Þjóðviljinn - 11.05.1990, Síða 25
Útvörður
í norðaustri
10 ÚR RÍKI m u p ARI TRAUSTI GUÐMUNDSSON SKRIFAR
NÁTTÚRUNNAR ^ y jm.
Þær eru nokkrar smáeyjarnar í
Atlantshafinu sem hafa orðið til í
eldgosum. Sumar eru nálægt
virka hryggnum í miðju hafsins,
aðrar tengjast brotabeltum sem
liggja þvert á hryggjastykkin.
Flestar þekkjum við ekki einu
sinni af afspurn. Man einhver
eftir Bouvet-eyju? Norðmenn
slógu eign sinni á hana á fyrri
hluta aldarinnar þar sem hún
liggur langt fyrir suðvestan Afr-
íku. Aðra hjálendu fundu þeir
sunnar og vestar; Eyju Péturs I,
er rússneskir sæfarar höfðu fund-
ið á 19.öld. Þeir litu sér líka nær.
Árið 1929 helguðu þeir sér
eyjuna Jan Mayen, um 300 km
NA af íslandi og reyndar einnig
hluta af Austur-Grænlandi
tveimur árum síðar. Sú aðgerð
hlaut ekki náð fyrir augum þjóð-
réttaryfirvalda en Jan Mayen
JAN MAYEN. Gosstöðvarnar
1985 eru sýndar með stjörnu og
byggðin með svörtum depli.
Hæðar- og dýptarlínur sýna 500,
1000, 1500 og 2000 metra.
(Tekið eftir grein Páls Imslands í
Jökli 1985).
varð norskt yfirráðasvæði og
verður svo áfram.
Jan Mayen er um 55 kflómetra
löng og um 15 kflómetra breið
eyja og er flatarmálið 372 ferkfl-
ómetrar. Hún er á 71. breiddar-
gráðu og veðurfar bæði úrkomu-
samt og kalt. Ef til vill þekktu
norrænir sæfarar til eyjarinnar og
vera kann að íslendingar hafi
nytjað rekavið þar á miðöldum.
Segja sumir að þarna sé kominn
Svalbarði en eyjaklasi með því
nafni nú er norðan Noregs. Fyrst-
ur manna til að stíga fæti á Jan
Mayen, svo víst þykir, var Henry
Hudson og áhöfn hans 1608 en
árið 1614 kom þar Hollendingur-
inn Jan Jacobszon May með sína
menn og er landið heitið í höfuð
honum.
Fljótlega hófu Hollendingar
hvalveiðar við eyna og reistu þar
meira að segja lýsisbræðslustöð.
En rányrkja stöðvaði fljótlega
þessa starfsemi. Á miðri 19.öld
var nokkur selveiði við eyna en
aldrei bjuggu menn þar árlangt -
ekki heldur þeir sem reyndu fyrir
sér við refaveiðar. Pað var ekki
fyrr en 1921 er Norðmenn settu
veðurathugunarstöð á laggirnar
að menn fóru að hafa þar árssetu.
Svo hefur verið meira eða minna
allar götur síðan. Norðmenn
höfðu setulið á Jan Mayen 1939-
1945 og árin 1959 og 1970 voru
sett þar upp ýmis tæki, m.a.
LORAN-stöð.
Jan Mayen rís í nánd sam-
nefnds þverbrotabeltis en það er
sprungu- og misgengissvæði sem
liggur þvert á gliðnunarhrygg
landreks (plötuskriðs) norðan Is-
lands. Næst íslandi heitir hryg-
gurinn Kolbeinseyjarhryggur.
Jan Mayen er öll úr eldbrunnu
grjóti, yngra en 700 þúsund ára,
og tengist eldvirkni hennar ýmist
kvikuhólfi stórs eldfjalls sem
myndar NA hluta eyjarinnar eða
sjálfu þverbrotabeltinu. Fjallið
er formfögur, jökulþakin eld-
keila og heitir Beerenberg
(Bjarnarfjall) og er 2277 metra
hátt, rúmum 150 m hærra en Ör-
æfajökull. Gostíðni er talin eitt
gos á 100 ára fresti (meðaltal
langs tíma) en síðast gaus þar
1970 (allmikið sprungugos í
austurhlíð fjallsins) og svo aftur
1985 (smágos úr sprungu við fjal-
lsræturnar). Suðvesturhluti
eyjarinnar er hraunflákar, sand-
og vikursléttur og fjallabálkur úr
móbergi, hraunum oggjalli, rúm-
lega 700 metra hár. Þar í nánd er
flugbraut og skálaþyrping þar
sem 20-25 menn búa allan ársins
hring og stunda sín störf sem
einkum tengjast veðurathugun-
um og staðsetningartækjum
skipa og flugvéla. Reynt er að
fljúga vikulega til eyjarinnar frá
norskri herstöð á meginlandinu,
en ekki munu samgöngurnar vera
greiðar því Jan Mayen er þekkt
fyrir allt annað en veðursæld.
Jan Mayen hefur ekki oft kom-
ið við sögu á íslandi. Þó má nefna
að 200 mílna fiskveiði- og efna-
hagslögsaga íslands og Jan May-
en skarast og þurfti að semja við
Norðmenn um „gráa svæðið".
Það tókst og eru í gildi samningar
um lögsögu á því, hafsbotnsrétt-
indi (t.d. ef olía fyndist þar) og
fiskveiðiréttindi. Einnig skal
nefnt að doktorsritgerð íslensks
jarðfræðings, Páls Imslands,
fjallar um bergfræði, steinda-
fræði og þróun kvikukerfis Jan
Mayen.
finsælasta
kjötið á
íslandi...
Um áratugaskeið hefur lambakjöt verið langmest
keypta kjöttegundin á íslandi enda afbragðskjöt.
Nú kostar
það 417%,
ef þú kaupir poka af lambakjöti á lágmarksverði.
SAMSTARFSHOPUR
UM SÖLU LAMBAKJÖTS