Þjóðviljinn - 26.01.1990, Síða 18
SKÁK
HELGI
ÓLAFSSON
Lokaæfing
Timmans
- Hannes efstur á Skákþingi Reykjavíkur
Um mánaðamótin febrúar/mars
setjast við taflið í Kuala Lumpur í
Malasíu þeir Anatoly Karpov og Jan
Timman. Sigurvegarinn í því einvígi
öðlast réttinn til að skora á heims-
meistarann Garrí Kasparov. Það er
aðeins Timman sem stendur í vegi
fyrir fimmta einvígi skákrisanna
svoköiluðu og þeir eru ófáir sem óska
Hollendingum velgengni af þeirri
ástæðu einni að fimm einvígi séu nú
einum of mikið af því góða. Því eru
ekki ailir sammála og ástæðan sára-
einföld: ein úrslit í einvígi Kasparovs
og Timmans eru gefin. Timman,
öfugt við Karpov, hefur þrátt fyrir
styrk sinn enga möguleika gegn Garrí
Kasparov. svo framarlega sem Kasp-
arov mæti til leiks, en það er ekki
alveg á tæru. Ef marka má yfirlýsing-
ar meistarans, fer heimsmeistaraein-
vígið fram f Lyon í Frakklandi næsta
haust.
Framganga Timmans í áskorenda-
keppninni hefur vakið fögnuð heima
fyrir. „í Hollandi þekkja allir Tim-
man,“ sagði hollenskur stórmeistari
við mig á dögunum. Og þarlendir
munu fylgjast grannt með viður-
eigninni í Malasíu. Möguleikar Tim-
mans í þessu einvígja þykja þó heldur
litlir. Hann hefur ekki unnið eina ein-
ustu skák af Karpov síðan 1982 en á
tapskákunum kann ég ekki tölu. Það
er ekki styttra síðan en 1988 að hann
tapaði sex sinnum fyrir Karpov. Fyrri
viðureignir þurfa þó ekki að skipta
neinu höfuðmáii í einvígjum, það
sannaðist í Buenos Aires 1927 þegar
Capablanca og Aljékín háðu sitt
fræga einvígi og aftur 1972 í Laugar-
dalshöll.
Á aðventu gekkst kaþólska út-
varpsstöðin í Hollandi, KRO, fyrir
æfingaeinvígi fyrir Timman og hefur
raunar gert mörg undanfarin ár. Þar
hefur hann átt í höggi við marga
fremstu skákmeistara heims þ.á m.
Garrí Kasparov. Andstæðingur hans
að þessu sinni var Nigel Short sem féll
svo óvænt út úr áskorendakeppninni
1988 er hann tapaði fyrir landa sínum
Jonathan Speelman, 1V4: 3'/2. Þetta
var eiginlega hálfgert áfall fyrir enskt
skáklíf. Speelman er vissulega hinn
geðugasti náungi en þykir koma um
of til móts við þá lífseigu bábilju
enskra að skákmenn séu upp til hópa
sérvitringar og furðufuglar.
Short er aftur á móti vel þekkt nafn
í Englandi eins og sagan ber með sér
er hann grúfði sig yfir vasatafl í lest á
leið heim til Manchester og framh-
leypinn náungi kom til hans og sagði:
„Tökum eina. Þú átt örugglega engan
séns á móti mér, nema náttúrlega þú
sért Nigel Short.“
Eftir hrakfarirnar fyrir Speelman
hefur verið fremur hljótt um Short.
Hann hefur vissulega náð ágætum ár-
angri af og til en þykir ekki jafn sjálf-
sagt heimsmeistaraefni og áður.
Byrjunin á einvíginu við Timman
virtist benda í þá átt að Short væri
heillum horfinn. Að sama skapi
gladdi kraftmikil taflmennska Tim-
mans landa sína og komst í 2:0. Að-
eins virtist formsatriði að ljúka ein-
víginu. En Short var ekki af baki dott-
inn, fyrst náði hann jafntefli og síðan
jafnaði hann metin með tveimur ör-
uggum sigrum. Hann sótti stíft í síð-
ustu skákinni en jafntefli varð niður-
staðan.
