Þjóðviljinn - 16.02.1990, Síða 13

Þjóðviljinn - 16.02.1990, Síða 13
 Nýtt Helgarblað ræðir við dr. Rosalie David einn fremsta múmíusérfræðing veraldar. Nútíma tækni notuð til að sjúkdómsgreina fólk sem var uppi fyrir 4000 árum. Auðug prestastétt barðist um völdin við konunga Egypta þetta gerðu þeir í umboði guð- anna. Konungarnir voru taldir vera synir guðanna en lentu engu að síður í erjum við prestana. Það er tímabil í sögu Fornegypta þegar stjórnkerfið var lamað vegna valdabaráttu presta og konunga, þegar konungarnir annað hvort reyndu að þvinga vilja sínum upp á prestana eða prestarnir klufu sig frá konungsvaldinu. Pað er fleira skráð á kisturnar sem múmíurnar eru í en nöfn ein- staklinganna og titlar. Hvað áletr- anir eru þetta? Áletranirnar á kistunum eru að mestu fengnar úr svo kallaðri „bók dauðans". Þetta voru særingar- og galdraþulur sem áttu að koma hinum látna heilu og höldnu í næsta líf. Fiestar kisturn- ar voru smíðaðar fyrirfram en skilin eftir syða þar sem n ö;n og titlar: einstaklinganna voru skráðí Að öðru leyti var sama áletrunin á öllum kistunum. Þeir sem smiðuðu kisturnar unnu á stórum verkstæðum. Viðurinn sem þeir notuðu hefur verið innfluttur frá Líbanon en þeir notuðu einnig viðartegundir sem var að finna heima fyrir. Af rannsóknum má ráða að þeir hafi oft notað gamlan og skemmdan við í kisturnar og hulið þær með fyllingarefnum og málningu þannig að þeir sem keyptu kist- urnar héldu að þeir hefðu fjárfest í mjög góðum kistum. - Hvað eru múmíurnar gamlar sem þið eigið hér á safninu? Þær elstu eru frá því um 1900 fyrir Krist, svo þær eru um 4.000 ára gamlar. Yngstu múmíurnar eru frá þeim tíma þegar Róm- verjar hernámu Egyptaland, sem var uppúr árinu 30 eftir Krist. Múmíurnar okkar spanna því um það bil 2.500 ára tímabil. En hér í Manchester eigum við ekki ein- tök af elstu múmíunum. Ein frægasta drottning Egypta er án efa Kleópatra er kista henn- ar varðveitt einhvers staðar? Einhvers staðar já. Líkams- leifar hennar og konunga af sömu ætt hljóta að liggja einhvers stað- ar. Það er talið að Kleópatra hafi verið grafin í Alexandríu en graf- hýsi hennar hefur aldrei fundist. Menn hafa leitað að grafhýsi Kleópötru og konungsættar hennar í gegnum árin án árang- urs. f dag er Alexandría nútíma borg og ekki er ólíklegt að graf- hýsið sé undir einhverju þeirra húsa sem fylla borgina nú. Ef grafhýsi Kleópötru kæmi í leitirn- ar yrði það augljóslega stórat- burður. Múmíurnar eru sendiherrar - Sumir segja rangt af Bretum að skila múmíunum ekki aftur. Hvaða skoðun hefur þú á því? Ég hef í fyrsta lagi aldrei heyrt nokkurn Egypta nefna þessa kröfu á ferðum mínum um Eg- yptaland. Múmíurnar eru líka í raun eins konar sendiherrar Eg- yptalands í örðum löndum. Fólk Við höfum ekki gert rannsókn- ir á pýramídunum sjálfum hér í Manchester en við höfum rannsakað þorpið Kahun þar sem verkamennirnir sem unnu að pýramídunum bjuggu. íbúarnir yfirgáfu Kahun í miklum flýti af óþekktum ástæðum og skildu nánast allt eftir, meðal annars verkfæri, andlitsfarða og leikföng. Þorpið var grafið upp fyrir um níutíu árum og við eigum mikið af munum frá því hér í safn- inu hjá okkur. Þessir munir hafa verið rannsakaðir vísindalega og gefa okkur vitneskju um það samfélag sem var í Kahun, daglegt líf fólks- ins og það tæknistig sem það var á. Þannig snerta rannsóknir okk- ar pyramydana óbeint. Þeir sem unnu að smíði pýra- - mídana bjuggu í frekar lokuðu samfélagi með fjölskyldum sín- um í