Þjóðviljinn - 26.01.1990, Page 8
Útgefandi: Útgáfufélag Þjóðviljans
Framkvæmdastjóri: Hallur Páll Jónsson
Ritstjórar: Árni Bergmann, Ólafur H. Torfason
Umsjónarmaður Helgarblaðs: Ólafur Gíslason
Fréttastjóri: SigurðurÁ. Friðþjófsson
Útlit: Þröstur Haraldsson
Augiýsingastjóri: Olga Clausen
Afgreiðsla:®68 13 33
Auglýsingadeild:@68 13 10-68 13 31
Símfax:68 19 35
Verð: í lausasölu 140 krónur
Setning og umbrot: Prentsmiðja Þjóðviljans hf.
Prentun: Blaðaprent hf.
Málgagn sósíalisma, þjóðfrelsis og verkalýðshreyfingar
Síðumúla 6, 108 Reykjavík
Stefán Hörður
Stefán Hörður Grímsson skáld hlaut íslensku bók-
menntaverðlaunin í gær fyrir bókina „Yfir heiðan morgun".
Hann hefur leitt fylgismenn sína undanfarna áratugi um víðáttur
möguleikanna af þvílíku öryggi, að enginn þeirra efaðist um að
nafn hans yrði lengi uþþi. Stefán Hörður hefur ekki einasta
auðgað tunguna með dirfsku sinni og smekkvísi, heldur opnað
nýja farvegi hugsunar og kennda. Sem verkamaður við endur-
nýjun Ijóðsins hefur hann heldur aldrei látið sér formið nægja,
heldur ort um lífsnauðsynina sjálfa, lífkerfi okkar og vist.
Skáldið sem hreykti sér hvergi né féll í litmyndaskrúðið hefur
sigrað. Setningarnar knöppu eru áhrifaríkar. Þjóðviljinn vottar
dómnefndinni þakklæti fyrir valið og óskar Stefáni Herði
Grímssyni til hamingju með viðurkenninguna.
Ekki leikur vafi á því, að bæði þessi ákvörðun og sú að veita
Ijóðskáldinu Tómasi Tranströmer bókmenntaverðlaun Norður-
landaráðs auka veg Ijóðsins sérstaklega. Ungu skáldin sem
líka fengu viðurkenningar á Kjarvalsstöðum í gær finna að þau
hafa stigið inn á mikilvægan vettvang þjóðlífsins, eru reyndar
byrjuð að vinna við undirstöðuatvinnugrein.
Dagvistarskáldskapur
Þjóðviljinn hefur í fréttum í dag og í gær bent á óþægilegt
misræmi í upplýsingum borgarstjórans í Reykjavík varðandi
dagvistarmál, sé borið saman við frumheimildirnar. Tölur og
staðhæfingar hans virðast í öllum atriðum rangar, þegar Þjóð-
viljinn hefur leitað gagna erlendis um það sem borgarstjóri
vitnar til.
Ef til vill er ekkert athugavert við það að Reykjavíkurborg vilji
ekki bjóða nema 14% barna á aldrinum 0-5 ára dagvist allan
daginn. Þá á borgarstjórinn líka að viðurkenna það ósmeykur
og skýra orsakirnar fyrir því að Reykjavík vill vera lægst á
Norðurlöndum í þessu efni. Hitt er ófært að borgarstjórinn í
Reykjavík skuli grípa til þess að skálda opinberlega, að engin
önnur höfuðborg á Norðurlöndum að Kaupmannahöfn undan-
skilinni bjóði upp á betri þjónustu í dagvistarmálum en Reykja-
vík. Það er honum ekki sæmandi, - hversu hæfur andstæðing-
ur sem hann er.
Þjóðviljinn hefur sýnt fram á, að Reykjavík er langlægst allra
höfuðborga á Norðurlöndum varðandi dagvistarmál. Þetta eru
einfaldar staðreyndir sem allir átta sig strax á. í Osló eru t.d.
