Þjóðviljinn - 05.10.1990, Blaðsíða 11

Þjóðviljinn - 05.10.1990, Blaðsíða 11
„Ólympíuleikarnir hafa drukknaö í kókakóla“ Ólympfutengd kókauglýsing: Grikkir reiddust heiftarlega. Ekki alls fýrir löngu sat Alþjóða- lega ólympíunefndin, IOC, á fundi í Tókíó til að ákvarða hvaða borg fengi að halda Ól- ympíuleikana árið 1996. Þegar úrslit fengust féllust sendimenn bandarísku borgarinnar Atl- anta í faðma, grátandi af hrifn- ingu, en Aþenumenn, helstu keppinautamir urðu þeim mun reiðari. Melína Merkúrí leik- kona, sem nú býður sig fram til borgarstjóra í Aþenu, komst svo að orði að nú sé búið að drekkja Ólympíuleikunum í kókakóla. En i Atlanta eru höfiiðstöðvar hringsins mikla sem kókið býr til. Kókiö er allsstaðar Kókakóla, sem hér hefur oftar en ekki verið nefnt til sögu, er mjög stór „sponsor" Olympíu- leikanna. Fyrirtækið leggur 30 miljónir dollara í Barcelónuleik- ana og mun þar vera um að ræða hæstu upphæð í íþróttasögunni. Kókakóla smýgur reyndar alls- staðar inn þar sem meiriháttar íþróttamót eru haldin til þess vit- anlega að efla þá ímynd sína að vera heilsudrykkurinn sanni, elix- ír æsku og hreysti. Telja sérfróðir menn að þessi umsvif kosti fyrir- tækið allt að hálfum miljarði doll- ara á ári. Þetta þýðir líka að merki kókakóla sé allsstaðar sjáanlegt: Þegar menn sjá í sjónvarpi að íþróttakappi gripur rauðan kók- bikar sér til hressingar þá getur vel verið að hann sé að fá sér öl- kelduvatn, en heimurinn á að trúa því að hann sé að kóka sig, hetjan. Að visu mun Kókakóla hafa svarið fyrir að það reyndi að draga Olympíuleikana til höfuð- stöðva sinna í Atlanta, en aðrir þykjast vita betur, og þá Melína Merkúri sem áður var vitnað til. Gjafir eru þeim gefnar Reyndar vita það allir sem vilja að aðferðir þær sem beitt er til að freista 86 meðlima Alþjóð- legu ólympíunefndarinnar til að velja þessa borg en ekki hina eru ekki beinlinis til að státa af. Flog- ið hefur verið með 75 ólympíu- nefndarmenn til Atlanta til að sýna þeim möguleikana og vinna „kardínála eftir kardínála á sitt band“ svo að tekin sé hliðstæða af páfakjöri í Róm. Jákvæð áhrif af Atlanta eru svo „styrkt „ með alls- konar dýrum gjöfum, merkileg- um vídeógræjum og Iistmunum og jafnvel reiðufé (svo segir orð- rómur). Það hefur reyndar verið tekið saman, að hver meðlimur ólymp- íunefndarinnar hafi fengið 55 verðmætar gjafir ffá borgunum sem vildu hreppa hnossið 1996: Þar eru kostuleg úr og gullarm- bönd og leðurvörur stórmerkar og sjónvörp í sérflokki og margt fleira. Sagt er að Grikkir hafi mis- reiknað sig í þessum hlutum: Þeir voru svo gamaldags að þeir sendu laglegar stúlkur til Tókíó í stórum stíl til að ná ljúfum áhrifum á ól- ympíunefndarmenn. En slík brögð duga ekki leng- ur - í stað roskinna karla sem áð- ur sátu í nefndinni eru nú komnir harðir uppar sem ekki skilja ann- an losta en þann sem peningum fylgir. áb byggði á Spiegel og Time Aþena tapaði Aðrar borgir, Toronto, Melbo- ume, Manchester og Belgrad, áttu litla möguleika. Grikkir gerðu sér hinsvegar nokkrar vonir með að Ólympíunefndin tæki tillit til