Þjóðviljinn - 24.03.1990, Blaðsíða 6

Þjóðviljinn - 24.03.1990, Blaðsíða 6
^_________ERLENDAR FRÉTTIR________ Kosningar Ungverskt fjölflokkastreð Fyrstu frjálsu Qölflokkakosn- íngarnar í Ungverjalandi frá því 1945 verða haldnar á sunnu- dag. Skoðanakannanir benda til að mjótt verði á munum milli tveggja stærstu flokkanna en nær öruggt er talið að hvorugum þeirra takist að ná hreinum meirihluta. Alls taka 28 flokkar og stjórnmálasamtök þátt í kosning- unum. Frjálslyndir demókratar og Lýðræðisvettvangur hafa mest fylgi sem þó nægir þeim ekki til meirihluta samanlagt. Frjálslyndir demókratar, sem sækir hugmyndafræði sína til frjálslyndra miðjuflokka í Vestur-Evrópu, fékk 21,4 prós- enta fylgi í nýrri skoðanakönnun. Lýðræðisvettvangur, sem líka er miðjuflokkur en heldur lengra til hægri, fékk 20,9 prósenta fylgi. Næst kemur hægrisinnaður bændaflokkur, Flokkur sjálf- stæðra smáeignarmanna, sem er spáð 15,4 prósenta fylgi. Hann krefst þess að öllu landi og öðrum eignum, sem kommúnistar gerðu upptækar á valdaferli sínum, Kosningar Tvísýnt í Ástralíu ingkosningar í Ástralíu á sunnudag eru sagðar þær tví- sýnustu í tuttugu ár. Skoðana- kannanir benda til þess að banda- Gorbatsjov Valdbyltingin úrelt Gorbatsjov forseti Sovétríkj- anna segir að tímaskeiði valdbylt- ingar sé lokið. Þetta kemur fram i grein sem hann skrifar í fyrsta tölublaði nýs tímarits, Sósíalisma framtíðarinnar, sem kom út í Ma- drid á fimmtudag. Gorbatsjov segir m. a. í greininni að áður fyrr hafi vald- beiting verið höfuðdrifkraftur þróunar. “Valdbeiting getur ekki lengur þjónað þessu hlutverki. Þjóðir heims hafa komist að þeirri niðurstöðu að valdbeiting Íeiði einungis til afturfarar, ógni undirstöðum menningarinnar og jafnvel lífinu sjálfu.“ Margir af helstu forystu- mönnum sósíalista á Vestur- löndum eiga þátt í útgáfu tímarit- sins Sósíalisma framtíðarinnar sem ætlað er að vera lyftistöng fyrir sósíalíska umræðu á tímum örra þjóðfélagsbreytinga fram- tíðarinnar. Michel Rocard forsætisráð- herra Frakka, og Felipe Gonzal- ez forsætisráðherra Spánar voru viðstaddir þegar fyrsta tölublað tímaritsins var kynnt. Alfonso Guerra aðstoðarforsætisráðherra Spánar ritstýrir ritinu sem á að koma út tvisvar á ári á ensku, portúgölsku, frónsku, þýsku, ít- ölsku og spænsku. Reuter/rb lag hægriflokka hafl komist fram- úr Verkamannaflokknum í fyigi síðustu daga. Bob Hawk leiðtogi Verka- mannaflokksins hefur verið for- sætisráðherra frá því 1983. Hann vonast til að slá met með því að sitja enn eitt kjörtímabil. Við upphaf kosningabarátt- unnar var Verkamannaflokknum spáð sigri en í skoðanakönnun sem birtist í gær er bandalagi íhaldsmanna spáð 37 prósenta fylgi en Verkamannaflokknum 36 prósentum. Sé hins vegar tekið tillit til flókinna kosninga- reglna þar sem kjósendur geta valið næstbesta kost hefur Verka- mannaflokkurinn 42 prósenta fylgi en íhaldsmenn 41 prósent. Skoðanakannanir sýna að um 20 prósent kjósenda ætla að kjósa