Þjóðviljinn - 03.11.1990, Page 2
FRETTIR
Kirkiuþing
Biskupinn kominn í pólitík
r r
Olafur Ragnar Grímsson: Nýtt að biskupinn yfir Islandi segi fólki hvað það á að kjósa
Olafur Ragnar Grímsson
fjármálaráðherra segist
ekki hafa verið að tala niður til
kirkjunnar, eins og sumir kirkj-
unnar menn hafa haldið fram
að hann hafi gert í athugasemd-
um sínum við ummæli Ólafs
Skúlasonar biskups á kirkju-
þingi. Fjármálaráðherra segist
hafa verið að svara pólitískum
ummælum biskupsins, sem hafí
talað eins og hann væri í próf-
kjöri hjá Sjálfstæðisilokknum.
„Biskupinn kemur í sjónvarp
og hvetur fólk til að íhuga alvar-
lega hvaða stjómmálaflokk það
eigi að kjósa,“ sagði Ólafur Ragn-
ar. Það hefði ekki verið hægt að
skilja ummæli Ólafs Skúlasonar á
annan veg en þann, að hann væri
að mæla með því að fólk kysi
Sjálfstæðisflokkinn. Það hefði
aldrei fyrr gerst á Islandi að bisk-
upinn kæmi fram og hefði af-
skipti af því hvað menn kysu.
„Það þekkist að vísu í kaþ-
ólskum löndum, þar sem mörg
dæmi eru um að presturinn segi
mönnum í skriftastól og fyrir alt-
ari að kjósa íhaldsflokkana,"
sagði Ólafur Ragnar. Dæmi um
slíkt þekktust í Suður- og Mið-
Ameriku og á Ítalíu. En það hefði
aldrei gerst fyrr á Islandi að bisk-
upinn segði í sterkasta fjölmiðli
landsins, að trúaðir íslendingar
mættu ekki kjósa flokka sem
stæðu með ákveðnum hætti að
íjárlagafrumvarpi.
„Eg var einfaldlega að svara
þeirri pólitísku árás sem Ólafur
Skúlason stóð fyrir og það er
mjög merkilegt að hann skuli
kjósa að fara út á þá braut,“ sagði
fjármálaráðherra. Hann hefði satt
að segja haldið að kirkjunnar
menn gerðu sér grein fyrir því, og
allir sannkristnir íslendingar, að
þjóðin hefði átt í miklum erfið-
leikum. Til að ná henni út úr þeim
erfiðleikum hefðu allir þurft að
taka á sig fómir. Það hefði orðið
að skera niður framlög til fatl-
aðra, aldraðra, skóla, samgangna
og byggðarlaga. Það hefði alls
staðar þurft að skera niður. Niður-
skurðurinn á framlaginu til kirkj-
unnar væri Iiður í að allir legðu
sitt fram og satt að segja væri
hann einna minnstur af hlutfallinu
til kirkjunnar.
Ólafur Ragnar sagði að svo
virtist hins vegar sem þeir sem
sætu á kirkjuþingi, með biskup-
A Iþióðaviðskipti
Fyrirtækin heimta ekki EB
Dr. Peter Wallenberg: Sérfræðinga og þekkingu þeirra er alltaf hœgt að kaupa, en menn með
alhliða yfirsýn eru fágætastir og eftirsóttastir
að er ekki rétt sem komið
hefur fram í fréttum að
Electrolux og önnur sænsk stór-
fyrirtæki hóti því að flytja
starfsemi sína úr landi, ef Sví-
þjóð gengur ekki í Evrópu-
bandalagið, sagði dr. Peter
Wallenberg í samtali við Þjóð-
viljann á Hótel Sögu í fyrradag.
- Eg hef heldur ekki trú á nyt-
semi hótana eða þrýstings af því
tagi. Hitt er annað, að fyrirtækin
koma náttúrlega á framfæri upp-
lýsingum til stjómmálalamanna
um staðreyndimar sem við blasa í
viðskiptaheiminum. Flutningur
fyrirtækja milli landa eða jafnvel
landshluta er miklum erfiðleikum
bundinn, bæði varðandi tækja-
búnað og starfsmenn.
