Þjóðviljinn - 05.10.1990, Blaðsíða 14

Þjóðviljinn - 05.10.1990, Blaðsíða 14
Evrópukeppni taflfélaga: Heilladísimar á bandi Solingen ÉSl fllí IIF a b c d e f g h Jóhann Hjartarson - Nigel Short Klukkan er langt gengin í eitt eftir miðnætti og staðan 6:5 Taflfélagi Reykjavíkur í hag. Jafntefli í þessari skák tryggir sveit TR þátttökurétt í úrslitum. Jóhann leikur 76. Bf6?? og eftir 76. .. Re4 kemst svarti riddarinn til c3 og þaðan til b5. Hvítur lendir óhjákvæmulega í leikþröng og tapar því skákinni og sveit Solingen kemst áfram á jöfnu vegna betri útkomu á efstu borðunum. Hvernig getur reyndur stór- meistari hertur í keppni við bestu skákmenn heims gert slík mis- tök? spyrja vonsviknir áhorfend- ur. Fyrst skal bent á að Jóhann hafði varið geysilega erfiða stöðu af aðdáunarverðri seiglu í tæpar 8 klst. Undir flestum kringumstæð- um hefði skákin átt að fara í bið eftir 6 klst. en að kröfu Þjóðverj- anna var síðasta umferðin tefld í botn. Þetta atriði var rætt á liðs- fundi með sveitarmeðlimum TR og þar kom fram andstaða gegn því að knýja fram úrslit á þennan hátt. Þjóðverjarnir vildu taka flugið heim í býtið á fimmtudagsmorguninn og var gengið að óskum þeirra um til- högun síðustu umferðarinnar. Enn á ný sannaðist að undanláts- semi við Þjóðverja borgar sig ekki. Við Margeir Pétursson höfðum uppi mótmæli við þessa áætlun. Eftir 6 klst. taflmennsku blasti ósigur við liði Solingen og ekki ósennilegt að samið hefði verið á báðar stöðurnar í skákum Karls og Lau og Jóhanns og Short ef skákirnar hefðu farið í bið. En lítum á einstök úrslit: Fyrri umferð: Jóhann - Short 0:1 Jón L. - Spasskí Vr. Vi Margeir - Hiibner Vv.Vi Helgi - Lobron 1:0 Hannes - Lau 0:1 Karl - Dueball 1:0 Jóhann var nýkominn úr erfið- um prófum en Short úr öðru prófi, hinu ægisterka móti í Til- burg. Jóhanni varð á meinleg ónákvæmni eftir frumlega byrjun Shorts og sat uppi með vonlausa stöðu. Skák Jóns L. og Spasskís var einskonar framhald af æfing- um Spasskís með íslenska olympíuliðinu fyrir Olympíu- mótið í Saloniki 1988. Spasskí tefldi afbrigði sem hann tók þá til meðferðar og loksins sýndi hann liðsmönnum hvernig á að tefla það! Margeir varði lakari stöðu af sannfærandi öryggi gegn Húbner og ég vann Lobron nokkuð ör- ugglega þrátt fyrir flensu. Hann- es Hlífar komst aldrei út úr byrj- uninni gegn Lau og hlaut að tapa. Karl Þorsteins sýndi að góður ár- angur hans á þessu ári er engin tilviljun. Hann vann leikandi létt- an sigur á Dueball. Staðan fyrir seinni umferðina var jöfn og mátti sveit TR nokk- uð vel við una því Solingen komst í 2:0. Ágætur liðsfundur seinna um kvöldið stappaði svo enn frekar stálinu í sveitarmeðlimum. Seinni umferð: Jóhann - Short 0:1 Jón - Spasskí Vr.Vi Margeir - Hubner Vr.Vi