Besta skák einvígisins var sú
fimmta. Short tefldi sérstaklega vel.
Hann valdi lítt þekkt afbrigði af Sikil-
eyjarvörn og Timman virtist gera sig
ánægðan með jafntefli, stofnaði til
stórfelldra uppskipta en Short fann
alltaf einhverja smugu og vann að
lokum með nokkrum hnitmiðuðum
leikjum:
Jan Timman - Nigel Short
Sikilcyjarvörn
1. e4-c5
2. Rf3-Rc6
3. d4-cxd4
4. Rxd4-e5
5. Rb5-d6
6. c4-Be7
7. Rlc3-a6
8. Ra3-Be6
9. Be2-Bg5
(Ein hugmyndin með byrjunartafl-
mennsku svarts kemur hér í ljós.
Svartur léttir á stöðu sinni með upp-
skiptum á biskupnum.)
10. Bxg5-Dxg5
11. 0-0-Hd8
12. Rd5-h5
13. Rc2-h4
14. Dd3-Bxd5
15. exd5-Rce7
16. De3-Dxe3
17. Rxe3-Rh6
18. 14?
(Þessi Ieikur þjónar einungis hags-
munum svarts því hann fær e5-
reeitinn til umráða. Timman hefði
betur einbeitt sér að peðaframrás á
drottningarvæng.)
18. .. exf4
19. Hxf4-Rg6
20. He4+-Kd7
21. Bg4+-Rxg4
22. Hxg4-Hde8
23. Rf5-He2
24. b4-h3!
auk erfiðrar stöðu kominn í tíma-
hrak.)
34. Hg7-Rg5
35. Hgl?
(Lokamistökin. Eini möguleikinn til
að verjast lá í 35. Ke2.)
35. .. Hd2+
36. Kfl-Hc3!
og Timman gafst upp. Afar
sannfærandi taflmennska hjá Short.
Hannes hlífar enn efstur
á Skákþingi Reykjavíkur
Nú eru aðeins þrjár umferðir eftir
af Skákþingi Reykjavíkur og er ljóst
að baráttan um sigurinn kemur til
með að standa á milli Hannesar Hlíf-
ars Stefánssonar og Þrastar Þórhalls-
sonar. Hannes vann Héðinn
Steingrímsson á miðvikudagskvöldið
og Þröstur lagði Sigurð Daða Sigfús-
son.
Staðan á mótinu er þá þessi:
1. Hannes Hlífar Stefánsson 7VI v. 2.
Þröstur Þórhallsson 7 v. 3.-4. Þröstur
Árnason og Árni Ármann Árnason
6V2 v. 5.-9. Héðinn Steingrímsson,
Ögmundur Kristinsson, Lárus Jö-
hannesson og Snorri Karlsson.
Lausn á skákþraut
í síðasta pistli birtist eftirfarandi
skákþraut:
n—m—in—®
, a b c d e f g h
Hvítur mátar í 3. leik:
Lausn: 1. Da3!-Kf4 (1. .. Ke6 eða 1.
.. Kg6 2. Da7 og 3. D7 mát eða 3.
Dh7 mát) 2. Rd4! cxd4 3. D18 mát.
(Kjarninn í áætlun Shorts birtist hér.
Þessi glæsilegi peðsleikur opnar línur
að kóngsstöðu Timmans sem nú á
mjög í vök að verjast.)
25. c5-Re5!
26. Hxg7-dxc5
27. bxc5-hxg2
28. Hxg2-Rf3+
29. Kfl-He5!
30. Rd6-Hxd5
31. Rxb7-Rxh2+
32. Kgl-Rf3+
33. Kf2-Hh3!
(Enn þrengist hringurinn. Timman ar
a b c d e f g h
Hvítur mátar í 3. leik.
ath!!!!
