Þjóðviljinn - 26.01.1990, Side 22
ÓLAFUR
GÍSLASON
7— 2— 3— i 3' T~ 3 9? Ý (c? F 1 10 II
12 13 T~ i1 2? 15 lé> io 11 TT~ i1 92 11 ¥
zv 12 10 /3 21 1Ý 9? 11 13 2? 21 20 3 11
*r IZt 1 ¥ 11- u> 5 21 r 16 2Z 15 25 11 W~
22 ZD 22 10 1Ý lt 25 11 10 9? b ZF~ w~
zt 2? tff 3 IÝ 22 R? (p io il 30 10 92 11
il 1 + 23 2$ 2Ý 10 9? ir lö 25 21 lo ii 10
W r ir zr Zt 2? 10 2É 16> 9? IV I2 11 21 99
11 Z*\ 2? 2? 21 2É io 11 10 S2 10 lí> 92 31
zo 10 3 1Ý 21 21 22 b 2o 92 11 3
2iT 5 W 11 21 21 26? 3 11 23 2X 20 12
3— >1 W~ 25 11 13 22 6> 10 I0 2^ 6
IS' & (V) zz 15 V 21 3.2 11 29 12 5 25 21
AÁBDÐEÉFGHIÍJKLMNOÓPRSTUÚVXYÝÞÆÖ
_________________________ w JI' /CL .
Krossgáta nr. 80
Setjið rétta stafi í reitina hér fyrir neðan. Þeir mynda þé nafn á götu i Reykjavík.
Sendið þetta nafn sem lausn á krossgátunni til Þjóðviljans, Síðumúla 37,
Reykjavík, merkt: „Krossgáta nr. 80“. Skilafrestur er þrjár vikur. Verðlaunin
verða send til vinningshafa.
3 5 é? 20 3P ii 21 11 /V 10
Verðlaun fyrir krossgátu nr. 80 eru
skáldsagan Hroki og hleyþidómar
Lausnarorð á Krossgátu nr. 77 var Skútabjörg. Dregið var úr réttum lausnum, fKr bresku skáldkonuna Jane Austin
og upp kom nafn Auðar Bjarnadóttur, Hafnarbraut 48, Neskaupstað. Hún fær f þýðingu Silju Aðalsteinsdóttur. Mál
sent Ljóðasafn Vilborgar Dagbjartsdóttur, sem Mál og menning gaf út 1981. og menning gaf út 1988.
FJÖLSKYLDAN
SIGTRYGGUR
JÓNSSON
Zucchine
Á síðustu árum hefur mátt sjá í
grænmetisborðum stórmarkað-
anna grænan ávöxt sem heitir á
ítölsku zucchine og er fljótt á litið
ekki ósvipaður lítilli gúrku.
Grænmetisávöxtur þessi mun
vera skyldur graskeri og er mikið
notaður í ítalskri matargerð.
Hann er þéttari í sér en gúrkan og
hefur milt og smjörkennt bragð.
Zucchine eru ýmist soðin,
grilluð, steikt, djúpsteikt eða
bökuð, en ekki borðuð hrá. Þeg-
ar zucchine er soðið í vatni er það
yfirleitt látið heilt í sjóðandi salt-
vatn í 15-20 mínútur. Þannig má
borða það sem meðlæti. Gott er
að steikja það á pönnu með lauk
og hvítlauk. Pá er „gúrkan“
skorin niður í þunnar sneiðar.
Þannig matreitt, gjarna kryddað
með basilíkum og pipar, getur
það bragðast vel sem sérstakur
grænmetisréttur eða sem meðlæti
út á eggjapasta. Zucchine er
grillað þannig að það er skorið
endilangt eða þvert í frekar þunn-
ar sneiðar og sett yfir glóðina.
Þannig fram borið er það gott
sem meðlæti, t.d. með kjöti.
Einnig má matreiða zucchine
eins og franskar kartöflur. Þá er
það skorið niður í strimla áður en
það er sett út í sjóðandi olíu.
Zucchine eru einnig góð í græn-
metissúpu, minestrone.
Ein aðferðin við að baka zucc-
hine í ofni er að skera það eftir
endilöngu og leggja ost ofan á.
Það má baka í 15 mínútur við 190
gráðu hita. Zucchine er ódýrt
grænmeti í Suður-Evrópu, en
kostar yfirleitt mikið hér á landi.
Þeir sem hafa áhuga á að f ræðast um eitthvert
ákveðið efni varðandi fjölskylduna geta skrifað.
Merkið umslagið: Fjölskyldan; Nýtt Helgarblað,
Þjóöviljanum, Síöumúla 6, Reykjavík.
Meira um sálarkreppu
í seinustu viku hóf ég umræðu
um sálræna kreppu og held nú
áfram með það efni.
Allt lífið stefnum við að því,
meira eða minna meðvitað, að
hafa jákvæða sjálfsmynd, að
finna til þess að við tilheyrum
öðrum og finna að við lifum til-
gangsríku lífi. Þótt misjafnlega
takist til í þessum efnum og til-
finning okkar fyrir því að hafa
tekist sé stundum jákvæð og
stundum neikvæð, þá fylgir sálar-
kreppu ætíð það að stoðirnar
undan þessu svigna eða brotna.
Sálarkreppa hefur þannig í för
með sér að við upplifum að við
séum ein og yfirgefin, sjálfs-
myndin verður neikvæð og til-
gangsleysi eða kaos hellist yfir
mann. Hvað af þessu verður mest
áberandi fer líkast til eftir því
hvað það er sem kreppunni veld-
ur.
