Þjóðviljinn - 24.08.1990, Blaðsíða 7

Þjóðviljinn - 24.08.1990, Blaðsíða 7
y Álver Ottast um afdrif umhverfisins Álverið í Straumsvík starfaði í tuttugu ár án nokkurs búnaðar til mengunarvarna. Hvemig verður hagsmuna umhverfisins gætt í ákvörðunum um nýtt álver? Mynd Einar Karlsson. Ungfrú Saigon í ógöngum Framleiðandi söngleiksins Ungfrú Saigon sem á að fara að setja upp á Broadway sagði á þriðjudag að ekkert yrði úr sýn- ingum nema verkalýðsfélag leikara í Bandaríkjunum létu hann einráðan um leikaraval. Verkalýðsfélagið vildi ekki leyfa Jonathan Pryce að leika hórum- angara af Asíukyni þar sem Pryce er hvítur. Félagið skipti þó um skoðun á fimmtudaginn fyrir viku og má nú Pryce leika hórumangarann, en framleiðandanum, Cameron Mackintosh, voru ekki gefnar frjálsar hendur um annað leikar- aval. Hann telur að það gæti orð- ið erfitt að finna 27 hæfa Asíubúa úr hópi 400 sem honum stendur til boða. Hann heimtar því fullkomið frelsi áður en lengra verði haldið með uppsetningu söngleiksins. Niki Lauda flýgur nú um allt Rugfélagið Lauda Air fékk leyfi til að fljúga um allan heim á miðvikudag. Það voru flugyfir- völd í Austurríki sem gáfu leyfið. Kappakstursmaðurinn fyrrver- andi Niki Lauda stofnaði flugfé- lagið um miðjan síðasta áratug. Árið 1987 fékk Lauda Air að fljúga á þá staði í Afríku og Asíu sem hið ríkisrekna Austrian Air- lines flaug ekki til. Nú standa flugfélögin hinsvegar samsíða en samgöngumálaráðherra Austurr- íkis vonaðist þó til þess að flugfé- lögin ynnu frekar saman en að berast á banaspjótum. Nikkei niður Hlutabréf í Tókýó héldu áfram að falla í verði í gær. Skráin um hlutabréf er kölluð Nikkei í Jap- an og fór hún niður fyrir 24.000 stig í fyrsta skipti síðan snemma árs 1988. í gær lækkaði skráin um 5,84 prósent sem er fjórða mesta fallið á einum degi frá upphafi. Ástæðan er að sjálfsögðu Persaflóadeilan. Og enginn veit hvar þetta endar, sagði einn hlutabréfasalinn. Við lokun f gær stóð Nikkei í 23.737 stigum eða 1.473 stigum lægri en daginn áður. Skráin hefur tapað 39 prós- entum af stigum sínum síðan í byrjun ársins. Egg og beikon Hinn hefðbundni breski morg- unverður, egg og beikon, hefur eitthvað sér til ágætis. t*ó læknar telji hann tryggingu fyrir hjartaá- falli, þá hafa sálfræðingar nú fundið út að morgunverðurinn eykur viðbragðsflýti manna og bætir hugsanlega greind þeirra er snæða hann reglulega. Spurður hvort hann væri farinn að borða meira feitmeti, svaraði sálfræðingurinn David Benton því til að hann vildi frekar lifa lengur þó að því fylgdi rakin heimska. 0g svitinn líka Breskir vísindamenn hafa komist að því að hægt er að hjálpa þeim sem eiga við tauga- veiklun, streitu og svefnleysi að stríða. Slíkt fólk má róa með því að fá það til að þefa af seyði unnu úr svita manna. Vísindamennirnir eru svo sannfærðir um ágæti þessa að þeir hyggjast markaðssetja svitann bráðlega. í mannlegum svita finnst steríóðið Osmone 1 og get- ur það breytt skapi manna á svip- aðan hátt og róandi taugalyf gera. Það ríkir óvissa um margt í sambandi við fyrirhugað áiver á íslandi, ekki síst um umhverfis- þáttinn. Margir telja þá hlið málsins mikilvægari en aðrar, en óttast að hagsmunir umhverfisins verði látnir vikja fyrir öðrum hagsmunum, fjárhagslegum. Þó keppist hver við annan um að halda fram mikilvægi þess að gaumgæfilega verði hugað að áhrifum 200-400 þúsund tonna ál- vers á umhverfið. En getur álver verið annað en mengandi? Er ekki spurningin fyrst og fremst sú hve mikla mengun við viljum sætta okkur við? Og hvað eru hinir erlendu álmenn reiðubúnir að greiða fyrir verndun íslensks umhverfis? Því þótt mengunarvarnir