Þjóðviljinn - 16.02.1990, Side 14

Þjóðviljinn - 16.02.1990, Side 14
— ef satt væri Bréf til Þrastar Haraldssonar, Þjóðviljanum, frá Birni G. Björnssyni, framkvæmdastjóra Dagskrárgerðarsviðs, Stöð 2, með ósk um birtingu í blaðinu. Kæri Þröstur. Ég les stundum pistla þína um fjölmiðla og er oftar en ekki sam- mála þér um margt. Þess vegna langar mig til að leiðrétta mis- skilning sem gætti í pistlinum föstudaginn 9. febrúar sl. þar sem ég tel víst að þú viljir heldur hafa það sem sannara reynist. Þar fullyrðir þú, eins og sá sem hefur sannnleikann sín megin, að Jón Ólafsson. einn þeirra at- hafnamanna sem nýlega afréð að hætta hluta af eigum sínum til þess að Stöð 2 megi starfa áfram, hafi í hagsmunapoti „vikið frá ungri konu sem sá um poppþátt". Ljótt, ef satt væri, varð mér að orði við Iesturinn. Nú vill svo til að þrátt fyrir at- orku sína og dugnað á ýmsum sviðum stjórnar Jón Ólafsson ekki innlendri dagskrárgerð á Stöð 2, heldur hef ég haft það á minni könnu frá því um mitt ár 1987. Það hefur ekki alltaf verið auðvelt því hugur stjórnenda stöðvarinnar hefur ævinlega stað- ið til mun meiri dagskrárgerðar en raunveruleg fjárhagsstaða leyfði og oftar hefur þurft að hafna en velja. Nýir eigendur hafa sömuleiðis lýst yfir metnaði fyrir hönd innlendrar dag- skárgerðar enda er það trú mín að þeir hafi einkum verið að fjár- festa í íslenskri sjónvarpsstöð. Til að gera innlenda dag- skrárgerð að veruleika í þeim mæli sem raun ber vitni hefur Stöð 2 mátt leita allra leiða til að mæta kostnaði. Árangursríkast hefur verið að halda framleiðslu- kostnaði innan stöðvarinnar í lág- Ljótt marki og leita ætíð hagkvæmustu leiða. Þannig skilaði mitt fólk um 33.000 mínútum af efni á dagsk- rána árið 1989 fyrir um 145 milljónir króna sem gerir meðal- verð á hverja mínútu um kr. 4.400. (Hér er allur kostnaður reiknaður.) Þessa tölu mættu reiknimeistarar þeirrar sjón- varpsstöðvar, sem spilar með al- mannafé, skoða nánar. En ráðdeild og sparsemi dugar ekki alltaf til. Þegar Stöð 2 hóf göngu sína var hugtakið „kostun" svo til óþekkt hér á landi, nema þá helst í íþróttum. Með orðinu „kostun" er gerð tilraun til að þýða erlenda hugtakið „sponsor- ship“, sem á við það þegar óskyldur aðili leggur fé af mörk- um til dagskrárgerðar og fær ekk- ert fyrir snúð sinn nema að nafn hans er tengt útsendingu þáttar- ins. Þessa leið hefur Stöð 2 farið í nokkrum mæli og með prýði- legum árangri. Margir stórvið- burðir hafa komið fyrir augu áhorfenda okkar vegna stuðnings fyrirtækja í formi „kostunar" sem ella hefðu aldrei birst á skjánum. Nægir að nefna Heimsbikar- mótið í skák 1988 og einvígi Jó- hanns og Kortsnojs í Kanada. Ég hef aldrei getað skilið ótta vinstri manna við „kostun". Þetta er einhver snjallasta leið sem fundin hefur verið upp til að láta „gróða kapítalistanna“ renna til þarfra verka í almannaþágu og mun betri en að leita sífellt í vasa skattborgaranna í gegnum ríkis- sjóð, enda er aðferðir fundin upp í Ameríku. Glöggir menn eins og núver- andi menntamálaráðherra hafa komið auga á þessa leið og er þess að vænta að henni verði