Það er því mikilvægt að gera
sér grein fyrir í fyrsta lagi, hvað
það er sem orsakar sálarkrepp-
una og hvers eðlis það er. Er um
atburðakreppu að ræða, eða er
um þroskakreppu að ræða, sam-
anber það sem ég ræddi um síð-
ast? í öðru lagi er mikilvægt að
átta sig á því hvaða innri, per-
sónulega þýðingu atburðurinn
hefur fyrir viðkomandi. Þannig
getum við fengið vitneskju um
hvers vegna atburður, sem hefur
tiltölulega lítil áhrif á suma, veld-
ur öðrum sálarkreppu. I þriðja
lagi ber að skoða þær aðstæður,
sem viðkomandi lifir við er hann
lendir í sálarkreppunni. Alla
ævina erum við að þroskast og
takast á við breytingar í lífinu og
alltaf öðru hvoru á lífsleiðinni eru
ákveðin tímabil, sem eru erfiðari
en önnur. Eitt tímabilið ein-
kennast af barnæsku, annað af
unglingsárum, næsta af stofnun
fjölskyldu, síðan kemur það
tímabil að eignast þak yfir höfuð-
ið og svo getum við haldið áfram
að telja upp mismunandi tímabil
ævinnar, allt til elliára og dauða.
Þær kreppur, sem ég hef nefnt
þroskakreppur tengjast vitanlega
mjög þessum tímabilum, en einn-
ig geta ákveðnar atburðakreppur
tengst sumum þessara tímabila
og haft mismikil áhrif eftir því á
hvaða tímabili einstaklingurinn
er staddur. Fjórði þátturinn, sem
ber að skoða er svo það sem við
getum kallað félagslegar forsend-
ur einstaklingsins, og þar með
talin sú fjölskyldugerð, sem hann
býr við. Hversu veikar eða sterk-
ar eru þessar forsendur? Sam-
heldin fjölskylda getur stutt fjöl-
skyldumeðlim sem lendir í
óvæntum erfiðleikum á meðan
ósamheldin og sundruð fjöl-
skylda verður enn veikari og
sundraðri við slíka atburði.
Stundum geta líka tiltölulega
veigalitlir atburðir orðið til þess
að sundruð fjölskylda lendir í sál-
arkreppu, sérstaklega ef hún lifir
við mikla spennu. Þá verkar at-
burðurinn sem hvellhetta sem
sprengir púðrið sem býr með fjöl-
skyldunni.
í upphafi þessarar greinar
minntist ég á að sálarkreppa hef-
ur í för með sér upplifun af því að
vera yfirgefinn, sjálfsmyndin
verður neikvæð og upplifun af til-
gangsleysi. Lítum aðeins nánar á
þetta. Áð upplifa sig yfirgefinn er
upplifun af því að vera „ósýni-
legur“, að tilheyra ekki einhverj-
um hópi eða vera í tengslum við
eitthvert samhengi. Einstakling-
ur getur á yfirborðinu búið og
lifað einn, en samt fundist hann
tilheyra öðrum. Á sama hátt get-
ur einstaklingur búið og lifað
með hópi fólks, en samt sem áður
fundist hann einn og yfirgefinn.
Það kreppuástand sem veldur
þeirri upplifun að vera yfirgefinn
er sú tilfinning að hafa misst
eitthvað, sem gefur lífinu tilgang.
Það getur verið annar einstak-
lingur, eignir, þátttaka í atvinnu-
lífinu o.fl. Þessi tilfinning er sárs-
aukafull og ber með sér einkenni
eins og sorg og tómleika.
Sjálfsmyndin tengist þeirri
upplifun, sem við höfum af því
hvers virði við erum, hversu vel
okkur tekst að fullnægja þörfum
okkar og væntingum til lífsins.
Sumir upplifa stöðugt að þeim
takist vel upp á meðan aðrir upp-
lifa að allt sem þeir taka sér fyrir
hendur, mistakist. En flestir
finna fyrir því, að þessir hlutir
gangi svona upp og ofan, stund-
um vel og stundum illa. Þegar
einstaklingur gerir stór mistök,
hvort sem þau tengjast siðferði-
legum málum eða stöðu, metnaði
eða öðrum málum, verður sjálfs-
myndin neikvæð og getur orðið
sjálfsafneitun eða hatur á sjálfum
sér. Slíkar tilfinningar einkennast
af samviskubiti, að viðkomandi
reynir að hegna sjálfum sér á ein-
hvern hátt og niðurbrjótandi at-
höfnum.
Upplifun af tilgangsleysi felur í
sér að viðkomandi finnst ekki
lengur samhengi í hlutunum og
að lífið sé hætt að hafa tilgang.
Viðkomandi hefur tapað trúnni á
skynsemi og skipulag tilverunnar
og stöðugar spurningar einsog
„Hvernig gat þetta hent mig?“
leita á huga hans. Viðkomandi
verður bitur út í aðra sem og lífið
sjálft og kvíði og hræðsla við að
geta ekki stjórnað aðstæðum ein-
kenna daglegt líf hans. í alvarleg-
ustu tilvikum getur viðkomandi
misst stjórn á sér og orðið geð-
veikur.
Sálarkreppa er því sársaukafull
reynsla. Hún getur leitt til aukins
þroska og þekkingar á sjálfum sér
og viðbrögðum og tilfinningum,
en hún getur líka leitt til eilífs
biturleika og einmanaleika. Þess
vegna er nauðsynlegt að við-
brögð umhverfis stjórnist í þá átt
að hjálpa viðkomandi til þess að
takast á við og sigra kreppuna
þannig að hún geti leitt til aukins
þroska. Utanaðkomandi hjálp
sálfræðinga, geðlækna eða ann-
arra sérfræðinga getur verið
nauðsynleg, bæði fyrir einstakl-
inginn sjálfan og fjölskyldu hans.
22 SÍÐA - NÝTT HELGARBLAÐ Föstudagur 26. janúar 1990