Þjóðviljinn - 03.11.1990, Blaðsíða 15

Þjóðviljinn - 03.11.1990, Blaðsíða 15
I DAG KVIKMYNDIR Guðföður- stæling STJÖRNUBÍÓ Nýncminn (Frcshman) Lcikstjóm & handrit: Andrew Bcrg- man Aðallcikarar: Marlon Brando, Matt- hew Broderick, Bruno Kirby, Pcnel- ope Ann Miller & Frank Whalcy Miklir aðdáendur stórleikar- ans Marlon Brando ættu að vera glaðir i bragði núna þar sem hann er sýndur á tveimur stöðum í borginni. Hann er af hugsjóna- ástæðum í myndinni „Hvíta valdið“ sem er sýnd í Bíóborg- inni og af einhverjum allt örðum ástæðum í „Nýnemanum“ í Stjömubíói. Brando ku hafa sagt fáein falleg orð um myndina „The In- Laws“ sem er gamanmynd frá 1979. Andrew Bergman hafði skrifað handritið að þeirri mynd, og síðan hann írétti af lofi Brando hefur hann verið að reyna að skrifa handrit að mynd sem Brando myndi leika í. Úr því varð „Nýneminn". Nýneminn fjallar um sak- lausa sveitastrákinn Clark Kellog (Matthew Broderick), sem kemur til New York til að fara í kvikmyndaskóla. Strax á fyrsta degi er hann rændur og þegar hann hefur upp á þjófnum þá snýr þjófurinn vöm í sókn og býður Clark vinnu hjá frænda sínum sem er ítalskur innflytj- andi og mafiósi sem heitir Carmine Sabatini (Brando). Sa- batini lítur nákvæmlega eins út og Vito Corleone í GuðfÖðum- um, hann er svo líkur þessari goðsagnapersónu hvíta tjaldsins að persónumar í Nýnemanum tala um það sin á milli. (Enda reyndi Paramount fólkið sem framleiddi Guðfoðurinn að stöðva sýningu Nýnemans). Og þar erum við komin að þunga- miðju myndarinnar, altsvo að Brando er sjálfur að gera létt grín að einni þekktustu persónu sem hann hefur leikið. Sögu- þráðurinn í kringum þessa stæl- ingu er aukaatriði, enda er hann hálf billegur og nær hvorki að vera spennandi né fýndinn. Brando á þessa mynd. Þetta er fyrsta aðalhlutverkið hans í meira en tíu ár, og þó að manni finnist myndin hálf ómerkileg þá er Brando ótrúlegur leikari og það er gaman að sjá hann nota sömu taktana og í Guðfoðum- um, þó að þar hafi maður óttast hann, en hér hlær maður að hon- um. Og ég get ekki séð að fólk sem ekki hefúr séð Guðfoðurinn geti haft gaman af þessari mynd. Matlhew Broderick er ágæt- ur leikari og á það sameiginlegt með starfsbróður sínum Michael J. Fox að vera þrítugur, en líta út fyrir að vera um tvítugt, svo að það getur verið að hann leiki há- skólastráka í 10 ár í viðbót. Hann gerir það líka vel, og skólaatriðin þar sem bekkurinn horfir á kennarann tala með A1 Pacino í Guðfoðumum em ágæt. En það er vafasöm hugmynd að gera heila mynd sem byggir bara á að Brando geri grín að sjálfum sér, þó svo að hann geri það vel. SIF Stríðshörmungar REGNBOGINN Sigur Andans (Triumph of thc spirit) Lcikstjóri: Robcrt M. Young Aðallcikarar: William Dafor, Edward James Olmos, Robert Loggia „Sigur Andans" gerist í heimsstyrjöldinni síðari og er byggð á ævisögu gríska gyðings- ins Salamo Arouch sem Dafoe leikur. Arouch býr með fjölskyldu sinni í Þessalóniku og 1939 verður hann Balkanmeistari í léttvigtarhnefaleikum og er þar að auki að fara að gifta sig svo að lífið leikur við hann. En sælan er skammvin og stuttu síðar er ljölskylda hans og kærasta, ásamt þúsundum öðmm gyðing- um, send til útrýmingarbúðanna í Auschwitz. Lífið þar er hræði- legt eins og maður hefúr séð í svo mörgum myndum og lesið um í svo mörgum bókum. Þó vænkast aðeins hagur Salomons þegar Þjóðverjamir komast að því hversu góður hnefaleika- maðurhann er. Og hann er látinn keppa þeim til skemmtunar á kvöldin eflir að hafa þrælað all- an daginn. Hann verður að keppa bæði til að