Þjóðviljinn - 05.10.1990, Síða 7

Þjóðviljinn - 05.10.1990, Síða 7
Siglt um leið og skipið er smíðað Ágætlega góðir möguleikar eru taldir á því að hefta út- breiðslu alnæmis á Islandi. Besta vömin er ennþá smokkur- inn, nema ef væri einlífið Landsáætlun Nefndin hefur unnið í tvö ár og gert tillögu um Landsáætlun um alnæmisvamir til heilbrigðis- ráðherra, Guðmundar Bjamason- ar. Nefhdin telur að við Islending- ar eigum góða möguleika á að hefta útbreiðslu alnæmis. Felst það í því að hér á landi sé hátt menntunarstig, öflug fjölmiðlun, og að reynsla fyrri ára af við- brögðum þjóðarinnar við aimarri heilsuvá, berklum, gefi fyrirheit um að ná megi góðum árangri með skipulögðum aðgerðum. Alnæmi er hinsvegar ekki berklar og gilda um alnæmið önn- ur lögmál. Helsta baráttutækið er og hefúr verið fræðsla. Það er þó miserfitt að ná til hinna ýmsu hópa í þjóðfélaginu eftir almenn- um áróðursleiðum - sem í flest- um tilvika em fjölmiðlar. Það er síðan ef til vill erfiðast að ná til þeirra hópa sem eiga mest á hættu að smitast af alnæmi, svo sem fikniefnaneytenda. Helst næst til slíkra aðila þegar og ef þeir koma til meðferðar. Þannig er hægt að ræða við einstaklinginn sjálfan utan allra áróðursleiða og telur Gunnar Sandholt, deildarstjóri Félagsmálastofnunar Reykjavík- urborgar, en hann situr í lands- nefndinni, slíkt árangursríkast. Vitneskjan fyrir hendi Samt þarf stöðugt að standa í áróðursstarfi því á hverju ári bæt- ist við árgangur ungs fólks sem annaðhvort byijar að hugsa um kynlíf ef ekki líka að stimda það. Það má því alls ekki slaka á í þeim efnum. Þrátt fyrir það er ekki víst að áróðursstarfið skili miklu meiri árangri en ffæðslunni einni. Samkvæmt könnun sem gerð var erlendis kom í ljós að 90 prósent fólks sem efndi til skyndikynna vissi fullvel um hættuna af alnæmi, hinsvegar notuðu einungis 30 prósent að vinna gegn útskúfun smitaðra og fordómum í þeirra garð. Alnæmisfarsótt Á íslandi eru 55 smitaðir af HIV- veirunni svo vitað sé. Þar af hafa 14 mælst með alnæmi. Af þeim hafa 8 einstaklingar látist. Þetta er nokkuð hærra hlutfall en í sumum nágrannalöndum okkar. Samkvæmt þessu eru 56 af hverri miljón íbúa haldnir alnæmi á lokastigi á íslandi. Sambærileg tala er rúmir 12 fyrir Finnland, 52 fyrir Svíþjóð, 38 í Noregi en 80 í V- Þýskalandi, 121 í Danmörku sótt er að ræða. En það má veija sig. Einsog alltaf er verið að benda á: með því að nota smokkinn. Nú, ekki er síðan verra að vanda valið á ból- félögum og jafnvel stilla íjölda þeirra í hóf. Vandamálið við farsótt af þessu tagi er að það er hlutfallsleg aukning á smittilfellum. I nokkr- um borgum Afrikuríkja eru þess dæmi að 10 til 15 prósent íbúanna séu sýktir af alnæmisveirunni. Á næstu árum gæti þessi tala hækk- að gífurlega. Dreifing smits í Suður-Ameríku er nú farin að líkjast því sem þekkist í Afríku. Hverjir smitast? Flestir þeirra sem hafa fengið alnæmi i Bandaríkjunum og Evr- ópu eru hommar og flkniefna- neytendur sem sprauta sig, kemur fram í skýrslu sein landsnefndin vann. I Afríku háttar öðruvísi til því að þar eru flestir hinna smit- uðu gagnkynhneigðir, bæði karlar smokkinn. Hvað hin 60 prósentin voru að hugsa þurfa áróðusmeist- arar Landsáætlunar um alnæmi- svamir að komast að svo bregðast megi við því með bættum áróðri. Forvarnarleiðir Alnæmi mældist fyrst í Bandarikjunum 