Þjóðviljinn - 05.10.1990, Qupperneq 5
FOSTUPAGSFRETTIR
Nvtt álver
Alver reist á Keilisnesi
Olafur Ragnar Grímsson: Kjánalegt af iðnaðarráðherra og Jóni Baldvini að ræða við Sjálfstæðisflokkinn án samráðs.
Aðeins samið um staðsetningu og skattamál. Steingrímur J. Sigfússon: Undirritun bœði fráleit og óþörf
Frá undimtun fundargeröarinnar (gær. Frá vinstri: Jóhannes Nordal, Jón Sig-
urðsson og Robert G. Miller, varaforseti ALUMAX. Mynd: Jim Smart
Jón Sigurðsson iðnaðarráð-
herra skrifaði undir áfanga-
samning við Atlantsál í gær, þar
sem ákveðið er að nýtt áiver rísi
á Keilisnesi. Iðnaðarráðherra
kallar plaggið sem hann skrif-
aði undir minnisblað, og er þar
ma. að finna bókun um að
orkuverð verði ákveðið hlutfall
af álverði. Afsláttur verður á
orkunni frá 1994 - 1996 miðað
við 3.000 gígavattstundir. End-
anlegur orkusamningur mun
innihalda grein um endurskoð-
unarrétt og verður hann gerður
til 25 ára, með rétti Atlantsáls
til að framlengja hann tvívegis
til fimm ára.
Samkvæmt áfangasamkomu-
laginu munu Islendingar eiga
fulltrúa í stjóm Atlantsáls hf. Is-
lenska ríkið hefur rétt til að ráð-
stafa allt að 5% af framleiðslu
fyrirtækisins vegna ftekari úr-
vinnslu hérlendis, á þess vegum
eða þriðja aðila. Innan þingflokks
Alþýðubandalagsins hefúr verið
mikil óánægja með framgöngu
iðnaðarráðherra í álmálinu. Þing-
flokkurinn fúndaði um málið í
fyrrakvöld og tvívegis í gær.
Fréttir um að Jón Sigurðsson
Náttúrufræðingar
Mótmælir
orðum
Svavars
Félag íslenskra náttúrufræðinga
hefur sent frá sér tilkynningu
þar sem félagið mótmælir þeirri
fullyrðingu Svavars Gestssonar
menntamálaráðherra að viðræð-
ur vegna deilna um stunda-
kennslu við HÍ haíi ekki getað
hafist fyrr en nú, þar sem beiðni
um slíkt hafi ekki komið fyrr.
Fréttin um þetta birtist í Þjóð-
viljanum í gær, og þar segir Svavar
Gestsson að viðræður hafi verið
hafnar um leið og beiðni um þær
barst. Þetta segir FÍN ekki rétt og
vísar því til staðfestingar til bréfa-
skrifta milli félagsins og mennta-
málaráðuneytisins frá því í sumar.
I tilkynningu FÍN segir að
stjóm og kjararáð félagsins hafi
unnið að því frá því í desember á
síðasta ári að fá samninganefnd
ríkisins til viðræðna um launakjör
þeirra félagsmanna sem sinna
stundakennslu. Hins vegar hafi
samninganefndin ekki enn séð
ástæðu til að ræða þessi mál við
fulltrúa félagsins. Fullyrðing Svav-
ars Gestssonar sé því röng. ns.
A Iþvðubandalagið
Miðstjórnar-
fundur
13. október
Miðstjóm Alþýðubandalagsins
mun koma saman í Þinghóli í
Kópavogi laugardaginn 13. októ-
ber. A dagskrá fúndarins verður ál-
málið, stjómarsamstarfið og önnur
mál eftir því sem tími leyfir.
Fundurinn mun standa fram á
sunnudag ef ástæða er til. Dagskrá
fúndarins verður send miðstjómar-
mönnum nú um helgina. -Sáf
hefði átt í viðræðum við forystu-
menn Sjálfstæðisflokksins með
flokksformanninum Jóni Bald-
vini Hannibalssyni, varð síðan til
að auka enn á óánægju Alþýðu-
bandalagsmanna.