vinna og til að lifa af, um leið og hann tapar þá er úti um hann. En því oftar sem hann vinnur því betri mat og vinnu fær hann. Það er ekkert gert til að fegra lífið í búðunum, fólk stelur mat og fotum frá hvert öðm og kem- ur upp um hvert annað til að komast í mjúkinn hjá yfirmönn- unum. Undir þessari dramatík er spiluð enn dramatískari kórtón- list sem dregur frekar úr áhrifum myndarinnar en hitt. Þetta verð- ur einhvemveginn einum of. Eiginlega má líta á þessa mynd sem verkfæri fyrir Willem Dafoe, hann er eins og kameljón, skiptir um lit með hverri per- sónu, og hér fær hann tækifæri til að prófa að leika stríðsfanga og hnefaleikara í kaupbæti. Aðr- ir karlleikarar em góðir eins og t.d. Robert Loggia sem leikur pabba Salomon og Edward Jam- es Olmos sem leikur sígauna og nokkurs konar vin Dafoe. Stelp- umar hinsvegar, kærastan og systir hennar, em allan tímann eins og þær séu í frekar niður- drepandi sumarbúðum í Conett- icut. Þær em svo agalega amer- ískar. Það er reyndar dáldið stuð- andi að Þjóðverjamir tala þýsku, Pólverjamir pólsku o.s.frv., en Grikkimir amerísku. En svona verður það víst að vera. Sigur Andans er svört mynd, og mér finnst nafnið á henni ekki viðeigandi, því að maður sér engan sigur, ekki einusinni von, í lífi þessa fólks. Og ég mæli með að fólk hafi viskíglas, eða eitt- hvað þessháttar, tilbúið heima eftir bíóferðina til að ná sér upp úr þunglyndinu SIF HÁSKÓLABIÖ Pappfrs-Pési *** Ari Kristinsson kemur hér með alveg ágæta barnamynd. Pappírs- Pési er skemmtileg fígúra (islenskur E.T.?) og krakkarnir alveg einstaklega krakkalegir. Litil vinkona mfn sagði að myndin væri alveg sérstaklega skemmtileg af því hún kenndi svo skemmtileg prakkarastrik! Drífið ykk- ur með bömin um helgina. Sif Vinstri fóturinn (My left foot)**** Algjörlega yndisleg mynd sem maður getur ekki annað en fallið fyrir, nokk- urskonar óður til likamshluta. Daniel Day Lewis sýnir manni ( hlutverki Christy Brown að vinstri fótur er allt sem maöur þarf til að vera sjarmer- andi og sexý. Sif Cinema Paradiso (Paradísarbió- iö)**** Það er í rauninni fáránlegt að vera að gefa svona mynd stjörnur, þvl hún er langt yfir alla stjörnugjöf hafin. Svona mynd er aðeins gerð einu sinni og þessvegna má enginn sem hefur hið minnsta gaman af kvikmyndum missa af henni. Sif LAUGARÁSBÍO Skjálfti (Tremours)** Þetta er hryllingsmynd sem er ekkert hryllileg. I stað þess er hún stundum dáldið fyndin og oft spennandi. Það eru Fred Ward og Kevin Bacon sem leika aðalhlutverkin. Myndin fær svo eina aukastjörnu fyrir hressa kven- hetju sem þarf bara einu sinni að bjarga úr lifsháska. Sif Á bláþræði (Bird on a Wire)* Gibson og Hawn leika hér gamalt kærustupar sem er á flótta undan bæði bófum og löggum (minna má það ekki vera). Þau passa hræðilega illa saman og það hefur sýnileg áhrif á leik þeirra. Handritið er ósköp ómerkilegt, en það er reynt að flikka upp á það með að láta aöalleikarana vera berrassaða annað veifið. Sif BÍÓBORGIN Hvfta valdið (A dry white season)***' Hvíta valdið er unnin upp úr skáld- sögu eftir suðurafríska rithöfundinn André Brink og lýsir því hvernig hvitur s.a. kennari kemsttil meðvitundar um hvemig farið er með svertingja ( heimalandi hans. Leikurinn er frábær hvar sem á hann er litið, sérstaklega eru þær fáu mínútur sem Brando er á tjaldinu æðislegar. Missið ekki af hon- um. Sif Hrekkjalómamir 2 (Gremlins 2)** Litlu skrimslin eru komin aftur á kreik, í þetta skiptiö í stórhýsi í Manhattan. Ég varfull af fordómum (garð þessar- ar myndar og langaði ekkert á