Þjóðviljinn - 24.03.1990, Blaðsíða 11

Þjóðviljinn - 24.03.1990, Blaðsíða 11
LANDBUNAÐUR Kynning á réttindum Meðal mála, sem lögð voru fyrir Búnaðarþing, var erindi Jóns Gíslasonar um atvinnu- leysistryggingar starfsfólks í sveitum. Oskar Jón eftir því að Búnaðarfélag íslands beiti sér fyrir kynningu á því meðal bænda „hvaða skyldum þeir hafa að gegna gagnvart launuðu starfs- fólki sínu til að það lyóti fullra réttinda til atvinnuleysisbóta“. Búnaðarþing afgreiddi málið með svofelldri ályktun: „Búnaðarþing beinir því til stjórnar Búnaðarfélags íslands að hún beiti sér fyrir því að samn- ingur sá um kaup og kjör laus- ráðins fólks á bændabýlum, sem gerður hefur verið milli Stéttar- sambands bænda annarsvegar og Verkamannasambands fslands hinsvegar, verði kynntur ræki- lega meðal bænda og landbún- aðarverkafólks. Bent er á að réttindi starfs- fólksins til bóta úr atvinnuleysis- tryggingasjóði byggist á samningi þessum.“ -mhg Tilraunastöðin á Skriðuklaustri Búnaðarsamband Austurlands er mjög andvígt þeirri ákvörðun stjórnar Rannsóknastofnunar landbúnaðarins, að leggja niður tilraunastöð þá í landbúnaði, sem rekin hefur verið á Skriðu- klaustri. Búnaðarþingi barst erindi frá stjórn Búnaðarsambands Aust- urlands, þar sem óskað er stuðn- ings við áframhaldandi rekstur og eflingu tilraunastöðvarinnar. í ál- yktun Búnaðarþings segir, að sú stefna þingsins hafi ávallt verið skýr og ófrávíkjanleg, að öflug tilraunastarfsemi sé algjör fors- enda fyrir framförum í landbún- aði. Þingið hefði einnig lagt á það áherslu, „að starfsemin væri í ná- lægð við bændur og styddi þannig þau verkefni, sem brýnust væru í hverju héraði“. Því skorar þingið á stjórn RALA að falla frá þess- ari ákvörðun sinni og á fjár- veitinganefnd og þingmenn Austurlandskjördæmis „að beita sér fyrir að bein fjárveiting tii Til- raunastöðvarinnar á Skriðu- klaustri sé ekki minni en að þar geti starfað a.m.k. tveir land- búnaðarháskólamenntaðir rann- sóknamenn og hafi viðunandi að- stöðu til starfsins". -mhg ooo Síöastliöiö sumar hófum viö sölu áTRIOFARM heybaggafilmu. Þessi filma, sem er frá TRIOPLAST, reyndist frábærlega vel. Nú bjóöum viö nýja filmu TRIOWRAP, sem TRIOPLAST hefur þróaö í samvinnu við Rannsóknarstofnun landbúnaðarins í Uppsala í Svíöþjóö. TRIOFARM filman var góö, en TRIOWRAP er enn betri: * Hún er „CO-EXTRUDERUÐ" þriggja laga og þar af leiðandi sterkari * Þykktarmunur er innan viö +2% og því minni hætta á götum. * Viðloðun er meiri og losnar því ekki viö geymslu. * Aukin vernd gegn útfjólubláum geislum sólar (uv-stabilator) og því veörunarþolnara. ÞAÐ BORGAR SIG AÐ NQTA ÞAÐ BE£TA ÞEGAR ÞÚ GENGUR FRA HEYINU ÞÍNU. PCklS3íll>S3 KRÓKHÁLSI 6 SÍMI 671900 P Traktorsknúnar rafstöðvar Hagkvœmustu rafstöðvarnar á markaðnum, til í stœrðum 6,7 kVA VerðmeðVSK................. Kr. 97 000 12,5 kVA VerðmeðVSK................. Kr. 185000 17,0 kVA VerðmeðVSK................. Kr. 232 000 Aukahlutir Hjólavagn................. Kr. 13 000 Þrítengi.................. Kr. 10 000 Allar rafstöðvarnar eru eins og Þriggja fasa (220/380V), einnig til 440V. GAP Wfim FAXAFEN 14 -108 REYKJAVÍK SÍMI 91-685580 - PÓSTHÓLF 8176 128 REYKJAVÍK - TELEFAX 91-689899 v^k. - bflar frá Daihatsu Raunhæf leið til lækkunar á rekstrarkostnaði Fjöldi fyrirtækja notar bíla frá Daihatsu m.a.: Ágæti • Bergdal hf. • Gfsli J. Johnsen hf. / Skrifstofuvélar hf. • íslensk- Ameríska verslunarfélagið hf. • Kreditkort hf. • Olíufélagið hf. • Póstur og sfmi • Sanitas hf. • Securitas • Sölufélag garöyrkjumanna • Sölumiðstöð hraöfrystihúsanna • Teppaland • Ölgeröin Egill Skallagrlmsson hf. • og mörg fleiri.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.