Þjóðviljinn - 17.11.1990, Blaðsíða 8

Þjóðviljinn - 17.11.1990, Blaðsíða 8
FRETTIR Ragnar Stefánsson jarðskjálftafræðingur segir niöurstöðu skoðunar á tölfræðilegum gögnum um stóra skjálfta frá þvl um 1700 benda til að miklar líkur séu á jarðskjálfta 6 á Richter eða stærri á næstu 20 árum. Mynd: Jim Smart. Skammtíma- viðvaranir í undirbúningi Ragnar Stefánsson: Loma Prieta jarðskjálftinn í Kalíforníu af svipaðri stœrðargráðu og sá stærsti sem við getum búist við á Suðurlandi -Þess er ekki langt að bíða að reynt verður að gefa út viðvar- anir, eða spár, til fólks sem býr á Suðurlandi um líkur á jarð- skjálfta sem vaidið gæti skaða á næstu sóiarhringum. Við ákvörðum slíkt út frá ákveðnum merkjum: jarðskjálftahrinu sem hægt væri að túlka sem for- skjálfta, breytingar á land- og vatnshæð eða spennu í bergi o.fl. Ef við teljum breytingar og skjálfta hugsanlegan undanfara stærri skjálfta má nota upplýsing- amar til að gefa út viðvaranir. Þannig viðvaranir yrðu skamm- tímaviðvaranir, það væri spuming um skjálfla innan fárra sólahringa. Þetta er allt á undirbúningsstigi ennþá, en er líkleg þróun. Auðvit- að yrðu eingöngu gefnar út við- varanir ef einhveijar líkur væru á skjálfta sem mönnum stafaði hætta af, eða valdið gætið óþæg- indum. Slíkar viðvaranir hafa verið gefnar út í Kalífomíu nokkrum sinnum, engar þeirra hafa þó ræst. Þær hafa samt sem áður haft já- kvæð áhrif. Viðvaranimar ollu hvorki hræðslu né panik af því að líkumar á skjálfta voru ekki taldar nema fimm til tíu af hundraði. Þær höfðu aftur á móti þau áhrif að fólk gerði sér grein fyrir hættunni og gerði ráðstafanir til að mæta skjálftanum. Dyttaði að húsum og festi Iausamuni o.s.írv. Var skjálftinn í Kalífomíu af svipaðri stærðargráðu og þú sagð- ir á ráðstefnunni að við mættum eiga von á á Suðurlandi? -Hann var um 7 stig á Richt- erskvarða, og skjálftinn á Suður- landi gæti stærstur orðið 7,1 til 7,2 stig. Eyðileggingar urðu ekki svo miklar I Kalífomíu. Það var aðal- lega ein brú sem reyndist aðal- hættuvaldurinn. íbúar San Fransi- skó-borgar sluppu furðulega vel. Gæti þá eyðilegging í Suður- landsskjálfta orðið eitthvað svipuð þeirri sem varð í Kalífomíu? -Skemmdir og slys fara eftir því hversu þéttbýlir staðimir em, og þéttleika bygginga. En vel gæti verið að eyðilegging yrði eitthvað í þeim dúr og hún var þar. Vel gerð hús gætu orðið fyrir hnjaski, en hrynja ekki og valda ekki skemmdum þannig. Þú ræddir um mikilvægi þess að gerð yrði úttekt á þeim svæðum þar sem mest er hætta á skjálftum. Hvers vegna hefiir gengið svo treglega að fá hana í gegn? -Mjög mikilvægt er að svæðið verði skoðað með tilliti til bygg- inga þar sem fólk dvelst, hvort sem það em íbúðarhús eða vinnu- staðir. Kanna þarf hvar séu veikir hlekkir, og finna hugsanlegar slysagildmr. Eg held að við getum gengið út frá því að flest húsin skapi ekki mikla hættu. En oft hef- ur komið í ljós eftir stóra jarð- skjálfta á stöðum þar sem hús áttu að vera vel byggð, að einstaka þeirra reyndust mjög illa byggð og vom slysagildmr. Hefðu