Ólafúr Ragnar Grímsson, for-
maður Alþýðubandalagsins,
sagði undirskriftina í gær í raun
dálítið spaugilega. Ekkert væri
klárt varðandi orkuverðið. Lands-
virkjun, sem væri formlegur
samningsaðili um orkuverðið,
hefði ekki veitt Jóhannesi Nordal
umboð til að undirrita neitt um
orkuverðið.
Það er einnig allt óljóst hvað
varðar umhverfismálin, að sögn
Ólafs Ragnars. Hins vegar sagði
Ólafúr Ragnar það ánægjulega
hafa gerst að þær kröfúr í skatta-
málum, sem fjármálaráðuneytið
hefði undirbúið í samráði við iðn-
aðarráðuneytið, kröfúr sem Jó-
hannes Nordal og aðrir pótintátar
í samningaferlinu hefðu ekki
komið nálægt, hefðu allar náðst
ffam. Þar með væri stigið stórt
skerf til að tryggja hagsmuni og
sjálfstæðan rétt Islendinga.
„Fulltrúar mínir og iðnaðar-
ráðherra höfðu sett ffam kröfur í
skattamálum af mikilli hörku í
Atlanta í síðustu viku, og nú væru
fulltrúar Atlantsáls búnir að fall-
ast á að íslensk skattalög, dóm-
stólar og gerðardómar verði alls
ráðandi. Fyrirtækin fái ekki að
nota alls konar ffádráttarheimildir
og undansláttarheimildir, sem gilt
hefðu gagnvart ýmsum fyrirtækj-
um, heldur verði þau að greiða
kvittan og kláran 30% tekjuskatt.
„Með öðrum orðum, þær kröfur
sem Alþýðubandalagið hefúr sett
ffam í tuttugu ár í gagnrýni sinni á
Stjórn Landsvirkjunar veitti
iðnaðarráðherra enga
heimiid til undirritunar skuld-
bindinga um raforkusölu við
fulltrúa Atlantsál-hópsins, á
fundi sínum fyrir hádegi í gær.
Að sögn Sigurjóns Péturssonar,
sem á sæti í stjórn Landsvirkj-
unar, hefur því undirskrift Jóns
Sigurðssonar í gær ekkert gildi
hvað varðar orkusölusamning
Landsvirkjunar og Atlantsáls.
A stjómarfúndinum kynnti
Mr. King, aðal álspámaður
Landsvirkjunar, meðalorkuverð
til allra álvera í hinum vestræna
heimi, en það er 20,3 mills.
Samningsdrögin sem nú liggja
fyrir gera hinsvegar ráð fyrir að
meðalorkuverð til Landsvirkjunar
vegna orkusölu til Atlantsáls
verði 18,3 mills á 35 árum. Samn-
ingurinn við Atlantsál er hinsveg-
ar bara til 25 ára, en með ákvæði
um framlengingu.
Þá kom ffam kjá King að spáð
er mikilli hækkun á álverði ffam
til ársins 2002, en að sú hækkun
gangi svo til baka árið 2003. í
samningsdrögunum við Atlantsál
er veittur afsláttur af orkuverðinu
Alusuisse-samninginn em viður-
kenndar," sagði Ólafúr Ragnar.
Fundur Jónanna með forystu-
mönnum Sjálfstæðisflokksins er í
besta falli kjánaskapur, að mati
fjármálaráðherra. Hann hefði tek-
ið skýrt ffam að þetta væru ekki
eðlileg vinnubrögð, þar sem rætt
hefði verið um pólitískan stuðn-
ing Sjálfstæðisflokksins við mál-
ið. Ólafur Ragnar sagði það síðan
annað mál, að hann hafi hvatt til
þess að stjómarandstaðan fengi
tæknilegar upplýsingar um málið.
