Þjóðviljinn - 24.03.1990, Blaðsíða 2

Þjóðviljinn - 24.03.1990, Blaðsíða 2
FRETTIR Efnahagsmál Kreppan á undanhaldi Þjóðhagsspá: Betri horfur en áður í efnahagsmálum þjóðarinnar Meiri hækkanir á sjávarafurð- um á erlendum mörkuðum en spáð var ásamt því að samið var um minni launahækkanir en gert hafði verið ráð fyrir. Þetta hefur ma. leitt til þess að betri horfur eru nú í efnahagsmálum þjóðarinnar en talið var í spá Þjóðhagsstofnunar fyrir árið 1990 sem gerð var í desember. Þetta kemur fram í endurskoð- aðri spá Þjóðhagsstofnunar, sem birt var í gær um horfurnar í efna- hagsmálum fyrir þetta ár. Að mati stofnunarinnar eru því mikilvægustu viðfangsefni hag- stjórnar á næstunni að koma í veg fyrir þenslu á næstu mánuðum. Þensla gæti stefnt í tvísýnu þeim árangri sem vænst er í viður- eigninni við verðbólgu í kjölfar nýgerðra kjarasamninga. Þjóð- hagsstofnun telur því að þörf sé á frekara aðhaldi í ríkisfjármálum, peningamálum og gengismálum. Helstu niðurstöður endur- skoðaðrar þjóðhagsspár eru því þessar: Skilyrði þjóðarbúsins hafa batnað að undanförnu með ! hækkun á verði útfluttra sjávar- afurða. Reiknað er með að verð sjávarafurða verði að meðaltali um 10% hærra í ár í erlendri mynt en það var í fyrra. Af þeim sökum eru viðskiptakjör talin batna um rúmlega 3% á milli áranna 1989 og 1990. Þá hafa nýgerðir kjarasamn- ingar breytt verðlagshorfum til hins betra. Nú er talið að verð- bólga gæti orðið um 7% frá upp- hafi til loka árs 1990. Gangi þessi spá eftir verður þetta minnsta verðbólga hér á landi í tuttugu ár. Spáð er að landsframleiðsla standi í stað á þessu ári frá 1989. Þjóðartekjur gætu aukist um 1% vegna viðskiptabatans á þessu ári. Þetta eru betri horfur en reiknað var með í desemberspá Þjóðhagsstofnunar. Þá var spáð 1% samdrætti bæði landsfram- leiðslu og þjóðartekna. Engu að síður telur Þjóðhagsstofnun rétt að benda á að þetta eru mun lak- ari hagvaxtarhorfur en í öðrum löndum. Reiknað er með að halli á við- skiptum við önnur lönd verði um 5 miljarðar króna, eða sem svarar til 1,5% af landsframleiðslu. Til samanburðar var viðskiptahall- inn 1,6% af landsframleiðslu í fyrra og um 3,5% bæði árin þar á undan. Kaupmáttur atvinnutekna á mann gæti orðið 2-3% minni en hann var á síðasta ári. Hins vegar breytist kaupmátturinn lítið í ár, þar sem kaupmáttarrýrnunin var að mestu komin fram í byrjun ársins. Þetta er að nokkru minni kaupmáttarrýmun en reiknað hafði verið með í síðustu þjóð- hagsspá. Þá hefur afkoma sjávarútvegs batnað vemlega með hækkandi verði á útfluttum sjávarafurðum. Þjóðhagsstofnun telur að nú séu flestar greinar sjávarútvegs rekn- ar með hagnaði að bátaflotanum Sjóslys Mann- björg varð Mannbjörg varð í gærmorgun þegar Hjördís KE sökk rétt fyrir utan Stafnesið eftir að bráður leki hafði komið að bátnum. Fjórir menn voru á bátnum og var þeim bjargað á kjöl af Hafnarberginu RE. Ekki mátti tæpara standa því björgunarbátur Hjördísar blés ekki út þegar á reyndi. Þá tók norskan rækjutogara niðri á útleið frá ísafjarðarhöfn í gær. Hann náðist af strandstað án utanaðkomandi hjálpar.. -grh Akureyri Tíu daga íþrótta- hátíð í gær hófst vetraríþróttahátíð íþróttasambands íslands á Akur- eyri og er þetta í þriðja sinn sem hún er haldin. Hátíðin stendur yfir í tíu daga og lýkur sunnudag- inn 1. apríl. Vetraríþróttahátíð ÍSÍ er að- eins