Þjóðviljinn - 27.10.1989, Blaðsíða 28

Þjóðviljinn - 27.10.1989, Blaðsíða 28
Yirdisaiikaskattiir tekur við af söluskatti um næstu áramót. Hann tryggir ákveðið sjálfseftírlit í skattkerfínu sem verður til þess að treysta skattskil í landinu. Með virðisaukaskattinum verður skattkerfið heilsteyptara og rökréttara. Reglur um skattskyldu verða skýrari, undanþágum fækkar og uppgjör og innheimta verður auð- veldaii. Virðisaukaskattur er talinn öruggari en söluskatt- ur vegna þess sjálfseítirlits sem myndast í kerfinu með frádráttarheimildinni. Undandráttur ætti að minnka því hvert fyrirtæki hefur hag af því að telja íram öll innkaup og fá innskattinn af þeim dreginn frá. Innheimta skattsins dreifist á fleiri aðila en verið hefur þannig að lægri fjárhæð kemur til innheimtu hjá hveijum og einum og ætti það að bæta skattskil. Stór hluti virðis- aukaskatts verður og innheimtur í tolli og þannig fá skatt- yfirvöld glöggar upplýsingar sem auðvelda allt eftirlit. Virðisaukaskatturinn er því traustara kerfi sem leiðir af sér betri skattskil — sem koma öllum til góða. t;P,e,air FJÁRMÁLARÁÐUNEYTIÐ

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.