menn uppgötvað það áður en jarðskjálft- inn dundi yfir hefði verið hægt að koma í veg fyrir mikið tjón. Hvers vegna illa hefur gengið að fá stjómvöld til að gera slíka úttekt á mannvirkjum á Suðurlandi er mér ekki fullljóst. Þetta gæti að ein- hverju leyti verið spuming um peninga. Komi í ljós að mikið af húsum þarfhist Iagfæringa verður það auðvitað kostnaðarsamt. í erindi þínu á ráðstefnunni spáðir þú að Suðurlandsskjálftinn gæti riðið yfir árið 2040. Á hveiju byggirðu þá spá? -Horfi maður á sögulega at- burðarás þessa svæðis frá því um 1200, þótt hluti þessarar sögu sé mjög óljós, þá gæti hvarflað að manni að spenna á svæðinu í heild leystist út á 140 ára fresti. Ut- lausnartími spennunar gæti þó tek- ið marga áratugi, þótt stundum hafi bara liðið 10 til 15 ár eins og 1896- 1912. En það er mjög erfitt að spá fyrir um slíkt. Spenna leys- ist iíklega ekki úr læðingi í einum stómm skjálfta, heldur í mörgum og þá minni. Niðurstaða tölffæði- legrar skoðunar á sæmilegum gögnum sem við eigum um stóra jarðskjálfta frá því um 1700 benda til að miklar Iíkur séu á jarð- skjálfta 6 á Richter eða stærri á næstu 20 ámm. BE Suðurlandsskjálfti Veröum að læra að lifa við skrímslið Erum við viðbúin að takast á við afleiðingar Suðurlandsskjálfta? spurði Verkfrœðingafélag Islands nokkra sérfrœðinga á ráðstefnu, sem félagið hélt í vikunni Símasambandslaust, hitalaust, rafmagnslaust og hópar af skelfingu lostnu fólki fylla sjúkrahúsin. Mörg þúsund mjólkurkýr sem verður að finna húsaskjól fyrir og mann- skap til að mjólka. Brýr hættu- legar yfirferðar, og hús sem skapa hættu vegna skemmda. Verður þetta sá veruleiki sem blasir við Sunnlendingum eftir að „skjálftinn“ ríður yfir? Verkfræðingafélag Islands gekkst síðastliðinn miðvikudag fyrir ráðstefnu og spurði fróða menn: Erum við viðbúin að takast á við afleiðingar Suðurlands- skjálfta? Forðast fólk umræðu? Enn fara sögur af skjálftunum 1896 og 1912, og var það álit flestra fimdarmanna að íbúum Suðurlands væri ffemur illa við að ræða yfirvofandi vá. Ragnar Stefánsson jarðskjálflaffæðingur sagði að menn yrðu að hætta að hugsa um jarðskjálfta sem eitt- hvert skrímsli. Og Guðjón Peter- sen tók í sama streng og sagði að fólk yrði að læra að lifa við hætt- una, enda væri margt sem það gæti gert til vamar skjálftum. Talsmenn aðveitukerfa: síma, hita og rafmagns, sögðu frá því sem áunnist hefði í jarðskjálfta- vömum þessara veitukerfa á und- anfomum árum, og bentu á mögulega veikleika kerfanna. Þorvarður Jónsson ffam- kvæmdastjóri Pósts og síma sagði nokkuð víst að símasambands- laust yrði við svæðið vegna of- álags á línunum. Garðar Briem deildarstjóri bygginga Rafmagns- veitna ríkisins taldi rafmagn geta farið af um tíma, en ekki þyrfti að taka langan tíma að gera við skemmdimar. Hins vegar skipti máli að samgönguleiðir lokuðust ekki, svo unnt væri að nálgast varahluti og annað sem þyrfti til viðgerðanna. Einnig kom fram í erindi Garðars að ekki em til varaaflstöðvar á Suðurlandi. Steingrímur Ingvarsson, umdæm- isverkfræðingur