Steingrímur J. Sigfússon sam-
göngu- og landbúnaðarráðherra
sagði framkomu Jóns Sigurðs-
sonar og Alþýðuflokksins síðustu
sólarhringa, með endemum.
Makkið við forystu Sjálfstæðis-
flokksins væri vægast sagt asna-
skapur, sem menn þyrftu að vera í
mjög góðu skapi til að taka.
fram til ársins 2003, en síðan á
það að lúta markaðsverði á áli, án
gólfs og án þaks.
A fundinum kom fram hörð
gagnrýni á það að Landsvirkjun
hefúr aldrei fjallað um málið á
stjómarfúndum, og bent var á að
hvorki stjóm Landsvirkjunar né
fúlltrúi fyrirtækisins hefur átt í
neinum viðræðum við fulltrúa
Allantsáls. Jóhannes Nordal
stjómarformaður Landsvirkjunar
hefúr vissulega átt í viðræðum
við Atlantsál, en þá sem formaður
stóriðjunefhdar. Hann hefur hins-
vegar ekki haft neitt umboð frá
stjóm Landsvirkjunar.
Páll Pétursson lagði fram sér-
staka bókun á fúndinum og þeir
Sigurjón Pétursson og Finnbogi
Jónsson lögðu sameiginlega ffarn
aðra bókun.
I bókun Páls er minnt á lög
um Landsvirkjun þar sem segir að
orkusölusamningar við iðjuver
megi ekki valda hærra raforku-
verði til almenningsrafveitna en
ella hefði orðið. „Þau drög að
orkusamningi við Atlantsál sem
kynnt hafa verið stjóm Lands-
virkjunar tryggja þetta ekki og
„Viðræður flokksforystu Al-
þýðuflokks og Sjálfstæðisflokks
væri ekkert samráð iðnaðarráð-
herra í krafti embættis hans fyrir
opnum tjöldum, eins Jónamir
reyndu að skjóta sér á bakvið,"
sagði Steingrímur.
Undirritunin í gær var bæði
fráleit og óþörf, að sögn Stein-
gríms. Undirskriftin væri ögrandi
og skilaði engu í málinu. Þvert á
móti ræki hún málið í verri hnút
en það hefði verið í. Samgöngu-
ráðherra sagðist telja Jón Sigurðs-
son vera að ganga út í sólarlagið
með undirskriftinni, með því að
knýja málið áfram án umboðs og
í andstöðu við samstarfsflokkana.
Þar að auki bættist það við, að
stjóm Landsvirkjunar undirstrik-
aði að formaður hennar hefði ekki
umboð til að ganga frá einu né
neinu.
þarfnast því breytinga,“ segir orð-
rétt í bókuninni.
Páll telur að til verði að koma
ákvæði um endurskoðunarrétt
vegna harðræðissjónarmiða, þvi
ef spár um verðþróun gangi ekki
eftir og álverð verði lægra um
árabil hljóti Landsvirkjun að
verða að hækka verð til almenn-
ingsveitna. Þá vill hann að gólf
verði sett í samninginn, því ann-
ars sé áhættan óbærileg. Einnig
telur hann að áður en Landsvirkj-
un geti samþykkt samninginn
verði að liggja fyrir að traustir er-
lendir bankar séu reiðubúnir að
lána án ábyrgðar ffá eignaraðilum
út á samninginn.
„Óhjákvæmilegt er að undir-
strika sérstaklega að stjóm
Landsvirkjunar hefúr ekki sam-
þykkt nein atriði draga að orku-
sölusamningi. Því hefur iðnaðar-
ráðherra enga heimild frá Lands-
virkjun til þess að undirrita skuld-
bindingar hvað varðar orkusölu-
samninginn,“ segir í lok bókunar-
innar.
