngu-
ráðuneytinu sem send var fjöl-
miðlum í gær.
Ýmsir aðilar hafa gert laus-
legar athuganir á tengingu undir
utanverðan Hvalfjörð og einn að-
ili kannað möguleika á að steypa
stokk sem lægi á botni fjarðarins.
Þar sem hér er um mjög dýra
framkvæmd að ræða varpaði ís-
lenska járnblendifélagið og Sem-
entsverksmiðja ríkisns fram
þeirri hugmynd að stofnað yrði
félag sem sæi um
mannvirkjagerðina og fjármögn-
un hennar. Félagið fengi síðan
rétt til þess að innheimta veggjald
af þeim sem notuðu mannvirkið
næstu 20 til 30 árin.
Um þessar mundir er verið að
skoða þetta mál á tvennum víg-
stöðvum. Annarsveg er starfs-
hópur sem samgönguráðherra
skipaði, en í honum eru fulltrúar
Járnblendifélagssins, Sements-
verksmiðjunnar og Akraness auk
fulltrúa forsætis-, iðnaðar- og
samgönguráðuneytis. Þessi hóp-
ur leggur höfuð áherslu á að
kanna fjármögnunarleiðir. Er
stefnt að því að hópurinn skili
niðurstöðu um næstu áramót.
Vegagerð ríkisins vinnur svo
að jarðfræðirannsóknum. Frum-
athugun er lokið og verður í vetur
farið yfir ýmsar lausnir sem til
greina koma og kostnaður met-
inn að nýju. Stefnir Vegagerðin
að því að skila af sér seinni hluta
vetrar. -Sáf