verði aldrei fullkomnar, eru þær gífurlega kostnaðarsamar og geta numið stórum hluta stofnkostnaðar fyr- irtækis á borð við álver, jafnvel tugum prósenta. Mengun og orkusóun Einar Valur Ingimundarson, umhverfisverkfræðingur, fer ekki í grafgötur með álit sitt á áliðnaði. Hann segir þennan iðn- að vera mengandi og orkusóandi og þar af leiðandi óheppilegan fyrir ímynd íslands sem hreins og ómengaðs lands. í bréfi sem Einar Valur hefur ritað bæjarstjórn Akureyrar, var- ar hann við álveri á ýmsum for- sendum. „Ég ætla ekki að fella neinn dóm um fyrirhugað álver. Ljóst er þó að þessi tegund iðnaðar er alröng fyrir ímynd íslands sem hreins og ómengaðs lands, hvað þá eins blómlegasta landbúnað- arhéraðs þess, Eyjafjarðar. í augum þeirra erlendu manna sem komið hafa auga á hina miklu auðlind sem við eigum í þessari ímynd, er verið að gera hér stór- kostleg mistök. Nú hillir brátt undir stóriðjumöguleika sem gætu styrkt þessa ímynd, en ekki veikt. Þar á ég við framleiðslu vetnis sem eldsneytis framtíðar- innar. Það bæri óneitanlega vott um meiri framsýni og skýrari hugsun fyrir hönd komandi kyn- slóða ef Eyfirðingar bæru gæfu til að beina þessu fyrirhugaða álveri frá sér og sækjast frekar eftir vetnisframleiðslu," segir Einar Valur í bréfi sínu til bæjarstjórnar Akureyrar. Áhersla á umhverfið Bæjarstjórn Akureyrar hefur einmitt lagt meiri áherslu en aðrir á hugsanleg áhrif álvers á um- hverfið. Rík áhersla er lögð á um- hverfisþáttinn í málefnasamningi meirihluta Sjálfstæðisflokks og Alþýðubandalags, og auk þess lögðu bæjarfulltrúar Alþýðu- bandalagsins fram bókun þar sem áherslan á umhverfið er sérstak- lega undirstrikuð. Svo rammt hefur kveðið að umhverfisáhuga þeirra Akureyringa að menn eru farnir að „óttast“ að hann verði til þess að álver verði reist á Keilisnesi. Það er að segja ef af verður. Einar Valur Ingimundarson fullyrðir að áliðnaður eigi ekki framtíð fyrir sér í heiminum. Til þess sé hann of orkufrekur, en orkusparnaður er eitt af lykilorð- unum í umhverfisvernd erlendis. Auk þess veldur vinnsla áls og notkun þess talsverðri mengun. Vinnsla súráls úr jörðu veldur spjöllum á umhverfinu. Millistig vinnslunnar, sem fer fram hér á landi, veldur umtalsverðri loftmengun og annarri mengun. Til að mynda hefur förgun ker- brota verið vandamál í áliðnaði hér á landi. Úr álinu eru svo unn- ar vörur sem oftar en ekki valda spjöllum á umhverfinu. Ál og alzheimer í grein sem Einar Valur skrif- aði í tímaritið Þjóðlíf í vor segir frá því að með miklu áróðursá- taki hafi Bandaríkjamönnum tekist að ná þeim árangri að endurnýta um helming tómra í BRENNIDEPLI íályktun Náttúruvernd- arráðsfrá í vor er bent á að nýtt álver muni auka heildarútstreymi brenni- steinsdíoxíðsfrá mann- legum umsvifum á ís- landi um 50-100prósent, eftir því hvort álverið verður200þúsund eða 400þúsund tonna. Nátt- úruverndarráð segir þetta vera í andstöðu við stefnu í norrœnum og alþjóð- legum samningum um umhverfisvernd áldósa sem þar falla til. En hinn helmingurinn fer í jörðu og veld- ur þar talsverðum spjöllum. „Þetta magn er svo gríðarlegt, að úr þriggja mánaða urðun gætu Bandaríkjamenn endurbyggt all- an flugflota sinn,“ fullyrðir Einar Valur í Þjóðlífsgreininni. Hann segir jafnframt líkur á að gler og plast muni leysa ál af hólmi sem umbúðir um drykki hvers konar. Auðveldara er að endurnýta plast og gler en ál. Auk þess nefnir Einar Valur áhyggjur manna af sambandi áls við sjúkdóminn alzheimer og aðra hrörnunarsjúkdóma. Einar Valur vitnar hér til greina sem birst hafa í breska læknatímarit- inu Lancet (14. janúar 1989 og 31. mars 1990) og fjalla