hvorugan stóru flokkanna. Kjós- jendur geta merkt við kjós sem þeim þykir næstbestur á kjörseðl- inum. Fái enginn frambjóðenda meirihluta atkvæða er sá sem fær minnst fylgi útilokaður og at- kvæðum hans deilt á milli hinna j frambjóðendanna samkvæmt 1 vali kjósenda. íhaldsmenn hafa fyrst og fremst beint spjótum sínum að efnahagsstefnu stjórnarinnar. Þeir vilja selja ríkisfyrirtæki eins og ríkisflugfélagið Qantas. íhaldsmenn vilja líka hætta að láta heildarsamtök launafólks og atvinnurekenda semja um laun í heildarsamningum. Þess í stað vilja þeir að fyrirtæki fái leyfi til að semja beint við starfsmenn sína á grundvelli framleiðni og hagkvæmni. Verkamannaflokkurinn held- ur hins vegar fast við mikilvægi mikilla ríkisafskipta af efnahag- slífinu. Reuter/rb i Útboð Norðurlandsvegur, Uppsalir- Verki skal lokið 15. 10. 1990 Útboðsgögn verða afhent hjá Vegagerð ríkis- ins í Reykjavík (aðalgjaldkera) og á Sauðár- króki frá og með 26. 03. 1990 Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14.00 þann 09.04. 1990. Vegamálastjóri verði skilað aftur til uppruna- legra eigenda sinna. Sambandi ungra demókrata er spáð 11,2 prósenta fylgi. Það var upphaflega stofnað af róttækum stúdentum til höfuðs æskulýðs- samtökum kommúnista og er nátengt frjálsum demókrötum. Ungir demókratar krefjast þess m.a. að brottflutningi sovéskra hermanna frá Ungverjalandi verði flýtt og að bæði Varsjár- bandalagið og Atlantshafsbanda- lagið verði lögð niður. Leifum gamla kommúnista- flokksins, sem nú kallar sig Sósía- listaflokk Ungverjalands, er að- eins spáð 10,7 prósenta fylgi. Imre Pozsgay núverandi forsætis- ráðherra hefur hvatt til stofnunar breiðrar samsteypustjórnar með þátttöku sósíalistaflokksins eftir kosningar. Hann segir það nauðsynlegt til að leysa efnahags- kreppuna í Ungverjalandi sem verður rakin til áratuga óstjórnar kommúnista í efnahagsmálum. En allir stærstu stjómarand- stöðuflokkarnir hafa lýst því yfír að stjórnarsamstarf við þá, sem tengjast kommúnistum, komi ekki til greina. Ólíklegt er því að sósíalistum verði að ósk sinni um stjórnarþátttöku. Klofningshóp harðlínumanna úr kommúnistaflokknum, sem kallar sig Sósíalíska verkamanna- flokkinn, er spáð tæplega fjögu- rar prósenta fylgi. Allshafa7,7 miljónir kosninga- rétt. Reuter/rb roPAPMiim Kosningaplakat sem sýnir Sovéther á heimleið. Litháen Sovéskur liðsafnaður Stjórnvöld í Litháen saka Sov- étstjórn um að senda aukinn herafla til lýðveldisins sem sagt hefur sig úr lögum við Sovétríkin. Vytautas Landsbergis nýkjör- inn forseti Litháens sagði í gær að utanaðkomandi öfl ykju stöðugt þrýsting á Litháa með erlendum her í ríkinu. Hann sagði að vopn- uðum hermönnum í viðbrað- gsstöðu fjölgaði stöðugt og sak- aði Sovétmenn um að heyja taugastríð gegn Litháum. Sovésk stjórnvöld bönnuðu í gær erlendum fréttamönnum að fara til Litháen „vegna ástandsins þar“ eins og það var orðað. Fréttastofan Tass skýrði frá því að öryggisgæsla hefði verið