Þjóðviljinn - 11.05.1990, Blaðsíða 23

Þjóðviljinn - 11.05.1990, Blaðsíða 23
1— 4R 3— ¥— 3°— (o r— V— V 3 9 /o 2 n IZ T~ )$ w IS n t> 3- II <V u> jf w~~ 5f w lT~ )l? T~ )8 20 32 n IS s )0 2 5" iS 2- T 22 21 2 32 b \s 15 21 ;í>' tf~ 5" T 20 a 22 22 )0 2 32 23 )5 T d ii 20 ii w TÖ~~ 2! 22 22 Zt Y Zl 32 )$ 9 y 10 Zf- \o Zt T~~ 3 T~ (p 'l 9 2 ;<? T T8~~ )S t/ 32 zt ? II V IS w 9 21 ir~ 2% /9 21 (o )3 20 23 is 32 10 it zg T~ (p V 9 15 5 (p 13 22 T z \€ W~~ 21 3 6 /9 32 29 JJ~~ zr T~ T l' 21 10 13 <? 2 V 2! 5 )S 32 z zs T~ II X tr 13 3? i ? 30 X á? rr tc AÁBDÐEÉFGHIÍJKLMNOÓPRSTUÚVXYÝÞÆÖ Krossgáta nr. 95 Setjið rétta stafi í reitina hér fyrir neðan. Þeir mynda þá kvenmanns- nafn. Sendið þetta nafn sem lausn á krossgátunni til Þjóðviljans, Síðumúla 37, Reykjavík, merkt: „Krossgáta nr. 95“. Skilafrestur er þrjár vikur. Verðlaunin verða send til vinningshafa. 11 é e 10 2 15 21 Lausnarorð á krossgátu nr. 92 var Láginúpur. Dregið var úr réttum lausnum, og upp kom nafn Oddnýjar Snorradóttur, Mógilsá á Kjalarn- esi. Hún fær senda bókina Kona sjómannsins og aðrar sögur eftir Tryggva Emilsson sem Mál og menning gaf út 1981. Verðlaun fyrir krossgátu nr. 95 eru skáldsagan Kassandra eftir þýsku skáldkonuna Christu Wolf í þýðingu Jórunnar Sigurðardótt- ur, sem Mál og menning gaf út 1987. MATUR Guðrún Gísladóftir Fagur fiskur í sjónum Við sem búum í þessu landi, njótum þeirra forréttinda að mat- urinn sem við neytum er yfirleitt fyrsta flokks, a.m.k. sá hluti sem framleiddur er hér. Fisk fáum við alveg glænýjan, í kjötbúðinni bíður okkar úrvalsvara, mjólkin, rjóminn og eggin, allt er þetta vara sem stenst samanburð við erlenda framleiðslu. Það eru ýmsir sem halda því fram að það væri okkur til góðs að hefja inn- flutning á landbúnaðarvörum. Ekki ætla ég að fara að tjá mig um hagfræðilega hlið þess máls, en ég veit hvernig mér hefur orðið af að borða kjúklinga frá grann- löndum okkar; fengið maga- kveisu oftar en einu sinni, keimurinn af penisilíninu sem þeir eru aldir á er líka furðu sterk- ur. Egg með fiskimjölsbragði eru ekki gómsætur morgunmatur. Á nautabúunum er víða ekki flór lengur, heldur rist undir dýrun- um þar sem það sem frá þeim kemur á að fara niður. Ammoní- akstækjan er svo sterk og eyðandi að dýrin eru löngu orðin tiltölu- lega húðlaus kringum öndunar- færin og þess vegna mikil hætta á alls konar smiti. Til að losna við það er fúkkalyfjum dælt í þau. Sorglegar staðreyndir og auðvit- að ekki passandi inngangur að mataruppskrift. Ég er auðvitað búin að eyðileggja kjötmetislyst ykkar í dag, og ekki annað að gera en grafa upp einhvern góðan fiskrétt. Sjórinn er kannski ekki eins fagur víðast hvar og fiskur- inn sem í honum er, t.d. undan ströndum Skotlands núna eftir síðasta lekann, en manni er sagt að hér í kring um okkur sé allt í lukkunnar velstandi og engin ástæða til að örvænta. Það er ekki ýkja langt síðan íslendingar fóru að auka til- breytni í fiskeldamennsku, og árangurinn hefur ekki látið á sér standa, í það minnsta ef pantað er eftir matseðlum veitingahúsa sem sérhæfa sig í fiskréttum. Eftirfarandi réttur er ekki frá þeim fenginn, en einfaldur og sérlega góður: . Stráið fínu salti yfir ca 800 af nýrri flakaðri ýsu. Blandið saman 2 eggjarauðum og 3-4 msk. af sinnepi og dýfið ýsubitunum í hræruna. Brúnið því næst talsvert af smjöri á pönnu, leggið fiskinn í og stráið brauðmylsnu yfir. Steikið í nokkrar mínútur og bakið síðan í ofni við 250 gráður í ca 10 mín. Ausið smjörinu nokkr- um sinnum yfir og þá verður fal- lega brúnn litur á réttinum. Fyrir utan ýsu er lúða líka í miklu uppá- haldi hjá mér: Skerið 1 púrru, 1 rauða papr- iku, 1 stórt (súrt) epli og hálfan gulan lauk í ræmur eða bita, bræðið ca 50 gr af smjöri á pönnu og steikið grænmetið í því í nokkrar mínútur. Hrærið 1 msk af hveiti saman við og leggið fiskinn (800 gr af lúðu) ofaná. Y fir þetta er hellt 1/2 dl af hvítvíni og 4 dl af rjóma. Kerfill og dill eru góð krydd á réttinn ásamt salti og pipar. Lok sett á pönnuna og leyft að krauma í rúmlega tíu mínútur. Borið fram með hrís- grjónum eða soðnum kartöflum. Ég held barasta að ég hafi