Kahun. Það er líka athyglis- vert að sumir þessara iðnaðar- manna hafa verið útlendingar sem ferðuðust um og seldu kunn- áttu sína en bjuggu með innfæddum iðnaðarmönnum í þessu þorpi. Að því er virðist voru þetta frjálsir menn og sennilega hafa þeir ekki verið mjög frábrugðnir þeim sem ferðast um heiminn í dag og selja kunnáttu sína varð- andi stórar byggingarfram- kvæmdir. Þetta voru menn með iðn- menntun en almennir verkamenn unnu einnig við gerð pýramíd- ana. Þeir voru ekki þrælar í eigin- legum skilningi þess orðs, heldur verkamenn sem unnu venjulega ýmis landbúnaðarstörf. En þegar ár flæddu yfir bakka sína eða ekki var hægt að yrkja landið af öðrum orsökum, hefur stjórnin gefið þeim möguleika á að vinna við pýramídana. Þrælahald hefur al- mennt ekki þekkst í samfélagi Fornegypta, þótt hinu gagnstæða hafi oft verið haldiö fram. - Voru Egyptar hræddir við guðina? Já, en annars trúðu þeir því að ef þeir gerðu eitthvað gott fyrir guðina myndu þeir endurgjalda í góðu. Þess vegna sáu þeir mjög vel fyrir daglegum þörfum guð- anna og trúðu því að í staðinn myndu guðirnir færa konungum Egypta sigra í hernaði við óvinina og fólkinu góða uppskeru og hag- sæld. Staða prestanna var sterk sem seinna varð vandamál. Þegar konungarnir fóru í hernað komu þeir með fanga og mikinn auð með sér til baka. Konungarnir voru sannfærðir um að guðirnir hefðu lagt þeim lið í hernaðinum og gáfu því mikinn hluta auðæf- anna til musteranna. Prestarnir urðu þess vegna mjög auðugir og þegar tímar liðu varð þessi staða þeirra pólitískt vandamál. Prestarnir fóru að keppa við konungana um völd. Æðstu- prestarnir réðu líka miklu um hvaða meðlimur konungsfjöl- skyldunnar skyldi erfa krúnuna hverju sinni og stjórna landinu og fer á söfn og sér þessa frábæru muni og menjar og fær hvatningu til að sækja Egyptaland heim. Þetta þjónar því egyptum mjög vel, ekki hvað síst hvað varðar ferðamannaiðnað. Aðalatriðið er að múmíurnar séu varðveittar eins vel og mögu- legt er þannig að hægt sé að rann- saka þær og koma upplýsingum á framfæri. Það er líka mikilvægt að skipst sé á upplýsingum og í Manchester höfiim við alþjóð- legan gagnabanka. Við fáum upplýsingar um múmíur og rann- sóknir á þeim alls staðar úr heiminum. Þessar upplýsingar eru allar færðar í gagnabankann og þeim miðlað til múmíusér- fræðinga og lækna um allan heim. Það er mikils virði að hafa múmíurnar dreifðar sem víðast þannig að fólk í ólíkum löndum fái áhuga á málinu. Egyptar eiga sjálfir mest af múmíum sem þeir varðveita í Kairó-safninu og draga að sér fólk alls staðar að. - Að lokum ef þú berð saman menningu Fornegypta almennt og okkar menningu, er þá eitthvað í menningu Egypta sem gœti reynst okkur vel og við ættum kannski að tileinka okkur? Já. Mikið af handiðn Forneg- ypta, sérstaklega skartgripirnir, eru miklu betri að gæðum en þeir skartgripir sem við gætum búið til með sömu verkfærum í dag. Þeir höfðu mjög gott hráefni og mjög hæfa iðnaðarmenn og nægan tíma til að framleiða þessa gripi. Egyptar virðast líka hafa búið við samfélagsform sem gafst frek- ar vel í ljósi þess að það hélst saman í 3.500 ár. Ekkert annað samfélag hefur lifað svo lengi. Þannig að burt séð frá mikilli tæknikunnáttu okkar, sem meðal annars hefur fætt af sér geimvís- indi og svo framvegis, held ég að lifnaðarhættir Egypta og lífsgæði þeirra bendi til þess að þeir hafi búið í menningarsamfélagi á háu stigi. -hmp Þrátt fyrir töluverða bæklun hefur Asru verið föngulegasta