Þjóðviljinn - 03.11.1990, Blaðsíða 9

Þjóðviljinn - 03.11.1990, Blaðsíða 9
Fiskifélag íslands Það er oft á tfðum þéttsetinn bekkurinn við upphaf Fiskiþings og menn sitja alvörugefnir undir ræðum þeirra stórmenna sem fengnir eru til að ávarpa þingfulltrúa. Mynd: Kristinn. * Ályktun fjárhagsnefndar þess efnis að hveiju fiskiskipi verði heimilt að selja ákveðinn hluta afla síns á erlendum fisk- markaði og að þessi aflaheimild verði framseljanleg innan hvers fiskveiðiárs, féll á jöfnum at- kvæðum. EkkiaðildaðEB Fiskiþing telur að aðild að Evrópubandalaginu komi ekki til greina og að gæta verði hófs í að leyfa erlenda fjárfestingu í sjávar- útveginum. Þingið leggur áherslu á að reynt verði að ljúka viðræð- um EFTA/EB um evrópskt efna- hagssvæði sem allra fýrst og að þeim frágengnum verði gengið til samninga við Evrópubandalagið um viðskiptahagsmuni okkar, eft- ir þvi sem nauðsynlegt kann að reynast. Jafnframt leggur Fiski- þing höfuðáherslu á að Islending- ar taki fullan þátt í samstarfí um aukið viðskiptaffelsi í heiminum öllum, á grundvelli Hins almenna samkomulags um viðskipti og tolla, GATT. * Fiskiþing lítur svo á að verðtrygging fjárskuldbindinga hafi átt rétt á sér tímabundið til þess að ná fram jákvæðum raun- vöxtum í mikilli verðbólgu. Nú sé eðlilegt að leggja hana niður með tilliti til þess að verðbólga hefur náðst niður á svipað stig og ann- ars staðar viðgengst. Öryggismál Fiskiþing ítrekar enn á ný fyrri áskoranir sínar um kaup á björgunarþyrlu. * Þingið fagnar því að Iðn- tæknistofnun hefur lokið rann- sókn á sleppibúnaði björgunar- báta sem Siglingamálastofnun hefur samþykkt. Þó vantar meira fjármagn til ffekari útfærslu. Þingið skorar á stjónivöld um fyr- irgreiðslu þar að lútandi svo að þessu verki verði lokið í eitt skipti fyrir öll. * Þingið átelur seinagang í út- gáfu leiðabókar fyrir sjófarendur og hvetur til tafarlausrar útgáfu hennar. Þá bendir þingið á þá staðreynd að aukin menntun og öryggisfræðsla sjómanna er grundvöllur að auknu öryggi. Sérstaklega er bent á aukna fræðslu nýliða á sjó. Því skorar Fiskiþing á Alþingi að tryggja nægjanlegt fjármagn til slysa- vamaskóla SVFÍ. * Fiskiþing fagnar því að bytjað er á stöðugleikaprófunum á minni þilfarsskipum. Þingið treystir því að Siglingamálastofn- un verði veitt nægjanlegt fjár- magn til þessara hluta sem og til hávaðamælinga í fiskiskipum. Afleiðing nýrra kvótalaga Fiskiþing vekur athygli á að nú em þegar famar að koma í ljós margvíslegar, neikvæðar afleið- ingar af þeim lögum um fisk- veiðistjómun, sem taka munu gildi um næstu áramót. I þvi sam- bandi má nefna að sameining aflaheimilda mun augljóslega breyta miklu um útgerðarhætti í landinu og hafa verulega röskun á byggð í för með sér. Sú óvissa sem þessi lagasetn- ing hefur þegar skapað er með öllu óþolandi. Því er nauðsynlegt að Byggðastofnun verði þegar falið að kanna þjóðfélagsleg áhrif hennar og á hvem hált hún nálgist þau markmið sem löggjöfin hefur sett um trausta atvinnu og byggð í landinu, eins og segir í 1. gr. kvótalaganna. Jafhframt verði lokið tímanlega við heildstæða at- hugun á öllum afleiðingum lag- anna, svo að skynsamlegri endur- skoðun á þeim verði lokið íyrir árslok 1992. Þá þarf að leggja aukna áherslu á fiskfriðun og vemd sem horfið hefur í skugg- ann af karpi manna um umskipt- ingu veiðiheimilda og verðmæti þeirra. * Fiskiþing hvetur