þess að sögulegur uppruni leikanna er grískur og það var einmitt árið 1896 sem Ólympíuleikar vom endurreistir í Aþenu. Ekki óeðli- Iegt að halda upp á aldarafmæli þeirra þar. En nú fór sem í flestum grein- um öðmm á seinni tíð: það er Mammon sem ræður. Þýska viku- ritið Spiegel segir í samantekt um málið, að draumóramenn einir geti orðið hissa á því að hin ríka höfuðborg kóksins, Atlanta, varð fyrir valinu en ekki Aþena. Harður sölumaður Spánveijinn Juan Samarancj, sem tók við forystu í Ólympíu- nefndinni fyrir áratug, hefur verið sjálfum sér samkvæmur í því að „selja“ leikana hæstbjóðendum, útrýma síðustu leifurn hugsjóna- mennsku úr stórstjömuíþróttum og gera þá að arðbæm fyrirtæki. Honum hefur tekist að skrúfa upp jafnt og þétt þær tekjur sem hafa má af réttindum til að sjón- varpa ffá leikunum og af stórfyr- irtækjum sem „sponsora" leikana með því að borga fyrir að fá að nota merki þeirra í auglýsingum sínum. Unj 400 miljónir dollara fást fyrir sjónvarpsréttindin frá Barcelonaleikunum 1992, en vegna þess að í Atlanta munu margir atburðir gerast á heppileg- asta tíma fyrir hin ríku bandarisku sjónvarpslýrirtæki getur verið að sjónvarpsréttindin 1996 gefi 40% meira af sér. Mönnum til ffóðleiks skal vitnað í það, að fjárhagsáætlun leikanna í Barcelona 1992 er að sögn markaðsstjóra IOC á þessa leið: Sjónvarpið skilar um helm- ingi tekna, innheimta af „spon- sorum“ 38% en aðgöngumiðasala aðeins 5,4% Samaranch hefur haft úti allar klær til að gera Ólympíleikana sem allra mesta ffeistingu fyrir stórfyrirtæki í auglýsingaham. Hann hefur fjölgað ólympíu- greinum - til dæmis að taka verð- ur þjóðaríþrótt Bandaríkjamanna, homaboltinn, í fyrsta sinn keppn- isgrein í Barcelona eftir tvö ár. Nú er líka búið að rífa niður allar hindranir á vegi atvinnumanna til þátttöku í Ólympíuleikum og það gerir auðveldara að selja fýrir dijúgan skilding keppnisgreinar eins og t.d. hnefaleika og hjól- reiðar. (. I 1)1 ()l \K Öl.l.l ÞÚ ÁTT SKILIÐ ÞAÐ BESTA! ARCHE tölvueigendur hafa eitt sem engir aðrir tölvueigendur hafa - tveggja ára gæðaábyrgð. í dag er ARCHE eini framleiðandinn í Bandaríkjun- um sem býður tveggja ára ábyrgð á öllu sem ber merki ARCHE Technologies. ARCHE eigendur geta státað sig af fyrsta flokks „Made in the USA“ gæðastimpli. Og stimpil þennan fá aðeins þeir framleiðendur sem mæta ströngustu kröfum um gæði og endingu. ARGHE TRIUMPH 286 PLUS wm .» ><*■£ >» - x* -------i • m ' □ 1Mb minni (0 bið) □ 1,2Mb disklinga drif □ 2 parallel og 2 serial port □ Stýrikort fyrir harðan disk □ MS-Dos 3.3, GW Basic □ lOls lykils lyklaborð VERÐ KRÓNUR: 97.975. GÓÐIR GREIÐSLUSKILMÁLAR ARCHE RIVAL 386-SX □ 1Mb minni (0 bið) □ Stýrikort fyrir harðan disk □ 1,2Mb disklinga drif □ MS-Dos 3.3, GW Basic □ 2 parallel og 2 serial port □ 101 s lykils lyklaborð VERÐ KRÓNUR: 109.565.- HRINGIÐ OG SPYRJIÐ UM TILBOÐSPAKKANN OKKAR! íik TH. VILHELMSSON 'kÉwpiB**' x ^ vr1'; :í:. TÖLVUDEILD Rcykjavíkurvegi 62, 220 Hf., Símar 91-650141 og 91-653241 ÞJÓÐVILJINN —SÍÐA11

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.