Þjóðviljinn - 27.10.1989, Page 28
Yirdisaiikaskattiir tekur við af söluskatti um næstu áramót.
Hann tryggir ákveðið sjálfseftírlit í skattkerfínu sem verður til
þess að treysta skattskil í landinu.
Með virðisaukaskattinum verður skattkerfið heilsteyptara
og rökréttara. Reglur um skattskyldu verða skýrari,
undanþágum fækkar og uppgjör og innheimta verður auð-
veldaii. Virðisaukaskattur er talinn öruggari en söluskatt-
ur vegna þess sjálfseítirlits sem myndast í kerfinu með
frádráttarheimildinni. Undandráttur ætti að minnka því
hvert fyrirtæki hefur hag af því að telja íram öll innkaup og
fá innskattinn af þeim dreginn frá.
Innheimta skattsins dreifist á fleiri aðila en verið hefur
þannig að lægri fjárhæð kemur til innheimtu hjá hveijum
og einum og ætti það að bæta skattskil. Stór hluti virðis-
aukaskatts verður og innheimtur í tolli og þannig fá skatt-
yfirvöld glöggar upplýsingar sem auðvelda allt eftirlit.
Virðisaukaskatturinn er því traustara kerfi sem leiðir af sér
betri skattskil — sem koma öllum til góða.
t;P,e,air
FJÁRMÁLARÁÐUNEYTIÐ