hana og það kom mér þessvegna á óvart hvað ég skemmti mér vel. Það er fullt af góðum bröndurum og tæknibrell- urnar eru frábærar þótt þær séu að- eins of margar. Sif REGNBOGINN f slæmum félagsskap (Bad Influ- ence)*** Stórgóður tryllir með Rob Lowe og James Spader I aðalhlutverkum. Þeir sem líta Lowe homauga fyrir allar lé- legu myndimar sem hann hefur leikið f ættu að gefa honum sjens þv! hér sýnir hann að hann getur meira en brosað fallega. Djöfullinn er ennþá á lífi og býr í Los Angeles. Sif ÞJOÐVILJINN FYRIR 50 ÁRUM Ríkisstjórnin setur bráðabirgða- lög um bruggun áfengs öls. Tal- ið er að þetta sé gert eftir kröf- um Breta og framleiðslan verði þeim einum seld. Þetta er ein herfilegasta misnotkun á réttin- um til að gefa út bráðabirgðalög og um leið hættulegasta sporið sem stigið hefur verið ( áfengis- málum þjóðarinnar. Mesta loft- árás á Beriín í núverandi styrj- öld. Ekkert lát á loftárásum Þjóðverja á England. Gríski her- inn ræðst inn í Norður-Albaníu en ítalir sækja fram suður með Andriahafinu. 3. nóvember laugardagur. 307. dagur ársins. 2. vika vetrar byrjar. Sólarupp- rás ( Reykjavlk kl. 9.16 - sólar- lag kl. 17.05. Viðburðir Þjóðhátíðardagur Panama. Sjó- mannaklúbbur stofnaður í Reykjavík árið 1875. Alþýðu- bandalagið stofnað árið 1968. DAGBOK APOTEK Reykjavik: Helgar- og kvöldvarsla lyfjabúða vikuna 2. til 18. nóvember er I Garðs Apóteki og Lýfjabúðinni Iðunni Fyrmefnda apótekiö er opið um helgar og annast næturvörslu alla daga kl. 22 til 9 (til 10 á fridögum). Síðarnefnda apótekið er opið á kvóldin kl. 18 til 22 virka daga og á laugardögum kl. 9 til 22 samhliöa hinu fyrmefnda. LÖGGAN Reykjavík.................tr 1 11 66 Kópavogur..................« 4 12 00 Seltjamarnes...............w 1 84 55 Hafnarfjörður.............■" 5 11 66 Garöabær...................» 5 11 66 Akureyri...................w 2 32 22 Stökkvðið og sjúkrabílar Reykjavik..................w 1 11 00 Kópavogur..................« 1 11 00 Seltjarnames...............« 1 11 00 Hafnarfjörður..............w 5 11 00 Garðabær...................» 5 11 00 Akureyri...................« 2 22 22 LÆKNAR Læknavakt fyrir Reykjavík, Seltjarn- arnes og Kópavog er í Heilsuvemdar- stöð Reykjavikur alla virka daga frá kl. 17 til 8, á laugardögum og helgidögum allan sólarhringinn. Vitjanabeiðnir, simaráðleggingar og tímapantanir f « 21230. Upplýsingar um lækna-og lyfjaþjónustu eru gefnar í simsvara 18888. Borgarspítalinn: Vakt virka daga frá kl. 8 til 17 og fyrir þá sem ekki hafa heimilislækni eða ná ekki til hans. Landspítalinn: Göngudeildin eropin frá kl. 20 til 21. Slysadeild Borgarspít- alans er opin allan sólarhringinn, tr 696600. Hafnarfjörður: Dagvakt, Heilsugæsl- an, t» 53722. Næturvakt lækna, tr 51100. Garðabær: Heilsugæslan Garðaflöt, tt 656066, upplýsingar um vaktlækni «51100. Akureyri: Dagvakt frá kl 8 til 17 á Læknamiðstöðinni,« 22311, hjá Akureyrar Apóteki, « 22445. Nætur- og helgidagavakt læknis frá kl 17 til 8 985- 23221 (farsimi). Keflavik: Dagvakt, upplýsingar i « 14000. Vestmannaeyjar: Neyðarvakt lækna, « 11966. SJÚKRAHÚS Heimsóknartímar: Landspitalinn: Alla daga kl. 15 til 16 og 19 til 20. Borgar- spitalinn: Virka daga kl. 18:30 til 19:30, um helgar kl. 15 til 18 og eftir samkomulagi. Fæðingardeild Land- spítalans: Alla daga kl. 15 til 16, feðra- timi kl. 19:30 til 20:30. Fæðingar- heimili Reykjavikur v/Eiriksgötu: Al- mennur tími kl. 15-16 alla daga, feðra- og systkinatími kl. 20-21 alla daga. Öldrunarlækningadeild Landspítal- ans, Hátúni 10B: Alla daga kl. 14 til 20 