Þjóðviljinn - 03.11.1990, Side 4
Málgagn sósíalisma, þjóðfrelsis og verkalýðshreyfingar
ÞINGLYNDI
ÞJÓÐVIUINN
Jónarnir
sterku
Spurningarnar hrannast enn upp varðandi framtíðar-
stöðu og möguleika (slendinga í viðskiptum við aðrar
þjóðir. Síðast í gær gaf Jón Baldvin Hannibalsson ut-
anríkisráðherra í skyn á ráðstefnu Alþjóðastofnunar
Háskóla (slands um Evrópumálin, að hann vonaðist til
þess að EFTA-ríkin gætu deilt með sér „fórnarkostnað-
inum" af því að verða við kröfum EB-ríkja um ýmiss
konar aðgang og réttindi. Það sem hangir meðal ann-
ars á spýtunni er að Spánverjar hafa gert formlega
kröfu um veiðiheimildir í íslenskri landhelgi upp á tugi
þúsunda tonna á ári, verði íslendingum hleypt að
mörkuðum Evrópubandalagsins. Utanríkisráðherra
veit sem er, að flestir (slendingar munu eiga erfitt með
að kyngja hvers konar ívilnunum af þessu tagi. Spurn-
ingin er hvort aðrar EFTA- þjóðir reynast okkur svo
skilningsríkar þegar á reynir, að þær hjálpi okkur að
forðast þau örlög eða milda þau. Og víst er að eitthvað
munu þau vilja fá fyrir snúð sinn.
Hér er samt fleira að athuga. Kann það að vera, að
gömlu risarnir, EB og Bandaríkin, gumi nú eins og Jón
sterki af afli sínu og sterkri samnings-, ef ekki vald-
stöðu, en að framtíðaráhrif þeirra séu í raun ekki slík
sem við erum vönust? Um allan heim eru ríki, sem
hafa verið í varnarstöðu í alþjóðaviðskiptum, að
heimta rétt sinn. Ríkjahópur sá sem gengur undir sam-
heitinu G-15 á alþjóðavettvangi, á heimkynni sín í
löndum Afríku, Asíu og Suður- Ameríku og sameinað-
ist í september síðastliðnum eftir fundi í Júgóslavíu,
sem eins konar svar við sjöveldunum, hópi sjö voldug-
ustu iðnríkjanna. G-15 hópurinn ætlarað mynda blokk
til þess að ná fram réttindum og tækifærum í GATT-
viðræðunum, sem á að Ijúka í desember. Þar mætir
líka 13 ríkja hópurinn sem nefndurer Cairns-hópurinn,
með Ástralíu, Nýja-Sjálandi, Argentínu og fleiri innan-
borðs.
Öll þessi ríki gera harða hríð að verndarstefnu Evrópu-
bandalagsins og Bandaríkjanna og heimta frjálsari við-
skipti, lægri tollmúra eða afnám þeirra, svo þau geti
keppt á jafnréttisgrundvelli með framleiðslu sína. Það
sem er athyglisvert fyrir (slendinga í þessu sambandi
er það, að þessi ríki hyggjast beita eins konar fjárkúg-
un á EB og Bandaríkin, ef í hart fer (sem ugglaust
verður) í GATT-viðræðunum, og hóta að sprengja eða
koma í veg fyrir samkomulag á öllum öðrum sviðum
varðandi vörur og þjónustu, ef ekki næst viðhlítandi
samkomulag um landbúnaðarmálin.
En ekki er það síður íhugunarefni fyrir okkur, að nú er
krafist frjálsari viðskipta um allan heim, og vant er að
sjá, að hvort sem eru G-15 hópurinn eða Cairns- lönd-
in muni sætta sig við að Evrópubandalagið haldi áfram
að vera sú harðsoðna varnarklíka, sem okkur ertíðum
sagt frá að við munum vera útilokuð frá, gefum við ekki
eftir varðandi fiskveiðiréttindi. Hvernig stenst sú rök-
semdafærsla, að með því að semja okkur ekki á ein-
hvern hátt inn í evrópskt efnahagssvæði eða ganga
hreinlega í EB, séum við að útiloka okkur frá stærstu
og mikilvægustu markaðssvæðum okkar? Er ekki ein-
mitt verið að herða róðurinn að því á alþjóðavettvangi,
að EB líðist ekki lengur að loka sig af gagnvart þjóðum
heims?
( þessu máli er nokkur tvískinnungur uppi af hálfu
þeirra sem fullyrða að (slendingar verði að axla nokk-
urn fórnarkostnað, til að halda stöðu sinni og tækifær-
um. Annars vegar ertalað um aukið frjálsræði og opn-
un í heiminum öllum, en hins vegar lokað virki Evrópu-
bandalagsins. Krafturinn í þjóðunum sem sækja nú að
forréttindablokkunum beggja vegna Atlantshafs gefur
til kynna, að veldi þeirra til að deila og drottna í al-
þjóðaviðskiptum verði ekki jafnt til framtíðar og það er
nú, þótt þær gefi hins vegar viðsemjendum sínum eins
og okkur sterklega í skyn að þær séu Jónar hinir
sterku og við þurfum að laga okkur að óskum þeirra.
ÞJOÐVIUINN
Síðumúla 37 — 108 Reykjavík
Sími: 681333
Símfax: 681935
Útgefandi: Útgáfufélag Þjóðviljans.
Framkvæmdastjóri: Hallur Páll Jónsson.
Ritstjórar: Árni Bergmann, Helgi Guðmundsson
Óiafur H. Torfason.
Fréttastjóri: Sigurður Á. Friðþjófsson.
Aðrir blaðamenn: Bergdís Ellertsdóttir, Dagur
Þorleifsson, Elías Mar (pr.), G. Pétur Matthíasson,
Garðar Guðjónsson, Guömundur Rúnar Heiðarsson,
Heimir Már Pétursson, Hildur Finnsdóttir (pr.), Jim
Smart (Ijósm.), Kristinn Ingvarsson (Ijósm.), Ólafur
Gíslason, Sævar Guðbjörnsson.
Skrifstofustjóri: Sigrún Gunnarsdóttir.
Skrifstofa: Guðrún Geirsdóttir, Kristin Pétursdóttir.
Auglýsingastjóri: Steinar Harðarson.
Auglýsingar: Sigríður Sigurðardóttir, Svanheiður
Ingimundardóttir, Unnur Ágústsdóttir.
Afgreiðslustjóri: Hrefna Magnúsdóttir.
Afgreiösla: Bára Sigurðardóttir, Halla Pálsdóttir,
Þorgerður Sigurðardóttir, Þórunn Aradótir.
Bílstjóri: Jóna Sigurdórsdóttir.
Skrifstofa, afgrelösla, ritstjóm, auglýsingar:
Siðumúla 37, Rvlk.
Sími: 681333.
Símfax: 681935.
Auglýsingar: 681310, 681331.
Umbrot og setning: Prentsmiðja Þjóöviljans hf.
Prentun: Oddi hf.
Verö í lausasölu: 100 kr. Nýtt Helgarblað: 150 kr.
Askriftarverð á mánuði: 1100 kr.
4 SlÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 3. nóvember 1990