Þjóðviljinn - 05.10.1990, Síða 8
NÝTI
þJÓDVILIINN
Útgefandi; Útgáfufélag Þjóðviijans Framkvæmdastjóri: Hallur Páll Jónsson Ritstjóran Ami Bergmann, Ólatur H. Torfason Umsjónarmaður Helgarblaðs: Ragnar Karlsson Afgreiðsla: «681333 Auglýsingadeild:« 68 Sfrnfax: 6819 35 Verð: 150 któnur í lausa 1310-681331 sölu
ÚUIt: Þröstur Haraldsson Auglýsíngastjórí: Steínar Harðarson Prentun: Oddl hf. Aðsetur: Síðumúla 37, íntsmlð$a ÞJóöviljans hf. 08 ReyJ^avíK
Málgagn sósíalisma, verkalýðshreyfingar og þjóðfrelsis
Mjúkar og harðar spurningar
Spumingum sem vakna nú sem örast vegna
álmálsins og aðferðanna í því má að hluta skipta
í tvennt. Hörðu spumingamar varða stjómmála-
þróunina sjálfa og þau misköldu ráð sem þá er
einatt gripið til í því skyni að ráða heildarþróun
mála. Mjúku spumingamar snúast um hreina
upplýsingaþætti, sem auðvelda gagnlega
ákvarðanatöku og skoðanamyndun, ekki síst hjá
almenningi.
Skýr svör við hörðu spumingunum um stjóm-
arsamstarfið núna og einstakar uppákomur í því
gætu gefið landsmönnum skýra mynd af því
hvaða undirstraumar liggja í þjóðmálunum núna.
Hvers vegna leggurt.d. Jón Sigurðsson iðnaðar-
ráðherra ofurkapp á undirritun áfanganiðurstöðu
með fulltrúum Atlantsáls, þegar fyrir liggur að
þingflokkur Alþýðubandalagsins lítur á slíkt sem
ögrun við stjómarsamvinnuna og Landsvirkjun
treystir sér heldur ekki til að fallast á drög að orku-
sölusamningnum? Hvers vegna halda ráðherrar
Alþýðuflokksins leynifund með forystumönnum
Sjálfstæðisflokksins um hugsanlegar aðferðir til
að samþykkja álversfrumvarp?
Felst svarið í þeirri yfirlýsingu Áma Gunnars-
sonar alþingismanns á kjördæmisráðsfundi Al-
þýðuflokksins á Norðuriandi eystra um daginn,
að Sjálfstæðisflokkurinn og Alþýðuflokkurinn
ættu að gefa út yfiriýsingu um að þeir stefndu á
samstarf í nýrri „viðreisnarstjóm“ að loknum
næstu þingkosningum? Það er hörð og afdrifarík
spuming, hvort Alþýðuflokkurinn ætlar sér nú fýr-
ir flokksþing sitt um næstu helgi að hafa tendrað
kveikiþráð stjómarslita og uppgjafar í vinstra
samstarfi hériendis.
Mjúku spumingamar, sem ætlað er að leiða í
Ijós, hver erfarsælasta ákvörðun okkar í stóriðju-
málum, eru býsna margbrotnar. Komið er á dag-
inn, að orkuverð það sem rætt hefur verið í
samningsumleitunum er miklu lægra en meðal-
verð til álvera í vestrænum löndum um þessar
mundir. í bókunum frá fulltrúum Framsóknar-
flokks og Alþýðubandalags á stjómarfundi
Landsvirkjunar í gær kemur það fram að þeirtelja
útilokað að ganga að orkusölusamningnum við
Atlantsál samkvæmt þeim drögum sem iðnaðar-
ráðherra hefur tekið þátt í að undirbúa í skoti
sínu.
Áhættan er mikil, engin endurskoðunar-
ákvæði hafa verið mótuð og þættir sem varða
umhverfismál eru ómótaðir.
Svarið við hörðu spumingunni um ofurkapp
iðnaöarráðherrans og makkið með Sjálfstæðis-
mönnum gæti byggst að hluta á þessum stað-
reyndum. Iðnaðarráðherra veit auðvitað sjálfur
að engirfuiltrúar íslendinga munu gefa grænt Ijós
á samningaviðræður undir þeim formerkjum ein-
um sem nú eru uppi. Miklu skýrari línur þarf til
þess að nokkur áræði að binda eitt né neitt. En
með því að láta að því liggja að Alþýðubandalag-
ið sé hér að tefja fyrir framfaramáli, er reynt að
bregða á það ófrýnilegri ímynd.
Liggi nú iðnaðarráðherra og utanríkisráð-
herra á að sprengja þessa ríkisstjóm og leita
samstarfs við Sjálfstæðisflokkinn, gæti það sýnst
klókt að nota þessa aðferð.
En hætt er við að of margir sjái í gegnum
hana.
Framkvæmdastjóm Verkamannasambands
íslands ítrekaði á fundi sínum í vikunni ályktun
15. þings sambandsins, þarsem lýst erstuðningi
við hugmyndir um nýtt álver og annan orkufrekan
iðnað. En Verkamannasambandinu er ekki sama
á hvaða forsendum það er gert. í ályktuninni eru
einmitt sömu fyrirvaramir og nú eru uppi hafðir af
þeim sem undrast kapp iðnaðarráðherrans og
vilja fá nánari upplýsingar áður en þeir fallast á
næstu áfanga. Verkamannasambandið leggur
áherslu áfullnægjandi orkuverð, umhverfisvemd,
byggðajafnvægi og að stóriðjufyrirtækið lúti ís-
lenskum lögum.
Upplýsingaskorturinn sem allir kvarta undan
varðandi ýmis höfuðatriði álsamninganna, orku-
verð, arðsemispár, áhættuna, umhverfismálin og
endurskoðunarmöguleikana, samanlagt er þetta
hvellhettan í þeirri sprengingu sem Alþýðuflokk-
urinn vill geta framkvæmt þegar hann lystir.
ÓHT
Þióðviliinn
Helgi Guð-
mundsson
ritstjóri
Helgi Guðmundsson var í gær
ráöinn ritsljórí við Þjóðviljann, en
þær breytingar hafa orðið á rit-
stjóm blaðsins, að Ami Bergmann
hcfur tckiö að sA- -
vía M' • "
V\€> HMEWVA BJÖSTU ÞE6AR
HÉR VAR SA6T A£> ÞVRPTÍ
AÐ KOfAA FjÁRHA£»NUM 1 LA6?
HÉRNA - tájÖRSOVEL....
8 SÍÐA — NYTT HELGARBLAÐ Föstudagur 5. október 1990