Þjóðviljinn - 05.10.1990, Side 17
ELG ARMENNIN GIN
Guðrún Gunnarsdóttir og Sigrún Eldjám (kjallara Norræna hússins þar sem þær sýna saman um þessar mundir. Myndir. Kristinn.
Myndlist
Ahrif frá náttúru landsins
Guðrún Gunnarsdóttir og Sigrún Eldjám sýna saman í kjallara Norræna hússins
Um síðustu helgi opnuðu þær
stöllur Sigrún Eldjárn og Guð-
rún Gunnarsdóttir samsýningu
í kjallara Norræna hússins.
Guðrún sýnir veínað og verk
unnin úr handunnum pappír, og
eru verkin byggð á hugmyndum
sem eru sprottnar af frumstæðri
list og hijóstrugri náttúru lands-
ins. Sigrún sýnir málverk máluð
með olíulitum á striga. Myndir
hennar eru, líkt og verk Guðrúnar,
unnar eftir hugmyndum eða
minningum af veru úti í náttúru
landsins.
Ólíkum verkum
tefIt saman
Verk þeirra Sigrúnar og Guð-
rúnar eru ólík á að líta. Því lá
beinast við að spyija þær af
hveiju þær sýndu saman.
Sigrún: Við höfúm sýnt sam-
an áður, fyrir tveimur árum á
Kjarvalsstöðum. Verkin eru ólík,
en mér finnst Guðrún vera að gera
góða hluti, og einmitt vegna þess
að verk okkar eru frábrugðin er
skemmtilegt að tefla þeim saman.
Jarðeldur kallar Sigrún þetta ollu-
málverk. Myndefni hennar er fólk og
form [ landslagi.
Myndefni olíuverka minna á
sýningunni er landslag með ein-
hveijum skrítnum formum, eða
steyptum báknum. Auk þess er
alltaf fólk í myndunum, sem virð-
ist vera að fúrða sig á þessum ein-
kennilegu báknum. Þau eru þó
ekki endilega slæm, þótt hver geti
gert það upp fyrir sig. Ég er að
mála landslag og mannanna verk
í þvi. Þetta er ekki neitt sérstakt
landslag, heldur stílfæri ég það
sem ég hef séð á ferðum mínum
um landið.
Myndimar hanga nokkrar
saman, sumar stórar, aðrar litlar.
Ég útfæri sömu hugmyndina á
nokkra mismunandi vegu, og það
kom af sjálfú sér að ég hengdi
þær upp saman á sýningunni,
þannig styðja þær hver aðra.
Guðrún: Ég er ekki að fást
við séstakt myndefni, verkin
verða einfaldlega til. Stundum
hefúr landslag áhrif á hugmyndir
mínar að verkum. Sum þeirra eru
greinilega undir áhrifum frá ís-
lensku landslagi, fjöllum og
bláma. Nöfnin á verkunum koma
síðan ekki fyrr en síðast.
Mér þykir gaman að blanda
saman ólíkum efnum, eins og ég
hef gert í mörgum verkanna á
þessari sýningu. Ég nota t.d. tijá-
Hringur kallast þetta verk Guðrúnar.
Hún sýnir vefnaö og verk unnin (
handunnin papplr.
greinar með ull, og hamp og ull
Alliance Francaise
Látbragðsleikur
Laurent Decol flytur Timoleon Magnus á Litla sviði Þjóðleikhússins
íslenskum áhorfendum gefst
sjaldan kostur á að sjá lát-
bragsleik og því ætti nú að
hýrna yfir þeim sem hafa gam-
an af siíkum leik. Hingað til
lands er kominn franskur lát-
bragðsleikari að nafni Laurent
Decol, og mun hann sýna verk-
ið Timoleon Magnus á Litla
sviði Þjóðleikhússins á sunnu-
dag og mánudag kl. 20.30.
Laurent Decol lærði hjá ein-
um frægasta látbragsleikara allra
tíma, Marcel Marceau, og ku
Laurent þessi hafa verið eftirlæt-
isnemandi meistarans.
Að sögn þeirra sem til þekkja
gætir áhrifa Chaplins, Keatons og
Tatis hjá Decol. Hann hefiir farið
ótroðnar slóðir i list sinni, og
víkkað takmörk látbragðsleiksins
með því að nálgast áhorfendur og
fá þá til að vera þátttakendur í
þeim sögum sem hann túlkar.
Decol hefúr ánægju af því að
vekja viðbrögð hjá áhorfendum
og þeir sem hann hafa séð á sviði
segja að ekki standi á þeim.
Laurent Decol hefúr starfað
með fjölda þekktra látbragðsleik-
ara, m.a. Marcel Marceau sjálf-
um, Peter Shumann, Jacques
Fomier, Dimitri og Yves Le Bret-
on.
Sýninguna Timoleon Magn-
us, sem íslenskum áhorfendum
býðst nú að sjá, hefúr Decol flutt
mörg hundmð sinnum um heim
allan. Hún fjallar í stuttu máli um
einfarann Timoleon og giímu
hans við veröldina, þar sem allt
gengur of hratt fyrir sig. Áhorf-
endur fylgjast með lífi hans frá
vöggu til grafar, og flestir ættu að
kannast við það sem á vegi hans
verður í Hfinu.
Timoleon ferðast um á putt-
anum, gerist fimleikamaður,
rokkari, innbrotsþjófúr og lýkur
æviferlinum fyrir dómstólum.
Miða á sýningu Laurents
Decols er að fá á bókasafni Alli-
ance Francaise við Vesturgötu 2
og við innganginn.
saman. Nú sýni ég auk þess papp-
írsverk í fyrsta skipti, en pappír-
inn bý ég sjálf til í höndunum.
Ef hægt er að finna eitthvað
sameiginlegt með okkur Sigrúnu
þá er það helst að við erum báðar
að fást við náttúruna, en verk mín
eru abstrakt. Kannski mætti segja
að við séum báðar að fást við and-
stæðumar auðn og gróðurlendi.
Sýning Guðrúnar og Sigrúnar
var opnuð 29. september síðast-
liðinn og stendur til 14. þessa
mánaðar. BE
Tónleikar
Selló-
leikarinn
Pinto
Á morgun, laugardaginn 6.
október, heldur þýsk-brasilíski
sellóleikarinn Matias de Oliveira
Pinto tónleika ásamt Þorsteini
Gauta Sigurðssyni pianóleikara og
Guðna Franzsyni klarinettuleikara
í Ytri-Njarðvíkurkirkju kl. 16.
Tónleikamir verða síðan endur-
teknir i Listasafni Siguijóns Ólafs-
sonar úti á Laugamestanga á
sunnudagskvöldið kl. 20.30.
Á efnisskrá tónleikanna er
sónata í e-moll op. 38 eftir Johann-
es Brahms og trió fyrir klarínettu,
selló og pianó eftir A. Zemlinsky,
auk verka eftir Francoer og J.M.
Zenamon.
Það er Caput-hópurinn í sam-
vinnu við Goethe-stofnunina sem
stendur að komu Pintos hingað til
lands.
Föstudagur 5. október 1990 NÝTT HELGARBLAÐ — SÍÐA17