Engin ferð án tryggingar
Sveit Tryggingamiðstöðvarinnar
sigraði Reykjavíkurmótið í sveita-
keppni 1990, eftir úrslitaleik við sveit
Samvinnuferða/Landsýnar. Sveit sig-
urvegaranna skipa: Sigtryggur Sig-
urðsson, Bragi Hauksson, Asmundur
Pálsson, Guðmundur Pétursson,
Hrólfur Hjaltason og Ásgeir Ás-
björnsson.
f undanrásum áttust við sveitir
Tryggingamiðstöðvarinnar og
Verðbréf fslandsbanka. Þeir fyrr-
nefndu sigruðu 106-78. í hinum
leiknum áttust við sveitir Samvinnu-
ferða og Flugleiða. Þeir fyrrnefndu
sigruðu næsta auðveldlega 84-51.
Úrslitaleikurinn var aldrei nein
skemmtun fyrir áhorfendur, svo
miklir voru yfirburðir sigurvegar-
anna. Eftir 16 spil var staðan 54-29.
Eftir 32 spil var staðan orðin 101-55,
og er upp var staðið, eftir 48 spil, var
munurinn kominn í 135-69 og örugg-
ur sigur í höfn.
Flugleiðir sigraði svo Verðbréfin í
leik um 3. sætið, með 62-29. Þetta er
annar sigur sveitar Tryggingamið-
stöðvarinnar í röð, en skemmst er að
minnast sigurs þeirra í Bikarkeppni
Bridgesambandsins á dögunum.
Sveitin er því óneitanlega sú sterkasta
í dag og til alls vís á næsta ísland-
smóti. Umsjónarmaður óskar þeim
félögum til hamingju með góðan
sigur.
Sveit Brynjólfs Gestssonar Selfossi
varð Suðurlandsmeistari í sveitak-
eppni 1990, í keppni 13 sveita, sem
spiluð var að Flúðum nýlega. Með
Brynjólfi eru í sveitinni: Sigfús Þórð-
arson, Guðjón Einarsson og Runólf-
ur Jónsson.
Og enn er minnt á skráninguna í
Opna afmælismótið hjá Breiðfirðing-
um sem spilað verður fyrstu helgina í
febrúar. Skráð er m.a. á skrifstofu
Bridgesambandsins. Spilaður verður
barometer, með góðum verðlaunum
og silfurstigum.
Svæðismót Norðurlands vestra í
tvímenning verður spilað í Fljótunum
3. febrúar.
Nú stendur yfir vinna hjá BSÍ á
skráningu meistarastiga, og standa
vonir til að meistarastigaskráin kom-
ist út til félaganna fyrir Bridgehátíð,
sem haldin verður á Loftleiðum aðra
helgi í febrúar.
Á stjórnarfundi Bridgesambands-
ins föstudaginn 12. janúar sl., skv.
fundargerð, kemur m.a. fram, „að
nýja fyrirkomulagið í tvímenning
tekur gildi nú í ár, þ.e. að hvert svæði
á eitt par (svæðismeistarar) sem
kemst sjálfkrafa í úrslitakeppni 32
para. Einnig, að falli sveit frá rétti
sínum til að taka þátt í úrslitum fs-
landsmótsins í sveitakeppni (4 sveitir
áunnu sér þennan rétt á síðasta ári),
rennur rétturinn til stighæstu sveitar-
innar í undanúrslitum 1990, sem
lendir ekki í 1. sæti. Spilað er í 4
riðlum 1' íslandsmótinu í undanrásum,
þannig að hugsanlegt er að 3 sveitir
komi úr einum riðli, þær er hæstu
skorir fá yfir heildina. Einnig kemur
fram í fundargerð vegna „kvóta“ til
íslandsmóts í sveitakeppni, að reglur
séu skýrar hvað þetta varðar, en upp-
Iýsingar ónákvæmar. Þessar upplýs-
ingar áttu hins vegar að liggja ljósar
fyrir á síðasta ársþingi, miðað við fé-
lagsgjöld allra félaga innan BSÍ. Af
þeim sökum er ekki ljóst í hverju
„vandinn“ liggur.
