Þjóðviljinn - 27.10.1989, Blaðsíða 26
Hvað á að gera um helgina?
lagið sýnir, opn lau kl. 14. Sýningin
verður opin kl. 13-18 helgarnar 28. og
29.10., 4.-5. og11.-12.11.
Kjarvalsstaðir, opið daglega 11 -22.
Sveinn Björnsson, málverk, opn lau
kl. 16, verk eftir Arvid Pettersen, opn
lau kl. 16, Kristín ísleifsdóttir, verk
unnin í leir, opn lau kl. 14. Til 12.11.
Þjóðminjasafnið, opið þri, fi, lau og
su 11 -16. Bogasalur: Ljósmyndin
150 ára- Saga Ijósmyndunar á ís-
landi. Til nóvemberloka, aðgangur
ókeypis.
TONLIST
MYNDLIST
Ásmundarsalur v/ Freyjugötu, Aðal-
heiður Valgeirsdóttir, grafík- og
þurrkrítarmyndir, opn. lau kl. 14. Til
12.11.14-20 daglega.
Bókasafn Kópavogs, Rafn Stefáns-
son, blýantsteikningar og málverk,
10-21 mán-fö, 11-14lautiloktóber-
loka.
FÍM-salurinn, Kristinn G. Jóhanns-
son,málverk.Til5.11.13-18virka
daga, 14-18helgar.
Gallerí Borg, listmunauppboö á Hót-
el Borg su kl. 20:30. Uppboðsverkin
verða sýnd í galleríinu við Pósthús-
stræti í dag 10-18, lau og su 14-18.
Gallerí 11, Gunnar Kristinsson, mál-
verk.Til2.11.14-18daglega.
Gallerí Llst, Jónína Magnúsdóttir
(Ninný), myndlist, opn. lau kl. 15. Til
5.11.10:30-18 virkadaga, 14-18
helgar.
Gallerí Madeira, Evrópuferðum,
Klapparstíg 25, Björgvin Pálsson,
Ijósmyndastækkanir. Til 24.11. virka
daga 8:30-18.
Gallerí Sævars Karls, Bankastræti
9, Árni Páll, myndlist, opn í dag. Til
24.11.9-18virkadaga.
Gamli Lundur, Ríkey Ingimundar-
dóttir, myndlist. Til sunnudagskvölds,
14-21.
Hafnarborg, Strandg. 34 Hf, 14-19
alla daga nema þri. Kaffistofa: Sigur-
björn Eldon Logason, vatnslitamynd-
ir.
Helgl Jónsson sýnir vatnslitamyndir
ágöngum Landsspítalans til 11.11.
Korpúlfsstaðir, myndhöggvarafé-
Listasafn ASl, Fréttaljósmyndir89
(World Press Photo 89). Til 29.10.
16-20 virka daga, 14-20 helgar.
Listasafn Einars Jónssonar opið
helgar 13.30-16, höggmyndagarður-
inn alladaga11-17.
Listasafn Islands opið alla daga
nema mánudaga kl. 11-17. Til 5.11.
yfirlitssýning á verkum Jóns Stefáns-
sonar. Mynd októbermánaðar Svanir
e/Jón, leiðsögnin Mynd mánaðarins
fer f ram í fylgd sérfræðings fi kl.
13:30. Aðgangur að sýningu og leið-
sögn ókeypis og öllum heimill.
Listasafn Sigurjóns, járnmyndir
Sigurjóns og gjafir sem safninu hafa
borist undanfarin ár. Lau og su 14-17,
þri 20-22.
Nemendur Myndlista- og handíða-
skólans sýna verk um alnæmi í Borg-
arspítalanum til 29.10.
Norræna húsið, til 29.10: Kjallari,
Björg Þorsteinsdóttir, olíukrítar- og
vatnslitamyndir, 14-19 daglega. And-
dyri, öðruvísi fjölskyldumyndir, Ijós-
myndir e/ Tone Arstila, Jim Bengt-
son, Frank Watson og Nönnu Bisp
Buchert, 12-19 su, 9-19 aðra daga.