kona. Þessi afsteypa af andliti hennar er gerð eftir múmíunni og er talin gefa mjög raunhæfa mynd af raunverulegu útliti hennar þegar hún var uppi fyrir um 3.000 árum. Dr.Rosalie David er einn fremsti múmíusérfræðingur í heimi og segir múmíurnar geyma heilmikinn fróðleik. Árið 1890 studdi vefnaðarvöru stórkaupmaðurinn Jesse Haw- orth leiðangur fomleifafræðings- ins Williams Flinders Petries til Kahun og Gurob í Fayoum, stærstu vin í eyðimörkum Eg- yptalands. Petrie varð síðar fyrsti prófessor Bretlands í egypskum fræðum við University College ( London en leiðangrar hans lögðu grunninn að glæsilegu safni eg- ypskra fommuna í Manchester. Petrie lét Haworth fá mikið af þeim gripum og múmíum sem hann fann í fjölmörgum leiðöngr- um sínum en Haworth gaf Manchester-safninu svo gripina, tók þátt í kostnaðinum við að stækka húsakynni safnsins og í erfðaskrá sinni ánafnaði hann safninu bæði fjármunum og forn- gripum sem reynst hafa safninu ómetanlegir. Vafiö utan af fyrstu múmíunni Árið 1908 hófust síðan fyrstu vísindalegu rannsóknirnar á múmíum við Manchester-safnið, þegar dr. Margaret Murray vafði utan af fyrstu múmíunni í viður- vist 500 áhorfenda sem fylgdust spenntir með í grafarþögn í nær tvær klukkustundir. Rannsóknirnar héldu áfram með nokkrum hléum en árið 1972 hóf önnur merk kona störf við Manchestersafnið, dr. Rosalie David. Á sjöunda aldursári kviknaði áhugi hennar á egypsk- um fræðum, þegar kennari í skólanum hennar sýndi krökkun- um myndir af pýramídunum. Sjálf segir hún að áhugi hennar hafi ekki kviknað fýrir alvöru fyrr en hún hóf störf við safnið. Þá voru nær áttatíu ár frá því dr. Murray vafði utan af fyrstu múm- íunni og dr. David fannst tilvalið að taka aftur upp þráðinn þar sem Murray skildi við hann. Dr. David fer fyrir hópi vís- indamanna sem rannsakar eg- ypsku múmíurnar í Manchester og notar til þess fullkomnustu nú- tíma tækni. Hróður hennar hefur farið borist og í dag er hún með allra frægustu vísindamönnum á sínu sviði. Nýtt Helgarblað var á ferðinni í Manchester og leit inn á safninu hjá dr. David og spurði hana út í rannsóknir hennar. Dr. David er glaðvær fremur lágvaxin kona og hafði greinilega gaman af að skýra út vinnu sína. - Hafa rannsóknirnar á múmí- unum eitthvert gildi fyrir aðra en þá sem þœr stunda? Já, múmíurnarermjög athygli- sverðar heimildir vegna þess að með rannsóknum á þeim má komast að ýmsu um mataræði þessa fólks í lifanda lífi, lífsmáta þess og þá sjúkdóma sem hrjáðu það og stundum má greina dánar- orsök þess. Þannig að múmíurnar geta sagt okkur töluvert um samfélag Fornegypta og almennt heilsufar þeirra. Fornir ættingjar dreiföir um heiminn í mörgum tilvikum er hægt að sjá nákvæmlega hvaða einstak- lingar þetta voru vegna þess að múmíurnar eru í kistum og nafn og titill einstaklingsins eru skráð á kisturnar. Þannig getum við oft rakið hvaðan múmíurnar eru og frá hvaða tíma og sumar þeirra eru skyldar hver annarri. Til dæmis höfum við múmíu hér í Manchester sem er skyld múmíu í Bristolsafninu. Við getum því stundum rakið fjölskyldur múmí- anna um heiminn þveran og endi- langan sem er mjög áhugavert þegar verið ear að rannsaka sjúk- dóma, og hvort þeir hafa verið ættgengir. - Máfinna ættgenga sjúkdóma í konungsfjölskyldum Egypta eins og konungsfjölskyldum Evr- ópu? Já. Múmíur egypsku konungs- fjölskyldunnar hafa að vísu að- eins verið rannsakaðar með hjálp röntgenmynda. En í þeim múmí- um þar sem mögulegt hefur verið að rannsaka líkamsvefi