Vegagerðar rík- isins á Suðurlandi, virtist nokkuð ömggur um að hægt væri að gera við vegaskemmdir fljótlega eftir skjálftann. Mikilvægt er að halda vegum opnum, vegna þess að á Suðurlandi er einungis höfn í Þor- lákshöfn. Á Suðurlandi em brýr mikilvægar samgönguleiðir, því yfir nokkur stórfljót er að fara. Fyrir nokkrum ámm var gerð út- tekt á helstu brúm á svæðinu í samvinnu við Háskóla Islands. Ölfusárbrú mun geta staðist stóra skjálfta, og er ólíklegt talið að burðarstólpar hennar verði fyrir hnjaski. Má búast við einhveiju tjóni á brúnni yfir Ytri-Rangá, en hún gæti samt sem áður staðist töluverðan skjálfta. Ennffemur töldu sérffæðingar að brúin yfir Þjórsá stæði af sér jarðskjálfta, þótt hún yrði fyrir einhveijum skemmdum. Eggert Vigfússon fram- kvæmdastjóri Almannavama- nefndar Selfoss og nágrennis sagði lítið gagn af almannavama- nefndum Amessýslu, þær væm fimm talsins og starfaði einungis ein þeirra markvisst. Hann vai einnig svartsýnn á vilja almenn- ings til að horfast í augu við Suð- urlandsskjálftann. Fólk vill ekki lesa leiðbeiningar um það hvemig bregðast eigi við, hvort sem það em bæklingar frá almannavöm- um eða síða 900 í símaskránni. Þrátt fyrir ffæðslu yfirvalda halda menn áfram að stilla sultukmkk- um upp I efstu hillu í geymslunni, sagði Eggert. Flestir vom sam- mála um að mikið vantaði á að al- menningur væri undir skjálftann búinn. Jafnvel virtist umræða um hann vera feimnismál. Stæðíst heilbrigðiskerfið? Enginn fundarmanna nefndi nokkrar áætlanir um það hversu margir gætu slasast eða týnt lífi í öflugum jarðskjálfta. Magnús Bjamason kastaði ffam þeirri spumingu í umræðum að erind- unum loknum. Guðjón Petersen gerði tilraun til að svara fyrir- spuminni, og sagði m.a. að erfitt væri að gera spár um slíkt. Færi það eftir því á hvaða tíma dags skjálftinn yrði, á hvaða árstíma, hvort hann yrði á virkum degi eða um helgi o.s.ffv. Hann benti þó á, að ef gert væri ráð fyrir að 0,25 af hundraði íbúa I Holtum létust, væm það 13 dauðsfoll, og slösuð- ust um 5 af hundraði þýddi það að 270 manns þyrftu á læknishjálp að halda, og óttaðist Guðjón að það stæði í heilbrigðiskerfinu; jafnvel yrði erfitt að sinna um 200 slösuðum. Eftir skjálfta mætti bú- ast við miklum straumi lítið slas- aðra manna á sjúkrastofhanir. Þeir sem væm virkilega slasaðir kæmu síðar, því þeir væm líklega fastir. Aðstreymi illra slasaðra yrði því hægt. En menn hefðu ekki þorað að leggja fram neinar tölur um dauðsföll í þessu sambandi. Niðurstaða skýrslu vinnuhóps sem skipaður var af Almanna- vömum ríkisins árið 1976 var sú að veikustu hlekkimir í vömum gegn jarðskjálftum á Suðurlandi væm þeir að ekkert opinbert eftir- lit væri með byggingarffam- kvæmdum á svæðinu, og að skipulag byggðar miðaðist ekki við jarðskjálftahættu. Fram kom í máli manna á ráðstefnu verkffæð- inga að þessir hlekkir væm enn veikir. Ekki hefur verið gerð út- tekt á mannvirkjum á svæðinu nema að litlu leyti, og þótt ný- byggingar taki mið af hættunni hefur ekki verið gerð kortlagnin'g af