og eftir samkomulagi. Grensásdeild Borgarspitala: Virka daga kl. 16 til 19, um helgar kl. 14 til 19:30. Heilsu- vemdarstöðin við Barónsstíg: Alla daga kl. 15 til 16 og 18:30 til 19:30. Landakotsspitali: Alla daga ki. 15 til 16 og 18:30 til 19. Barnadeild: Heim- sóknir annarra en foreldra kl. 16 til 17 alla daga. St. Jósefsspítali Hafnar- firði: Alla daga kl. 15 til 16 og 19 til 19:30. Kleppsspítalinn: Alla daga kl 15 til 16 og 18:30 til 19. Sjúkrahús Vestmannaeyja: Alla daga kl. 15 til 16 og 19 til 19:30. Sjúkrahús Akraness: Alla daga kl. 15:30 til 16 og 19 til 19:30. Sjúkrahúsið Húsavik: Alla daga kl. 15 til 16 og 19:30 til 20. ÝMISLEGT Rauða kross húsið: Neyðarathvarf fyrir unglinga, Tjarnargötu 35, « 91-622266, opiö allan sólarhringinn. Samtökin 78: Svarað er i upplýsinga- og ráögjafarsíma félags lesbía og homma á mánudags- og fimmtudags- kvöldum kl. 21 til 23. Simsvari á öðrum timum.« 91-28539. Sálfræðistöðin: Ráögjöf i sálfræöi- legum efnum, « 91-687075. Lögfræðiaðstoð Orators, félags laganema, erveitt í síma 91-11012 milli kl. 19:30 og 22 á fimmtudagskvöldum. MS-félagið, Álandi 13: Opiö virka daga frákl. 8til 17, «91-688620. „Opið hús" fyrir krabbameinssjúk- linga og aöstandendur þeirra í Skóg- arhlið 8 á fimmtudögum kl. 17 til 19. Samtök áhugafólks um ainæmis- vandann sem vilja styðja smitaða og sjúka og aðstandendur þeirra í « 91- 22400 og þar er svarað alla virka daga. Upplýsingar um eyðni: « 91-622280, beint samband við lækni/hjúkrunar- fræðing á miðvikudögum kl. 18 til 19, annars simsvari. Samtök um kvennaathvarf: « 91- 21205, húsaskjól og aðstoð við konur sem beittar hafa verið ofbeldi eða orðið fyrir nauðgun. Kvennaráðgjöfin Hlaðvarpanum, Vestur-götu 3: Opið þriöjudaga kl. 20 til 22, fimmtudaga kl. 13:30 til 15:30 og kl. 20 til 22, « 91-21500, simsvari. Sjálfshjálparhópar þeirra sem orðið hafa fyrir sitjaspellum: » 91-21500, simsvari. Vinnuhópur um sifjaspellsmál: « 91-21260 alla virka daga kl. 13 til 17. Stigamót, miðstöð fyrir konur og böm sem orðið hafa fyrir kynferðislegu ofbeldi. Ráðgjöf, fræðsla, upplýsingar, Vesturgötu 3, « 91-626868 og 91- 626878 allan sólarhringinn. Bilanavakt rafmagns- og hitaveitu: « 27311. Rafmagnsveita: Bilanavakt í « 686230. Rafveita Hafnarfjarðar: Bilanavakt, » 652936. GENGIÐ 3. nóvember 1990 Sala Bandaríkjadollar..........54,92000 Sterlingspund............106,98400 Kanadadollar.............47,15200 Dönsk króna................9,53560 Norsk króna................9,36560 Sænsk króna................9,79140 Finnskt mark..............15,29810 Franskur franki...........10,88170 Belgískurfranki........... 1,77250 Svissneskur franki........43,10830 Hollenskt gyllini.........32,36780 Vesturþýskt mark..........36,51470 Itölsk lira................0,04886 Austurrlskur sch...........5,19120 Portúgalskur escudo....... 0,41460 Spánskur peseti............0,57940 Japanskt jen...............0,42661 Irskt pund................97,82600 KROSSGATA œ 7 12 ~y~y 9 10 11 13 16 121 17 18 Lárétt; 1 prjál 4 krenjar 6 vafi 7 niöur 9 merki 12 furða 14 kaöall 15 óhljóð 16 stilla 19 sæöi 20 bilun 21 spjall Lóörétt: 2 hrós 3 bráö- lega 4 nöguðu 5 tré 7 tíðast 8 ásýnd 10 hana 11 næstum 13 atorku 17 spýja 18 hátiö Lausn á síðustu krossgátu Lárétt: 1 hrím 4 vist 6 æða 7 skán 9 gölt 12 gagns 14 eða 15 lin 16 leika 19 foli 20 áöur21 innti Lóðrétt: 2 rök 3 mæna 4 vagn 5 sæl 7 skelfa 8 ágalli 10 öslaði 11 túndra 13 gái 17 ein 18 kát Laugardagur 3. nóvember 1990 ÞJÓÐVILJINN — SlÐA 15

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.