Þjóðviljinn - 12.10.1990, Blaðsíða 23

Þjóðviljinn - 12.10.1990, Blaðsíða 23
Hljómsveit Konráðs Bé er hinn viröu- legasti mannsöfnuður. Vondir strákarog frakkar stelpur John Waters þykir ekki fara hefð- bundnar leiðir í kvikmyndagerð. Þegar þessi sérvitringur gerir unglingamynd er það auðvitað allt öðruvísi unglingamynd en allir aðrir hafa gert, eins og þeir vita sem sáu „Cry Baby“. Tónlistin sem leikin var í „Cry Baby“ er merkileg. John Waters segir að með því að hlusta á þessa hormónatruflandi tónlist frumrokksins, heyri fólk þá tóna sem gerðu hann að vondum strák. Þetta sé tónlist sem fari ágætlega undir fatapóker eða „kjúk- lingaleik", fremur hættulegum leik sem stundaður var vestra og fólst í því að tveim bílum var ekið hvorum á móti öðrum á miklum hraða og sá sem vék var kjúkling- urinn, eða heigullinn. Öll lögin á „Cry Baby“ plötunni eiga það sameiginlegt að þau voru lítið spiluð í útvarpi. Þau þóttu vekja upp tilfmningar sem ekki voru innan marka siðgæðisins. Engu að síður seldust þau í miljónum ein- taka á 45 snúninga plötum. Helstu kaup- endur voru búllueigendur sem keyptu plöt- umar í glymskrattana sína. Þetta var tónlist sem gerði jafnvel siðsömustu stúlkur að vondum og frökkum stúlkum sem klæddu sig í þrönga boli og kýldu löggur með hnú- um en ekki flötum lófa, svo að þær brytu ekki neglumar. Mörg laganna a „Cry Baby“ eru vel þekkt hér á landi. Þar má nefna titillagið „Cry Baby“, „Teardrops Are Falling" og „Mister Sandman". Önnur minna þekkt lög em þræl skemmtileg. Mest held ég upp á „Bad Boy“, þar sem andi sjötta áratugarins svífur yfír vötnum í öllu sínu veldi. Þá er „King Cry Baby“ einnig góður fmmrokk- ari. „Cry Baby“ er tilvalin til að kynna sér rætur rokksins á skemmtilegan hátt. -hmp John Waters, tónlistin sem gerði mig vondan. Mynd: Jim Smart. sveit væri komin ffam á sjónarsviðið. Frumraunin var fremur yfirveguð plata, sem bar fagmannlegt yfirbragð. Hins vegar var erfitt að sjá hvert hljómsveitin myndi þróast og raunar var mjög erfitt að staðsetja Decon Blue í hrepp með öðmm grúppum. A fmmdögum Decon Blue vom almennir straumar í allt aðra átt en Ross stefndi. Það var ekki fyrr en ég var svo lánsam- ur að sjá Decon Blue á sviði, að ég áttaði mig á að hér var sérstök stemmning á ferð- inni, stemmning sem aðrar hljómsveitir leituðust ekki við að skapa. Meðlimir hljómsvitarinnar em mjög færir hver á sínu sviði og saman myndar hópurinn sterka heild. Sviðsútsetningar Decon Blue em þannig, að maður gæti haldið að allt liðið mæmaði tónlistina af vandlega gerðum stúdíóupptökum. „When The World Knows Your Name“, sem kom út í fyrra, staðfesti að De- con Blue var komin til að vera í hópi metn- aðarfyllstu rokksveita sem varanlegt fyrir- bæri en ekki tímabundið. Platan varð að vísu ekki í allra eymm eins og það popp sem mest er íjölfaldað, en einstök lög, eins og „Fergus Sings The Blues“, náðu þó að rjúfa múrinn sem umlykur postula útvarps- stöðvanna. „Wlien The World...