Þjóðviljinn - 16.02.1990, Síða 19
SKÁK
HELGI
ÓLAFSSON
Stórveldaslagurinn í Reykjavík
Þrátt fyrir fjarveru Garrí Kaspar-
ovs heimsmeistara og Anatoly Karp-
ovs verður stórveldaslagurinn í
Reykjavík eða VISA-IBM Chess
summitt einhver eftirtektarverðasta
skákkeppni síðari ára. Einar S. Ein-
arsson forstjóri VISA Island á
heiðurinn af þessari keppni en fyrir
fjórum árum stóð hann fyrir viður-
eign úrvalsliðs Norðurlanda og
Bandaríkjanna. Vonandi verður
haldið áfram á sömu braut og það
væri t.d. mikill fengur í þvíað fá hing-
að heimsmeistarakeppni landsliða
sem haldin er fjórða hvert ár en fs-
land fengi sjálfkrafa þátttökurétt og
kostnaður við keppnina varla meiri
en við þessa. VISA - IBM Chess
Summitt hefst á afmælisdegi Bobby
Fischers, 9. mars, og stendur í viku.
Fjórar sveitir: Sovétríkin, Bandarík-
in, England og úrvalslið Norðurlanda
tefla tvöfalda umferð á tíu borðum og
þegar hefur liðsskipan verið gefin
upp. Sovéska liðið er á pappírnum
það langsterkasta og enginn aðal-
maður er undir 2600 Elo stigum og
má geta þess að á lista yfir 100 stiga-
hæstu skákmenn heims eru meira en
helmingur sovéskir skákmenn. Nú
hefur verið gengið frá borðaröð
sveitanna og niðurstaðan er þessi:
Sovetríkin:
1. Jusupov 2. Ivantsúk 3. Vaganian 4.
Sokolov 5. Gurevic 6. Dolmatov 7.
Azmaparasvili 8. Polugajevskí 9.
Tukmakov 10. Dreev 1. varam.: Ein-
gorn 2. varam. Makaritsjev.
Norðurlönd:
1. Simen Agdestein 2. Helgi Ólafsson
3. Margeir Pétursson 4. Ferdinand
Hellers 5. Jóhann Hjartarson 6.
Wessman 7. Jón L. Árnason 8. Schus-
sler 9. Yrjola 10. Mortensen 1. var-
am.: Friðrik Ólafsson2. varam.: Karl
Þorsteins.
Bandaríkin:
1. Gulko 2. Seirawan 3. Federowics
4. De Firmian 5. Christiansen 6.
Browne 7 Benjamin 8. Kudrin 9.
Dlugy 10. Dzindzihasvili varamaður:
Gurevic.
England:
1. Short 2. Speelman 3. Nunn 4.
Chandler 5. Hodgson 6. Aams 7.
King 8. Suba 9. Mestel 10. Norwood
1. varam.: Kosten.
Engin forföll verða í bandaríska
eða enska liðinu en K skákrisarnir eru
eins og áður sagði ekki meðal þátttak-
enda. Karpov vegna einvígisins við
Jan Timman og Kasparov vegna
deilna sinna við sovéska skáksam-
bandið en hann mun ekki tefla undir
merkjum þess í næstu framtíð. Það er
ekki þar með sagt að Kasparov sé
mótfallinn því að tefla hér á landi,
heldur þvert á móti. Hann hefur við
ýmis tækifæri farið lofsamlegum orð-
um um ísland og íslenskt skáklíf.
Annars er sovéski skákskólinn eins
og marghöfða þurs; sé eitt höfuðið
höggvið af spretta fram tíu í staðinn.
Öðru máli gegnir því miður um sveit
Norðurlandanna en þar vantar
nokkra góða. Ulf Andersson getur
ekki teflt því hann verður aðstoðar-
maður Timmans í einvíginu við Karp-
ov. Curt Hansen mun tefla sýningar-
einvígi við Kasparov í Kaupmanna-
höfn á sama tíma og Bent Larsen ótt-
ast dægursveifluna og leggur ekki í
langferð frá Buenos Aires.
Skákunnendur fá að sjá nokkur
andlit þ.á m. stigahæsta keppandann
og fjórða mann á heimslistanum Va-
sily Ivantsjúk sem margir spá að verði
áskorandi Kasparovs í framtíðinni.
Flestir aðrir í sovésku sveitinni hafa
teflt hér áður og það sama má segja
um keppendur í hinum sveitunum.
f ensku sveitinni er meðal annarra
yngsti stórmeistari heims, Michael
Adams og Nigel Short mun væntan-
lega sýna klærnar á 1. borði en hann
vann frækilegan sigur á IBM-mótinu
1987
Og þá víkur sögunni til Hastings
þar sem elsta skákmót heims fór fram
um síðustu áramót. Hið fyrsta var
haldið 1851. í efsta flokki tefldu átta
skákmenn tvöfalda umferð og sex af
þátttakendum munu berjast hér í
Reykjavík.