Nýhöfn, Hafnarstræti 18, Valgerður
Bergsdóttir, blýteikningar, opn lau
14-16. Til 15.11.10-18 virka daga,
14-18 helgar.
Rlddarinn, Hafnarfirði, Við búðar-
borðið, sýn. tengd verslun fyrri tíma, á
vegum Byggðasafns Hf.
Safn Ásgríms Jónssonar, Berg-
staðastræti, ÞingvallamyndirÁs-
gríms. Helgar, þri og fi 13:30-16 fram í
feb.1990.
Sjóminjasafn íslands, Vesturgötu 8
Hf. Opið helgar 14-18, e/ eftir
samkomulagi.
Kammerhljómsveit Akureyrar
heldurtónleika í íþróttaskemmunni,
Akureyri su. Á efnisskránni er píanó-
konsert í C-dúr eftir Beethoven, for-
leikur að óperunni Der Schauspieldir-
ektor eftir Mozart og Sinfónía nr. 101
eftir Haydn. Einleikari verður Jónas
Ingimundarson, stjórnandi Oliver J.
Kentish.
Norræna húsið, tveir sænskir tón-
listarmenn, PerWaldheimtenór-
söngvari og Harriet Percy píanó-
leikari halda tónleika su kl. 17. Á
efnisskránni eru sönglög eftir Grieg,
Sibelius, Nordqvist, Rangström,
Sjögren, Brahms, Schubert, Rossini,
Mascagni o.fl. Aðgöngumiðar við inn-
ganginn.
Tónskóli Sigursveins D. Kristins-
sonar, Júlíana Rún Indriðadóttir pí-
anóleikari heldur burtfarartónleika frá
skólanum í Norræna húsinu lau kl.
17. Júlíana leikur verk eftir Bach,
Beethoven, Berg, Skrjabin og Chop-
in. Allirvelkomnir.
LEIKLIST
Alþýðuleikhúsið, Isaðargellur, í
dag kl. 14:30, miðnætursýning lau kl..
23:30, síðustu sýningar.
Frú Emilía, Skeifunni 3 c, Djöflar,
mán. 20:30.
Leikfélag Reykjavíkur, Ljós
heimsins, litla sviðinu í kvöld, lau og
su kl. 20. Höll sumarlandsins, stóra
sviðinu í kvöld lau og su kl. 20.
Nemendaleikhúsið, Lindarbæ,
Grímuleikur, lau og su 20:30.
Þjóðleikhúsið, Oliver! í kvöld kl. 20,
lau og su kl. 15 og kl. 20, síðustu sýn.
ÍÞRÓTTIR
Handbolti. 1 .d.ka. KA-FH, Stjarnan-
Víkingur, fR-ÍBV, Grótta-Valurlau. kl.
16.30, KR-HKsun. kl. 20.30.1 .d.kv.
Stjarnan-Víkingur, Grótta-Fram lau.
kl. 15.00, Haukar-Valursun. kl.
14.00, KR-HK sun. kl. 19.00.2.d.ka.
Þór-UMFN fös. kl. 20.00, FH b-Fram
sun. kl. 15.15, Selfoss-Haukar sun.
kl. 14.00.2.d.kv. ÍR-UMFAkl. 15.00.
Badminton. Einliðaleiksmót íTBR-
húsi sun. frá 10.00. Mótsgjald kr. 800.
HITT OG ÞETTA
MÍR Vatnsstíg 10, kvikmyndasýn. su
ALÞÝÐUBANDALAGIÐ
Alþýðubandalagið í Reykjavík Félagar í ABR athugið Tillögur uppstillingarnefndar um fulltrúa ABR á landsfund AB 17.-19. nóv. 1989 liggja frammi á skrifstofu félagsins frá og með laugardeginum 28. nóv. til mánudags 20. nóv. Frestur félags- manns til að gera aðrar tillögur rennur út á mánudag. Skrifstofan verður opin bæði laugardag og sunnudag frá kl. 13 til 16 og á mánudag til kl. 20.30. Félagsfundur verður þriðjudaginn 31. okt. kl. 20.30 og er auglýstur sérstaklega. Stjórnin
FJÖLMIÐLAR
ÞRÖSTUR
HARALDSSON
Út af með útvarpsráð!