hættusvæðum. Skipulag byggðar í landinu miðast lítt við það hvar megi helst búast við snörpum skjálftum. Nauðsyn á kerfisbundinni rannsókn á öllum mannvirkjum á svæðinu er því brýn. Niðurstaða ráðstefnunnar var í stuttu máli sú að margt hefði áunnist I styrkingum vama gegn Suðurlandsskjálfta, en mest hefði verið gert til að styrkja veitukerfi og samgöngur. Enn virðist þó langt í land með það að menn geta svarað spumingu ráðstefhunnar á þá leið að við séum viðbúin að taka afleiðingum skjálftans. Sveinbjöm Bjömsson kvað sér hljóðs að erindunum loknum og sagði að sér þætti þegar nokkuð hafa áunnist með því að menn viðurkenndu nú að við lifum á jarðskjálftalandi, en það heföi ekki verið gert fyrir 20 ámm. BE Ölfusárbrúin ætti að standast snarpan skjálfta á Suðuriandi, og svo er einnig um mikilvægustu brýmar á svæðinu. Hins vegar liggur óvissan í því hversu mörg mannvirki hafa alls ekki verið rannsökuð með tilliti til jarð- skjálftaþols þeirra á svæðum þar sem hætta er á að miklir skjálftar ríði yfir. Mynd: Kristinn. Cypress Street brúin I Oakland var alvarlegasta hrun brúarmann- virkis I Loma Prieta jarðskjálftan- um í Kalffomíu (fyrra. Brúin var hönnuð og byggð á sjötta ára- tugnum. Þær brýr sem skemmd- ust (skjálftanum voru þó flestar byggðar eftir svonefndum göml- um aöferöum. Hérlendis hefur verið gerð úttekt á jaröskjálftaör- yggi brúa á Suðurlandi, og gerðar styrkingar á eldri brúm. Víða pottur brotinn Guðjón Petersen framkvæmda- stjóri Almannavarna ríkisins var einn þeirra sem hélt erindi á ráðstefnunni. Á ráðstefnunni kom fram að menn virtust nokkuð bjartsýnir á að aðveitukerfi stæðust jarð- skjálfta að miklu leyti, erum við tilbúin að mœta þeirri vá sem næsti Suðurlandsskjálfti er? -Að mínu mati er niðurstaða ráðstefhunnar sú að stofnanir þær sem reka stóru kerfin, rafmagn, hita, síma og vegakerfi, væru bet- ur í stakk búnar en menn þorðu að vona. Þessar stofnanir hafa unnið markvisst að því undanfarin ár að eyða veikleikum kerfanna, styrkja gömul hús og tæki, og allar ný- smíðar á svæðinu taka mið af hættunni. Vandamálið er að al- Guðjón Petersen framkvæmdar- stjóri Almannavarna ríkisins segir mikið hafa áunnist ( jarðskjálfta- vörnum á Suðurlandi eftir útkomu skýrslu Almannavarna um ástand mála árið 1978. Enn er þó vlða pottur brotinn. Mynd: Jim Smart. Almenningur og atvinnufyrirtæki illa undir Suðurlandsskjálfta búin menningur er illa viðbúinn, og svo er einnig um atvinnufyrirtæki á svæðinu, önnur en þau sem nefhd hafa verið. Það kom fram í máli Eggerts Vigfússonar framkvœmdastjóra Almannavarnanefndar Selfoss og nágrennis að Sunnlendingar kærðu sig einfaldlega ekki um að leiða hugann að þeirri vá sem gæti staðið fyrir dyrum. Telurþú afleiðingar jarðskjálfta vera feimnismál á Suðurlandi? -Mér hefur fundist almenn- ingsálitið vera að breytast. Al- menningur vill vita meira nú, hann er að gera sér grein fyrir að hægt er að lifa við þessa hættu, og vera viðbúinn henni. Hins vegar verður því ekki neitað að reynsla okkar sem að þessum málum starfa af