til að hval- veiðar, þar á meðal veiðar á hrefnu, hefjist hér við land að nýju, en ljóst er að margir hvala- stofnamir þola veiði undir vís- indalegu efiirliti án þess að hætta sé á ofveiði. Jafnframt minnir þingið á nauðsyn þess að sela- stoíhunum sé haldið í hæfilegri íjarlægð. * Fiskiþing beinir því til Haf- rannsóknastofnunar og sjávarút- vegsráðuneytisins að dragnóta- veiðar við landið verði kannaðar sérstaklega. Skal þessi athugun beinast að notkun, veiðihæfni og áhrifum dragnótar á lílfíkið og fara fram í nánu samstarfi við hagsmunaaðila. Endurmat hafrannsókna Fiskiþing beinir þeim ein- dregnu tilmælum til sjávarútvegs- ráðherra að hann beiti sér fyrir því, að hið fyrsta fari ffam endur- mat á haffannsóknum hér við land. Það er mat þingsins, að haf- rannsóknir okkar skili ekki nægi- lega vel þeirri vitneskju, sem nauðsynleg er varðandi stofn- stærðarmælingar og almennt mat á vistffæðilegu samhengi á því hafsvæði, sem við byggjum af- komu okkar á. Slíkt endurmat á að beinast að eftirfarandi þáttum: * Fiskiffæðinni sjálfri, það er þeim fræðilegu aðferðum, sem er beitt við haffannsóknir og niður- stöður eru byggðar á. * Almennu skipulagi hafrann- sókna, rekstri Hafrannsókna- stofnunar og auknum framlögum til þeirrar starfsemi. * Möguleika á aukinni sam- vinnu fiskimanna og vísinda- manna við upplýsingaöflun og úr- vinnslu. Loðnuveiðar Fiskiþing mælir því með að hagsmunaaðilar, í samráði við Hafrannsóknastofnun og sjávar- útvegsráðuneyti, kanni mögu- leika á að standa betur að upphafi loðnuveiða en verið hefur. I greinargerð með ályktuninni segir að upphaf haustveiða á loðnu hafi dregist ár lfá ári. Síð- ustu vertíðir hefur mestur hluti veiðanna því verið á vetrarvertíð þegar afurðir loðnunnar hafa farið minnkandi. Þessi þróun leiðir til þess að lengra líður á milli vertíða og markaðssetning afurða verður erfiðari. Einnig leiðir þetta til of mikilla veiða á skömmum tíma og því birgðasöfhunar verksmiðj- anna íyrir vinnslu, sem skilar verri afurðagæðum og lægri af- urðaverði. Hafrannsóknastofnun ætti að vera akkur í því að fá aðstoð nokkurra bála við loðnuleit á haustin. Á þann hátt getur stofn- unin kannað yfirgripsmeira svæði, en slíkt er jú forsenda nán- ari vitneskju um loðnustofninn og hegðun hans við breyttar aðstæð- ur í hafinu. -grh Félag með sterkar rætur Fiskimálastjóri: Verði skýrslu- og hagdeild Fiskifélagsins fluttyfir í aðra stofnun er það svipað og að taka eldsneyti af vél Þorsteinn Gíslason fiskimála- stjóri segir að í þau tuttugu ár sem hann hefur setið Fiskiþing, sé þetta þing sem lauk í gær eitt það best heppnaða sem hann hafi setið. Að mati fiskimálastjóra und- irstrikar það að Fiskifélagið, sem er stjómað af Fiskiþingi, eigi sér sterkar rætur og sé samnefhari sjávarútvegsins í heild. Þorsteinn segir að helstu mál þingsins hafi verið viðbrögð og afleiðingar nýrrar lagasetningar um stjóm fiskveiða sem mikið var rætt um. Ennfremur var mikið rætt um Hagræðingarsjóð sjávar- útvegsins sem þingfulltrúar vom ekki hressir með og töldu ýmsir að hann næði ekki þeim tilgangi sem væntingar manna stóðu til. Þá hafi afkoma sjávarútvegs- ins einnig verið nokkuð mikið til umfjöllunar á þinginu, eins og við var að búast. - En þó einkum og sér í lagi sú þróun sem átt hefur sér stað í fiskverðinu, sem hefur haft afgerandi áhrif á það sem stendur í fyrstu grein laganna um