haldin á tíu ára fresti og er hún með stærri íþróttaviðburðum hérlendis. Boðið er uppá fjölda íþróttagreina á leikunum, jafnt keppnis- sem almenningsíþróttir. Markmið Vetraríþróttanefndar er að gera hlut almenningsíþrótta sem mestan. -grh undanskildum. -grh Bikarmót í hestaíþróttum fer fram í dag [ Reiðhöllunni og er þetta í fyrsta skipti sem mót sem þetta er haldið hér á landi. Þegar hafa 220 keppendur þurft frá að hverfa í forkeppni og eftir eru 55 þátttakendur sem keppa í fjórum aldursflokkum. Reiðskólinn stendur að mótinu sem sex íþróttafélög hestmanna taka þátt í. Mynd: Jim Smart. Mosfellsbœr Samfylking í burðarliðnum Eg býst við að það verði gengið frá sameiginlegum lista and- stæðinga Sjálfstæðisflokksins í Mosfellsbæ um helgina. Þetta er eina leiðin til þess að velta meiri- hlutanum, sagði Aðalheiður Magnúsdóttir, bæjarfulltrúi Al- þýðubandalagsins í Mosfellsbæ, við Þjóðviljann í gær. Samningar Alþýðubandalags, Alþýðuflokks, Framsóknar- flokks og Kvennalista um sam- eiginlegan lista eru á lokastigi. Gengið hefur verið frá málefna- samningi, en listinn er í burðar- liðnum. Viðræður hafa staðið yfir síðan í byrjun mars. Sjálfstæðisflokkurinn hefur geysilega sterka stöðu í bæjar- stjórn Mosfellsbæjar, hefur 5 fulltrúa af sjö. Alþýðubandalagið er öflugast minnihlutaflokkanna, en Framsóknarflokkur og Kvennalisti eiga engan fulltrúa í bæjarstjórn. -gg Seltjarnarnes Breið samstaða Hópur fólks utan flokka og fé- lagar í Alþýðubandalagi, Al- týðuflokki, Borgaraflokki, 'ramsóknarflokki og Kvenna- ista á Seltjarnarnesi hyggst efna il prófkjörs sjötta og sjöunda iprfl. Nýja framboðinu er stefnt ;egn meirihluta Sjálfstæðis- lokksins, sem hefur fjóra af sjö læjarfulltrúum á Seltjarnarnesi. I bígerð er að stofna nýtt bæj ar- nálafélag, sem á að verða nýr -ettvangur fyrir þá sem vilja ireytingar á stjórn bæjarins, aðra organgsröð verkefna og lýðræð- islegri stjórnunarhætti. Meðal þeirra sem standa að nýja framboðinu eru Kristín Halldórsdóttir, fyrrum þingmað- ur Kvennalistans, Guðrún K. Þorbergsdóttir, bæjarfulltrúi Al- þýðubandalagsins og Guðmund- urEinarsson, bæjarfulltrúi Fram- sóknarflokksins. Niðurstaða prófkjörsins verð- ur bindandi fyrir þrjú efstu sæti listans, en raða verður í sex efstu sætin ef kjörseðill á að teljast gildur. -gg Garðabœr Oháð kona í efsta sæti Stefnt er að þvi að ganga frá sameiginlegum lista óháðra, Al- þýðubandalags, Framsóknar- flokks og Kvennalista í Garðabæ um eða eftir helgina. Búist er við að kona sem ekki hefur áður starfað að stjórnmálum verði í efsta sæti listans. Þreifingar um sameiginlegt framboð hafa lengi staðið yfir í Garðabæ. Alþýðubandálagið tók frumkvæðið, Framsóknarflokk- urinn sagði já, en Alþýðuflokk- urinn hafnaði samstarfi. Kvenna- listinn kom inn í viðræðurnar síð- ar en aðrir. „Við bindum miklar vonir við þetta nýja framboð og teljum að með þessu séum við að bjóða Garðbæingum góðan valkost," sagði Hilmar Ingólfsson, bæjar- fulltrúi Alþýðubandalagsins, í samtali við Þjóðviljann í gær. -gg Norrœna húsið Þjóðfétagsskelmir í heimsókn Jan Guillou, umdeildurblaðamaður, þrillerahöfundur ogóvæginn gagnrýnandiþjóðskipulags ogfjölmiðla, er gestur sœnskrar bóka- kynningar Sænski rithöfundurinn og blab- amaðurinn Jan Guillou er gestur sænskrar bókakynningar, sem haldin verður í Norræna hús- inu í dag. Á