Þjóðviljinn - 26.01.1990, Blaðsíða 11

Þjóðviljinn - 26.01.1990, Blaðsíða 11
MINNING Þegar Ólafur Ásgeirsson fellur frá í blóma lífsins, þá er okkur fagfélögum hans það eitt til hugg- unar að hann var búinn að ljúka miklu og góðu verki. Bók hans, Iðnbylting hugarfarsins, átök um atvinnuþróun á ísiandi 1900- 1940, er tímamótaverk í íslands- söguritun, varanlegur fengur sem heldur áfram að hafa áhrif á hvernig við hugsum og skrifum um sögu okkar um ófyrirsjáan- lega framtíð. Slíkt er í rauninni ærið æviverk sagnfræðings. Ein- hver merkur sænskur sagnfræð- ingur mun hafa sagt að höfundur fræðirits ætti að setja því það mark að breyta línu í kennslu- bók. Ég get ímyndað mér að bók Ólafs verði að minnsta kosti væn klausa á milli greinaskila, kann- ski sérstakur kafli, í kennslubók- um framtíðarinnar. Ég var svo heppinn að vera kallaður leiðbeinandi Ólafs þeg- ar hann var að skrifa kandí- datsritgerðina sem varð að bók- inni Iðnbyltingu hugarfarsins. Það var yndi að fylgjast með skarpskyggni hans, kappi og ánægju af að koma uppgötvunum sínum á blað. Að sumu leyti var ögrandi að vinna með Ólafi því að hann gat verið fastur á skoðun sinni og langað meira til að sannfæra kennarann en láta sannfærast. Engu að síður bar hann djúpa og einlæga virðingu fyrir sannleikanum sem er grund- völlur allra fræða. Hann samein- aði með dæmafáum ágætum þá meginkosti fræðimanns að boða skoðun sína af brennandi áhuga og persónulegri alvöru en þola þó aldrei að hún gengi hið minnsta á svig við sannleikann. Það er hörmulegt að fá ekki að njóta meira af kostum hans. Gleymum samt ekki að minnast með þakk- læti þess sem hann skilur eftir hjá okkur. Hugsum um hann eins og Hannes Pétursson orti: Svo er því farið: Sá er eftir lifir deyr þeim sem deyr en hinn dáni lifir í hjarta og minni manna er hans sakna. Þeir eru himnarnir honum yfir. Gunnar Karlsson Ólafur Ásgeirsson sagnfrœðingur Fæddur 5. sept. 1956 - Dáinn 16. jan. 1990 Að hugsa um Ólaf Ásgeirsson í þátíð er býsna fjarlægt. Hann stendur manni svo ljóslifandi fyrir hugskotssjónum; stór og stæðilegur, kraftmikill og hik- laus, staðfastur og röggsamur, glaðlyndur, skrumlaus, einlægur og hugmyndaríkur - góður félagi í leik og starfi. Nú er hann allur, aðeins 33 ára að aldri. Minning- arnar leita á hugann. Og stund- irnar með honum verður maður ævinlega þakklátur fyrir. Þær voru mikilvægar. Ólafur var óvenjulegur maður, þræddi ótroðnar slóðir. Hann settist á skólabekk í Garðyrkju- skóla ríkisins í Hveragerði og lauk þaðan prófi árið 1976. Ekki leið á löngu uns hann hóf sjálf- stæðan rekstur á því sviði í Reykjavík. Að garðyrkju starf- aði hann síðan ætíð ötullega. Þar naut hann sín vel, hafði „græna fingur“ og yndi af að skipuleggja garða - unun af að skapa. Jafn- hliða garðyrkjustörfunum hélt hann áfram námi, lauk stúdents- prófi frá Menntaskólanum við Hamrahlíð árið 1981 og innritaðist í sagnfræði við Há- skóla íslands um haustið. Þrátt fyrir miklar annir sóttist honum sagnfræðinámið vel og lauk B.A.-prófi í þeirri grein vorið 1984. Og áfram hélt hann. Hug- urinn hneigðist í æ ríkari mæli að sagnfræðirannsóknum. Vorið 1988 brautskráðist hann síðan frá Háskólanum með cand.mag-próf í sagnfræði upp á vasann. Þá um haustið lagðist hann í víking til Skotlands með fjölskyldu sinni og hugði á frekara háskólanám og rannsóknir í Edinborg. Þang- að átti hann hins vegar ekki aftur- kvæmt úr jólaleyfi hér heima 1988. Hann lést í Landspítalan- um hinn 16. janúar sl. eftir erfið veikindi. Leiðir okkar Ólafs lágu saman í sagnfræðináminu við Há- skólann. Þar myndaðist samheld- inn hópur fólks sem bast traustum vináttuböndum. í þess- um hópi var Ólafur ákaflega mikilvægur. Hann geislaði af orku og hugmyndaauðgi og