Þjóðviljinn - 26.01.1990, Side 12
Umhverfið sem fóstrar lífið á jörðinni er í hættu. Orsakanna er að leita í gerðum mannsins. Við,
þátttakendur í Heimsþingi andlegra og pólitískra leiðtoga, samankomnir í Moskvu í janúar 1990
frá ólíkum þjóðum, ólíkum menningarsamfélögum, trúarbrögðum og hefðum... höfum komist að
niðurstöðu um þær ógnir sem steðja að sameiginlegri framtíð okkar allra...
MANN
KYN Á
YSTU
NÖF
Rögnvaldur Finnbogason
segir frá heimsþingi um
umhverfi og þróun í þágu
mannsins, sem fram fór í
Moskvu 15.-19. janúar s.l.
fjöldinn á jörðinni kominn upp í
10 miljarða árið 2030, og fyrir-
sjáanlegt að jörðin yrði ófær um
að framfleita þeim mannfjölda í
því ásigkomulagi sem hún yrði
með allri þeirri mengun og um-
hverfiseyðingu sem nú væri í
gangi og færi stöðugt vaxandi.
Stærð fólksfjölgunarvandans
sæist á því að það hefði tekið
mannkynið 10.000 ár að ná 2
miljörðum. Nú stefndi í það, að
mannkyninu myndi fjölga úr
tveim í tíu miljarða á einni
mannsævi, og væri þessi mann-
fjöldasprenging þegar hálfnuð. Á
sama tíma gerist það að skógum
jarðar er eytt með hraða sem
nemur einum fótboltavelli á sek-
úndu. Á þrem áratugum
jafngildir það flatarmáli alls Ind-
lands. Á sama tíma hefur orðið
margföldun í iðnaðarframleiðslu
og orkunotkun, þar sem gengið
er á kolefnisforða jarðarinnar af
fullkomnu fyrirhyggjuleysi og
honum umbreytt í gastegundir
þannig að gróðurhúsaáhrif og ós-
oneyðing ógna nú lífríki jarðar-
innar í heild. Þannig benti stjarn-
fræðingurinn Carl Sagan á að
eyðing ósonlagsins myndi ekki
bara orsaka húðkrabba, heldur
myndu útfjólubláu geislarnir sem
næðu til jarðarinnar í gegnum ós-
ongatið eyða svifi og þörungag-
róðri sjávar, sem væri undirstaða
lífkeðjunnar.
Orsök og afleiðing
Á það var bent að fátækt væri í
senn meginorsök og afleiðing
umhverfiseyðingarinnar, og að
við vandanum yrði að bregðast
með nýjum hugsunarhætti, þar
sem gömul landamæri og hug-
myndakerfi dygðu ekki lengur til.
Umhverfisvandinn væri ekki
bara tæknilegt vandamál, heldur
líka andlegt og siðferðilegt, og
því væri hlutverk trúarbragðanna
mikilvægt við þessar nýju og
ógnvekjandi aðstæður. Var í
þessu sambandi lögð áhersla á að
trúarbrögðin yrðu að leggja niður
alla nesjamennsku og andlegan
imperíalisma, því boðun kredd-
ufestunnar kæmi til lítils and-
spænis þeirri heljarþröm, sem
mannkynið hefði nú ratað á.
Þótt þátttakendur þingsins i
gerðu sér ljóst að horfurnar fyrir
framtíðarvelferð mannkyns væru
dökkar, var þó einnig lögð
áhersla á þá jákvæðu þróun, sem
orðið hefði. Nú síðast með opnun
Berlínarmúrsins og lokum kalda
stríðsins. Hemaðarútgjöld í
heiminum hefðu að undanfömu
numið sem svarar miljón miljón-
um bandaríkjadala á ári og fyrir
þá upphæð mætti gera stóra hluti.
Brýnustu verkefnin væm þó að
koma á auknum jöfnuði á milli
þjóða. Efnahagslegt öryggi,
fræðsla og jafnrétti kynjanna
væri forsenda þess að fólksfjölg-
unarsprengingin yrði hamin.