Nú er búið að leggja fram á
þingi frumvarp til nýrra útvarps-
laga. Þar með er formlega lokið
þeim þriggja ára reynslutíma sem
gildandi útvarpslög gáfu tilraun-
um með nýja skipan útvarpsmála
með þjóðinni. Hann er í raun
ekki alveg liðinn, enn eru veru-
legar blikur á lofti, ekki síst á
sjónvarpshimninum.
Þessi tími hefur vissulega ein-
kennst af miklum umbrotum á
ljósvakamarkaðnum. Fyrst hófst
mikið fjölmiðlasukk, fjölmargar
nýjar stöðvar fóru í loftið og tókst
mörgum hverjum að hanga þar
drjúga stund. Góðærið í efna-
hagslífinu varð til að framlengja
líf sumra en að því loknu hófst
grisjunin. Eftir standa Stöð 2 og
Bylgjan ásamt með nokkrum út-
varpsstöðvum áhugamanna á
borð við Rótina og Útrás fram-
haldsskólanema.
Slagnum er þó ekki alveg lok-
ið. Olafur Laufdal og félagar
neita að leyfa Jóni Ólafssyni og
bylgjuliðinu hans að hrósa sigri í
stríðinu um það hver fær að reka
einu kúlutyggjópoppstöðina sem
pláss er fyrir í Reykjavík. Raunar
hefur stjörnuliðið játað sig sigrað
í þeim slag: nýja Aðalstöðin á að
sögn einkum að höfða til fólks á
miðjum aldri en ekki ungling-
anna. Enda hef ég staðið mig að
því að hlusta töluvert á hana, þar
er leikin tónlist sem var vinsæl
þegar ég var yngri og hún ornar
manni alltaf á æ svalari
haustkvöldum.
Þarna hefur stjörnuliðið ber-
sýnilega lært af Rás 2. Hún sá að
það var ekki vænlegast til árang-
urs í Ijósvakastríðinu að reyna að
slá hina út í því að dauðhreinsa
dagskrána af öðru en því sem er á
vinsældarlistunum hverju sinni.
Fólkið sem nú er að komast á
miðjan aldur tilheyrir fjölmenn-
ustu árgöngum íslandssögunnar
og er auk þess í þann mund að
koma sér fyrir í makindalegustu
stólum landsins. Þetta er því á-
kjósanlegur markhópur eins og
það heitir á máli auglýsingastof-
anna.
En það er semsé búið að leggja
fram frumvarp til nýrra útvarps-
laga. Helsta nýmæli þeirra laga er
að útvarpsráð skuli lagt niður. í
stað þess á framkvæmdastjórn að
fá meiri völd ásamt með því að
stofnað verði dagskrárráð sem á
að verða „stofnuninni til aðhalds
varðandi stöðu RÚV og þróun,“
eins og segir í frétt hér í blaðinu í
gær. I þessu ráði fá starfsmenn
RÚV aukna hlutdeild og einnig
verða þar fulltrúar aimennings og
stj órnmálaflokka.
Það held ég að margir eigi eftir
að fagna því að útvarpsráð hverf-
ur. Um langan aldur hefur þetta
ráð vakið furðu landsmanna með
allra handa sérvisku og geð-
vonsku og oftar en ekki hafa um-
ræður ráðsmanna einkennst af
ótrúlegu pólitísku ofstæki og
fordómum. Sem betur fer hefur
verið dregið úr völdum ráðsins,
það hefur ekki lengur úrslitavald
um dagskrá og mannaráðningar
eins og raunin var fyrir nokkrum
árum.