“ var að- eins rokkaðri en „Raintown" og minna heilsteypt. Vænlegum vaxtarbroddum hafði fjölgað og fyrirheit gefin um nánast hvað sem var. Síðan gerist það fyrir skömmu að De- con Blue sendir frá sér tvöfalda plötu, „Ooh Las Vegas“. Þama er í sjálfu sér ekki um nýja plötu að ræða, þótt megnið af efn- inu hafi ekki verið gefið út í massavís áður. Hér er um að ræða safn laga sem fyllt höfðu B-hliðar smáskífna ffá upphafi fer- ilsins, eða verið þriðja lag á slíkum skífum. Einnig em á „Óoh Las Vegas“ lög sem vom á tvöfoldu safnplötunni „Riches“, sem pressuð var í 20 þúsund eintökum og dreift með „Raintown“. í dag selst sú plata í end- ursölu fyrir lágmark íjögur þúsund krónur. Vegna þessara vinsælda var ákveðið að næst þegar slík safnplata yrði gerð, yrði hún framleidd í stærra upplagi. Decon Blue hefúr alla tíð haft þá steftiu að á hverri smá- skífu sé lag sem ekki er að finna á breið- skífu. A sjöunda áratugnum var svipuð stefna uppi og var lagið á B- hliðinni jafn- an tormeltara en lagið á A-hliðinni. Það var algengt að hljómsveitir gerðu stefnutil- raunir á B-hliðum. Síðar þynntist þessi við- leitni út og lögin sem völdust á B-hlið vom lög sem menn vom hræddir við að bjóða upp á á stómm plötum, lög sem mætt höfðu afgangi. Decon Blue hefur hins vegar allan sinn feril verið vandlát þegar kemur að því að velja lög á B-hlið. „Ooh Las Vegas“ er safn laga sem endurspeglar á köflum aðra hlið á hljómsveitinni en breiðskífumar gera. Alls em tuttugu og þijú lög á plötunni, mjög fjölbreytileg í stíl. í grófúm dráttum má þó setja plötuna i hefðbundna skiptingu ró- legra laga og rokkaðra. Fagmennskan nýtur sín betur í rólegu lögunum og má úr þeirri deildinni nefna gæðalög eins og „Back Here In Beanoland" og „Gentle Tear- drops“. Decon Blue er erfiðara um flug í rokkaðri lögunum, en er samt sem áður sér á báti í þeim efnum og skratti góð þegar maður er í því skapinu. „Raintown“ og „When The World Knows Your Name“, em hvor tveggja plöt- ur í töluverðu uppáhaldi. „Ooh Las Vegas“ slær þó báðum þessum plötum við. Það sem er sérstaklega skemmtilegt við Decon Blue er að maður þykist greina áhrif og skyldleika mjög víða. Þannig finnst manni lagsmær Ross, Lorraine Maclntoch, stund- um minna á Björk Guðmundsdóltur í söng sínum og í undirleiknum kemur fram skyldleiki við eins ólíkar hljómsveitir og Gong og The Smiths, svo eitthvað sé nefnt. Eins má finna austurlensk áhrif í ætt við Sakamoto, djassáltrif í bassaleik Ewans Vemals og anda heiðaþokunnar eins og Clannad túlkar hana. Decon Blue er samt engin eflirlíking af tónlist annarra, heldur sérstakur tónn sem gleymist ekki svo auð- veldlega þegar hann hefúr laumað sér inn um hlustir manns. -hmp Decon Blue er hljómsveit sem stöðugt vex í áliti. Það liggja engin ósköp af efni eftir þessa fjölskrúðugu hljómsveit, en það sem hún hefur sent frá sér er allt athyglinn- ar virði. Fyrsta breiðskífa Decon Blue, „Raintown", sem kom út árið 1987, mark- aði henni strax sérstakan bás meðal rokk- hljómsveita. Aðalforsprakki sveitarinnar heitir Rjc- ky Ross og kemur frá strangkristnu heimili í borginni Dundee, þar sem rokk var ekki beinlínis í hávegum haft. Eftir að hafa böðlast í störfum