Þjóðviljinn - 14.09.1990, Side 4
Sigurbjöm Svavarsson er á beininu
Er núverandi skipuiag á út-
flutningi físks hjá Afíamiðlun
það kerfi sem hentar best, eða
sérðu einhverja hnökra á því?
I sjálfu sér finnst mér per-
sónulega slæmt að þurfa að tak-
marka svona viðskipti, en reynsl-
an hefur kennt okkur það að menn
voru að senda út of mikið magn
með þeim afleiðingum að mark-
aðimir yfirfylltust og lágt verð
fékkst fyrir fiskinn. Fyrir tveimur
ámm voru flestir í sjávarútvegin-
um orðnir sammála um að það
þyrfti einhveija stjóm á útflutn-
ingnum því þetta var nánast orðið
stjómlaust. Nauðsyn á einhverri
stjómun var ekki aðeins hags-
munamál fyrir okkur vegna of-
framboðs og verðfalls, heldur
vomm við líka með þessu að
eyðileggja fyrir aðilum erlendis.
Þar má nefha fisikmenn í Norður-
sjó sem vom mjög óánægðir um
tíma og kærðu okkur meðal ann-
ars til Evrópubandalagsins. Þann-
ig að ég er þeirrar skoðunar að
þetta eigi að vera eðlileg og fijáls
viðskipti, eins og með annan út-
flutning En reynslan hefur kennt
okkur að stjómun á honum er
nauðsynleg til að nýta markaðina
sem best. Jafnífamt er það mitt
mat að núverandi skipulag sé í
þeim farvegi sem er hvað hentug-
astur. Sérstaklega hvað varðar
það gmndvallaratriði að Afla-
miðlun starfar fyrir opnum tjöld-
um, allar tölur em uppá borðinu
og engin leynd i kringum útflutn-
inginn eins og áður var hjá utan-
ríkisráðuneytinu.
Eitt af markmiðum Afla-
miðiunar er að miðla afla inn-
anlands. Hvernig hefur það
gengið?
Það hefur ekki mikið verið
gert af því og nánast ekki neitt.
Astæðan er einfaldlega sú að það
hefur ekki verið vilji til þess. Það
eina sem við höfum gert er að
birta hvað mikið hinir einstöku
innlendu fiskmarkaðir telja sig
þurfa í hverri viku. Oskir um ann-
að hafa ekki komið fram.
Nú var það einmitt þetta at-
riði sem forystumenn Verka-
mannasambandsins lögðu hvað
einna þyngsta áherslu á þegar
Aflamiðlun var að komast á
koppinn, eða var ekki svo?
Það er rétt að það var talað
um þetta á sínum tíma. Hinsvegar
þarf að vera einhver vilji fyrir
hendi til að þetta sé hægt. Það
hefúr ekki komið fram nein
beiðni til okkar um að skip, sem
er með mikinn afla, landi úti á
landi eða að við ráðstöfum hon-
um. Aftur á móti eru fyrir hendi
innlendir fiskmarkaðir þar sem
ákveðinn verðmyndun fer fram
sem menn vita af og þá hefur við-
skiptunum verið beint þangað.
Er þetta ekki þá vegna þess
að útgerðaraðilar vita að þeir
geta fengið hærra verð fyrir
fískinn á mörkuðunum en
vinnslan getur greitt?
Já ég held að það sé rétt. Enda
heyrum við það í umræðunni að
það er á fáum stöðum greitt Verð-
lagsráðsverð fyrir aflann, heldur
tiðkast yfirborganir víðast hvar
umfram hið svoneíhda heima-
löndunarálag. Það er vegna þess
að það eru há verð á fiskmörkuð-
unum hér og erlendis og allir vilja
fá sinn skerf af því.
Hefur fulltrúi Verkamanna-
sambandsins í stjórn Aflamiðl-
unar eitthvað sett út á þetta eða
er samkomulagið í stjórninni
mjög gott?
Alveg frá upphafi hafa verið
átök og ágreiningur um það
hversu mikinn útflutning eigi að
heimila hverju sinni. Um það hafa
mestu átökin snúist, nánast á öll-
um fúndum. Það hefur þróast út í
það að miða við útflutninginn á
síðasta ári og fara ekki fram yfir
það magn. Jafnvel það sjónarmið
að útflutningurinn eigi að vera
10% minni í ár vegna niðurskurð-
ar í kvóta hefúr ekki náð fram að
ganga. í staðinn hafa menn fallist
á að hafa þetta svipað og í fyrra,
einfaldlega vegna þess að verð á
þorski hefur hækkað um allt að
40% í erlendri mynt frá sama tíma
í fyrra.
Eyjamenn hafa gagnrýnt
ykkur fyrír að heimila mun
minni útflutning en markaðirn-
ar þola. Er það rétt og þá af-
hverju?
Þetta er alveg rétt hjá þeim.
Markaðimir þola að miklu meira
sé flutt út en við heimilum. Ein-
faldlega vegna þess að það er
miklu minna á mörkuðum en var i
fyrra. Ekki ffá okkur heldur frá
þeirra eigin bátum og þar af leið-
andi er eftirspumin eftir fiski mun
meiri en ffamboðið og verðin há.
Það getur ekki og er ekki okkar
hlutverk að mæta allri eflirspum
bresku markaðanna.
Bendir ekki útflutningur
umfram heimildir til þess að
hagsmunaaðilarnir, sem eiga
sína fulltrúa í stjórn Aflamiðl-
unar, eigi erfitt með að koma
böndum yfír sína eigin menn?