yfirvöldum gegnum árin sýnir að þeim er mjög illa við að hættur af þessu tæi séu ræddar, hvort sem það er hætta á jarð- skjálfta, eldgosi eða snjóflóði. Yf- irvöld á slíkum svæðum óttast að það fæli fólk ffá búsetu og fjár- festingum í atvinnulífi staðarins. Svona er þetta víða, og alþekkt út um heim þar sem hætta getur staf- að af náttúruhamförum. Yfirvöld virðast kjósa að stinga hausnum í sandinn. Mikilvægt er að fólk reyni að lifa í sátt við umhverfi sitt, og þær hættur sem þar gætu leynst. Sé á varðbergi og viðbúið að bregðast við mögulegri vá, en reyni ekki að fiýja hana. Hefur verið gerð úttekt á byggingum á Suðurlandi með tilliti til jarðskjálftaþols þeirra? -Mikilvægt er að gera úttekt á jarðskjálftaþoli bygginga, en erf- itt er að fá peninga hjá stjómvöld- um til úttektar af því tæi sem nauðsynleg er, en hún er mjög kostnaðarsöm. Opinberar byggingar á svæð- inu hafa verið kannaðar, t.d. allir skólar á Selfossi, en við vitum ekkert um gamalt atvinnuhús- næði, sem var byggt fyrir 1978. Landbúnaður er mikill á Suður- landi, og enn hefur ekki verið gerð úttekt á útihúsum á svæðinu. Verði upptök skjálflans í Holtum og Hreppum þyrftum við mögu- lega að horfast í augu við það vandamál hvemig hýsa ætti og mjólka um 7000 mjólkurkýr. Við vitum ekkert um ástand útihúsa, og er það alvarlegt mál. Einnig mætti nefna að stór hluti Hvols- vallar, Hellu og Selfoss byggðist upp eftir 1950. Húsbyggingar ffá 6. og 7. áratugnum eru oft byggð- ar af miklum vanefnum af eigend- um húsanna. Byggingameistari hefur verið fenginn til að skrifa upp á, en síðan byggja menn sjálf- ir og fuska. Þannig hefur verið staðið að húsasmíðum hér á landi lengi, og tíðkast jafnvel enn. Ekki er auðvelt að leysa þetta vandamál. Rætt hefur verið að op- inberir aðilar fæm og mætu þol húsanna, en hver vill bera ábyrgð á því að gera fjölskyldu eigna- lausa með því að segja heimili hennar ekki geta staðist Suður- landsskjálfta? Best væri að menn létu sjálfir sérffæðinga meta hús sín, og hvemig þeim beri að styrkja þau svo þau standist jarð- skjálfta. Við hvöttum menn til þessa í bæklingi sem við dreifö- um á Suðurlandi með leiðbeining- um fyrir almenningi varðandi jarðskjálftavamir. Einnig er mjög mikilvægt að fólk hugi að lausa- munum, bæði á heimilum og í fyrirtækjum, sem gætu hrunið og valdið tjóni og slysum í skjálfta. Helstu veikleikamir á Suður- landi, fyrir utan þá sem ég hef þegar minnst á, er hitaveitukerfið. Leiðslumar eru úr asbest, og þær myndu allar fara. Það gerðist með kaldavatnsleiðslumar á Kópa- skeri í skjálftanum 1976. Verði skjálftar að vetri til verður því að fjarlægja fólk sem fyrst af skjálftasvæðum þótt skemmdir verði óvemlegar. Einnig yrði nauðsynlegt að tappa af hitaveitu- kerfum húsanna, ella skemmdust þau af ffosti. Þannig að hvað gæti leitt af öðra. BE 8 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 17. nóvember 1990 Laugardagur 17. nóvember 1990 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 9

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.