Þjóðviljinn - 27.10.1990, Side 7
Tilskipanir frá Gorbatsjov
Breytt gengi rúblu
r
Utlendingum heimiluð 100% eignaraðildfyrirtœkja og útflutningur gróða
MMíkhaíl Gorbatsjov, Sov-
étríkjaforseti, gaf út í gær
tilskipanir um breytt gengi
rúblunnar gagnvart dollarnum
og að erlendum fjárfestingarað-
ilum yrði heimilt að flytja gróða
sinn úr landi. Jafnframt er leyfð
samkvæmt annarri tilskipun-
inni 100% eignaraðild erlendra
aðila í fyrirtækjum i Sovétríkj-
unum.
Hið nýja gengi rúblunnar, sem
gildir í öllum viðskiptum, verður
1,8 rúblur á móti einum dollara,
en opinbera gengið, sem verður í
gildi formlega áfram, er 0,56
rúblur á dollar. Haft er eftir hátt-
settum sovéskum embættismönn-
um um íjánnál að gengisbreyting-
in þýði í raun gengisfellingu rúbl-
unnar, þar eð opinbera gengið
muni héðan af ekki hafa neitt gildi
í raun. Stjómin gerir sér vonir um
að gengisbreytingin muni greiða
verulega fyrir útflutningsverslun
Sovétríkjanna.
Hingað til hafa erlendir fjár-
festingaraðilar verjð hikandi við
að láta til sín taka í Sovétríkjun-
um vegna þess að þeir hafa ekki
mátt flytja gróða sinn þar úr landi,
auk þess sem þeir hafa ekki getað
eignast fyrirtæki þar eða orðið
Þekktur
fréttamaður
látinn
Einn af þekktari mönnum
heimspressunnar, Bretinn Michael
Goldsmith, lést á miðvikudag í
Grasse í Suður-Frakklandi, 68 ára
að aldri. Hann starfaði fyrir
bandarísku fréttastofuna Associat-
ed Press (AP) i 45 ár og fylgdist
öðru fremur með stríðum í Afríku
og Asíu.
Aður en hann gerðist ffétta-
maður starfaði hann í bresku
leyniþjónustunni í heimsstyijöld-
inni síðari. I þjónustu AP sendi
hann síðan fréttir frá stríðum í
Kongó- Kinshasa (nú Zaire), Als-
ír, Víetnam, Laos, Kambódíu,
Afganistan og Austurlöndum nær.
Ekki var það starf alltaf óþæg-
indalaust. Bokassa einræðisherra
Mið- Afríkulýðveldisins barði
þannig eitt sinn á Goldsmith í eig-
in persónu og hélt honum í fang-
elsi í mánuð árið 1977. Fyrir
tveimur mánuðum, er hann var í
Líberíu að fylgjast með borgara-
stríðinu þar, sætti hann barsmíð-
um af hálfú hermanna hins nú
látna Líberíuforseta, Samuels
Doe.
hluthafar í þeim nema í félagi við
sovéska aðila.
Gorbatsjov gaf einnig út í gær
tilskipun um hækkaða innstæðu-
vexti, í þeim tilgangi að hvetja til
spamaðar. Tilskipanir þessar allar
eru gefhar út í samræmi við sam-
þykkt æðstaráðsins nýlega um
aukin völd til handa Gorbatsjov.
Reuter/-dþ.
Viðskiptavinir ( brauðbúð f
Moskvu - með tilskipunum reynir
Gorbatsjov að örva utanríkisversl-
un og draga að erlent fjármagn tii
viðrétfingar illa á sig komnum
efnahag.
Slóvakía
Þjóðernissinnar reiðir
Vilja banna þjóðernisminnihlutum alla opinbera notkun
tungumála þeirra
Þing Slóvakíu samþykkti í
fyrrinótt að slóvakíska
skyldi vera eina opinbera
tungumálið í þeim hluta Tékkó-
slóvakíu eftir heitar umræður í
12 klukkustundir samflevtt.,
Þingmönnum Þjóðernisflokks
Slóvaka þótti þetta hinsvegar
ekki nógu langt gengið og gengu
af þingfundi í mótmælaskyni að
atkvæðagreiðslu lokinni.