gert hátt undir höfði í nýjum lögum um kvikmyndir þannig að fjárfram- lög einstaklinga eða fyrirtækja til kvikmyndagerðar verði tvöfalt frádráttarbær frá skatti og þar með lyftistöng íslenskri menn- ingu. Fleiri hafa komið auga á kosti „kostunar“ því sjálft ríkis- sjónvarpið merkir nú æ fleiri þætti sína óskyldum stuðnings- aðilum úti í bæ. Með „kosturí' er engan veginn verið að rýra gildi viðkomandi dagskrár og þaðan af síður felst í henni framsal ritstjórnarvalds (Editorial Rights). Ég þekki eng- in dæmi þess að „kostanda" hafi staðið til boða að ráða efni, inni- haldi eða áherslum í „kostaðri" dagskrá, enda hefði slíkt aldrei komið til greina. (Ef til vill er „kosturí* leið út úr fjárhags- þrengingum Þjóðviljans?). Nóg um það. Nú er það svo að dagskrárgerð í sjónvarpi þarf alltaf dálítinn undirbúningstíma. Dagskráin er ákveðin marga mánuði fram í tímann og lagðar línur fyrir heilt „dagskrártímabil" í einu. Þannig er fyrir löngu akveðið hvað er á dagskrá út vet- urinn og nú er verið að vinna áætlanir fyrir sumarið og næsta haust. Sjónvarpsvísirinn gerir það svo að verkum að við þurfum að ákveða smáatriðin með tveggja mánaða fyrirvara. Þegar vetrardagskráin 1989-90 var ákveðin sl. haust og öllu inn- lendu dagskrárfé hafði verið ráð- stafað voru margir þættir eftir á óskalistanum. Þar á meðal var poppþáttur fyrir unglinga sem oft vilja verða afskiptur hópur. Þá var samþykkt að leita leiða til að fá slíkan þátt kostaðan að öllu leyti. Eftir nokkra könnun kom í ljós að tveir aðilar, sem oft hafa reynst okkur góður bakhjarl, voru reiðubúnir að skipta kostn- aði við gerð þáttarins á milli sín; Vífifell (Coca-Cola) og Ólafur Laufdal (Hollywood og Aðal- stöðin). Þannig var lagt af stað í byrjun nóvember og Margrét Ól- afsdóttir, umsjónarmaður þáttar- ins, var framlag Aðalstöðvar- innar. í desember, eftir fjóra þætti, tjáði Ólafur Laufdal mér að hann vildi losna úr þessu samstarfi og tilgreindi tvær ástæður; breyting- ar voru fyrirhugaðar á rekstri Hollywood og kannanir staðfestu að hlustendahópur Aðalstöðvar- innar var annar en sá sem stefnt var að með þættinum. Auk þess hafði Aðalstöðin ekki notfært sér þann rétt að senda þáttinn út í dagskrá sinni. Mér var ljúft að verða við óskum Ólafs, enda var gerð þessa þáttar aðeins lítið brot af ánægjulegu samstarfi hans og Stöðvar 2 á mörgum sviðum. Slitum við samstarfinu með samningsbundnum fyrirvara og Stöð 2 tók á sig hans hluta kostn- aðarins. Þetta er lítill heimur og strax í desember hafði Páll Þorsteinsson fengið veður af þessum breyting- um. Hann hafði samband við mig símieiðis og stakk upp á samstarfi við Stjörnuna um gerð þáttarins. Stjarnan leggur áherslu á tónlist við hæfi ungs fólks og var því vænlegur kostur. Þá þegar hófst undirbúningur að breyttum poppþætti. í lok desember voru nöfn Hollywood, Aðalstöðvar- innar og Margrétar Hrafnsdóttur felld út úr sjónvarpsvísi febrúar- mánaðar, sem þá var í vinnslu. Þá var hins vegar ekki fyrirséð hvaða dag í febrúar hinn nýi þáttur gæti tekið við svo gamla nafnið var látið halda sér út mánuðinn. Þegar þessar breytingar