hert í Litháen og að starfsmenn innan- ríkisráðuneytisins væru byrjaðir að safna vopnum almennings í samræmi við fyrirskipun Gorbat- sjovs forseta Sovétríkjanna. Yfirmaður Tokyodeildar Tassfréttastofunnar sagði í gær að sambandsslit Litháa við Sov- étríkin væru jafnmikið áfall og kjarnorkuslysið í Tsérnobíl. Sov- étmenn myndu samt ekki grípa til vopna. Landsbergis fór í gær fram á alþjóðlegan stuðning við málstað Litháa. Hann harmaði fyrirmæli Gorbatsjovs um að Litháar dragi Bretland íhaldið niðurlægt í aukakosningum Breski íhaldsflokkurinn varð fyrir niðurlægjandi ósigri í aukakosningum á flmmtudag. Frambjóðandi Verkamanna- flokksins vann yfírburðasigur í kjördæmi sem hingað til hefur verið eitt tryggasta vígi ihalds- manna. Sylvia Heal frambjóðandi Verkamannaflokksins fékk 49 prósenta fylgi á móti 32 prósenta fylgi fyrir íhaldið. Þetta er ein- hver mesti kosningaósigur íhalds- manna í aukakosningum frá upp- hafi. Kosningaúrslitin endurspegla fylgishrun stjómar Margrétar Thatchers á landsmælikvarða. íhaldsflokkurinn hefur nú aðeins 30 prósenta fylgi á móti 51 prós- ents fylgi fyrir Verkamannafl- okkinn samkvæmt skoðanakönn- unum. Andstaða við stjórnina stafar fyrst og fremst af nýjum nefskatti sem stjórnin ætlar að leggja á um næstu mánaðamót. Hann bitnar mjög illa á mörgum lágtekju- mönnum. íhaldsmenn hafa líka misst stuðning meðal húseigenda sem eru að kikna undan 15 prósenta vöxtum á húsnæðislánum. Stjórnmálasérfræðingar segja að lítið fylgi við minnihlutaflokka séu líka alvarleg tíðindi fyrir íhaldsmenn. Hingað til hafi margir látið sér nægja að sýna ó- ánægju sína með því að greiða frjálslyndum eða sósíaldemó- krötum atkvæði. Nú snúi fyrrver- andi kjósendur íhaldsflokksins sér hins vegar beint til Verka- mannaflokksins. Reuter/rb 6 SlÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 24. mars 1990 sjálfstæðisyfirlýsingu sína til baka. Landsbergis sagði að úti- lokað væri fyrir Sovétmenn að framfylgja þessum fyrirmælum nema með vopnavaldi. Reuter/rb Landafræði fra Námsgagna- stofnun í viðtali sem birtist í blaðinu í gær við Torfa Hjartarson um nýj- ar kennslubækur í landafræði, sem hann hefur samið, féll það niður að bækur þessar eru gefnar út af Námsgagnastofnun. Eins og flest annað námsefni reyndar sem grunnskólum er ætlað. Leiðrétting Þau mistök urðu þegar birtur var listi yfir þátttakendur í forvali Alþýðubandalagi Reykjavíkur í Nýju Helgarblaði í gær, að nafn eins þátttakandans vantaði. Það er Einar Gunnarsson blikksmið- ur. Hann er beðinn velvirðingar á þessum mistökum. Leiðrétting við minningargrein Þau mistök urðu við birtingu minningargreinar um Guðrúnu Valdimarsdóttur ljósmóður hér í blaðinu 22/3 að farið var rangt með nafn greinarhöfundar, sem sögð var heita Guðrún Finnboga- dóttir. Hið rétta er að greinina skrifaði Steinunn Finnbogadóttir og eru hlutaðeigendur beðnir vel- virðingar á þessum mistökum.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.