Þjóðviljinn - 19.04.1990, Blaðsíða 2

Þjóðviljinn - 19.04.1990, Blaðsíða 2
Skólamál Engin fagleg rök Samkvæmt tillögum sem menntamálaráðuneytið hefur lagt fram í vinnuhópi er gert ráð fyrir að Heyrnleysingjaskólinn flytji á næstu 3-5 árum og verði sérdeild í almennum grunnskóla. Félag heyrnarlausra, Foreldrafé- lag, Kennararáð og stjórn Heyrnleysingjaskólans hafa hins vegar lýst yfir eindreginni óá- nægju sinni með þessar tillögur. Að sögn Gunnars Salvars- Aupplýsingafundi sem iðnaðar- ráðherra Jón Sigurðsson hélt í gær með embættismönnum og sérfræðingum, kom fram að ál- fyrirtækin þrjú sem eru i ATLANTAL-hópnum vilja að nýtt álver verði byggt á þannig stað að möguleiki verði að auka framleiðslugetu þess úr 200 þús- und tonnum, eins og hingað til hefur verið talað um, í 400 þús- und tonn á næstu 10 árum. Ráðherra tók skýrt fram að engin áform væru um að byggja hér 400 þúsund tonna álver en fyrirtækin þrjú vildu halda þess- um möguleika opnum ef rekstur 200 þúsund tonna versins gengi vel. Þetta gæti þýtt að Reyðar- Komandi helgi verður upphaf formlegs samstarfs Fjöllista- félagsins Pakkhúss Postulanna og Tunglsins. Á föstudagskvöld og laugardagskvöld verða tvær breskar hip hop sveitir í Tunglinu ásamt tveimur breskum plötu- snúðum. Sykurmolarnir munu síðan halda tónleika á laugar- dagskvöldinu. Þær uppákomur sem Pakkhús Postulanna hefur staðið fyrir hafa fært ísland nær því sem er helst að gerast í tónlistarlífi Bretlands. Um komandi helgi kemur fram sonar, skólastjóra Heyrnleys- ingjaskólans var engin fagleg rök að finna í tillögum menntamála- ráðuneytisins. „Blöndun er virðingarvert markmið en við megum ekki setja öll fötluð börn undir sama hatt. „Við plöntum ekki trjág- róðri á berangur," segir Gunnar. „Það er enginn einangraðri en heyrnarlaust barn sem er innan um fjölda heyrandi. Við megum fjörður sé dottinn út úr myndinni sem mögulegur staður fyrir nýtt álver. Það kom einnig fram á fundin- um að álfyrirtækin eiga eftir að halda þrjá fundi með íslenskum embætismönnum, þann fyrsta í New York í næsta mánuði þar sem skatta- og orkumál verða rædd en mikilvægasti fundurinn verður í Reykjavík þann 19. júní þar sem málin verða rædd í heild. Þær fjárfestingar sem þarf að ráðast í með raforkulínum og orkuverum fram til ársins 1995 vegna nýs álvers, eru upp á 37 miljarða króna samkvæmt upp- lýsingum sem komu fram á fund- inum. -hmp hip hop sveitin Kiss AMC, sem samanstendur af tveimur ungum konum sem rappa við undirleik plötusnúðs. Önnur hip hop sveit sem verð- ur í Tunglinu er Ruthless Rap Assassins og skipa hana þrír menn. Þessi sveit kemur ásamt Kiss AMC frá Manchester eins og flest það ferska sem er að ger- ast í tónlistinni í dag. Plötusnúðarnir sem verða í Tunglinu heita Paul Oakenfold og Tim Jeffry. -hmp ekki gleyma að táknmálið er móðurmál heyrnarlausra. ís- lenskan er þeirra annað mál sem þeir tileinka sér með hjálp táknmálsins. Það segir sig sjálft að blöndun er óæskileg þegar tjáskipti eru erfiðleikum bundin. Það er nauðsynlegt að hafa í huga að heyrnarlausir eiga sitt mál og í sínum hópi eru þeir ekki í neinum vandræðum með tjáskipti. Séu þeir sviptir þessu skjóli eru þeir jafnframt sviptir sjálfstrausti sínu og sjálfsvirðingu. Þegar heymar- laus er innan um heyrandi verður hann fyrst var við fötlun sína. Þar getur ekki skapast gagnkvæm virðing jafningja. Þar sem annar talar ekki mál hins,“ sagði Gunn- ar Salvarsson. Hjá Kolbrúnu Gunnarsdóttur