voru ákveðnar óraði engan fyrir því hvaða stefnu hlutafjármál Stöðv- ar 2 myndu taka á nýju ári, ekki frekar en að Stöð 2 mundi taka upp skemmtiatriðin á nemenda- móti Versló sama daginn og skólastjóri þess sama skóla tók við starfi sjónvarpsstjóra á Stöð 2! Hér eru á ferðinni svo einstak- ar og skondnar tilviljanir að engu tali tekur. Enda sagði Flosi ein- hvern tíma að raunveruleikinn væri fáránlegri en skáldskapur- inn. Svo einfalt er nú það. Ég lái þér ekki, Þröstur minn góður, að draga þá ályktun um Jón Ólafs- son, sem birtist í pistli þínum eins og þið eruð innstilltir þarna á Þjóðviljanum, því eins og segir í kunnri íslendingasögu, hann lá svo vel við höggi! Ég hef nú haft þetta svona ýtar- legt vegna þess að mér finnst endilega að sá, sem skrifar um fjölmiðla í málgagni sannleikans, megi fræðast ögn um fjölmiðla og starfið þar. Þrátt fyrir góðan vilja má ekki ætla að áhrifa hinna nýju eigenda Stöðvar 2 fari að gæta verulega í innlendri dagskrárgerð fyrr en með haustinu og þá einna helst í því að þeir munu tryggja stöðinni fjármagn til að halda dagskrárgerðinni áfram. Og ég þori að fullyrða að eðlileg vinnu- brögð verða án efa í öndvegi. Svona til gamans: Eins og þið á blöðunum hafið menn í því að horfa á og skrifa um sjónvarp, höfum við á Stöð 2 stundum velt því fyrir okkur hvort það væri ekki ráð að við gerðum slíkt hið sama með blöðin: Valinkunnir heiðursmenn setjast með afrakst- ur liðinnar viku, t.d. eftir hádegismatinn á sunnudögum, fá sér kaffibolla og segja kost og löst á blöðunum. Hve mikið aðkeypt, erlent efni? Hve mikil innlend dagskrárgerð? Hve miklar aug- lýsingar? Slappur leiðarinn hjá Jónasi núna? Skyldu blöðin vera nógu skemmtileg til að halda uppi slíkum þætti? Hver veit? Eftir að hafa lesið pistilinn þinn velti ég því fyrir mér hvort það hefði ekki verið rétt af þér að slá á þráðinn til mín upp á stöð áður en þú skelltir honum í prent- un og spyrja mig hvort þetta væri satt með Jón Ólafsson. En svo sá ég strax að þá hefði ekki verið neinn pistill. Svona blaðamennska er auð- vitað til skammar en er því miður orðin alltof algeng. Þeir, sem falla í þá gryfju að sverta mann- orð annarra og byggja aðeins á óstaðfestum grun, eiga sinn stóra þátt í því að blað eins og Þjóð- viljinn á við fjárhagsvanda að stríða vegna fárra lesenda. Mér finnst þó alvarlegast af öllu því sem fram kemur í pistlinum, að þú játar það að Þjóðviljinn skuli hafa mann í því að skrifa um fjölmiðla, sem horfir ekki á þá. Fáðu þér myndlykil hið fyrsta og kynntu þér það fjöl- breytta sjónvarpsefni sem Stöð 2 býður áskrifendum sínum uppá, og skrifaðu svo. Þá gæti svo farið að ég gerðist áskrifandi að Þjóðviljanum. NÁMU NÁMSSTYRKIR Landsbanki íslands auglýsir eftir umsóknum um tvo styrki sem veittir verða NÁMU-félögum. BB Einungis aðilar að námsmannaþjónustu Landsbanka íslands, NÁMUNNI, eiga rétt á að sækja um þessa styrki. WM Allir þeir, sem gerst hafa félagar í NÁM- UNNI fyrir 15. mars 1990, eiga rétt á að sækja um styrk vegna þessa námsárs. BWi Hvor styrkur er að upphæð 100 þúsund krónur og verða þeir afhentir í byrjun