hafði 5000 SÆNSKAR KRONUR 5000 SÆNSKAR KRÓNUR 5000 SÆNSKAR KRÓNUR á viku eða jafnvel meira. Stórkostleg söluhugmynd fyrir alla fjölskylduna. Við bjóðum upp á góða samvinnu, þar sem við munum vinna samhliða undir stjórn samtaka okkar. Þú getur unnið heima, og við krefjumst engrar reynslu. Þú ákveður sjálf/ur vinnutíma þinn. Vinnan felst í því að skrifa heimilisföng og að pakka inn pökkum til viðskiptavina í Evrópu. Þú færð stöðuga aðstoð frá fyrirtæki okkar. Þú þarft að leggja fram 16.500 sænskar krónur sem byrjunarfjármagn. Við sjáum um allt sem þú þarfnast. Leyfðu okkur að segja þér frá meiru varðandi (Detta. Skrifaðu til okkar og fáðu nánari upplýs- ingar. HERMENT AB Box 5044 S-123 05 FARSTA Sverige unun af að ræða um landsins gagn og nauðsynjar, stjórnmál á líð- andi stund, alþjóðamál, sagn- fræði, bókmenntir, heimspeki. Allt milli himins og jarðar. í hópnum vógu orð hans þungt og hann kenndi okkur hinum margt. Hvort sem var á kaffistofunni í Árnagarði í hléi milli kennslu- stunda eða í Norræna húsinu á laugardagsmorgnum eftir fót- bolta var hann yfirleitt þunga- miðja samræðnanna og bryddaði upp á umræðuefnum sem voru hvert öðru áhugaverðara. í kringum hann var aldrei ládeyða. Hann var eldhugi, talaði tæpi- tungulaust, kom til dyranna eins og hann var klæddur, var rökfast- ur og alltaf reiðubúinn til að skiptast á skoðunum og hug- myndum. Vitaskuld var hann ekki ætíð sammála því sem síðasti ræðumaður sagði en hann virti skoðanir annarra. í sagnfræðináminu vakti Ólafur athygli fyrir brennheitan áhuga á fræðunum, áhuga sem smitaði aðra nemendur. Hann lét til sín taka í kennslustundum og varpaði iðulega nýju ljósi á þau viðfangsefni sem verið var að taka fyrir. Hann vildi sjá mál í víðu samhengi. Þröngu sjónar- hornin voru honum lítt að skapi. í rannsóknum sínum lagði hann óhræddur á brattann, tókst á við goðsagnir, hefðir og venjur í túlk- un á íslandssögunni. Áhuginn beindist einkum að sögu íslend- inga á 20. öld og heildarþróun íslensks þjóðfélags. Greinar sem eftir hann liggja í blöðum og tímaritum um þjóðfélagsmál og sögu þjóðarinnar á þessari öld bera því glöggt vitni. Hann ritaði m.a. um Ólaf Friðriksson og „an- arkismann" (Ný saga 1987), um Jón Baldvinsson og hlutverk hans í Alþýðuflokknum og íslenskum stjórnmálum á árunum milli stríða (Sagnir 1985 og 1986) og jafnframt um lýðveldisstofnun- ina og afstöðu „lögskilnaðar- manna“ til hennar (Sagnir 1983). Sjálfstæð vinnubrögð, kenning- ar, tilgátur og hugmyndasmíð einkenndu yfirleitt skrif hans. Á því sviði var hann völundur. Hæfileikar Ólafs Ásgeirssonar sem sagnfræðings komu greini- lega í ljós er bók hans Iðnbyiting hugarfarsins, Átök um atvinnu- þróun á íslandi 1900-1940, kom út árið 1988 hjá Menningarsjóði. Bókin vakti mikla athygli fyrir nýja og ferska sýn á íslenska þjóðfélagsþróun á 20. öld og djarfhuga túlkun á henni. í ritinu fjallar hann um og greinir þau átök sem urðu í íslensku samfé- lagi er sveitamenningin og „gamla samfélagið" varð að þoka fyrir hinu „nýja samfélagi" þéttbýlis og iðnvæðingar. Hann vildi kanna hugmyndir lands- manna um iðjumenninguna í víð- asta skilningi, þá menningu, sem iðnbyltingin skapaði, og hvernig þeir töldu mögulegt að temja þau sterku öfl sem knúðu hana áfram. Togstreita þéttbýlis og sveita var honum hugstæð og hann vildi ýta til hliðar hugtökum eins og „hægri“ og „vinstri“, taldi þau villa mönnum sýn og löngu úrelt. Hann vildi horfa á samfélagsþró- unina frá nýjum sjónarhóli. Skapa nýja sögu. Og honum tókst vel upp. Ekki aðeins með því að gæða frásögn sína lffi og fanga lesandann, heldur miklu fremur vegna þess að rannsóknin varpar nýju ljósi á íslandssöguna. í ritdómi um bókina í einu dag- blaðanna sagði prófessor í hag- fræði m.a. að rit Ólafs ætti það „sameiginlegt með öðrum snill- darverkum að hún fær lesandann til að sjá í nýju ljósi fyrirbæri sem hann taldi sig þekkja. ... Vel má vera að fróðir menn sjái ann- marka á einhverju sem þar er rit- að og vafalaust mun þessi nýstár- lega bók vekja deilur, en hún er skrifuð af meiri snilld, hug- myndaauðgi og víðsýni en flestir íslenskir höfundar ráða yfir.