lúðu á morgun. FJOLSKYLDAN ELÍSABET BERTA BJARNADÓTTIR Breytingar — vorið — ástin Kæru lesendur, ástfangin kona hafði samband við mig, eftir að hún hafði lesið pistilinn um síð- ustu helgi, og bað mig að fjalla örlítið um vorið, ástina og þær dularfullu breytingar sem verða hjá ástföngnu fólki. Kvaðst hún nýlega vera farin að sofa og hvíla sig almennilega eftir nokkurra mánaða tímabil stanslausrar næt- urvöku. Höfðu hún og ástmögur- inn þá haft nóg að gera eins og gengur, við að athuga og rann- saka hvort annað frá því beint eftir vinnu og fram á miðjan morgun. Sagðist henni svo frá að á þessu tímabili hefði hún oft staðið sjálfa sig að því að setjast niður á kaffistofunni í vinnunni og lesa þó nokkra hríð í t.d. hálfs- mánaðar gömlum dagblöðum án þes að hafa tekið eftir því, að far- ið væri að slá í fréttirnar. Venjulegur maður Svo hafði hún tekið eftir því alveg nýlega, að elskhuginn væri nokkuð venjulegur maður, þótt hún væri enn yfir sig ástfangin af honum. „Og þá fór ég að geta sagt nei við hann, ef ég vil ekki gera nákvæmlega eins og honum finnst." Þessi frásögn konunnar af ástandinu eða fyrirbærinu að vera ástfanginn þarfnast nú ekki útskýringa. Sem betur fer verða flestir fyrir reynslunni að verða ástfangnir, en fyrir hvern og einn er þessi reynsla alltaf ný og ein- stök. Almættið hefur senniiega gætt þess að gera hina ástföngnu manneskju fullkomlega ógagn- rýna á elskuna sína svo fólk missti almennilega fótanna og þyrði að sameinast og takast á hendur þá miklu ábyrgð að fjölga mannkyninu. Fyrsta reynslan Segja má að fyrsta reynsla barns af því að verða ástfangið sé hin skilyrðislausa þörf þess fyrir móður (föður) um leið og það sér dagsins ljós, og hvernig þessu frumsambandi vindur fram. Svo Barnið rannsakar fjölskyldulíf sitt nákvæmlega i sína meginlærdóma t.d. um ástina. uppvextinum og dregur því koma fleiri mikilvægir reynslu- gjafar inní spilið (sbr. Börnin og dauðinn) og u.þ.b. 4-7 ára gamalt er barnið uppteknast af ástar- sambandi sínu við foreldri af gagnstæðu kyni, og tekur þá sér til fyrirmyndar, hvernig því sýnist foreldrið af sama kyni hegða sér í sambandinu. Barnió finnur staögengla Einstæðir foreldrar, þar sem lítið samband er við hitt foreldr- ið, hafa oft af því áhyggjur, að barnið komist ekki heilskinna gegnum vöntunina á hinu for- eldrinu. Dæmin sanna að mým- örg börn komast til manns sem alin eru upp af einungis einu for- eldri, þótt vissulega sé það ríkari reynsla að hafa tengst náið for- eldrum af báðum kynjum í upp- vextinum. Mörg börn virðast nýta ýmsa foreldrastaðgengla sem þau finna í umhverfinu til að æfa sig í að líta upp til og dýrka (vera ástfangin af), eða virða og vilja eiga út af fyrir sig. Þetta geta verið t.d. afar og ömmur, fjöl- skylduvinir, eldri systkini, kenn- arar og fóstrur. Ef barnið hins vegar ber með sér til unglings- eða fullorðinsára sára tilfinningu af að hafa verið vísað á bug eða svikið og lítilsvirt af þeim sem það hallaði hug að, getur sú reynsla stundum birst sem ótti við ástarsambönd, eða að rjúka til og slíta þeim fljótt, eða vera flaumósa eftir að kasta sér útí ást- arsambönd, án þess að hafa fund- ið fyrir svo mikilli gagnkvæmri virðingu jafningja. Iversta falli hefur manneskjan öðlast svo hart tilfinningalegt og/eða líkamlegt atlæti í uppvextinum að hún leyfir öðrum að misnota sig líkamlega eða andlega, í von um að fá að launum ofurlitla umhyggju og ást. Þeir sem þannig festast í andhverfu ástarinnar eiga stund- um erfitt með að hreyfa legg eða liðsjálfumsértil bjargart.d. útúr ofbeldissamböndum, því þeir fara að trúa þvf að þeir eigi ekki betra skilið. En konan sem haföi samband við mig og er nýlega farin að sjá elskuna sína sem venjulegan mann og má nú aftur vera að því að sofa svolítið á næturnar, er hins vegar dæmi um heilsteypta þróun ástarinnar frá því að vera ástfanginn til þess að elska og bera meiri ábyrgð. En hvaðan kemur þá sú útbreidda hugmynd, að það að vera ástfanginn, sé eigingjarnt lokað fyrirbæri? Það skoðum við næst. Föstudagur 11. maí 1990. - NÝTT HELGARBLAÐ

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.