Þingið samþykkti jafhffamt
að þjóðemisminnihlutar skyldu
áfram hafa rétt til nota tungumál
sín. Það var þetta, sem þingmönn-
um Þjóðemisflokksins mislíkaði
mest við frumvarpið, en þeir vildu
að í því væri þjóðemisminnihlut-
um bönnuð öll opinber notkun
tungumála þeirra. Fmmvarpið
lögðu ffam núverandi stjómar-
flokkar Slóvakíu, Almenningur
Havel - gamall og endurvakinn
urgur milli Tékka og Slóvaka er
stjórn hans áhyggjuefni.
gegn ofbeldi og kristilegir demó-
kratar. Greiddu 82 þingmenn at-
kvæði með ffumvarpinu, 52 á
móti og 10 sátu hjá.
Moldova
Gagásum hótað hörðu
ing sovétlýðveldisins
Moldovu, sem til skamms
tíma hét Moldavía, lýsti í gær
yfír neyðarástandi í þeim hluta
landsins, sem byggður er Gagá-
sum (Gagauz), tyrkneskum
þjóðflokki. í ágúst lýstu ráða-
menn Gagása, sem telja sitt fólk
misrétti beitt af stjórnvöldum
Moldovu, yfir sjálfstæði.
Jafnframt samþykktinni um
neyðarástand fyrirskipaði þingið
að stjómir í borgum og bæjum í
byggðum Gagása yrðu leystar
upp og skipaði nefhd til að stjóma
svæðinu. Gefið er i skyn að her-
sveitum kunni að verða beitt ef
Gagásar sýni mótþróa.
Veruleg hætta er nú talin á að
til óeirða komi og mannskæðra
átaka milli hinna ýmsu þjóðema
sem land þetta byggja. íbúar í
Moldovu em um 4,3 miljónir,
meirihlutinn Moldovar, sem eru
Rúmenar eða náskyldir þeim. Ga-
gásar eru um 150.000 talsins.
Reuter/-dþ.
Af um 15 miljónum íbúa
Tékkóslóvakíu em um níu milj-
ónir Tékkar og um fimm miljónir
Slóvakar. Af þjóðemisminnihlut-
um em Ungveijar fjölmennastir,
um 700.000, og búa þeir flestir í
Slóvakíu.
Allt frá því að tékkóslóvak-
íska ríkið var stofnað í lok heims-
styijaldarinnar fyrri hefur gætt
meiri eða minni óánægju meðal
Slóvaka með sambandið við
Tékka og sú óánægja hefúr gosið
upp enn á ný eftir að lýðræði var
komið á þarlendis.
Nokkrar þúsundir fylgis-
manna Þjóðemisflokksins söfn-
uðust í fyrrinótt saman við þing-
húsið i Bratislava og kölluðu
þingmenn hástöfúm svikara og
júdasa er þeir fféttu úrslit at-
kvæðagreiðslunnar. Vitazoslav
Moric, leiðtogi Þjóðemisflokks-
ins, segir þingið hafa sýnt að það
sé ófært um að gæta hagsmuna
slóvakísku þjóðarinnar og hótaði
mótmælaaðgerðum, þar á meðal
óhlýðni við sambandsstjómina.
Vaclav Havel, forseti Tékkó-
slóvakíu, hefur látið í ljós áhyggj-
ur af missætti Tékka og Slóvaka
og sagt að ókyrrðarástand sem af
því hlytist myndi fæla frá Tékkó-
slóvakíu erlenda fjárfestingarað-
ila.
Reuter/-dþ.
Barry - féll fýrir kókaíni, ekki hætt-
ur (stjórnmálum.