Hannes - Lobron 1:0 Karl - Lau Vi:Vi Þröstur - Dueball Vi:Vi Ég treysti mér ekki til að tefla aftur og Þröstur Þórhallsson kom inn í liðið. Lið TR sýndi mikið baráttuþrek og keppnishörku. Eftir 4 klst. taflmennsku þegar flestum skákum er venjulega lok- ið hafði Jón gert jafntefli við Spasskí og Þörstur við Dueball. Hannes átti örlítið betra gegn Lo- bron, Karl var peði undiríhróks- endatafli, Jóhann var í miklum þrengingum en staða Húbners og Margeirs varí jafnvægi. Réttfyrir ellefu lauk skák Margeirs og Hu- bners með jafntefli og Hannes kom sveit TR yfir með sannfærandi sigri yfir Lobron. Karl barðist á hæl og hnakka og tókst að töfra fram jafnteflisstöðu og Jóhann var (Með aðgerðum eftir hinni opnu g-línu gerir Karl út um taflið.) 26. .. d5 27. Hgl d4 (Skárra var 27. .. Rh8 þó ekki sé leikurinn fagur.) 28. Hxg6 dxc3 29. Hxc3 Rxe4 30. Rxe4 Hxe4 21. .. Kg7 22. g4 Dd4! (Hvítur hótaði 23. legum þrýstingi.) 23. Bc2 Hae8 24. Khl Dc3 25. Kh2 h6 26. Dg3 De5 27. Kg2 Dxg3 28. Kxg3 He5 29. Hf3 Hf7 g5 með óbæri- 30. Ha3 Bc8 31. Hf2 Hfe7 32. Haf3 HI7 33. a4 Bd7 34. Hfl Be8 35. Hal h5! Helgi Ólafsson Boris Spasskí þungt hugsi í skák sinni við Jón L. Árnason sl. þriðj- udagskvöld. kominn yfir það erfiðasta. Að endingu voru þeir einir eftir Jó- hann og Short og þá gerðist slysið sem að framan greinir. Þetta er í annað sinn sem sveit TR fellur úr keppninni á jöfnum úrslitum en sigrar yfir Ander- lecht, Bayern Munchen og MTK Budapest og jafntefli við So- lingen staðfestir svo ekki verður um villst að TR hefur á að skipa einhverri sterkustu skáksveit sem um getur. Þó virðist ekki hafa verið eining innan stjórnar TR um þátttöku sveitarinnar í keppninni. Án framtaks nokk- urra einstaklinga meðJónG.Bri- em formann og Gylfa Gaut Pét- ursson í broddi fylkingar hefði þátttaka TR ekki orðið að veru- leika. 6. borð: Karl Þorsteins - Dueball Kóngsindversk vörn 1. d4 Rf6 6. Bg5 Rbd7 2- c4 g6 7. Dd2 c5 3. Rc3 Bg7 8. d5 a6 4. e4 d6 9. ro 5. Be2 0-0 (Karl kærir sig kollóttan þó Due- ball geti nú fórnað peði og gefið stöðunni yfirbragð Benkö- bragðs.) 10. cxb5 axb5 15. b3 Hb4 11. Bxb5 Ba6 16. Hfel Df8 12. Bxa6 Hxa6 17. De2 Ha7 13. 0-0 Da8 18. Rd2! 14. Hacl Hb8 (Karl hefur með nokkrum hnit- miðuðum leikjum útilokað allt mótspil og getur hafist handa við aðgerðir kóngsmegin.) 18. .. h6 23. f4 gxf4 19. Be3 Re5 24. hxg4 Rg6 20. h3 g5 25. dxe6 fxe6 21. a4 Ha8 26. Khl! 22. h3 e6 t g h 31. Dg2! (Nú strandar 31. .. Hb4 á 32. Bxc5.) 31. .. Kh8 32. Dxe4 Bxc3 33. Bxc5! - og Dueball gafst upp í því 33. .. Dxc5 strandar á 34. Dxa8plús og mátar. Hann getur huggað sig við að a-peð Karls varð þó altént ekki að drottningu sem er u.