kynningunni mun sænski sendikennarinn, Hákan Jansson, kynna sænskar bækur sem út komu á síðasta ári og Gu- illou segja frá ritstörfum sínum og lesa úr verkum sínum. Annað kvöld verður haldinn fundur með fjölmiðlamanninum Guillou í Norræna húsinu og segir hann þar frá starfl sínu sem blaðamað- ur og talar um fjölmiðla. Jan Guillou er einn þekktasti og umdeildasti blaðamaður Sví- þjóðar, auk þess sem hann hefur nú skipað sér á bekk með met- söluhöfundum og er nú sá rithöf- undur sem mesta athygli vekur þar í landi. Hann hóf feril sinn sem blaðamaður á karlablaðinu FIB-Aktuellt (1966-67) og starf- aði eftir það á vinstriblaðinu FIB/ Kulturfront (1970-75). Árið 1973 kom hann ásamt Ljóða- og söngdagskrá verður haldin í Borgarleikhúsinu næstkomandi þriðjudagskvöld kl. 20:30. Dagskráin heitir Skáld og skrípafífl og þar koma fram Valgeir Skagfjörð, Bubbi Mort- hens, Jón Sigurbjörnsson, öðrum blaðamanni, Bratt, upp um njósnahreyfinguna IB, sem starfaði innan sænska landvam- arliðsins og lagði fyrir sig njósnir um sænska ríkisborgara. Njósn- ararnir sluppu að vísu en hins vegar voru Guillou og Bratt dæmdir fyrir njósnir og sátu í fangelsi frá 1973-74. Ári seinna urðu skrif Guillous um starfsemi CIA í Svíþjóð til þess að tveir bandarískir diplómatar flúðu land. Guillou tók við stjóm þáttarins Magasinet hjá sænska sjónvarp- inu árið 1981 og gerði þáttinn að eins konar „samvisku þjóðarinn- ar“ þar sem hann tók fyrir mál þeirra, sem minna máttu sín og sem hann taldi augljóst að hefðu verið órétti beittir, meðal annars af dómskerfinu. Honum tókst til að mynda að fá mál manns, sem dæmdur hafði verið saklaus, tekið fyrir að nýju og lyktaði því svo að hann var sýknaður árið 1984. Laufey Sigurðardóttir, Grettir Björnsson, Edward Frederiksen, Þorsteinn frá Hamri, Leikfélags- kórinn og margir fleiri undir for- ystu Eyvindar Erlendssonar. Að- gangur er ókeypis. Guillou hætti með Magasínið síðastliðið vor á þeim forsendum að áhrif þáttanna byggðust á undirtektum annarra fjölmiðla á þeim málum sem þar voru tekin fyrir. Þegar svo var komið að þagað var þunnu hljóði yfir þátt- unum hætti hann, enda sagðist hann ekki vita nema hann gerði fólki meiri skaða en gagn með því að fjalla um vanda þess. Áhugi hans gæti greinilega orðið til þess að aðrir neituðu að sinna málinu. Það er haft á orði að velgengni Guillous hafi vakið öfund félaga hans í blaðamannastétt og orðið til þess að þeir vilji sem minnst af honum vita. Það er í það minnsta víst að gagnrýni hans á slæmri og siðlausri blaðamennsku, þá eink- um á Expressen, stærsta síðdegis- blaði Svíþjóðar, hefur ekki ein- göngu aflað honum vina og vel- unnara í stéttinni. Guillou er nú svo umdeildur að hann getur ekki lengur starfað sem blaðamaður. Fyrstu bók sína, Ef það verður stríð (Om kriget kommer), skrif- aði Guillou 1971. Verulega vin- sæll sem rithöfundur varð hann þó fyrst með bókunum um Coq Rouge (Rauða hanann), þriller- um um sænska njósnarann Carl Gustaf Gilbert Hamilton, en fyrsta bókin í röðinni kom út árið 1986. Síðan eru bækumar um Hamilton orðnar fjórar og fékk þriðja bókin í röðinni, I nation- ens intresse, verðlaun árið 1988 sem besta sænska njósnasagan Skáld og skrípafífl 2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINNI Laugardagur 24. mars 1990

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.