í síðasta pistli fjallaði ég um
þau skelfilegu tíðindi að ráðs-
Skúli Helgason
dagskrárgerðarmaður
Ég verð náttúrlega að vinna á sunnudaginn einsog venjulega en á
laugardag ætium við hjónaleysin að reyna að komast á myndlistasýn-
ingar og þá sérstaklega Jón Stefánsson. Þá hef ég áhuga á að sjá Der
letzte Mann í Kvikmyndaklúbbnum fari ég ekki á hana á
fimmtudagskvöldið. Þess á milli ætla ég að vera með syni mínum og svo
veitir ekki af því að safna kröftum fyrir hinn árlega aðalfund Knatt-
spyrnudeildar Skotfélags Reykjavíkur sem haldinn verður um aðra
helgi.
kl. 16, Venjulegur fasismi eftir Mikhaíl
Romm, 1965. Imyndinni,semsetter
saman úr efni af kvikmyndasöfnum
og svipmyndum frá sjöunda áratugn-
um, ersagtfráfasismanum, upphafi
hans og þróun. Efnið er tengt saman
með texta, sem Romm talaði inn á
myndina, en eintak MÍR er talsett á
ensku.
Norrænir bókasafnsfræðingar
þinga í Norræna húsinu í dag 9-12.
Sri Chinmoy setrið gengst fyrir
námskeiði í yoga og hugleiðslu í
Árnagarði um helgina. Námskeiðiðer
í sex hlutum og hefst fyrsti hluti í kvöld
kl. 20, nánari upplýsingarísíma
13970. Námskeiðið er ókeypis og
öllumopið.
Kvöldvökuféiagið Ljóð og saga
heldur fyrstu kvöldvöku vetrarins lau
kl. 20:30 í Skeifunni 17. Mætum öll og
tökum með okkur gesti.
Rangæingafélagið heldur sinn ár-
lega kirkjudag í safnaðarheimili Bú-
staðakirkju su. Sameiginleg kaffi-
drykkja að lokinni guðsþjónustu sem
hefstkl. 14.
Félag eldri borgara í Reykjavik og
nágrenni, Göngu Hrólfur hittist á
morgun kl. 11 að Nóatúni 17, opið
hús í Goðheimum, Sigtúni 3 su kl. 14.
Frjálst, spil og tafl, dansað frá kl. 20.
Ferðafélag íslands, dagsferð kl. 13
su, Höskuldarvellir-Trölladyngja.
Hana nú leggur upp í laugardags-
gönguna frá Digranesvegi 12 kl. 10.
Nýlagaðmolakaffi.
Útivist, dagsferð su kl. 13: Innstidal-
ur-ölkeldan. HaustblótáSnæfells-
nesi 27.-29.10, gist á Lýsuhóli, upp-
lýs. á skrifst.
menn hefðu orðið sammála. Svo
hitti ég fyrrverandi ráðskonu sem
sagði mér að málið væri öðruvísi
vaxið en fjölmiðlar skýrðu það
út. Tillögurnar um fréttaflutning
Sjónvarpsins af Alþingi voru
tvær. Annars vegar persónuleg
árás á Ingimar Ingimarsson frá
fulltrúa Borgaraflokks og öðrum
fulltrúa Sjálfstæðisflokks. Hins
vegar hefði komið fram tillaga
um að efla fréttaflutninginn með
því að bæta við öðrum frétta-
manni, helst konu. /
í frásögnum f/ömiðla varð
þetta að einni tillögu og allir ráðs-
liðar sagðir styðja hana. Reyndin
var sú að engir tóku undir tillögu
tvímenninganna en allir undir
síðarnefndu tillöguna. Hef ég
raunar heyrt þær raddir innan af
fréttastofu Sjónvarps að þar yrði
því tekið með fögnuði ef útvarps-
ráð skaffaði þann pening sem
þarf til að bæta við öðrum þing-
fréttamanni.
Hins vegar held ég að útvarps-
ráð hafi í þessu máli rétt einn
ganginn staðfest það sem margir
hafa haldið fram: ráðið er gjör-
samlega ófært um að taka faglega
á málefnum Ríkisútvarpsins og
því ætti að leggja það niður.
Heitu pottarnir í laugunum eru
eini rétti vettvangurinn fyrir um-
ræður af því tagi sem þar eru
stundaðar.
26 SÍÐA - NÝTT HELGARBLAÐ Föstudagur 27. október 1989