Sergei Dolmatov vann sannfærandi
sigur, hlaut 8V5 vinning úr 14 skákum
og hefur sannarlega náð sér á strik
eftir mörg mögur ár. f 2.-3. sæti
komu Kanadamaðurinn Kevin
Spraggett og Júgóslavinn Predrag
Nikolic með l‘/z vinning, Speelman
varð fjórði með 7 vinninga, Chand-
ler, Gulko og Jusupov í 5.-7. sæti með
6 Yz vinning og Adams rak lestina með
6 vinninga.
Besta skák mótsins var að öllum
líkindum viðureign Dolmatovs og
Speelman, en Sovétmaðurinn vann
eftir hörku baráttu:
Hastings 1989/90:
Sergei Dolmatov
- Jonathan Speelman
Nimzoindversk vörn
1. e4-c6
2. d4-d5
3. exd5-cxd5
4. c4-Rf6
5.. Rc3-e6
6. Rf3-Bb4
7. Bd3-dxc4
8. Bxc4-0-0
9. 0-0-RÖ7
(Panov afbrigðið gegn Caro - Kann
vörninni hefur snúist yfir í Nimzoind-
vcrska vörn en leikur Speelmans er
fremur óvenjulegur. Algengast er 9.
...b6)
10. Bg5-Bxc3
11. bxc3-Dc7
12. Bd3!
(Aðeins þessi peðsfórn svarar kröfum
stöðunnar. Speelman hefi sennilega
átt að láta vera að hirða peðið því
Dolmatov lumar á stórkostlegri sókn-
aráætlum.)
12. .. Dxc3!?
13. Hcl-Da5
14. Re5!-Rxe5
15. Hc5-Da3
16. dxe5!
(Glæsilega leikið. Framhaldið sýnir
að útreikningar Domatiovs ganga al-
veg upp.)
16. .. Dxc5
17. Bxf6-He8?
(Var betri vörn fólgin í 17. .. gxf6?
Hvítur á auðvitað rakið jafntefli og
hann getur einnig teflt til vinnings
með 18. Dg4+ Kh8 19. Dh4 (ekki 19.
exf6 Hg8 20. dh4 h5!) f5 20. Df6+-
Kg8 21. Hel ásamt — He3.)
a b c d e f g h
18. Bxh7+!-Kxh7
19. Dh5+-Kg8
20. Dg5-Df8
21. Hdl!-b6
22. Hd4!
(Örlítil ónákvæmni getur ávallt eyði-
lagt vel teflda skák. Dolmatov gat
leikið 22. Hd3 en hefur sennilcga
hafnað þeim ieik vegna framhaldsins:
22. .. Ba6 23. Hg3-Had8 24. h3-Hd3!
25. f3-Hdl+-26. Kh2-Bd3! 27. Bxg7-
Dc5! og svartur sleppur. Þessi glæsi-
lega varnarleið er raunar dæmigerð
fyrir Speelman sem er flestum slyng-
ari í erfiðum stöðum.)
22. .. Ba6
23. Hg4-Be2
24. Bxg7-Bxg4
25. Bxf8+ Kxf8
26. Dxg4-Hac8
27. h4
(Hér var kannski betra að leika 27.
Dg5 og þeyta h-peðinu síðan af stað.
En þessi leikur á líka að duga.)
27. .. Ke7
28. Dg5+ Kd7
29. Df4-a5
(Ekki 29. .. Ke7 30. Df6+ Kf831. h5
og vinnur.)
30. Dxf7+ Kc6
31. Df3+ Kc5
32. De3+ Kc6
33. DD+ Kc5
34. Da3+ Kc4
35. Db3+ Kc5
36. a4-Hb8
37. Dc3+ Kd5
38. f4-Ke4
39. Df3+Kd4
40. Dc6-Ke3
41. Dcl+ Ke2
42. h5-Hec8
43. Dfl+ Kd2
44. Db5 Ke3
45. g3-Kd4
46. Kg2-Kc3
47. h6-Hh8
48. Dd7-b5
(Speelman hefur barist vel en Dol-
matov ekki gefið nein færi. Þessi
leikur skapar örlítið mótspil en dugar
þó ekki.)
49. axb5-a4
50. b6-a3
51. Da4-Kb2
52. Db4+-Ka2
53. h7-Hbc8
54. b7—Hc2+
55. Kf3-Hb2
56. Dc4+ Hb3
57. Kg4-Kb2
58. Dc8-Hxh7
59. b8(D)-Hg7+
60. Kh5-Hgxg3
61. Dd6-Hh3+
62. Kg6-Hbg3+
63. Kf7-Hh7+
64. Kxe6-Hh6+
65. Kf5-Hxd6
66. exd6-a2
67. d7-al(D)
68. Db7+
- og svartur gafst upp.