Það er alveg ljóst. En á hitt er
vert að benda á að það sem þessir
aðilar, sem hafa flutt of mikið út
hafa tekið sér, hefur komið niður
á öðmm. Ef þetta em hátt í þrjú
þúsund tonn sem hafa verið flutt
út án heimildar, þá hafa þeir tekið
það til sín sem ella hefði verið
deilt til annarra. Við hefðum í
sjálfú sér ekki úthlutað minna
magni, en þeirra aðgerðir gera
það að verkum að við höfúm
minna svigrúm en við hefðum
ella.
Hefurðu skýringu á því af-
hverju það eru einatt Eyja-
menn sem eru til vandræða í
þessu kerfi?
Átöká
hverjum
fundi
Aflamiölun hefur verið í sviösljós-
inu að undanförnu vegna þess að
nokkrir aðilar hafa flutt út meiri fisk
en þeim var leyfilegt. Mikil ásókn
hefur verið í útflutningsleyfi og
dæmi um að sótt hafi verið um leyfi
fyrir allt að 2 þúsund tonnum en að-
eins leyft að flytja út 800 tonn. Sig-
urbjörn Svavarsson stjórnarformað-
ur Aflamiðlunar er á beininu að
þessi sinni en hann hefur ákveðið
að láta af þeim störfum um næstu
mánaðamót.
Siguibjöm Svavarsson stjómarformaður
Aflamiðlunar. Mynd: Jim Smart.
Ég held að það sé út af því að
þar er mikið af sjálfstæðum út-
gerðarmönnum, sem hafa undan-
farin ár verið að fjárfesta mjög
mikið og treyst á sóknarmarks-
kerfið. En þar hafa þeir verið
fijálsir í að veiða ýsu og ufsa og
fengið meiri þorsk í sóknarmarks-
kerfinu en þeirra eigin kvóti er.
Jafnframt því sem þeir reyna að
ná í sem mestar tekjur. Þeir eru
ekki háðir neinni vinnslu og þetta
er fyrst og fremst ásókn í há verð.
Ennfremur er ég sannfærður um
það að þessir aðilar, sem kvarta
nú mest, eru með mun mun hærri
tekjur en þeir voru með á síðasta
ári. Einfaldlega vegna mun hærri
verða og ekki minna magns.
Þannig að þessi gagnrýni þeirra er
ekki vegna þess að við höfum
verið að slá undan þeim rekstrar-
grundvellinum, heldur vegna þess
að þeir eru ekki sáttir við kerfið.
Til hvaða aðgerða getur
Aflamiðlun gripið þegar ykkar
útflutningsheimildir eru virtar
að vettugi og fínnst þér þær
vera nægjanlcgar?
Nei. Aflamiðlun var sett á fót
í miklum flýti og án nokkurra
reglugerða. Við störfúm í raun-
inni sem nefnd á vegum utanríkis-
ráðuneytisins og á grundvelli laga
um útflutningsleyfi. Það var sam-
þykkt af ráðuneytinu að við út-
hlutum útflutningsleyfum á öllum
ferskum fiski. Við höfúm í raun-
inni engin önnur ráð en að biðja
utanríkisráðuneytið um að kæra
viðkomandi aðila fyrir brot á út-
flutningslögum um útflutnings-
leyfi. Það yrði þá rekið sem hvert
annað opinbert mál og sótt þann-
ig. En við höfúm ekki ennþá lagt
það til. Hinsvegar höfúm við lagt
áherslu á það að reyna að komast
fyrir þennan umffamútflutning
með aðstoð tollsins í stað þess að
kæra og að því er unnið. Við vit-
um það nefnilega og viðurkenn-
um að það er búið að vera lausung
í þessum útflutningsmálum frá
því þessi stjómun var tekin upp.
Jafnvel í tið ráðuneytisins var
flutt mjög mikið út umfram heim-
ildir, án þess að nokkuð væri gert
í því. Það eina sem við getum gert
og höfúm gert, er að setja menn
tímabundið út í kuldann.
Hafa menn eitthvað fyrir
sér í því að það hafi verið flutt
út mikið magn af físki umfram
heimildir fyrir tíma Aflamiðl-
unar, þegar Ieyfisveitingar voru
á hendi utanríkisráðuneytisins,
og að það hafí tíðkast jafnvel
allar götur síðan kvótinn var
tekinn upp?
Við höfum séð gögn sem sýna
okkur það að minnsta kosti einn
þessara aðila, sem nú hefur verið
uppvís að því að flytja út umffam
heimildir, að hann hefúr stundað
þetta lengi. Við höfúm séð bréf
frá ráðuneytinu frá því í nóvem-
ber 1988 til tollyfirvalda, þar sem
þeir lýsa yfir áhyggjum sínum á
þessu sama og eru að ítreka það
við tollinn að það verði að ná tök-
um á þessum umframútflutningi.
Vita menn hvað hérna er
um mikið magn að ræða?
Nei. Ég held að ráðuneytið
hafi fyrst og fremst tekið afstöðu í
hverri viku og ekki verið að horfa
á tölur um hvað var endilega
komið í sjálfú sér. Nú, annað sem
er gjörólíkt, að 1989 voru verð
lág, miðað við það sem er í dag.
Það gerði það að verkum að það
var kannski ekki eins mikill áhugi
á því hjá mörgum að senda fisk út
eins og er núna. Enda er ásóknin
alveg gífúrleg.
Að lokum Sigurbjörn. Þú
hefur ákveðið að láta af störfum
stjórnarformanns í stjórn Afla-
miðlunar um næstu mánaða-
mót. Hvernig heldurðu að þér
gangi að fá útflutningsleyfi?
Eg verð að taka því eins og
aðrir.
-grh
4 SÍÐA — NÝTT HELGARBLAÐ Föstudagur 14. september 1990