sérkennslufulltrúa fengust þær upplýsingar að hér væri fyrst og fremst á ferðinni ágreiningur um aðferðir. Tillögurnar væru fyrst og fremst vinnupunktar alls óút- færðir. Jóhann V. Ólafsson, formaður foreldrafélags Heyrnleysingja- skólans sagði að foreldrar væru alls ekki fúsir að ræða þennan flutning án þess að vita hvað tæki við. Tillögurnar væm þess eðlis að ekki væri hægt að vinna út frá þeim. Jóhann vildi sem allra minnst tjá sig fyrr en eftir fund Foreldrafélagsins á föstudag en þar verður fjallað um þetta mál. -ss Herjólfur Leitað lausna Yfirmenn hafa ekki boðað tilfrekari að- gerða að sinni á meðan leitað ersátta í deilu þeirra við útgerðina Lítt miðaði í samkomulagsátt í deilu yfirmanna á Herjólfi við viðsenyendur þeirra á fundi í fyrradag og var jafnvel búist við að boðað yrði til annars fundar seinnipartinn í gær. Yfirmenn hafa ekkii boðað til frekari að- gerða að sinni en þeir fóru eins og kunnugt er í þriggja daga verkfall yfir páskahelgina. Kröfur yfirmanna eru þær í að- alatriðum að launabili því sem verið hefur á milli þeirra og und- irmanna á Herjólfi verði viðhald- ið, en þeir telja að það hafi farið minnkandi. Að sögn Helga Lax- dal varaforseta Farmanna- og fiskimannasambandsins er ekk- ert nema gott um það örlæti að segja sem útgerð Herjólfs hefur sýnt undirmönnum á skipinu „en þá finnst okkur að það eigi að ganga jafnt yfir alla,“ sagði Helgi Laxdal. Elías Björnsson formaður Sjómannafélagsins Jötuns í Eyjum segir að að hluta til hafi launabil á milli yfirmanna og undirmanna á Herjólfi minnkað við það að undirmenn fengu því framgengt að fá greiðslur fyrir svokallað mengunarálag. Magnús Jónasson fram- kvæmdastjóri Herjólfs segir mál- ið ekki svona einfalt að það snúist eingöngu um þessar mengunar- álagsgreiðslur. „Yfirmenn vilja viðhalda ákveðnu launabili á milli þeirra og undirmanna og á þessu máli erum við að reyna að finna lausn sem báðir aðilar geta sætt sig við. Ríkissáttasemjara var tilkynnt um verkfallsboðun- ina á sínum tíma en að öðru leyti hefur hann ekkert samband haft við okkur. Enda stefnum við að því að leysa þetta mál eftir föng- um hér heima í héraði,“ sagði Magnús Jónasson. í Kringlunni í gær afhenti Helga Thorberg fyrir hönd áhugahóps um bætta umferðarmenningu Jóni Sigurðssyni í SEM-hópnum rúmlega 4,6 miljónir króna sem söfnuðust i beinni útsendingu á Stöð 2 í haust til styrktar byggingu sérhannaðs húss fyrir félaga í SEM við Sléttuveg. Alls söfnuðust um 20 miljónir króna og þar af 10 miljónir í efnis- og vinnuloforðum. Af þessum 10 miljónum höfðu verið greiddir reikningar fyrir rúmar 5,3 miljónir króna. Jafnframt voru kunngerð úrslit í alútboði nokkurra verktaka í húsnæði SEM-hópsins sem þeir hanna sjálfir og þar urðu hlutskarpastir Hróbjartur Hróbjartsson arkitekt og félagar fyrir Hagvirki sem einnig bauð lægst eða tæplega 181 miljón króna. Mynd: Kristinn. Nýtt álver Kannski stæira Nœturlíf Bretar í Tunglinu Sykurmolarnir með tónleika í Tunglinu á laugardag Dómnefnd í verðlaunasamkeppni Verðlaunasjóðs íslenskra barna- bóka er nú að Ijúka störfum sem eru fólgin í því að velja það besta af 29 handritum sem bárust í þessa keppni sem fram hefur farið árlega síðan 1986. Á næstunni kemur verðlaunabókin út og þá verða verð- launin afhent en þau eru 150.000 krónur auk venjulegra ritlauna. Á myndinni sést dómnefndin sem skipuð er Guðrúnu Hrund Harðardótt- ur nemanda, Sigrúnu Klöru Hannesdóttur lektor, Jóni Frey Þórar- inssyni