hefur .,tundum mátt greina visst myn- stur sjúkdóma í ákveðnum fjöl- skyldum. Þetta eru sjúkdómar sem eru til í dag. En tíðni krabbameins er til dæmis mjög lág, vegna þess að meðalaldur fólks á þessum tíma var í kringum fjörutíu ár og krabbamein leggst aðallega á fólk sem er eidra en það. Krabbamein greinist líka nær eingöngu í beinum múmíanna, það finnst síður í líkamsvefjum. Venjulega náði fólk ekki hærri aldri en fjörutíu ára en sumir urðu eldri. Við vitum til að mynda af múmíum af konung- bornu fólki sem náði allt að níutíu ára aldri. Það lítur út fyrir að tíðni ungbarnadauða hafi verið mjög há en ef börn náðu að lifa af fýrsta árið voru lífslíkur þeirra að öllum líkindum mjög miklar. Við höfum þróað læknisfræði- lega tækni við rannsóknir á múm- íunum. Árið 1975 vöfðum við utan af múmíu en við það féll hún algerlega saman. Eftir það höfum við þróað tækni sem hróflar svo til ekkert við múmíunum en hún felst í notkun sneiðmyndatækis og örmyndavéla sem gerir okkur kleift að skoða múmíurnar bæði innan frá og utan og að finna lík- amsvefi. Ef við finnum líkam- svefi getum við síðan beint tækj- unum að þeim, stækkað þá upp og skoðað þá án þess að skemma múmíuna. Þannig komumst við hjá því að opna múmíuna en fáum samt miklar upplýsingar. Þetta er mikil framför sem við höfum unnið að síðan árið 1984. Gátan leyst - Er tæknin sem notuð var til að gera líkamsleifar fóíks svona varanlegar enn ráðgáta eða þekk- ið þið og kollegar þínir þessa tækni í dag? Já, við vitum hvernig þetta var gert. Það hafa verið gerðar til- raunir hér við safnið á dauðum rottum, þar sem ólíkar aðferðir hafa verið bornar saman. í aðal- atriðum fór þetta fram í tveimur þrepum. Fyrst var hinn látni skorinn upp og öll innyfli eins og lungu og lifur fjarlægð en hjartað og nýrun voru skilin eftir. Síðan meðhöndluðu líkmennirnir inn- yflin og líkamann með natroni sem er náttúrulegt efni í Egypta- landi og hefur þann eiginleika að draga allt vatn úr líkamsvefjum þannig að þeir verða mjög þurrir og rotna ekki. Egyptar voru byrjaðir að gera múmíur þegar árið 5.000 fyrir Krist þegar þeir dauðu voru bornir til grafar í sandi. Sandur- inn var heitur og þurr og þurrkaði líkin með eðlilegum hætti. Eftir það byrjuðu þeir að byggja flókin grafhýsi fyrir meðlimi konungs- fjölskyldunnar og aðalinn. í þess- um grafhýsum voru herbergi neð- anjarðar hlaðin úr múrsteinum og það var hólf á milli sandsins og múrsteinanna þannig að lflrin hrömuðu mjög hratt. Um þetta leyti höfðu þróast í Egyptalandi þau trúarbrögð að hver einstaklingur hefði sál eða anda sem héldi áfram að vera til í öðru lífi og að þessi andi þyrfti að koma til baka í líkamann í graf- hýsunum til að taka á móti matar- gjöfum. Af þessum sökum þurfti andinn á varanlegum líkama að halda. Upp úr þessu fundu þeir aðferð sem gerði þeim kleift að gera það sem við köllum í dag múmíur. Þessi meðferð verður því til af trúarástæðum en byggir á því sem gerist af náttúrulegum orsökum þegar fólk er grafið í eyðimörkinni. - Voru það þá forréttindi konung- og eðalborinna að eiga líkama til að hverfa til úr fram- haldslífinu? Já. Fyrst voru einungis gerðar múmíur úr meðlimum konungs- fjölskyldunnar en síðan fylgdi að- allinn á eftir og að lokum þeir einstaklingar úr hástéttinni sem höfðu efni á þessari meðferð. En alger meirihluti þjóðarinnar, sennilega um 80%, var áfram grafinn í sand. Á þessari mynd sést mjög vel hvernig múmíurnar eru vafðar. Myndir; Kristín Gestsdóttir Sálir almennings