um sam- band áls í drykkjarvatni við hrörnunarsjúkdóma. í greinun- um er gerð grein fyrir niðurstöð- um rannsókna, sem sýna að tals- verð fylgni er milli áls í drykkjar- vatni og alzheimersjúkdómsins. Alice J. Sigurðsson frá Akur- eyri setur álver í svipað samhengi í grein í Dagblaðinu 21. ágúst. Þar greinir hún frá meintu sam- bandi álvers í Kanada við lífs- hættulega sjúkdóma manna og dýra. Alice vitnar til greinar í nýj- asta hefti tímaritsins Internatio- nal Wildlife í þessu sambandi og klykkir út með þessum orðum: „Stóriðja getur verið dýru verði keypt og stundum (er) hreinlega um líf eða dauða að tefla.“ Álver er áhætta Ólafur Pétursson, forstöðu- maður mengunarsviðs Hollustu- verndar ríkisins, sagði í samtali við Þjóðviljann í vikunni að ál- veri muni ávallt fylgja áhætta. Þá verður að spyrja: Eru menn reiðubúnir að taka áhættuna? Ef svo er: Hversu langt vilja menn ganga til þess að halda áhættunni í lágmarki? í umræðunni um fyrirhugað ál- ver hefur ávallt verið gengið út frá því sem vísu að mengunar- varnabúnaður verði hinn fullkomnasti sem völ er á, án þess að það hafi fylgt sögunni hversu fullkominn hann er í raun. Það er ljóst að mengunarvarnabúnaður kemur aldrei í veg fyrir mengun. í ályktun Náttúruverndarráðs frá í vor er bent á að nýtt álver muni auka heildarútstreymi brennisteinsdíoxíðs frá mann- legum umsvifum á íslandi um 50- 100 prósent, eftir því hvort álver- ið verður 200 þúsund eða 400 þúsund tonna. Náttúruvemdarráð segir þetta vera í andstöðu við stefnu í nor- rænum og alþjóðlegum samning- um um umhverfisvemd. Til þess að koma í veg fyrir þessa miklu aukningu leggur Náttúmvemd- arráð áherslu á að komið verði upp vothreinsibúnaði auk þurr- hreinsibúnaðar við nýtt álver. Það hefur hins vegar enn ekki verið tekin nein ákvörðun um að krefjast slíks búnaðar, enda er aðeins verið að vinna að drögum að starfsleyfi fyrir væntanlegt ál- ver, að sögn Ólafs Péturssonar hjá Hollustuvemd. Álverið í Straumsvík Náttúruverndarráð bendir einnig á að ýmsar tegundir plantna hér á landi séu viðkvæm- ari fyrir mengun en í nágranna- löndunum vegna erfiðra lífsskil- yrða. Það kann að vera ósanngjarnt að rifja upp feril álversins í Straumsvík og setja hann í sam- hengi við umræðu um nýtt álver, enda hefur umræða um umhverf- ismál gjörbreyst frá því álverið í Straumsvík tók til starfa. Engu að síður er ástæða til að benda á að álverið í Straumsvík starfaði í um tuttugu ár án þess að komið væri upp nokkrum meng- unarvamabúnaði. Búnaður fyrir- tækisins nú er jafnvel ekki sagður virka sem skyldi, svo flúor og brennisteinsdíoxíð fara út í and- rúmsloftið í meira magni en eðli- legt getur talist. Auk þess má nefna til marks um umhverfisáhuga yfirvalda varðandi álver, að rannsóknir á áhrifum álversins í Straumsvík á umhverfið hafa verið í lágmarki. Upplýsingar vantar Hins vegar má benda á að mengunarvarnabúnaður Jám- blendiverksmiðjunnar á Grund- artanga er almennt talinn fullkominn, enda fór fram mikil umhverfisumræða áður en sú verksmiðja var byggð. Það er að mörgu að hyggja þeg- ar rætt er um álver og umhverfis- mál og margt er óljóst. Upplýs- ingar eru af skomum skammti enn sem komið er og það er langt í frá að allar upplýsingar muni liggja fyrir þegar ákvörðun verð- ur tekin um hvort byggja á álver og þá hvar. Það hefur enn ekkert komið fram sem tryggir að um- hverfishagsmunir verði látnir ráða umfram fjárhagslega hagsmuni, hvað sem líður álykt- unum flokka og annarra um mikilvægi umhverfisins í þessari umræðu. -gg Föstudagur 24. ágúst 1990 NÝTT HELGARBLAiD - SÍÐA 7

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.