Þjóðviljinn - 11.05.1990, Blaðsíða 18

Þjóðviljinn - 11.05.1990, Blaðsíða 18
\ Brezki herinn blasir viö... Eftir Elías Mar Mér verður að láta hugann reika hálfa öld aftur, til vordag- anna 1940. Ég var þá á sextánda ári, átti heima hjá henni ömmu minni innarlega á Hverfisgötu, og var kominn að fyrstabekkjar- prófi í gagnfræðaskólanum við Lindargötu sem í daglegu tali var kenndur við séra Ingimar. Og það er auðvelt að styðjast við dagsetningar frá þessum tíma, því að þær eru geymdar á spjöld- um sögunnar. Innrás í Noreg og Danmörku Þá er fyrst til að taka þriðju- daginn 9. apríl. Það er laust fyrir hádegi að ég legg leið mína upp í Sundhöll til að mæta í skyldugum sundtíma. í anddyrinu er hópur skólabræðra minna, og einhverjir þeirra hnappast utan um ný- útkomið dagblað; mig minnir það hafi verið Alþýðublaðið fremur en Mogginn. Og það var aldeilis rosafrétt í blaðinu: Þjóðverjar voru búnir að hertaka Danmörku eins og hún Iagði sig og höfðu að auki sett lið á land í Noregi; yrðu jafnvel búnir að hirða það land fyrir kvöldið. Það var semsagt að færast líf í þetta viðburðasnauða stríð sem staðið hafði vetrarlangt án þess að nokkuð gerðist. Eftir þessa hálfu öld sem liðin er spyr ég sjálfan mig: Hvaða áhrif hafði þessi frétt á mig? Varð ég eitthvað óttasleginn? Onei. Mér fannst þetta virkilega spennandi. Ekki svo að skilja að ég fagnaði því, fremur en aðrir, að styrj- aldarátök færðust nær eyjunni okkar; hitt er líklegra að ég hafi þarna verið kominn á þroskastig venjulegs blaðamanns, sem finnst heimurinn þeim mun skemmtilegri sem skelfilegri tíð- indi gerast. Þó orti ég ekki einu- sinni ljóð í tilefni af þessu, og var þó alltaf að yrkja um þessar mundir út af ómerkilegustu til- efnum, og engum tilefnum, nokkur ljóð á dag stundum, og að sjálfsögðu þrælrímuð. Svo fórum við í laugina, og einhver sem ég man ekki lengur hver var reyndi að kenna okkur að synda, þótt við kynnum allir að synda. Orð séra Ingimars Fullt eins minnisstæður er mér reyndar næsti dagur, miðviku- dagurinn 10. apríl, sem var síðasti kennsludagur fyrir próf. Það er þó aðeins vegna eins atviks sem ég man frá þeim degi: úr mann- kynssögutímanum hjá séra Ing- imar. Hann kenndi okkur mann- kynssögu eftir bók Þorleifs H., og það var allt um Egypta, Grikki, Persa og Rómverja, en aldrei minnzt á nútímann. f þetta skipti brá hann þó út af venjunni strax í upphafi kennslustundar, settist við púltið ívið þreytulegur og sagði lágt, eins og við sjálfan sig, eitthvað á þessa leið: „Ef Adolf Hitler tekst að leggja undir sig Norðurlönd og halda þeim; ef honum tekst að leggja jafnvel undir sig fleiri lönd, halda þeim og vinna þetta stríð, þá er ekkert efamál að hann verður álitinn mesti sigurvegari mannkynssögunnar... Ef hann tapar; ef hann að lokum missir allt sem honum hefur tekizt að ná, þá verður hann um allar aldir álitinn mesti glæpamaður sem uppi hefur verið.“ Þeir sem eitthvað þekktu til séra Ingimars vissu að á bak við þessi orð hans lá sízt af öllu ósk- hyggja. Hann var gamalgróinn sósíaldemókrat og yfirlýstur and- stæðingur nazisma. En það var þó ekki fyrr en frá leið sem ég þóttist sjá, að í þessum um- mælum hans birtist nokkuð raun- sönn niðurstaða um þá sem móta söguskoðunina og „sannleikann“ um hetjur hvers tíma. Það tók Þjóðverja að vísu meira en dagsstund að leggja undir sig Noreg, því að Norsarar sýndu mótspyrnu dögum saman, jafnvel í nokkrar vikur, þótt valdsmenn sumir sæju sér þann kost vænstan