Ný hugsun,
nýr heimur
Rögnvaldur sagði það greini-
legt af máli hinna nýju valdhafa í
Sovétríkjunum, að þeir væru að
leggja grunn að nýjum heimi,
hugsa á nýjan máta. Markmið
Gorbatsjovs væru ekki takmörk-
uð við Sovétríkin ein, hann hugs-
aði vandamálin út frá hnattræn-
um forsendum. Ástæðan fyrir
stefnubreytingu Sovétríkjanna
væri ekki ótti við bandarísk tor-
tímingarvopn, heldur væri hún
fyrsta skrefið í þá átt að friða
jörðina. En jafnvel þótt það tæk-
ist strax á morgun, þá mætti ekki
láta staðar numið. Það gengi til
dæmis ekki að halda áfram með
þá orkusóun, sem viðgengist
Gróðurhúsaáhrif og óson-
eyðing í andrúmslofti jarð-
ar standa í beinu sam-
hengi við vaxandi orku-
notkun og mannfjölda-
aukningu á jörðinni.
Þannig hljóða upphafsorð að
ályktun sem um 600 vísinda-
menn, stjórnmálamenn og trúar-
leiðtogar frá yfir 80 löndum
sendu frá sér í síðustu viku eftir
fimm daga þinghald í Moskvu.
Þingið var haldið að frumkvæði
samtaka sem nefna sig „Global
Forum of Spiritual and Parliam-
entary Leaders for Human Survi-
val“ (Alheimsþing andlegra og
pólitískra leiðtoga fyrir björgun
mannkyns), en samtök þessi voru
stofnuð 1985 og hafa sett sér það
markmið að grundvalla nýja
heimssýn til björgunar vistkerfis
jarðarinnar á samstarfi pólitískra
og andlegra leiðtoga án tillits til
þjóðernis, trúarbragða eða
menningarsvæðis.
f ávarpi þingsins segir enn
fremur: Framtíð mannsins og
annara lífvera á jörðinni er í veði.
Maðurinn er orðinn sjálfum sér
hættulegur. Við verðum að
bregðast við í tíma. Og við verð-
um nú að líta á vandamálin í al-
heimssamhengi. Við þurfum að
skilja hið gífurlega og tiltölulega
nýfengna vald sem við höfum
öðlast til þess að umbreyta náttú-
runni. Tæknilegar lausnir eru
forsenda árangurs, en þær duga
ekki einar sér. Við verðum að
axla ábyrgð á því að stjórna plán-
etu okkar þannig að það sam-
ræmist andlegri visku, heilbrigðri
tækni, siðferðilegri réttsýni,
framsýni og endurnýjaðri virð-
ingu fyrir náttúrunni, sem fóstrar
allt líf.
Þetta er mál sem gengur út yfir
þjóðernisleg, hugmyndafræðileg
og kynslóðabundin landamæri.
Það á að geta sameinað mann-
kynið allt í að fást við sameigin-
legan háska. Samstaða okkar
verður að yfirstíga öll þröng land-
amæri og ná til alls lífsins á jörð-
inni....
Global Forum
Þingið í Moskvu var annað
heimsþing samtakanna. Hið
fyrra var haldið í Oxford 1988.
Einn íslenskur þátttakandi var í
þinginu, séra Rögnvaldur Finn-
bogason prestur að Staðastað.
Rögnvaldi var boðið til þingsins
vegna persónulegra kynna sinna
við Metropolitan Pitirim, yfir-
mann útbreiðslustarfs rússnesku
rétttrúnaðarkirkjunnar og annan
af tveim forsetum þingsins. Hinn
forsetinn var Evgenij Velikhov,
forseti sovésku vísindaakademí-
unnar.
Rögnvaldur sagði að þarna
hefðu verið saman komnir full-
trúar allra stærstu trúarbragða í
heiminum auk fjölda þekktra vís-
indamanna, stjórnmálamanna og
fulltrúa ólíkra kynþátta. Meðal
þekktra persóna er sóttu þingið
má nefna Perez de Cuéllar fram-
kvæmdastjóra Sameinuðu þjóð-
anna, sem setti þingið, Gro Harl-
em Brundtland, bandarísku
öldungadeildarþingmennin a
Dave Durenberger og A1 Gore,
bandaríska stjarnfræðinginn Carl
Sagan, sovéska náttúrufræðing-
inn Alexey Yablokov og Mikhaíl
Gorbatsjov sem flutti lokaræðu
þingsins.
Á ystu nöf
Rögnvaldur Finnbogason
sagði í samtali við Nýtt Helgar-
blað að umræðurnar á þinginu
hefðu mótast af þeirri uggvekj-
andi staðreynd að mannkynið
væri komið á ystu nöf: með
áframhaldandi þróun yrði fólks-
12 SÍÐA — NÝTT HELGARBLAÐ Föstudagur 26. janúar 1990