Þeir Siguijón Pétursson og
Finnbogi Jónsson taka undir bók-
un Páls. Síðan gagnrýna þeir að
Að þessu samanlögðu sagði
Steingrímur málið í frekar dapur-
legu ljósi fyrir Jón. Þau sjónarmið
sem komið hefðu fram í stjóm
Landsvirkjunar varðandi orku-
verðið væm athyglisverð. Þau
féllu algerlega að þeim sjónar-
miðum Alþýðubandalagsins að
orkuverðið í samningsdrögunum
væri of lágt.
Þingflokkur Alþýðubanda-
lagsins segir í ályktun frá því í
gær, að flestir þættir hugsanlegra
samninga um nýtt álver þarfhist
nánari athugunar, td. varðandi
umhverfismál, og að mengunar-
ákvæði og ákvæði um orkuverð
séu bersýnilega ekki hagstæð og
feli í sér mikla áhættu. Minnt er á
að forsætisráðherra hafi lýst því
yfir að ríkisstjómin og stjómar-
flokkamir hafi ekki tekið afstöðu
til neinna efnisatriða í samnings-
vinnunni.
Þingflokkurinn telur því ffá-
leitt að iðnaðarráðherra hafi í gær
undirritað áfangasamning í nafni
allrar ríkisstjómarinnar og lýsir
því yfir að Alþýðubandalagið sé
óbundið af undirskrift ráðherrans.
Þá lýsir þingflokkurinn fúrðu
sinni yfir viðræðum ráðherra Al-
þýðuflokksins við forystu Sjálf-
stæðisflokksins.
Að lokinni undirskrift í gær
sagðist Jón staðfesta minnisblað-
ið sem iðnaðarráðherra. Hann
stefndi að því að leggja ffam
stjómarffumvarp um málið. Ro-
bert G. Miller, varaforseti AL-
UMAX, sagðist ekki hafa áhyggj-
ur af því að Jón skrifaði ekki und-
ir í nafni allrar ríkisstjómarinnar.
„Við erum algerlega hlutlausir
hvað varðar stjómmál í þessu
máli,“ sagði Miller. -hmp
sáralítil umræða hefúr verið í
stjóm Landsvirkjunar um orku-
verðið og að enginn fúlltrúi í um-
boði hennar hafi hitt eða rætt við
fúlltrúa Atlantsáls. „Augljóslega
á að stilla stjóm fyrirtækisins upp
andspænis fúllgerðum samningi,“
segir orðrétt i bókuninni.
Þá er bent á að iðnaðarráð-
herra hafi boðað að hann muni
undirrita samningsdrög varðandi
byggingu nýs álvers, en ekki haft
fýrir því að kynna drögin í stjóm
Landsvirkjunar.
„I öllum þessum málum hefúr
þannig verið gróflega gengið
ffamhjá stjóm Landsvirkjunar
eins og henni komi samnings-
gerðin ekkert við. Með þeim hug-
myndum sem nú em á lofti er ver-
ið að binda alla bestu virkjunar-
kosti þjóðarinnar til langs tíma á
verði sem er umtalsvert lægra en
meðalverð til álvera í „hinum
vestræna heimi“. Veruleg hætta
er á því að íslenskir orkunotendur
verði í ffamtíðinni að greiða
hærra orkuverð en ella. Þessum
vinnubrögðum öllum ber að mót-
mæla,“ segir í lok bókunarinnar.
-Sáf
Landsvirkiun
Ekki heimild til undirritunar
Undirskrift iðnaðarráðherra um orkusamning við Atlantsál hefur ekkert gildi. Talað um 18,3
mills til 35 ára. Meðalverð álvera á Vesturlöndum 20,3 mills. Páll Pétursson, Sigurjón Pétursson
og Finnbogi Jónsson með harðorðar bókanir. Ottast að almenningur verði að borga brúsann
Föstudagur 5. október 1990 NÝTT HELGARBLAÐ — SÍÐA 5