stjómun fiskveiða. Það er, hver eigi auðlindina sem er að sjálf- sögðu sameign allrar þjóðarinnar. Þróun fiskverðs er einnig hluti af þeirri þróun sem orðið hefur vegna aukins fijálsræðis, tilkomu fiskmarkaða og þess að afurða- verð á flestum fiskafurðum hefur hækkað vemlega. Ennfremur fékk Evrópu- bandalagið umtalsverða umíjöll- un á þinginu og menn vilja alls ekki láta aðrar þjóðir koma hing- að með klæmar í okkar auðlind sem fiskimiðin era. Einnig hefur ævinlega á þing- um sem þessum borið mikið á umræðum um öryggismál og fræðslumál sjómanna. í gegnum árin hefur það verið eitt af aðal- markmiðum Fiskifélagsins að fræða, beita sér fyrir aukinni tækni en fyrst og ffemst öryggis- málin. Enda stóð vagga Slysa- vamafélagsins hér hjá Fiskifélagi íslands. Fyrst sem deild hér og þróaðist síðan yfir i sjálfstæða stofnun. En það má kannski segja að fjömgustu umræðumar á þinginu hafi verið um framtíð Fiskifélags- ins og þá meðhöndlun sem sá málaflokkur fékk þegar rætt var um hugmyndina að hinni nýju Fiskveiðistofhun. Flestir mála- flokkar sjávarútvegsins og stofn- ana hans hafa séð dagsins ljós hér innan veggja Fiskifélagsins í þau áttatíu ár sem félagið hefur starf- að. I því sambandi nægir að nefna hafrannsóknir og þá mætu menn sem mddu þá braut, ss. Bjama Sæmundsson og Áma Friðriksson fiskifræðinga. Rannsóknastofa Fiskifélagsins var hér í 35 ár sem nú er sjálfstæð stofnun og heitir Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins og svo mætti lengja telja. Þessvegna em menn ákaflega óhressir þegar þvi er haldið ffarn að félagið hafi ekki sinnt þjón- ustustörfunum vel, en vissulega þarf að laga sig að breyttum tím- um. Forsendan fyrir því að Fiski- félagið geti sinnt sínu tvíþætta hlutverki, félagsþættinum og skráningu upplýsinga, er að við Þorsteinn Gfslason fiskimála- stjóri. fáum áfram að reka skýrslu- og hagdeild félagsins sem samtvinn- ast mjög annarri starfsemi þess og heldur tengslum okkar við þær fimmtíu og fimm verstöðvar sem félagið er í beinu sambandi við. Það hafa komið upp hugmyndir um að taka þetta af félaginu og að skýrslu- og hagdeild þess verði flutt yfir í aðra stofnun, sem eng- inn hefur getað fært rök fyrir að verði ódýrara. Ef þessar deildir yrðu teknar af félaginu væri það nákvæmlega hið sama og að taka eldsneyti af vél. En hvað segir fiskimálastjóri um þá gagnrýni sem frairí kom á störf hans á þinginu, að hann sé of hlutlaus í baráttu hinna einstöku hagsmunahópa sín í milli og við stjómvöld? Þorsteinn segir að hann og forverar hans hafi ávallt tekið þann pól í hæðina að vera ekki að hella olíu á eld, né að taka afstöðu með einum aðila þegar tveir deila. Hinsvegar hafi það oft gerst og tekist að ná sáttum og hjálpa mönnum. í því sambandi nefrídi Þorsteinn að fullkomin samstaða hefði náðst um kvótann á Fiski- þingi á haustdögum 1983 eftir að aðalfundur Landssambands út- vegsmanna hafði ekki getað kom- ið sér saman um það og þær for- sendur hefðu siðan verið notaðar svo til óbreyttar til framkvæmda og til útfærslu á kvótanum. _grji HANDBRAGÐ MEISIARANS BAKARI BRAUÐBERGS Ávallt nýbökuð brauð - heilnæm og ódýr^ Aðrir útsölustaðir: Hagkaup: Skeifunni ~ Kringlunni - Hólagarði Verslunin Vogar, Kópavogi Hraunborgi 4 timi 77272 Laugardagur 3. nóvember 1990 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 9

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.