“ Og í sérfræðitímariti sagnfræðinga sagði m.a. að bók Ólafs hefði „þá ótvíræðu kosti að bera að þar er viðfangsefnið sett fram með djörfum og ögrandi hætti sem hvetur til áframhaldandi athug- ana og skoðanaskipta á sviði sögurannsókna. Árangurinn er metnaðarfullt verk sem vekur margar áleitnar spurningar." Þeir sem ætla sér að reyna að skilja og skoða íslenska þjóðfélagsþróun á 20. öld geta ekki gengið framhjá þessari bók. Hún er og verður órækur vitnisburður þess hversu frjór sagnfræðingur Ólafur Ás- geirsson var. Hann var boðberi nýrra strauma í íslenskri sagn- fræði og fór ótroðnar slóðir í rannsóknum sínum. í Edinborg hugðist hann leggja grunn að frekari könnun á sögu íslendinga á 20. öld, takast á við þjóðfélags- þróunina frá 1940. Miðað við þær hugmyndir sem hann hafði á prjónunum er enginn vafi að sú rannsókn hefði ekki verið síðri en þær sem þegar voru komnar frá honum. Hann hefði getað sagt þjóð sinni margt. Við hana vildi hann tala. Hann vildi að sagn- fræðingar tækju virkan þátt í þjóðfélagsumræðunni og lagaði sitt af mörkum til þess að svo mætti verða. Auk þess að sinna sagnfræði með rannsóknum og skrifum lagði hann fræðigreininni lið á ýmsan annan hátt. Hann var virk- ur í félagsstarfi sagnfræðinema við Háskólann, sat tvö ár í rit- stjórn tímaritsins Sagnir sem ne- mendur þar standa að, átti þátt í að hleypa nýju sagnfræðitímariti af stokkunum árið 1987, Nýrri sögu sem Sögufélag gefur út, og átti sæti í fyrstu ritstjórn þess, kenndi sögu við Fjölbrauta- skólann í Breiðholti skamma hríð, flutti erindi á vegum Sagn- fræðingafélags íslands, sótti sagnfræðiráðstefnur heima og er- lendis og var óhræddur að taka til máls ef því var að skipta. Raunar var með ólíkindum hvað hann komst yfir samhliða garðyrkju- störfunum. Ólafur Ásgeirsson var fæddur 5. september 1956 í Reykjavík, sonur hjónanna Ásgeirs Ólsen og Unnar Ölafsdóttur, og var þriðji í röð fimm systkina. Ur foreldra- húsum hefur hann fengið gott veganesti, um það vitna mannkostir hans, dugnaður og stefnufesta. Hann var kvæntur Ragnheiði Guðjónsdóttur, fóstru í Reykjavík, og eignuðust þau tvö börn, Baldur, f. 1982, ogGuðjón Þór, f. 1987. Fjölskylda hans hef- ur misst meira en hægt er að tjá eða túlka með orðum. Henni færi ég innilegustu samúðarkveðjur, sem og öðrum vinum og vanda- mönnum. Minningarnar um Ólaf Ás- geirsson eru margar og allar góð- ar. Þær geymi ég vel og vandlega í huga mínum og þakka forlögun- um fyrir að hafa kynnst honum. Það er sárt að sjá á eftir slíkum mannkostamanni, manni sem átti framtíðina fyrir sér og mikils var af vænst. Góðum vini. Eggert Þór Bernharðsson Félagsfundur Félag járniðnaðarmanna verður haldinn miðvikudaginn 31. janúar 1990 kl. 20.00 að Suðurlandsbraut 30, 4. hæð. Dagskrá: 1. Félagsmál 2. Kjara- og samningamál 3. Önnur mál Mætið stundvíslega. Stjórnin NÝTT HELGARBLAÐ — SÍÐA 11 Ykkur öllum sem heiðruðuð minningu Gísla Guðmundssonar frá Tröð og sýnduð okkur samkennd og vináttu við fráfall hans, færum við okkar bestu þakkir. Anna M. Guðjónsdóttir Valgerður Guðmundsdóttir Jón H. Gíslason Margrét Sigurðardóttir Brandur Gíslason Marta Hauksdóttir Guðmundur T. Gíslason Jóhanna Vigfúsdóttir AtliGíslason Unnur Jónsdóttir Ásmundur Gíslason Guðrún Gísladóttir Rannveig Hallvarðsdóttir

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.