að flýja land. En það endaði auðvitað með því að Þjóðverjar komust að sovézku landamærunum - norðan- verðum. Þeim virtist ekkert ómáttugt. Og þá fórum við hér á eyjunni að hugsa sem svo, að það væri e.t.v. aðeins tímaspursmál hvenær þeir sendu flugvélar og skip til að hirða okkur hér úti í hafinu. Þeir höfðu árum saman reynt að fá hér aðstöðu „fyrir far- þegaflug“ og „til landfræðilegra rannsókna“, en án árangurs. Óneitanlega voru þeir menn til hérlendis sem beinlínis óskuðu þess að Þjóðverjarnir kæmu; að þeir bæru sigur úr býtum í stríð- inu. En þeir voru örugglega í miklum minnihluta og höfðu sig aldrei mjög mikið í frammi. Margir af þeim sem aðhylltust nazisma á þessum tíma voru hálf rómantískir draumóramenn sem hugsuðu á gamaldags heims- veldisvísu eitthvað sem svo: Hví skyldu Þjóðverjar ekki mega rísa upp á ný og „eignast“ aftur ný- lendur rétt eins og Bretar og Fra- kkar? Og svo voru þeir sem hrif- ust af þeirri ásjónu nazista er birt- ist í glæsilegum marséringum og öðru í ætt við hjálpræðisher og beat. En allur íslenzkur al- menningur var ótrúaður bæði á kenningar og yfirgang Hitlers- þýzkalands. Það lifði enn vel á kolunni sem reyndi að hálda okk- ur við trúna á ævarandi hlutleysi landsins; í týrunni frá henni bið- um við þess sem verða vildi, við gátum lítið annað. Fullveldis- mánuður Þannig leið nákvæmlega einn mánuður. Það var óneitanlega merkur mánuður í sögu landsins, því að vel má segja að þetta hafi verið eina tímabilið frá því árið 1262 sem við höfum verið full- komlega sjálfstæðir. Konungs- sambandinu við Dani hafði verið slitið de facto. í einn mánuð vor- um við ráðamenn yfir utanríkis- málum okkar sem og innanríkis- málum - og ekki hersetnir. Svo rann upp dagurinn 10. maí. Ég man vel eftir kvöldinu á undan. Bezti vinur minn, Ásgeir Magnússon, var lengi heima hjá mér þetta kvöld, og við vorum m.a. að fjalla um ungskálda- félagið okkar; líka um gútempl- arastúkuna Verðandi, en þar vor- um við virkir félagar þótt ungir værum. Við höfðum kynnzt upp- rennandi skáldum sem við hittum nánast reglulega: Hannesi Sigfús- syni, Jóni Óskari og fleirum. Þetta var einkar friðsælt og kyrrt vorkvöld; kálgarðurinn fyrir utan beið þess að verða stunginn upp, svo að hægt væri að hola niður kartöflum. í endurminningunni var þetta í ætt við lognið á undan storminum. Þetta var síðasta kvöldið sem gamli tíminn ríkti á íslandi. En það vissum við ekki þá; hvað morgundagurinn bar í skauti sínu. Þá kom Bretinn Eftir því sem ég man bezt vakti amma mín mig nokkuð snemma og sagðist heyra í flugvél. Á þess- um tíma átti þjóðin eina flugvél, litla rellu sem flaug stundum milli Reykjavíkur og Akureyrar og hét TF Örn, líklega í höfuðið á flug- manninum sem hét Örn. En hún var í lamasessi um þessar mundir, svo að ólíklega var þetta hún. Ég fór á lappir og var glað- vaknaður, þótt ég gerði fullt eins ráð fyrir að gömlu konunni hefði misheyrzt. Eða hafði þetta kann- ski verið flugvélin eina? Nei; því að nú heyrði ég hljóðið, og það var miklu dimmara og allt öðru- vísi en í þjóðarvélinni; mér fannst ég jafnvel heyra í tveimur vélum. Hvað ætli klukkan hafi verið : þegar ég var kominn niður á Skúlagötu? Líklega um átta eða hálfníu. En það sem við blasti var harla óvenjulegt: Stór og skugga- leg skip úti á legunni, eitthvað sjö talsins, máluð ókræsilegum litum, eins og þau væru ryðguð; kannski voru þau ryðguð. Ég man ekki hvort nokkurt þeirra var herskip, fljótt á litið, því