þ.b. það neyðarlegasta sem fylgis- menn Benkö-bragðs lenda í. 4. borð: Eric Lobron - Hannes Hlífar Stef- ánsson Grúnfelds vörn 1. d4 Rf6 2. c4 g6 3. Rc3 d5 4. cxd5 Rxd5 5. e4 Rxc3 6. bxc3 Bg7 7. Rf3 c5 8. Hbl 0-0 9. Be2 Rc6 10. d5 Re5 (Hannes hefur varist atlögum Lo- bron af sannfærandi öryggi og lætur nú til skarar skríða. Með þessum leik hrifsar hann til sín frumkvæði.) 36. gxh5 Hxh5 37. Hb3 f5 38. exf5 (Vitaskuld ekki 38. e5 f4plús og e-peðið fellur.) 38. .. gxf5 39. Hf3 Kf6 40. Hf4 Bd7 41. Hel Hh8 42. Kf2 Hg8 43. Bdl Hfg7 44. Bf3 Hg3 (Hvítur stendur frammi fyrir hartnær óyfirstíganlegum erfið- leikum því hrókurinn á f4 er í sjálfheldu. Næsti leikur Lobrons bætir ekki úr skák.) 45. d6? H8g7! 46. h5 Hh3 47. Hal (Gefur kost á þvingaðri vinnings- leið en staðan var töpuð því hvít- ur var nánast leiklaus.) 11. Rxe5 Bxe5 12. Dd2 b6 13. f4 Bg7 14. c4 e5 15. Bb2 exf4 16. Dxf4 De7 17. 0-0 Bd7 18. Bd3 Bxb2 19. Hxb2 f6 20. Hbf2 (Sovétmaðurinn Khalifman bauð mér jafntefli að þessum leik lokn- um í 8. umferð opna New York- mótsins sl. vor. Við Hannes höfðum farið yfir helstu leiðir í Grúnfelds-vörninni fyrir þessa skák og þar kom þessi staða upp. Hvítur hefur meira rými en peð- astaða hans er frekar óheilbrigð.) 20. .. De5 21. h4!? (Hvítur getur vitaskuld þvingað fram jafntefli með 22. Dxe5 fxe5 23. Hf6 Hxf6 24. Hxf6 Kg7 24. Hd6 Hd8 25. Be2 Kf7 26. Bg4 Ke7. 27. Hxd7plús Hxd7 28. Bxd7 og peðsendataflið er jafn- tefli. Það er ekki stíll Lobrons að tefla svo litlaust.) a b c d e f g h 47. .. Ke5! 48. Ke3 Bc6 49. Hdl Hg2! 50. Hd5plús (50. Hfl var skárra en breytir ekki niðurstöðunni. Hins vegar strandaði 50. d7 á 50. .. Bxö 51. Hxf3 f4 53. Kd3 Hxf3 mát!) 50. .. Bxd5 51. cxd5 Hg7 52. Hc4 Kxd6 - og Lobron gafst upp. Bikarúrslit á sunnudag Það verða sveitir S. Ármanns Magnússonar Reykjavík og Landsbréfa (áður Forskots) sem spila til úrslita í Bikarkeppni Bridgesambands íslands 1990. Sveit S. Ármanns sigraði sveit Ásgríms Sigurbjörnssonar frá Siglufirði í 3. umferð keppninnar á laugardeginum, með miklum mun. Daginn eftir voru spilaðar undanrásir og mættu þá liðsmenn sveitarinnar Samvinnuferð- um/Landsýn. Sá leikur var jafn, eftir sviptingar í upphafi leiks. Eftir 10 spil áttu þeir ferðafélags- menn 24 stig (17-41) en eftir 20 spil stóðu leikar 63-56 fyrir Ár- mann. Eftir 30 spil var staðan orðin 88-78 og allt gat gerst. Síð- ustu lotuna unnu svo Samvinnu- ferðir með 21-30 en töpuðu leiknum 108-109. Nokkuð jafnt. í hinum undanrásaleiknum áttu Landsbréfin við Sigurð Sigurjónsson úr Kópavogi, sem hafði er hér var komið sögu, lagt að velli stigaháar sveitir. Sá leikur þróaðist þannig: Eftir 10 spil átti Sigurður 9 stig til góða (29-20). Eftir 20 spil var Sigurður enn með forystu (44-39) og útlit fyrir spennandi leik. Næsta lota breytti í engu því útliti, því þá var staðan 69-74 