1981 en hér á landi hófst baráttan gegn alnæmi árið 1983. Fyrst áttuðu menn sig á smitleiðunum og komust að því að það er í raun og veru ekki auð- velt að smitast. Kossar nægja t.d. ekki. Næst var tekið til við að uppfræða almenning um þessar smitleiðir og það er starf sem sí- fellt þarf að inna af hendi. Smit- hætta er bundin við blóð og sæði. Meðan ekki finnst bóluefiii er helsta vömin gegn alnæmi upp- fræðsla. Á blaðamannafundi í gær líkti Guðjón Magnússon aðstoð- arlandlæknir fyrstu ámnum í al- næmisbaráttunni við það að menn væm að sigla skipinu á sama tíma og verið væri að smíða það. Eftir starf Iandsnefndarinnar telur hann þó að nú hafi menn teikningar til að fara eftir. Tilgangurinn með Lands- áætluninni, sem nefndin lagði til, er að vera leiðbeinandi við ákvarðanir um aðgerðir gegn al- næmi og forgangsröð aðgerða. Einnig að samhæfa krafta jafn ólíkra aðila - sem vinna að al- næmisvömum - og ríkisins, sveitarfélaga, kirkju og félaga- samtaka, t.d. Samtakanna 78. Markmiðið er ekki einungis að draga úr útbreiðslu alnæmis á íslandi, heldur líka að tryggja sjúkum heilbrigðisþjónustu, að- hlynningu og félagslegan stuðn- ing. Og síðast en ekki síst er markmiðið með Landsáætluninni og konur. Þar sem svipuð þróun á sér stað í Suður-Ameríku er ljóst að Islendingar geta ekki talið al- næmi einkamál homma og flkni- efnaneytenda. Á blaðamannafundinum kom fram að forráðamenn hafa nokkr- ar áhyggjur af fólki sem ferðast t.d. til Spánar og Italíu og hafa því látið útbúa veggspjald þar sem spuminpm: „Hvar er næsti smokkasali?“ birtist á 20 tungu- málum. Þessu er dreift á ferða- skrifstofum. En menn óttast að Is- lendingum erlendis hætti til að kaupa blíðu eiturlyfjaneytenda sem gjaman selja sig ódýrt til þess að kaupa fíkniefni. Þetta fólk er mjög gjaman smitberar. Þann- ig væri verið að flytja sjúkdóminn inn í landið. Einnig má benda á að á ís- lenskum skemmtimarkaði fer kynlíf oft saman með áfengi og ef til vill muna menn ekki eftir aug- lýsingunum um að nota smokkinn fyrr en daginn eftir. En þá er of seint að byrgja brunninn. Það er engin lækning til við alnæmi. Ekki enn. -gpm og 173 í Frakklandi, svo séu tekin. Talið er að smit af völdum al- næmis hafi haflst hér á landi 1980 og samkvæmt mismunandi reikniaðferðum kunni 200 til 400 einstaklingar að vera smitaðir af HlV-veirunni. Sjúkdómurinn hef- ur nú greinst í 152 þjóðlöndum og voru skráð sjúkdómstilfelli á lokastigi 204.000 í heiminum við síðustu áramót en eru í raun mun fleiri, sérstaklega í Afríku. Al- þjóðaheilbrigðisstofhunin telur að 600.000 manns hafi fengið al- næmi nú þegar, að í árslok 1991 hafi þeim fjölgað um helming og um aldamótin telur stofnunin að 5-6 miljónir muni hafa fengið sjúkdóminn á lokastigi. Af þess- um tölum má ljóst vera að um far- Smokkurinn er besta vömin gegn alnæmi. Það er líka ágætt að láta vera að sprauta sig með fíkniefnum. Mynd: Kristinn Það er ekki hægt að lækna alnæmi. Það er hægt að draga úr einkennum og tefja framgang sjúkdómsins með lyfjum og bólu- efni, annað ekki. Talið er að a.m.k. 10 ár sé í að bóluefni gegn al- næmi finnist. Því telur Landsnefnd um al- næmisvarnir forvarn- arstarf vera mikilvæg- asta þáttinn í barátt- unni gegn útbreiðslu alnæmis. Föstudagur 5. október NÝTT HELGARBLAÐ — SÍÐA 7

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.