Stigahæsti keppandinn í stórmeist-
araslagnum, Vasily Ivantsjúk.
í síðsta pistli birtist eftirfarandi
skákþraut:
a b c d e f g h
Hvítur mátar í 3. leik:
Lausn: 1. Ra5!-Kd7 (eða 1. .. Kf8, 2.
Rac6-Ke8 3. De7 mát) 2. Rdc6! Kc7 2.
.. Ke8, 2, .. Ke6, 2. .. Kd6, 3. De7
anát. 2. .. Kc8 3. Dd8 mát. ) 3. Dd8
mát.
a b c d e f g h
Hvítur mátar í 3. leik.
í síðasta pistli var lokaleikur þraut-
ar rangur, 3. Dd5 mátar í sað 3. De4
mát.
Góour árangur okkar manna
Eins og fram kom í síðasta þætti
(sem hafnaði í glatkistu ritstjórnar
Þjóðviljans) var Bridgehátíð um síð-
ustu helgi. Fyrirkomulag var tvískipt;
tvímenningskeppni 48 para á föstu-
dag og laugardag og Flugleiðamót í
sveitakeppni, með þátttöku 40 sveita,
á sunnudag og mánudag.
Svíarnir Tommy Gullberg og Hans
Göthe sigruðu tvímenningskeppnina,
eftir að Islendingapör höfðu leitt allt
mótið. Aðalsteinn Jörgensen og Jón
Baldursson voru sagðir (ranglega) í 2.
sæti, Valur Sigurðsson og Sigurður
Vilhjálmsson sagðir í 3. sæti (rang-
legaj og Hörður Arnþórsson og
Símon Símonarson í 4. sæti. Hið rétta
er, að þeir Hörður og Símon náðu 2.
sætinu, en sökum mistaka þeirra í
lokaumferð mótsins (þeir sátu í röng-
um áttum) náðist ekki að leiðrétta
þennan misskilning fyrir verðlauna-
afhendingu. Þar af leiðir að pörin í
2.-3. sæti lækka um eitt sæti, því sjálf-
sagt er að leiðrétta þennan misskiln-
ing, enda fordæmi fyrir því allt mótið.
Ekki er hægt annað en að undrast
yfir þeirri ákvörðun mótanefndar, að
hleypa óvönum spilurum, þótt rit-
stjórar og fyrrum alþingismenn séu,
inn í þessa tvímenningskeppni. Áð-
urnefndur ritstjóri ætti frekar að
hefja reglubundna keppnisspila-
mennsku (hann hefur burði í það)
frekar en að taka sætið frá mönnum
sem stundað hafa keppnisbridge síð-
ustu árin af kappi. Mótanefnd Bri-
dgesambandsins er í vafasömum mál-
um svo ekki sé meira sagt, ef þessi
háttur á að vera á í framtíðinni, þegar
velja á þátttakendur til keppni á móti
sem þessu. Ennfremur mætti í alvöru
skoða það mál að fækka keppendum
eitthvað. Það eru engin 2 pör hér á
landi sem eiga erindi í avörutvímenn-
ingsmót.
Sveit Flugleiða sigraði verðskuldað
Flugleiðamótið í sveitakeppni, eftir
að hafa leitt mótið frá upphafi. I lokin
náðu svo erlendu sveitirnar tvær að
mjaka sér í 2. og 3. sæti. Aðrar ís-
lenskar sveitir sem stóðu í eldlínunni
mest allt mótið (á efstu borðum) voru
sveitir Modern Iceland, B. M. Vallá,
Ólafs Lárussonar og undir lokin Sig-
mundar Stefánssonar (sem náði 5.
sæti) og Tryggingamiðstöðvarinnar.
Sveit Verðbréfa náði sér aldrei á
strik, fyrr en t tveimur síðustu
leikjum. Þess má geta að notast var
við tölvuvinnslu frá VKS og Tækni-
þróun í uppröðun sveita í mótinu.
Jóhann Þórir Jónsson bókaútgef-
andi hefur gefið út bridgebókina Víg-
reif vörn í þýðingu Þórarins Guð-
mundssonar. Þetta er bókin Killing
Defence eftir Hugh Kelsey, sem út-
valdir bridgespilarar kannast vel við.
Óhætt er að mæla með bókinni, sem
er 221 bls. í pappírskilju. Fjöldi dæma
er í bókinni, sem flest eru í hæsta
gæðaflokki, enda Kelsey besti bridge-
rithöfundur heims í dag. Bókin fæst
m.a. hjá Bridgesambandinu og í
bókaverslunum.