fyrir félagsmálastofnun þeirra í Dundee, sneri Ross sér engu að síð- ur að rokktónlistinni, sem hafði blundað í honum frá leynilegum stundum með systur sinni yfir Bítla- og Hendrix plötum. Eftir nokkurra ára tilraunir á eigin vegum og með hljómsveit sinni Woza, kom loksins að því að Ross hitti rétta fólkið og fékk rétta samninginn. Decon Blue varð til og nokkru síðar fyrsta breiðskífan, „Ra- intown". Strax þá voru fiesfir rýnendur í rokk- tónlist sammála um að afar séstök hljóm- Hin hliöin á Decon Blue Blessog Konráð Bé Þanþolið í íslenskum hljómsveit- um er oftar en ekki mjög lítið. Ein- staka hljómsveitir lifa þó lengur en í nokkra mánuði eða nokkur ár og er hljómsveitin Bless dæmi um það. Bless hefur nýlega sent frá sér breið- skífu. Það er kannski táknrænt fyrir þá þróun sem hófst með Sykurmolunum, að nýja platan frá Bless, „Gums“, kemur fyrst út í Bandarikjunum og hefúr enn ekki borist í verslanir hér- lendis. Þegar hafa birst jákvæðar umsagn- ir um „Gums“ í bandarískum tónlist- artímaritum. Vikublöðin Rock Pull og CMJ hafa bæði farið jákvæðum orð- um um plötuna en mánaðarritin eiga enn eftir að birta sína dóma. I tilefni útgáfúnnar ætlar Bless að halda sérstaka útgáfutónleika í Kjall- ara Keisarans í kvöld. Það var mein- ingin að „Gums“ kæmi í verslanir hér- lendis í dag, en Gunnar söngvari og forsprakki Bless sagði dægurmálasíð- unni að af viðráðanlegum ástæðum myndi útgáfan dragast þangað til hann vissi ekki hvenær. Hljómsveitin nær því að öllum líkindum ekki að vera heima þegar platan loksins kemur ís- lendingum fyrir eyru, því Bless heldur í vesturveg á fimmtudaginn í næstu viku til tónleikahalds. Tónleikaferðin byijar í San Francisco og endar um það bil tuttugu og fimm tónleikum síðar í New York. Hljómsveitimar Rosebud og INRI og ef til vill kvenna- hljómsveitin Afródíta munu hita upp fyrir Bless. Annað kvöld verður síðan önnur tónlistamppákoma í Kjallara Keisar- ans. Þá mun hin tröllvaxna hljómsveit Konráðs Bé standa fyrir dansæfingu undir fallandi haustlaufi. Konráð Bé ætlar að kynna hina „glaðbeittu og eggjandi" rödd Bogomil Font, eins og það er orðað í tilkynningu um dansæf- inguna. En Font þessi mun dags dag- lega gegna nafninu Sigtryggur Bald- ursson. A dansæfingunni annað kvöld munu ýmsir gestir koma fram. Johnny Triumph þenur raddböndin og söng- dúettinn Limbó og Lísa leggur sitt lóð á vogarskálamar ásamt Pippi sem syngur og dansar. Þá munu nokkrir plötuþeytar skemmta gestum, ma. Afríka Pabríka Fabríka og Beatula. Kynnar kvöldsins verða Laddi Halli og Laddi. Konráð Bé kom fram á Borginni fyrir skemmstu með vinum og vanda- mönnum. Gjömingur þessi var vel sóttur og er mál fleslra að þama hafi verið hin besta skemmtun á ferðinni. I hljómsveit Konráðs Bé, sem er sviðs- nafn Braga Ólafssonar Sykurmola, em nokkrir vinir hans úr Molunum, Ham og Risaeðlunni og einhverjir fleiri. Tónleikamir í kvöld og annað kvöld hefjast klukkan 22 og er fólki ráðlagt að mæta tímanlega. -hmp Föstudagur 12. október 1990 NÝTT HELGARBLAÐ — SlÐA 23

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.