skólastjóra, Ármanni Kr. Einarssyni rithöfundi og Þórarni Friðj- ónssyni útgáfustjóra Vöku-Helgafells sem stendur að keppninni. Lítið eitur, mikill áburður íslendingar nota næstminnst allra þjóða af svonefndum plágu- eyðandi efnum í landbúnaði. Þar er átt við eiturefni sem vinna á illgresi, skordýrum og plöntu- sjúkdómum. íslendingar notuðu 0,6 kíló á hvern hektara ræktaðs lands árið 1987 en Tyrkir notuðu minnst, 0,3 kíló. í frétt frá Upp- lýsingaþjónustu landbúnaðarins segir að plágueyðandi efni séu einkum notuð í ylrækt og það undrar því engan að Hollending- ar noti allra þjóða mest af þessum efnum, 18,5 kfló á hektara. Jap- anir koma næstir með 17,6 kfló, ítalir nota 13,3 kfló og Belgar 11,3 kfló. Önnur mynd blasir við þegar litið er á tilbúinn áburð eins og þann sem framleiddur eru í Gufunesi. Þá eru Hollendingar reyndar einnig í efsta sæti með 731 kíló á hektara en íslendingar eru þarna í áttunda sæti með 313 kíló á hektara. Næstir á eftir Hol- lendingum eru írar, Belgar og Japanir. í fréttinni segir að meng- unarhætta af völdum áburðar- notkunar, td. mengun neyslu- vatns, fari að miklu leyti eftir dreifingu hennar. Þess vegna sé hættan mun meiri í Hollandi sem er mjög þéttbýlt en hér á landi. 25 rithöfundar heiðraðir Fyrir skömmu ákvað stjórn Rit- höfundasjóðs íslands sem skipuð er Árna Ibsen, Ingibjörgu Har- aldsdóttur og Hermanni Jóhann- essyni að veita 25 rithöfundum viðurkenningu fyrir ritstörf að upphæð 150.000 kr. hverjum. Þessir rithöfundar eru: Agnar Þórðarson, Andrés Indriðason, Atli Magnússon, Berglind Gunn- arsdóttir, Birgir Engilberts, Birg- ir Sigurðsson, Dagur Sigurðar- son, Gissur Ó. Erlingsson, Guð- bergur Bergsson, Hjörtur Páls- son, Jón O. Edwald, Kristín Óm- arsdóttir, Ólafur Gunnarsson, Óskar Ingimarsson, Ragnhildur Ófeigsdóttir, Sigfús Bjartmars- son, Sigurður Pálsson, Stefán Júlíusson, Steinar Sigurjónsson, Steinunn Jóhannesdóttir, Svava Jakobsdóttir, Þorgeir Þorgeirs- son, Þórarinn Eldjárn, Þórunn Valdimarsdóttir og Þuríður Guð- mundsdóttir. Stefnumotun í félagsþjónustu Dagana 20. aprfl, 3. og 4. maí gengst Endurmenntunarnefnd Háskóla íslands fyrir námskeiði um stefnumótun í félagsmála- þjónustu sveitarfélaga. Er nám- skeiðið einkum ætlað starfs- mönnum í stjórnunarstöðum við félagsþjónustu, nefndarmönnum í félagsmálaráðum og nefndum sem fást við félagsmál og raunar sveitarstjórnarmönnum al- mennt. I frétt frá Háskóla íslands um námskeiðið segir að í félagsþ- jónustu sé æskilegt að vinna í samræmi við mótaða stefnu að markmiðum sem öllum eru ljós. Það sé hins vegar oft erfitt að móta slíka stefnu og svara spurn- ingum eins og til hvers? hvenær? hve mikið? hvað er brýnast? hvað mikilvægast? Á námskeiðinu er ætlunin að kenna almennt verk- lag við stefnumótun, áherslan lögð á hagnýt vinnubrögð en fræðilegri umfjöllun haldið j nauðsynlegu lágmarki. Leiðbeinandi verður Jón Björns- son sálfræðingur, félagsmála- stjóri Akureyrarbæjar. Fyrirlestur um fælingu Á sunnudaginn kemur mun Dan- iel Farrel, prófessor í heimspeki við Ríkisháskólann í Ohio í Bandaríkjunum, halda opinber- an fyrirlestur í boði heimspeki- deildar Háskóla íslands og Félags áhugamanna um heimspeki. Fyrirlesturinn nefnist á ensku „Nuclear Deterrence: The Wrongful-Intentions Argument“ og verður fluttur í stofu 101 í Lög- bergi. 2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Flmmtudagur 19. apríl 1990

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.