Sveit Magnúsar Torfasonar varð
Reykjanesmeistari í sveitakeppni
eftir keppni 9 sveita í Hafnarfirði fyrir
skemmstu. f 2. sæti varð sveit Huldu
Hjálmarsdóttur og í 3. sæti Ragnars
Jónssonar.
Bræðurnir Ásgrímur og Jón Sigur-
björnssynir urðu svæðismeistarar
Norðurlands vestra í tvímennings-
keppni, eftir 20 para mót, sem spilað
var í Fljótunum nýlega. Rétt á eftir
þeim urðu bræður þeirra, Anton og
Bogi Sigurbjörnssynir, en aðeins
skildi á milli þeirra einn slagur eða
svo. Jakob Kristinsson stjórnaði mót-
inu.
Jón Stefánsson og Sveinn Sigur-
geirsson sigruðu aðaltvímennings-
keppni Skagfirðinga, sem lauk sl.
þriðjudag. Þeir hlutu 269 stig. f 2. sæti
urðu Steingrímur Steingrímsson og
Örn Scheving með 245 stig og 3. sæt-
inu náðu svo Guðrún Hinriksdóttir
og Haukur Hannesson með 209 stig.
Allt spilaáhugafólk velkomið í Síðu-
múla 35 kl. 19.30.
Minnt er á skráninguna í íslands-
mót kvenna og yngri spilara í sveitak-
eppni, sem háð verður um aðra helgi.
Skráð er hjá BSÍ.
f næsta þætti verður fjallað um þá
ákvörðun stjórnar Bridgesambands-
ins að færa undanúrslit Islandsmóts-
ins í sveitakeppni til Akurcyrar, dag-
ana 22.-25. mars. Síðustu fréttir af
þessari skoplegu ákvörðun eru þær,
að spilamennska hefjist kl. 13 á
fimmtudaginn 22. mars og ljúki um
kvöldmat á sunnudeginum 25. mars.
Um 200 manna hópur spilara tekur
BRIDGE
þátt í undanrásunum, þaraf um 150-
160 manns af höfuðborgarsvæðinu.
Meðalútgjöld spilara vegna þessarar
ferðar (þeirra sem enga styrki fá frá
félögunum) verða um 30 þúsund
krónur, sem þýðir að útgjöldin munu
slaga átt í ársveltu Bridgesambands-
ins.
Af og til fá menn tækifæri til að
skapa sér ódauðlegt nafn. Sumir
semja tónlist, aðrir grúska í bók-
menntum eða lita á léreft, en Páll
Valdimarsson spilar bridge. Hér er
dæmi um „ódauðleikann" (en Páll gaf
þetta tækifæri frá sér og mun því
væntanlega falla í gleymsku, eins og
við hinir meðal Jónar bridgeleiksins):
S: K102
H: ÁKG10
T: K2
L: ÁD92
S: ÁDG83
H:------
T: G543
L: G543
Páll var sagnhafi í 6 spöðum (við
skulum ekkert ræða sagnir, er haft
eftir félögum Páls) og fékk út smátt
hjarta. Einhver spilaáætlun?
Þú reynir tíuna og hún heldur.
Hvað svo? Spaðakóngur, spaðatía,
eða spaðatveir? Jamm, allt nema
spaðatvcir (sem Páll í reynd gluðraði
af stað) og fer með samganginn í spil-
inu, þegar í ljós kemur að Austur átti
alla 5 spaðana sem úti voru.
Lítum á hvað gerist, ef við ákveð-
um t.d. að fara af stað með spaðatíu.
Smátt frá Austri, við yfirtökum á gosa
og Vestur sýnir eyðu. Laufagosi af
stað, kóngur á, tekið á ás, spaðakóng-
ur og meiri spaði, áttunni svínað, tek-
inn spaðaás og síðan lauf að drottn-
ingu og níu. Það kemur lágt og við
látum níuna duga. Hún heldur og
Austur er með. 5 slagir á spaða, 3 á
hjarta og 4 á lauf.
Það sagði enginn að slemman væri
falleg, en hún vinnst með þessari
spilamennsku. Spilið kom fyrir í leik
sveita Modern Iceland og Samvinnu-
ferða/Landsýnar í sveitakeppni
Brigefélagsins. Á hinu borðinu kom
út spaði (spilað í Norður) og engin
saga þar á ferð (sagnhafa skortir slag
á hjartað, sem Páll fékk í upphafi).
Og að lokum, tígulás lá á bak við
kónginn.
Skrítiö spil, birdge.
Aths.: Ritstjórn biðst velvirðingar á
að síðasti bridge-þáttur féll niður, en
það var ekki af trassaskap heldur
þurfti þátturinn að víkja vegna pláss-
leysis í blaðinu. - ritstj.
Ólafur
Lárusson
NÝTT HELGARBLAÐ - SÍÐA 19