Þjóðviljinn - 26.01.1990, Blaðsíða 3

Þjóðviljinn - 26.01.1990, Blaðsíða 3
ÞAU NOTA BOÐKERFI PÓSTS & SÍMA Stefán Hörður Grímsson tekur við verðlaununum úr hendi forseta. „Hjótum þess morgunglöð... “ Stefán Hörður Grímsson hlaut íslensku bókmenntaverðlaunin Það var langt og hlýtt lófatak sem fylgdi tilkynningu forseta Is- Iands, Vigdísar Finnbogadóttur, um að Stefán Hörður Grímsson skáld hefði hlotið íslensku bók- menntaverðlaunin sem forseti ís- lands afhendir fyrir bók sína Yfir heiðan morgun. Hún var ein tíu tilnefndra bóka og mikil spenna ríkti fram á síðustu stund um það hver hlyti heiðurinn í þetta fyrsta sinn sem verðlaunin eru veitt. Athöfnin á Kjarvalsstöðum var í mörgum liðum áður en kom að stundinni sem allir höfðu beð- ið eftir. Jón Karlsson formaður Félags íslenskra bókaútgefenda bauð gesti velkomna og sagðist álíta að verðlaunin hefðu náð til- gangi sínum, þau hefðu styrkt stöðu bókmennta og eflt umræðu um góðar bækur. Hamrahlíðar- kórinn söng og svo afhenti Svavar Gestsson menntamálaráðherra fimmtán börnum og unglingum viðurkenningar fyrir ljóð og laust mál. Félag íslenskra bókaútgef- enda og menntamálaráðuneytið stóðu fyrir samkeppni meðal grunnskólanema í tilefni mál- ræktarátaks og bamabókaviku og á siötta hundrað framlaga bár- ust. Atta ungmenni hlutu verð- laun fyrir ljóð, sex drengir og tvær stúlkur, og sjö hlutu verð- laun fyrir smásögur og ritgerðir, fímm stúlkur og þrír drengir. Þeir sem eru vel að sér í ljóðum Stefáns Harðar þurftu ekki að bíða lengur spenntir þegar Vigdís forseti tók til máls, því hún byrj- aði svona: Smæðir og stœrðir ... allt nœr harla skammt. Vísast að hið sanna reynist hvergi satt og sönnun engin sönn né nokkur merking, en forsendur liðist hægt í andstæð tákn. Njótum þess morgunglöð að villast rétta leið! Nœsta fótmál skín í undrafirð. Og enn kvað við hjartanlegt lófatak þegar forsetinn kallaði skáldið til sín. Stefán Hörður Grímsson fædd- ist 31. mars 1919. Fyrsta ljóða- bókin hans, Glugginn snýr í norður, vakti ekki mikla athygli þegar hún kom út 1946, en frá og með annarri bók sinni, Svartálfa- dansi (1951) hefur hann talist til bestu ljóðskálda á íslandi. Munu þeir ófáir sem segja að hann sé fremstur allra núlifandi skálda á landinu. Stefán Hörður var lengi til sjós, bæði á fískiskipum og á er- lendum flutningaskipum á stríðs- árunum. Sjómennskunnar sér víða stað í ljóðum hans. Hann sýnir myndir úr sjávarþorpum og segir í hálfkveðnum vísum frá lífí farmannsins, ævintýralegu en tættu, hins síbreytilega manns sem verður að fara burt og er orð- inn annar þegar hann snýr aftur. Ljóð Stefáns eru heit af tilfinn- ingu, hvort sem hann yrkir um ást eða sorg eða fordæmir svik okkar við jörðina sem við tókum að erfðum. Hann yrkir um hið smáa og stóra - eins og kemur fram í ljóðinu hér að ofan vitum við ekki svo gjörla hvort er hvað ... Og margar myndir hans eru óviðjafnanlegar - eins og þessi í litla ljóðinu Tvenn gluggatjöld í verðlaunabókinni: Um leið og stúlkan hengdi blúndugluggatjöldin sín fyrir sinn eina glugga, hengdi tunglið þau á vegginn andspænis. Eins og gefur að skilja, skein tungl þá glatt. Ó, æska - SA Ungu verðlaunahafamir og menntamálaráðherra. M cr lího ott samband milli þcirro þcgor þou cru chki soman Oft er bagalegt að geta ekki náð sambandi við fólk sem þarf að vera mikið á ferðinni innan húss og úti við. Nú er sá vandi úr sögunni. Boðkerfi Pósts & síma gerir fólki kleift að senda boð frá venjulegum síma til léttra boðtækja sem viðtakandi hefur í vasa sínum. Hann er í kallfæri hvar sem hann er. \ I / Boðtæki taka ýmist við tónboðum eða talnaboðum. Tækið sem Halldór smiður hefur í vasanum gefur frá sér fjögur mismunandi tónmerki. Hann og Anna kona hans • I ' hafa komið sér saman um að ákvæðið tónmerki tákni að Halldór eigi að hringja heim. Anna hringir einfaldlega í svæðisnúmer boðkerfisins og fimm stafa boðkallsnúmer og velur í framhaldi af því þá tölu sem kallar fram það hljóðmerki sem þau hafa valið í þessu skyni. BODKERFI PÓSTSOGSÍMA Fyrirtæki geta komist hjá kostnaðarsamri farsímavæðingu með því áð nota boðkerfið. Það getur líka virkað sem fullkominn símsvari og hægt er að senda boð til allt að 10 boðtækja í einu. Boðkerfið er einnig til mikilla þæginda fyrir einstaklinga og eykur öryggi þeirra í fjölmörgum tilvikum. Merkjasendingar þess ná urn allt Stór-Reykjavíkursvæðið og sendar hafa verið settir upp á Akureyri, Selfossi, Akranesi og Keflavík. Stofngjald fyrir boðþjónustu miðað við tónboðtæki er kr. 5000.- og ársfjórðungsgjald kr. 800.-. Stofngjald fyrir þjónustu talnaboðtækja er kr. 6000.- og ársfjórðungsgjald er kr. 1000.-. Á verðið leggst 24,5% POSTUR OG SIMI Við spörutn þér sporin Boðtæki eru seld í öllum söludeildum Pósts & síma og hjá nokkrum öðrum innflytjendum notendabúnaðar. Eru þau einnig nefnd símboðar. Fáðu frekari upplýsingar um boðkerfið hjá söludeildum Pósts & síma Ármúla 27 (fyrirtækjaþjónusta), sími 680580, Kirkjustræti, sími 26165 og Kringlunni, sími 689199 og á Póst- og símstöðvum þar sem sendar hafa verið settir upp. NÝTT HELGARBLAÐ - SÍÐA 3

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.