Borgarstióri dæmdur
Sex mánaða
fangelsisvist
A
Marion Barry, borgarstjóri í
Washington, höfuðborg Banda-
ríkjanna, í s.l. 12 ár, var í gær
dæmdur til sex mánaða fangels-
isvistar fyrir að hafa haft kókaín
í fórum sínum. Borgarstjórinn
var jafnframt dæmdur til að
greiða 5000 dollara sekt.
I ágúst fann kviðdómur Barry
sekan um eitt ákæruatriði, en vísaði
ffá 13 öðrum ákæruatriðum á
hendur honum um eiturlyfjaeign
og -neyslu og meinsæri. Vakti sá
úrskurður kviðdómsins reiði í Kól-
ombíu, þaðan sem mestum hluta
kókaíns þess er til Bandaríkjanna
kemur er smyglað. Bandaríkin hafa
undanfarið lagt fast að kólombísk-
um stjómvöldum að ganga hart
ffam gegn kókaínhringunum þar-
lendis. Sögðu Kólombíumenn, eft-
ir að þeir fféttu kviðdómsúrskurð-
inn yfir Barry, að svo væri að sjá
sem Bandaríkjamenn hneigðust að
því að láta háttsetta landa sína, sem
flæktir væm í eiturlyfjamál, sleppa
betur en aðra.
Ákærendur kröfðust harðari
refsingar yfir Barry, þar eð hann
hefði gróflega bmgðist trausti al-
mennings og ekki sýnt neina ein-
læga iðrun. Mál þetta hefúr vakið
mikla athygli i Bandaríkjunum og
er ekki laust við að inn í það hafi
blandast kynþáttarígur. Barry, sem
er blökkumaður, kvað enn vera
mjög vinsæll meðal blökkumanna
höfúðborgarinnar, sem þar em í
meirihluta. Hann lætur af embætti
borgarstjóra í janúar, en er í ffam-
boði til sætis í borgarstjóm Wash-
ington fyrir kosningamar þarlendis
6. nóv.
Reuter/-dþ.
Sri Lanka
10.0001 fangabuðum
Ranjan Wijeratne, aðstoðar-
varnarmálaráðherra Sri
Lanka, upplýsti á þingi í fyrra-
dag að um 10.000 stuðnings-
menn róttækrar vinstrihreyf-
ingar, sem reyndi að komast til
valda með skæruhernaði og
hryðjuverkum, væru enn í
fangabúðum þarlendis. Um
3000 hefðu verið látnir lausir úr
fangabúðum þessum.
Vinstrihreyfing þessi, sem
nefndist Þjóðfrelsisfylking og
varð mikið ágengt um skeið, var
brotin á bak aftur af her og lög-
reglu stjómarinnar s.l. ár. Mikinn
þátt áttu í því dauðasveitir, sem
myrtu gmnaða og raunvemlega
liðsmenn hreyfingarinnar hundr-
uðum ef ekki þúsundum saman.
Talið er að í dauðasveitunum hafi
verið óeinkennisklæddir her- og
lögreglumenn og margra mál er
að aðgerðir þessar hafi verið
framkvæmdar með vitund og vilja
stjómvalda.
Evrópubandalagið lýsti því
yfir fyrr í vikunni að það hefði
miklar áhyggjur af brotum gegn
mannréttindum á Sri Lanka og
gæti svo farið að bandalagið sæi
sér ekki fært að veita Sri Lanka
efnahagsaðstoð í framtíðinni
nema því aðeins að ástandið í
þessum efnum batnaði.
Reuter/-dþ.
Stuðlum að náttúruverndun:
EFFCO hefur til sölu ýmsar vörur
sem eru vingjarnlegar náttúrunni
eins og til dæmis handþurrkur úr
óbleiktum og endurunnum pappír,
bleyjur og ýmis hreinsiefni fyrir vélar
og iðnaðarhúsnæði.
EFFCO
Smiðjuvegi 14, 200 Kóp.
Sími 73233
Laugardagur 27. október 1990 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 7