þetta virtust vera aflóga skemmtiferða- skip og komin allmjög til ára sinna. Það var slangur af fólki þama niðri við fjöruna til að glápa á þetta, enginn virtist vita með vissu hverrar þjóðar skipin voru, og flestir lögðu að lokum leið sína vestur á bóginn: niður að höfn. Ekkert hafði heyrst í útvarpinu ; um morguninn, og menn hugs- j uðu sjálfsagt allir eitt og hið 1 sama: Hverjir eru þetta? Gat hugsazt að þetta væru Bretar - sem ekkert, bókstaflega ekkert, höfðu gert í þessum heims- átökum fram að þeim tíma? Svo gerðist eitt, sem verður mér ógleymanlegt í öllum ein- faldleika sínum: Það kom labb- andi riðvaxinn maður, ber- höfðaður, frakkalaus, og gekk við staf. Hann kom innan að, úr austurátt, nam öðru hverju stað- ar ofur rólegur og leit í átt til skip- anna; hélt svo áfram í átt til bæjarins eins og aðrir. Hann tal- aði ekki við neinn, og enginn yrti á hann. Þennan náunga kannaðist ég við í sjón, þótt ég vissi ekki hvað hann hét. Ég hafði oft tekið eftir honum þar sem hann gekk um Hverfisgötuna, og einhvern- veginn hafði það borizt til eyrna mér að hann starfaði hjá brezka sendiráðinu sem þá var til húsa í Höfða við Rauðarárvík. Hann var Breti. Og nú var auðvelt að leggja saman tvo og tvo: Úr því að þessi brezki maður spókaði sig svona sallarólegur á Skúla- götunni, þá var næsta öruggt að það voru Bretar en ekki Þjóð- verjar sem voru á skipunum. Viðbrögðin Ég verð að játa að ég var ekki einn um það að finna til nokkurs léttis þegar sú staðreynd varð ljós að það voru Bretar en ekki Þjóð- verjar sem hertóku okkur. Að vísu höfðum við íslendingar ekki mikið álit á Bretum sem ' hernaðarþjóð um þessar mundir. Þeir voru í varnaraðstöðu, voru sagðir illa undir styrjöld búnir og höfðu lítið aðhafzt fram til þessa. Við treystum þeim ekki meira en svo til að geta varið okkur, ef Þjóðverjum skyldi hugkvæmast að gera hér innrás. Samt höfðum við eitthvert óljóst hugboð um það, að betra væri að lynda við þá heldur en nazista. Og nú þýddi ekkert að treysta á neina hlut- leysisyfirlýsingu lengur. Að öðru leyti man ég furðulítið eftir einstökum atburðum frá þessum degi. Ég fór að sjálfsögðu niður í bæ eins og aðrir og sá, að búið var að smala Þjóðverjum búsettum í Reykjavík út á norð- austurhorn uppfyllingarinnar við höfnina, og þar voru þeir látnir dúsa standandi mikinn part úr degi, þangað til þeir voru teknir Greinarhöfundur haustið 1940. Ljósm. Kolfinna G. Pálsdóttir. út í skip og fluttir í fangabúðir á eyjunni Mön. Dátar með byssur höfðu komið sér fyrir við hafnar- húsið, landssímahúsið, lögreglu- stöðina, pósthúsið og fleiri hús, en voru þó flestir við höfnina að flytja á land hverskyns útbúnað og hergögn. Þeir höfðu m.a. skipað upp ferköntuðum smá- bílum sem fyrst í stað voru kallað- ir „jeeps“ uppá ensku, en fengu brátt íslenska heitið „jeppi“, sem þótti prýðisgott, því það rímaði við „seppi“. Og brezkt hernám var hafið. Hafði nú allt þetta einhver sér- stök áhrif á mig persónulega? Ekki minnist ég þess. Ég orti ekki einusinni ljóð út af þessu stór- kostlega tilefni. A.m.k. ekki strax; loksins þegar af því varð, var það grínkvæði. Ég var kom- inn á það þroskastig að finnast flestir hlutir meira og minna skoplegir. En það breyttist bók- staflega ekki neitt í Iífi mínu. Ég hélt áfram að hanga á Lands- bókasafninu hvenær sem ég fékk því við komið, og hef örugglega 18 SlÐA - NÝTT HELGARBLAf) Föstudagur 11. maí 1990

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.