Landsbréfum í vil. Gengi bréfanna hækkaði lítillega í síðustu 10 spilunum og lokastað- an varð 88-119, Landsbréfum í vil. Sterk andstaða hjá Sigurði, en í leikinn vantaði einn liðs- manna hans og varð því varamað- ur að hlaupa í skarðið. Liðsskipan sveitanna sem spila til úrslita er: S. Ármann Magnús- son, Ólafur Lárusson, Sigmar Jónsson, Hermann Lárusson, Jakob Kristinsson, Friðjón Þór- hallsson og Óli Már Guð- mundsson. Landsbréf: Magnús Ólafsson, Jón Þorvarðarson, Aðalsteinn Jörgensen, Jón Baldursson, Val- ur Sigurðsson og Sigurður Vil- hjálmsson. Þeir Ólafur, Hermann, Jakob og Magnús í sveit Landsbréfa, spiluðu einnig til úrslita í Bikar- keppni BSÍ á síðasta ári, en töp- uðu þá fyrir Tryggingamiðstöð- inni. Úrslitaleikurinn hefst kl. 10 árdegis á Hótel Loftleiðum næsta sunnudag (7. október). Spiluð verða 64 spil. Tímasetning leiksins er: Spil 1-16: 10-12.15. Spil 17-32: 12.30-14.45. Spil 33- 48: 15.30-17.45 og spil 49-64: 18- 20.15. Leikurinn verður sýndur á sýn- ingartöflu en keppendur munu notast við skerma í leiknum. Hvaða atriði í bridgeleiknum er mest vanmetið? Smáspilin? Lítum á dæmi um hið gagn- stæða: S: Á1087 H: - - - T: Á763 L: Á10985 S: 6 S: D5 H: ÁG63 H: KD1094 T: K104 T: D92 L: K7432 L: DG6 S: KG9432 H: 8752 T: G85 L: - - - Lokasamningurinn er 5 spaðar í Suður. Útspil Vesturs er Iaufa- þrír, tekið á ás og tígli hent í heima. Þá meira lauf og trompað með tvist. Hjarta trompað í blindum, lauf trompað heim og meira hjarta, trompað í borði. Lauf úr borði, Austur trompaði með spaðadrottningu og Suður yfirtekur með spaðakóng. Þriðja hjartað trompað í borði og ás í tígli lagður niður. Vestur lét kónginn undir ásinn. Nú kom fimmta laufið úr borði og Austur trompaði með spaðafimmu og Suður yfirtók með spaðaníu. Síð- asta hjarta sagnhafa var trompað með ásnum í blindum. Nú var ekkert eftir nema tígull í borði, sem var spilað og Austur stakk upp drottningu. I tveggja spila endastöðu átti sagnhafi G-4 í trompi, en Austur átti út og skyndilega var spaðasexan í Vest- ur stórveldi (promotion-staða eða upplyfting). Athyglisvert er í þessu spili, að í 7 slögum af 13 voru slagirnir unnir með tíu eða smærri spilum. Það þarf ekki að fara mörgum orðum um árangur parsins í N/S fyrir þetta spil, sem kom fyrir í meistarakeppni USA í tví- menningskeppni 1949. Hreinn botn þar á ferðinni, því allir sagn- hafnar unnu 12 slagi nema aumingja Suður í þessu spili. Ekki vanmeta spilin sem ykkur eru gefin. Síst smáspilin. Og Akureyringar gangast fyrir Opnu stórmóti helgina 26.-27. október (hefst á föstudegi og lýk- ur á laugardegi). Mjög góð verð- laun eru í boði. Olafur Lárusson 14 SÍÐA-NÝTT HELGARBLAÐ Föstudagur 5. október 1990

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.