Dr. Wallenberg var aðalræðu-
maður á ráðstefnu um nýsköpun í
íslensku atvinnulífi, sem Iðn-
tæknistofnun, Útflutningsráð og
Félag íslenskra iðnrekenda efndu
til á fimmtudaginn. Hann er einn
þekktasti iðnrekandi og athafna-
maður á Norðurlöndum, talinn
áhrifamestur meðlima Wallen-
berg-fjölskyldunnar í þeim íýrir-
tækjum sem hún hefur ítök í, eins
og Alfa-Laval, Asea, Astra, At-
las-Copco, Electrolux, Ericson,
Saab-Scania, SAS og fleimm.
- íslendingar kvarta oft yfir
því að hér vanti sérfræðiþekk-
ingu. Hvcmig metur þú mikil-
vægi sérfræðinga annars vegar og
almennra stjómenda hins vegar
við stefnumörkun og ákvarðana-
töku í fyrirtækjum?
- Sérfræðinga og sérfræði-
þekkingu er alltaf hægt að byggja
upp og kaupa þá þjónustu sem
þeir veita. Mikilvægustu menn
fyrirtækja em hins vegar þeir sem
hafa alhliða yfirsýn, „generalist-
ar“, - þeir sem geta raðað saman
upplýsingapunktunum í nothæfa
heildarmynd. Svona fólk vantar
alls staðar.
- Hverja telurðu möguleika
tiltölulegra smárra íslenskra fyrir-
tækja til samstarfsvæðingar á
mörkuðum með erlendum sam-
keppnisfyrirtækjum í sömu grein,
því sem nefht er , joint venture"?
- Ég mæli ekki með þeirri
leið, hún er bæði erfið og áhættu-
söm. Hins vegar mega Norður-
löndin ekki vera einangruð, nú er
tími viðskiptalegrar brúarsmíði.
Á ráðstefnunni lagði dr. Wall-
enberg áherslu á nauðsyn yfirsýn-
ar og þess að ná fótfestu með sér-
þekkingu og fyrirtækjarekstur ís-
lendinga erlendis. Auðlindir Is-
lands séu orka og menntað,
vinnusamt fólkið, sem eigi að
beina að hátæknistörfum, reyn-
andi sé að fá hingað útibú er-
lendra stórfyrirtækja á þvi sviði.
Hann telur evrópskt efnahags-
svæði ekki lausn margra vanda-
mála og finnst ekki mikið til um
kvartanir Islendinga um skattpín-
iningu, sá söngur sé alls staðar.
Wallenberg telur að aðalverkefni
Evrópubandalagsins næstu kyn-
slóðina verði að aðlaga Austur-
Evrópulöndin markaðskerfinu.
Lokahvatning hans til fundar-
manna um áræðni í nýsköpun
voru: „Kjarklausir menn ná aldrei
færi á því að kyssa fagrar konur.“
ÓHT
Dr. Peter Wallenberg: Kjarklausir menn fá aldrei að kyssa fagrar konur.
Mynd: Jim Smart.
Dekkiaverkstæði
Verð á vinnu óbreytt
Lítill verðmunur á dekkjum ogþjónustu á höfuðborgarsvœðinu,
en töluverður munur á landsbyggðinni
Verð á hjólbarðaþjónustu á
höfuðborgarsvaeðinu hefur
verið óbreytt í heilt ár. Þetta
kom fram í verðkönnun Verð-
lagsstofnunar. I könnuninni
kom einnig fram að ekki er
mikill verðmunur á þessari
þjónustu á milli dekkjaverk-
stæða á höfuðborgarsvæðinu.
Lægsta verð fyrir að skipta
um hjólbarða á fólksbifreið er kr.
3.200, en hæsta verð 4,4% hærra,
eða 3.340 kr. Að skipta um hjól-
barða á jeppa kostar hinsvegar
5.080 til 5.600 kr..
Meiri verðmunur er á þjón-
ustu hjóbarðaverkstæða utan höf-
uðborgarsvæðisins. Þar er rúm-
lega 70% verðmunur á dýrasta og
ódýrasta verkstæðinu. Odýrast er
að láta skipta um hjólbarða á
Hjólbarðaverkstæðinu Þjóðbraut
1 á Akranesi, en þar kostar það
2.600 kr. fyrir fólksbíl. Dýrast er
hinsvegar að kaupa þjónustuna af
fyrirtækinu Höldi, Tryggvabraut
A Akureyri, en þar kostar það
4.460 kr.