apríl 1990. K| Umsóknir er tilgreini námsferil, heimilishagi og framtíðaráform, skal skilað til Landsbanka ís- lands eigi síðar en 15. mars næstkomandi. J Umsóknir sendist til: Landsbanki íslands, Markaðssvið, b.t. Ingólfs Guðmundssonar, Austurstrœti 11, 155 Reykjavík. Náman er nafn á heildarþjónustu Landsbanka íslands, sem er sér- slaklega sniðin að þörfum námsfólks. Allir námsmenn 18 ára og eldri eiga rétl á að sœkja um aðild að þessari þjónustu. í NÁMUNNl er nú m.a.: - Einkareikningur með yfirdráttarlieimild, 3 ókeypis tékkhefti, einkareikningslán o.fl. - Kjörbók, háir vextir, ekkert úttektargjald ef keypt eru verðbréf. - Visa-kort strax við upphaf viðskipla. - Námslokalán, allt að 500.000,-, lánstími allt að 5 ár, viðtal við bankastjóra óþarft. - Ráðdeild, þjónusturit Landsbankans, ókeypis áskrift. - Filofax-minnisbók, ókeypis eftir 6 mánaða skilvís viðskipti. - Styrkveiting, tveir styrkir á hverju ári. - Dreifing og móttaka gagna fyrir Lánasjóðinn, eyðublöð og bœklingar LÍN liggja frammi í afgreiðslum Landsbankans. Af- henda má öll gögn sem eiga að fara til LÍN í afgreiðslum bankans. Viðkomandi afgreiðslustaður sér síðan um að koma gögnunum til LÍN samdœgurs. - Ráðgjöf og upplýsingar, sérstök mappa með upplýsingum, út- reikningum á greiðslubyrði lána o.fl. Til að öðlast þessi réttindi þarf aðeins að stofna Kjörbók og Einka- reikning. Þeir námsmenn sem fá lán frá LÍN verða einnig að leggja námslánin inn á Einkareikning. Með kveðju, 13.2. 1990, Björn Björnsson Ræktunarstjóri Skógrækt ríkisins óskar aö ráöa ræktunar- stjóra, er veiti forstööu gróðrarstöð stofnunar- innar á Mógilsá í Kjalarneshreppi. Umsækjend- ur þurfa að kunna góð skil á ræktun trjáplantna. Búseta ræktunarstjóra verður á Mógilsá. Umsóknir sendist skógræktarstjóra, Jóni Lofts- syni, Skógarlöndum 3,700 Egilsstöðum, fyrir 1. mars 1990. Nánari upplýsingar um starfið eru gefnar á skrif- stofu Skógræktar ríkisins, Egilsstöðum, sími 97-12100, telefax 97-12172. Fóstra óskast Foreldrafélagið Gríma leitar að fóstru til að veita faglega forstöðu dagheimilinu á Hjónagörðum. í boði er: ★ Gefandi starf með börnum 6 mánaða - 2ja ára og 5-9 ára á tveimur deildum. ★ Áhugasamir foreldrar og gott starfsfólk. ★ Skemmtilegt umhverfi og yndisleg börn. ★ Góð laun. ★ Sér ekki um fjárhagslegan rekstur. Áhugasamar fóstrur hafið samband í síma 624221 eða 623605 milli kl. 17 og 21. ALÞÝÐUBANDALAGIÐ Alþýðubandalagið ísafirði Félagsfundur verður haldinn á Hótel Isafirði þriðjudaginn 20. febrúar klukkan 20:30. Dagskrá: 1. Drög að framboðslista. 2. Önnur mál. Áríðandi að allir mæti. Stjórnin Alþýðubandalagið Kópavogi Opið hús Opið hús. Rabbfundir alla laugardaga milli 10 og 12 á skrifstofunni í Þinghóli, Hamraborg 11. Verið velkomin. Stjórnin Alþýðubandalagið Kópavogi Skrifstofa félagsins verður fyrst um sinn opin frá kl. 15-18.30 mánudaga-fimmtudaga. Félagar eindregið hvattir til að koma á skrifstofuna til að fá fréttir af málefnum bæjarfélagsins og greiða félagsgjöldin. Sími 41746. Stjórnin 14 SÍÐA-NÝTT HELGARBLAÐ

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.