hurfu því aft- ur til líkama sinna sem þornuðu með náttúrulegum hætti en fengu í raun enga meðferð. Þegar við skoðum múmíur erum við þar af leiðandi að skoða líkamsleifar æðstu einstaklinga þjóðfélagsins en ekki almennings. - Hafið þið einhverja vitneskju um daglegt lífþessa fólks? Við höfum verulegar upplýs- ingar um daglegt líf þessara ein- staklinga vegna þess að hvers- dagslegir hlutir voru settir í graf- irnar með þeim þar sem því var trúað að einstaklingurinn þyrfti á klæðnaði, andlitsfarða, leirkerj- um, skartgripum og eldunar- áhöldum og svo framvegis að halda í næsta lífi. Þessir hlutir voru því settir í grafimar. Fornleifafræðingar hafa líka grafið upp úr rústum bæja ýmsa gripi sem fylla upp í myndina. Það má Ifka komast að ýmsu um mataræði fólksins með því að skoða til dæmis tennumar í múm- funum. Á tönnunum sést að þetta fólk hefur þjáðst af tannsjúkdómi sem lagðist á yfirborð tannanna og er rakinn til brauðsins sem það borðaði en það var mengað grófum sandi. Þegar komið var fram á unglingsárin vom tenn- umar því mikið eyddar og eftir því sem fólk varð eldra þvf verri vom tenumar sem aftur leiddi til alls kyns tannholdssjúkdóma og jafnvel blóðeitmnar. Múmíur í Mancnester í egypsku deildinni í Manchester-safninu má sjá þessa múmíu af konu að nafni Asru, sem talin er hafa verið uppi á tímabilinu 730-664 f. Kr. Hún hefur að öllum líkindum lifað frekar kvalafullu lífi. Rannsóknirdr. David hafa leitt í Ijós að hún var með samgróna hryggjarliði, engin liðarmót í fingrum og gat ekki andað í gegnum nefið. - Egyptar kunnu töluvert fyrir sér í læknisfræði. Hafið þið fund- ið einhver merki þess? í raun og vem ekki. Egyptar stunduðu í gmndvallaratriðum tvenns konar læknismeðferð, skurðlækningar, sem að mestu vom byggðar á hjátrú, og lyfja- meðferð en það hafa ekki fundist neinar lyfjamenjar í múmíunum. Það er því mjög erfitt að fullyrða að ákveðin múmía hafi fengið einhverja tiltekna lyfjameðferð hjá læknum. Engu að síður er ömggt að Fomegyptar vom byrjaðir að nota lyf við lækningar um 2.000 fyrir Krist. En eins furðulegt og það nú er þá vom engin lyf sett í grafhýsin hjá múmíunum. Sjálf- sagt hefur heldur ekki verið talin þörf á því þar sem menn stóðu í þeirri trú að eftir dauðann yrðu þeir líkamlega fullkomnir. Sjúk- dómar og slík vandamál fylgdu mönnum ekki inn í næsta líf og þess vegna engin þörf á lyfjum í næsta lífi. - Hefur þú sjálf rannsakað pýramídana? Ekki að neinu ráði. Þær rann- sóknir hafa ekki beinlínis verið á mínu sviði. Annað aðalsvið mitt em egypsku musterin, en dokt- orsverkefnið mitt fjallaði um hlutverk þeirra í trúarbrögðu- num. Pýramídarnir snertu ein- ungis mínar rannsóknir ef þeir tengdust á einhvern hátt muster- unum. Uppbygging pýramídanna sjálfra kom þar ekkert við sögu. Musterið var hús guðanna og prestarnir vom í raun þjónar guð- anna og hlutverk prestanna var að sinna óskum þeirra. Hver guð var táknaður með styttu og prest- amir báru mat að styttunum þrisvar á dag með ákveðinni trú- arathöfn, stytturnar voru klædd- ar upp og málaðar og krýndar kórónu. Að athöfninni lokinni var maturinn auðvitað eftir ó- snertur. Svo hann var tekinn burtu og færður forfeörum konung- anna sem að sjálfsögðu snertu heldur ekki á honum. Eftir það var matnum skipt á milli prest- anna sem þeirra dagleg greiðsla. Þeir fengu því þrjár góðar máltíð- ir á dag. Föstudagur 16. febrúar 1990 NÝTT HELGARBLAÐ - SÍÐA 13

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.