Ekki er mikill verðmunur á
vetrarhjólbörðum eftir sölustöð-
um á höfuðborgarsvæðinu. Þann-
ig er t.d. sama verð á hjólbörðum
af gerðinni Good Year hvar sem
þeir eru seldir
Utan höfuðborgarsvæðisins er
almennt nokkur verðmunur á
hjólbörðum á milli sölustaða.
Þannig er 45% verðmunur á
ákveðinni stærð af Kumho hjól-
börðum. Þeir kosta 3.248 kr. hjá
Bílaverkstæði Hallffeðs á Eski-
firði, en 4.700 kr. hjá Bílaverk-
stæði Síldarvinnslunnar í Nes-
kaupstað. -Sáf
inn í fararbroddi, teldu að nú væri
tími kominn til að kirkjan gengi
fram og yrði eini aðilinn í þjóðfé-
laginu sem segði, ekki ég. „Það er
að segja að þjóðkirkjan sé ein-
hvers konar Islandsbanki," sagði
íjármálaráðherra.
Það er rétt, að sögn Olafs
Ragnars, að gjöld kirkjunnar voru
tekin inn í staðgreiðsluna. Aftur á
móti væri innheimtuhlutfallið í
staðgreiðslunni ekki nema 95%.
Samkvæmt gildandi lögum mætti
segja að ríkið væri skuldbundið
til að skila 100%, þótt ekki inn-
heimtust nema 95%. En það hefði
verið tekið mið af innheimtuhlut-
fallinu í skilum til kirkjunnar.
Biskupinn væri í reynd að segja
að ríkið ætti að styrkja kirkjuna
umfram raunverulega innheimtu.
Ef fara ætti eftir innheimtuhlut-
fallinu ætti að draga um 60 milj-
ónir frá heildarupphæðinni. Talan
í fjárlögum næmi um 80-90 milj-
ónum, þannig að það væru 20-30
miljónir sem væru einhvers konar
framlag kirkjunnar til þess að
gera eins og allir aðrir og taka að-
eins minna til sín.
„Hefúr ekki launafólk í gegn-
um þjóðarsáttarsamningana fall-
ist á að taka um sinn minni hlut til
að ná stöðugleika og ná verðbólg-
unni niður?“ sagði Ólafúr Ragn-
ar. Væntanlega hefðu þeir sem
sætu kirkjuþing þannig þekkingu
á hagkerfi og lögmálum eína-
hagslífsins, að ef allir segðu ekki
ég, næðist enginn árangur fyrir
heildina. Árangur næðist aðeins
ef allir Iegðu sitt af mörkum.
-hmp
Kvennalistinn
Stefnuskráin
endurskoðuð
Stefnuskrár Kvennalistans
verða til endurskoðunar á
landsfundi flokksins sem verð-
ur haldinn um helgin að
Hrafnagilsskóla í Eyjafirði.
„Það eru auðvitað kosningar
framundan og þær setja sinn
svip á fundinn líka,“ sagði
Anna Ólafsdóttir Björnsson
varaformaður þingflokks
Kvennalistans.
Hún sagði að hópar sem hafa
verið að vinna frá því á vorþing-
inu myndu skýra frá sínum störf-
um. „Það er svona af ýmsu tagi.
Meðal annars er verið að útbúa
upplýsingarit um stöðu kvenna.
Það hefur verið fjallað um launa-
mál, atvinnumál og umhverfismál
í hópunum og þetta verður allt
tekið fyrir,“ sagði Anna og bætti
við að dagskráin væri þétt og
mikil einsog venjulega.
Ákvarðanir í framboðsmálum
eru teknar í hverju kjördæmi fyrir
sig, en Anna sagði, að að sjálf-
sögðu myndu konur bera saman
bækur sínar í þeim efnum á lands-
fúndinum. -gpm
AlþvðubandalagiP
Þröstur hættir
Þröstur Ólafsson hagfræð-
ingur sagði sig úr Alþýðu-
bandalaginu í vikunni.
Hann hefur setið í bankaráði
Seðlabankans fyrir flokkinn, en
kjörtímabil ráðsins rann út á mið-
vikudaginn.
Þröstur hefur verið orðaður
við framboð Alþýðuflokksins í
Norðurlandskjördæmi eystra.
-gpm
2 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 3. nóvember 1990