Þjóðviljinn - 03.11.1990, Blaðsíða 11
I Stundinni okkar, sem verður á dagskrá Sjónvarpsins
á sunnudag, munu þeir Galdri galdrakarl og Sveinki
lærisveinn hans setja saman púsluspil. Bitarnir í spil-
ið birtast hér í Þjóðviljanum.
Krakkar, þið getiö spreytt ykkur á að setja saman
púslið áður en Stundin okkar rennur upp. Þá kemur í
Ijós fallegt, íslenskt málverk og þrautin er að vita hver
málaði málverkið.
Þið svarið spurningunni: Eftir hvem er málverkið? og
sendið svörin merkt:
Stundin okkar
Sjónvarpið
Laugavegi 176,
105 Reykjavík.
Eftir tvær vikur verður dregið úr réttum lausnum í
Stundinni okkar og þeir þrír krakkar sem dregnir
verða út og hafa réttar lausnir, fara með Galdra á
safnið þar sem viðkomandi málverk er, og skoða það.
Heimsóknin í safnið verður mynduð og sýnd í Stund-
inni okkar.
Næsta málverk verður svo í Stundinni okkar 25. nóv.
Galdraspil stundarinnar okkar
Bein
útsending
Þýðandi: Guðbergur Bergsson.
Leikstjóri: Þórhallur Sigurðsson.
Leikendur: Jóhann Sigurðsson,
Tinna Gunnlaugsdóttir, Elva
Ósk, Þór Tulinius, Kristján
Franklín Magnús.
Hijóöritun: Vigfús Ingvarsson og
Georg Magnússon.
Eftir nær þijátíu ára hlé eru hafn-
ar beinar útsendingar í Ríkisút-
varpinu - hljóðvarpi á nýjan leik.
Aður fyrr voru leikrit alltaf flutt í
beinni. Það var ekki fyrr en á dög-
um segulbandsins upp úr 1959 að
það fór að tíðkast að hljóðrita
leikrit. Bein útsending hefur sið-
an tíðkast á ýmsu leiknu efni,
einkum skemmtiefhi margskonar
og misjöfnu. En nú á að gera
beina útsendingu að fostum lið
mánaðarlega í starfi Útvarpsleik-
hússins sem er útbreiddasta leik-
hús landsins.
Spenna
Meginkostur beinnar útsend-
ingar er hversu flytjandinn magn-
ast upp. Hann verður að taka á
öllu sínu, keyra á fullkominni ein-
beitingu. Hér er ekkert rúm fyrir
rólegheit í vinnslu þar sem ein og
ein setning er tekin í senn og öllu
skeytt saman eftir á. Ahrifahljóð-
in verða að vera tilbúin, hver
maður til á réttu augnabliki.
Listamennimir beggja megin
glersins í upptökusalnum era
staddir í háskanum miðjum. Þetta
leiðir til ákafari leiks, jafnvel
hömlulauss fyrst í stað, meðan
stéttin er að venjast slíkum vinnu-
aðferðum. Það er í raun fátt sem
getur farið úrskeiðis.Verst ef
menn tapa línu eða ruglast í röð
tilsvara. Hitt skiptir meira máli að
hér skírast menn í eldlínu, bein
útsending gerir þá hvata, skjóta i
viðbrögðum. Því getur slík vinna
orðið stéttinni til góðs. Hvesst
menn i hugsun og áræði.
Prfl
Leikritið á laugardag sem
verður endurflutt nú um helgina
var brasiliskt og fjallaði um fyrir-
bæri sem á sér stoð í veruleikan-
um. Innbrotsþjófúr er eltur af lög-
reglu. Hann leitar hælis í úthverfi
og fær heimsókn af konu sem
hann vill komast yfir. Hún segir
honum sögu af þrælauppreisn í
gamla daga sem leiddi til stofnun-
ar ffelsisvirkis. Við sefjun sög-
unnar fara bæði að trúa að leið-
togi þrælanna vitji þeirra. Þegar
svo lögreglan sækir að fylgsni
þeirra hefúr sagan kveikt eld í
bijóstum þeirra beggja sem ekki
verður slökktur.
Jóhann og Tinna léku parið
unga. Sem vitni að útsendingunni
verð ég að játa að ég er nokkuð
blindaður.af spennu þessa útsend-
ingartíma. Líkast til er gagnrýn-
endum hollara að hlusta á slíkar
útsendingar en að horfa á þær.
Ljóst er þó að þau hjúin gerðu
bæði sínu góð skil. Stúlkan er í
raun stráknum snjallari í flestu.
Hún hefúr sögulegan arf, er skyn-
ugri á hlutskipti þeirra til langs
tíma. Hann er aftur holdgervingur
hins sjálfdýrkandi karlmanns, hé-
gómlegur grobbari sem sér ekki
niður fyrir nefið á sér.
Prik
Þessi litla smámynd lukkaðist
þannig prýðilega. Leiklistardeild-
in er að færa sig talsvert upp á
skaftið undir stjóm Maríu Krist-
jánsdóttur. Suður-Ameríkuleikir
þeirra hafa verið ljómandi
skemmtun og spennandi tilbreyt-
ing í formhugsun og viðfangsefh-
um. I þessari viku fluttu þeir á ný
leikrit Úlfs Hjörvar með Þorsteini
Ö. Stephensen og Val Gíslasyni
til minningar um hinn síðar-
nefnda, þann heiðursmann. Nú
um helgina verður flutt bamaleik-
rit og einleikur eftir Peter Bames.
Þessi starfsemi á athygli leikhús-
unnenda skilið. pbb
Reykjavík
Hjúkrunarfræðingar
- hjúkrunarnemar
Okkur vantar hjúkrunarfræðinga / hjúkrunar-
nema á stakar vaktir, aðallega kvöld- og helg-
arvaktir á Heilsugæslu og hjúkrunardeildir.
Sjúkraliðar
Sjúkraliða vantar til starfa strax, en einnig 1.
des. vinnuhlutfall 100% eða minna.
Starfsstúlkur
Starfsstúlkur óskast strax til aðhlynningar í fullt
starf og til ræstinga kl. 8-15.
Athygli er vakin á að Hrafnista rekur barna-
heimili fyrir starfsfólk.
Upplýsingar veitir hjúkrunarforstjóri Ida Atla-
dóttir í síma 35262 og hjúkrunarframkvæmda-
stjóri Jónína Nielsen sími 689500.