47% allra barna á 0-6 ára aldri í dagvist, flest í heilsdagsvist, en
í Stokkhólmi 60% allra barna á aldrinum 1-6 ára í heilsdags-
vist. Reykjavík vermir botninn með 14% heilsdagsvist barna
0-5 ára. Jafnvel þótt bætt sé við öllum börnum sem eru á
hálfsdagsvistum í Reykjavík er hún enn slöppust á Norður-
löndum, með 40%.
í Reykjavík er ekki einu sinni vitað hver þörfin erfyrir dagvist-
ir. Höfuðborgin felur þörfina með því að gefa aðeins forgangs-
hópum kost á að skrá börn sín á biðlista dagheimilanna. Allir
foreldrarverðaaðbíðaþartilbörnineru 1 1/2árstilaðkomastá
biðlista leikskóla. Samt eru 1800 börn á biðlistum núna. í
Kaupmannahöfn, þar sem býr yfir miljón manns, eru 2200 börn
á biðlista.
Barnafólkinu í Reykjavík finnst sinnuleysi ríkja varðandi
hagsmunamál sín í þessari öflugu borg. Erfitt er að fá dagvist,
jafnvel að komast á biðlista. En borgin vill samt í ár eyða
næstum fjórum sinnum meira í ráðhús, sem unga fólkið þarf
ekki, heldur en í dagvistir, sem unga fólkið þarf. Það er lítillækk-
andi fyrir unga fólkið að æðstu yfirmenn borgarinnar skuli ekki
hafa réttar upplýsingar í höndum varðandi dagvistarmál og geri
því rangan samanburð. En fyrst svona vinnubrögð verða upp-
ská um dagvistarmálin vakna óhjákvæmilega spurningar um
raunsæið í öðrum þáttum.
Kjarni málsins er sá, að Reykjavíkurborg stendur sig illa í að
sinna málefnum barnafólks og aldraðra, eins og stjórnandstað-
an í borgarstjórn hefur hamrað á. Feiknarlegum fjárhæðum er
varið í skrauthýsi, meðan skortur ríkir á félagslegri þjónustu í
borginni.
ÓHT
Norræn kvikmyndahátíð í Rúðuborg
Norræna kvikmyndahátíðin í
Rúðuborg í Normandí verður
haldin í þriðja skipti í byrjun
mars næstkomandi, og verður ein
íslensk mynd með í samkeppn-
inni, „Kristnihald undir Jökli“
eftir Guðnýju Halldórsdóttur.
Þessi kvikmyndahátíð, sem nú
er orðin árviss atburður og mikil-
vægur fyrir útbreiðslu kvikmynda
frá Norðurlöndum er stöðugt að
færa út kvíarnar. Að þessu sinni
verður hún lengri en áður - hún
stendur frá 28. febrúar til 11.
mars og verða sýndar 120 myndir
að meðtöldum stuttmyndum - en
auk þess munu Eistlendingar
taka þátt í henni í fyrsta skipti.
Kunna ýmsir að kalla það tím-
anna tákn. í samkeppninni eru
átta kvikmyndir frá síðasta ári,
tvær danskar, tvær finnskar, ein
sænsk, ein norsk, ein íslensk og
ein eistnesk, og eru verðlaunin
eins og áður 100.000 frankar sem
varið verður til að dreifa verð-
launamyndinni í Frakklandi.
Auk þess er boðið upp á mjög
fjölbreytta dagskrá að öðru leyti.
Fer fram mikil kynning á
eistneskum myndum og á norsk-
um myndum eftir stríð, frá 1948
til 1960. Einnig verður yfirlit yfir
þær myndir sem Anja Breien hef-
ur gert og yfir danskar þöglar
myndirfrá árunum 1906-1911, en
fæstir munu þekkja þá fyrri gull-
öld danskrar kvikmyndagerðar.
Loks verður yfirlit yfir kvik-
myndir gerðar eftir leikritum
Strindbergs. e.m.j.
Helgarveörið
Horffur á laugardag:
NA-átt og él á SA-landi en hægari og úrkomulaust annars staðar.
-f-Z
Horffur á sunnudag:
SA-átt - Hvassviðri og snjókoma eða slydda sunnanlands en hægari og úrkomulaust annars staðar.
8 SÍÐA - NÝTT HELGARBLAÐ