Lögð var fram rekstraráætlun á
þessum fundi. Fram kom að tekjur
eru áætlaðar ca 11 miljón krónur, en
BRIDGE
Ólafur
Lárusson
gjöld 12 miljón krónur. Þó er skýrt
tekið fram að þessar tölur eru
óendurskoðaðar. Framkvæmda-
stjóra og Kristjáni Haukssyni falið að
endurskoða eigin áætlun.
Einar Jónsson tekur sæti Magnúsar
Ólafssonar í landsliðsnefnd, og að
lokum var eftirfarandi tilllaga sam-
þykkt, af gefnu tilefni: „BSI styrkir
lítil Bridgefélög á landsbyggðinni til
að halda mót vegna t.d. stórafmæla,
með því að greiða kostnað við
keppnisstjórnun og spilagjafir, enda
sé ekki um annan styrkjanda að
ræða“.
Þessi tillaga var færð til bókunar,
vegna uppkomins rógs um misnotkun
fv. framkvæmdastjóra í þessum mála-
flokki. Var haft eftir ákveðnum
mönnum hér í bæ, að framkvæmda-
stjórinn fyrrverandi hefði misnotað
sér aðstöðu sína til að hygla ákveðn-
um félögum á landsbyggðinni, til að
„kaupa" sér atkvæði seinna meir. Það
var ekki minna. Hið rétta í þessu máli
er það, að Björn Theodórsson og Jón
Baldursson komu þessu góða máli í
gegn á sínum tíma, er þeir störfuðu að
málefnum bridgehreyfingarinnar.
Fleiri góð mál í sama anda voru af-
greidd frá Birni Theodórssyni, t.d.
varðandi félaga utan Reykjavíkur, að
létta þeim að sækja ársþing með því
að greiða ferðakostnað, sem enn er í
fullu gildi, að því er best er vitað.
Fjármálaráðherra Hinriks sjö-
unda, Morton kardínáli, var nokkuð
útsjónarsamur á sinni tíð. Eftir hon-
um er höfð sú kenning, að þeir sem
eyddu peningum og bárust mikið á,
hlutu að eiga eitthvað afgangs fyrir
hirslur konungs og hinir, sem engum
peningum eyddu, þeir hlutu að vera a
safna þeim, og þar af leiðandi einnig
að vera aflögufærir fyrir hirslur kon-
ungs.
Lítum á dæmið um „Gaffal Mort-
ons“ (hugtakið) í bridge.
S: ÁD87
H: 54
T: D32
L: Á973
5; 2 S: _
H: K10983 H: D76
T: ÁG8 T: 109654
L: KD102 L: G8654
S: KG1096543
H: ÁG2
T: K7
L:-----
Suður spilar 6 spaða, eftir hjarta-
opnun Vesturs og laufakóng út.
Vinningsleið?
Lítum á hvernig við nýtum okkur
lögmál Mortons í þessu spili. Við
trompum laufaútspilið, tökum spað-
ann af Vestur og spilum síðan lágum
tígli að drottningu. Nú er sama hvað
Vestur gerir. Ef hann lætur lítið,
tökum við á drottningu, hendum
tígulkóng í laufaás og gefum einn slag
á hjarta. Ef Vestur stingur upp ás og
spilar hjarta, tökum við þann slag á
ásinn heima, fjarlægjum tígulkóng,
inn í borð á tromp, og hendum
tveimur hjörtum í laufaás og tígul-
drottningu.
Spilar Ólafur Ragnar bridge?
18 SÍÐA - NYTT HELGARBLAÐ Föstudagur 26. janáiar 1990